Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 69

Morgunblaðið - 30.01.2020, Page 69
MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2020 áhrif á listsköpun þeirra með ábend- ingum á tölvuskjá. Útgáfan er aðeins aðgengileg á vínyl og fer ekki á streymisveitur, að því er fram kemur í tilkynningu til fjölmiðla. Meðal þess sem Eno, Anderson og Oke notuðu Brian Eno og Laurie Anderson hafa sent frá sér plötu sem þau unnu að með bandaríska tónlistarmanninum Ebe Oke og nefnist Dokument #2. Útgáfufyrirtæki plötunnar er danskt, Kjelfred & Lentz, og er hún aðeins gefin út á vínyl í takmörkuðu upplagi, 500 tölusettum eintökum. Eno og Anderson þarf vart að kynna fyrir tónlistaráhugamönnum, bæði goðsagnir í bransanum fyrir sína framúrstefnulegu tónlist en Oke er minna þekktur dans- og raftón- listarmaður. Eno og Anderson hafa ekki unnið saman áður og Oke með hvorugu þeirra. Þau hittust í Kaup- mannahöfn í nóvember 2016 og unnu þar saman í fimm daga. Útkoman varð tíu klukkustundir af mjög til- raunakenndu tónlistarefni og ellefu lög voru valin þar úr og sett á vínyl- inn. Upptökurnar voru liður í lista- verkefni sem nefnist Dokument #2 og fólst m.a. í því að listamennirnir fluttu erindi og gátu gestir aðal- bókasafns Kaupmannahafnar haft við tónlistarsköpunina voru gúmmí- hamrar, pappír og gúmmíteygjur. Eintök af plötunni eru til sölu í völd- um plötubúðum í Kaupmannahöfn, í Moby Dick í Óðinsvéum og Rough Trade í London. helgisnaer@mbl.is Þríeyki Oke, Anderson og Eno sneru bökum saman og afraksturinn mun vera magnaður hljóðheimur. Dæmi um hann má heyra á YouTube. Samstarfsverkefni Eno, Anderson og Oke gefið út á vínilplötu Ljósmynd/Maiken Kildegård Bandarísk samtök búningahönnuða fyrir kvikmyndir og sjónvarpsefni, Costume Designers Guild, héldu sína árlegu verðlaunahátíð í fyrrakvöld og hlutu búningahönnuðir Knives Out, Jojo Rabbit og Maleficent: Mistr- ess of Evil verðlaunin í flokki kvik- mynda. Athygli vakti að sjö af átta verðlaunahöfum kvöldsins eru konur. Mayes C. Rubeo, sem hannaði búninga Jojo Rabbit, þykir nú enn líklegri til að fá Óskarsverðlaun í næsta mánuði fyrir bestu bún- ingahönnun. Í sjónvarpsflokki hlutu verðlaun Donna Zakowska fyrir þættina The Marvelous Mrs. Maisel, Debra Han- son fyrir Pop’s Schitt og Michele Clapton fyrir Game of Thrones. Líkt og með kvikmyndir eru verðlaunin veitt fyrir ólíkar gerðir þáttaraða. Leikkonan Charlize Theron hlaut heiðursverðlaun fyrir listrænt framlag sitt og viðurkenningu á þætti búningahönnunar í kvikmyndum. Sjö af átta verðlaunahöfum konur Heiðursverðlaun Charlize Theron á verð- launahátíð CDGA í fyrrakvöld. Kvikmynd leikstjórans Romans Polanskis, J’accuse eða Ég ákæri, sem gagnrýnd er í blaðinu í dag hér til hliðar, hlýtur flestar tilnefningar til César-verðlaunanna frönsku eða tólf alls. Næstflestar hlýtur kvik- mynd leikstjórans Ladj Ly, Les Mis- érables eða Vesalingarnir. Kvikmynd Polanskis hlýtur m.a. tilnefningar fyrir bestu kvikmynd, leikstjóra, leikara í aðalhlutverki (Jean Dujardin), handrit byggt á áður útgefnu efni, klippingu, kvik- myndatöku, búningahönnun og frumsamda tónlist. Kvikmyndin hlaut silfurverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrra þar sem hún var heims- frumsýnd. Formaður frönsku kvik- myndaakademíunnar, Alain Terzi- an, hefur látið þau ummæli falla að akademían taki ekki siðferðislega afstöðu í tilnefningum sínum og vís- ar til þess að Polanski nauðgaði 13 ára stúlku í Bandaríkjunum árið 1977 og vilja Bandaríkjamenn fá hann framseldan. Umdeildur Leikstjórinn Roman Polanski. J’accuse tilnefnd til 12 César-verðlauna Myndlýsta skáldsagan Langelstur að eilífu eftir Bergrúnu Írisi Sæv- arsdóttur, sem Bókabeitan gefur út, var í gær tilnefnd til Barna- og ung- lingabókmenntaverðlauna Vestnor- ræna ráðsins 2020 sem framlag Íslands. Svo skemmtilega vill til að bókin hlaut í fyrradag Íslensku bók- menntaverðlaunin 2019. Landsdómnefndir Barna- og ung- lingabókmenntaverðlauna Vestnor- ræna ráðsins tilnefndu einnig mynd- lýstu skáld- sögurnar Orpilissat nun- arsuarmi kus- anarnersaat (sem þýða mætti sem Fallegasta jóla- tréð í heiminum) eftir Juaaka Ly- berth, sem Milik út, sem framlag Grænlands og Loftar tú mær? (sem þýða mætti sem Grípur þú mig?) eftir Rakel Helmsdal, sem Bókadeild Føroya Lærarafelags gefur út, sem framlag Færeyja. Tilkynnt verður um sig- urverkið 2020 á bókmenntahátíðinni Bókadagar sem haldin verður í Nor- ræna húsinu í Þórshöfn í Færeyjum í nóvember. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár fyrir vestnorrænt bókmenntaverk ætlað börnum og ungu fólki. Bergrún Íris Sævarsdóttir Bergrún Íris tilnefnd fyrir hönd Íslands Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur Við tökum vel á móti herðatrjám og endurnýtum STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Ert þú með allt á hreinu 2020?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.