Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3 1. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 26. tölublað 108. árgangur
ÆTLAR AÐ
LANDA BIKAR
UM HELGINA
TJALDIÐ
FELLUR Í
PARADÍS
NÝTUR
LÍFSINS Á
ÞINGVÖLLUM
ÓVISSUTÍMAR 28 ÚTIVIST 16 SÍÐURELVAR MÁR Í SVÍÞJÓÐ 27
Sumir starfsmanna Isavia og þjónustufyrirtækja í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar nota nú andlitsgrímur og gúmmíhanska við
afgreiðslu flugfarþega vegna hættu á smiti kórónaveirunnar.
Dæmi er um slíkt við innritun farþega, eins og sést á mynd-
inni sem tekin var í gær, og í verslunum og á veitingastöðum.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að heil-
brigðisyfirvöld hafi útvegað grímur og annan búnað en
starfsfólki sé í sjálfsvald sett hvort það telji þörf á eða vilji
nota þennan búnað. Sama eigi við um þjónustu- og rekstrar-
aðila í flugstöðinni.
Fulltrúar frá landlækni héldu í fyrradag upplýsingafund
með starfsfólki í flugstöðinni. »2 og 13
Afgreiðslufólk í Leifsstöð notar andlitsgrímur
Ljósmynd/Páll Ketilsson
NEYÐARÁSTANDI LÝST
YFIR Á HEIMSVÍSU
Brunabótamat fasteigna hér á
landi hefur hækkað um tæpa þrjá
milljarða frá því í árslok 2015. Það
fór yfir 10 þúsund milljarða núna í
janúar, að því er fram kemur á vef
Þjóðskrár.
Í lok árs 2015 nam brunabótamat
allra fasteigna hér á landi rúmlega
sjö þúsund milljörðum króna. »6
Brunabótamat yfir
10 þúsund milljarða
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Drög að frumvarpi um breytingu á
fjölmiðlalögum gera m.a. kröfu um
að minnst 30% af efni í fjölmiðlaveit-
um sem miðla myndefni eftir pöntun
sé evrópskt. Magnús Ragnarsson,
framkvæmdastjóri hjá Símanum,
sem rekur mjög stóra efnisleigu,
sagði að enn sem komið er næði
fyrirtækið ekki þessu lágmarki.
„Við erum að efla okkur í þessu og
að búa okkur undir þessa lagabreyt-
ingu,“ sagði Magnús. Hann sagði að
væri erlent efni talsett eða lýsing ís-
lensks þular fylgdi beinni útsend-
ingu að utan teldist efnið vera inn-
lent og því evrópskt. Texta verður
annað erlent efni en það gerir það
ekki íslenskt.
Hann taldi að krafan um 30% lág-
mark yrði ekki vandamál. Auðveld-
ara væri að verða við henni í veit-
unum en í línulegri dagskrá. Síminn
gæti t.d. boðið upp á allt efni Skjás
eins, sem er 20.000 klukkustundir,
og uppfyllt skilyrðið. Magnús sagði
að íslenskt efni myndi aðgreina ís-
lenskar efnisveitur frá útlendum í
framtíðinni. Síminn er nú að fram-
leiða tvær leiknar íslenskar þátta-
raðir.
Hann sagði þetta vera enn eina
löggjöfina sem skekkti samkeppnis-
stöðu íslenskra miðla gagnvart er-
lendum. Von væri á stórum efnis-
veitum hingað á árinu sem sýndu
eingöngu bandarískt efni. Þær
þyrftu ekki að fara að íslenskum lög-
um vegna þess að útsendingin væri
ekki upprunnin hér á landi. Annað
dæmi er bann við áfengisauglýsing-
um hér á landi.
Skekkir samkeppnis-
stöðu íslenskra miðla
Kvaðir settar á íslenskar sjónvarpsveitur en ekki erlendar
MEvrópskt efni í leigum … »14
Tæknibreytingar gera fyrir-
tækjum nú hægara um vik að
miðla afþreyingarefni beint í
snjalltæki notenda í stað þess
að fara í gegnum myndlykla-
kerfi sjónvarpsstöðva. Framboð
á erlendu efni mun aukast eftir
þessum leiðum, til að mynda
með opnun Viaplay hér á landi.
Íslensk fjarskiptafyrirtæki boða
sömuleiðis nýjar útfærslur á
efnismiðlun í ár. Þá verður
framleiðsla á íslensku efni
aukin. »12
Framboð
eykst í ár
STREYMISVEITUR
Fyrsta rann-
sóknar- eða
veiðiskipið fer til
loðnumælinga
um helgina og
tvö önnur fljót-
lega. Er það
nokkrum dögum
fyrr en áætlað
hafði verið. Var
þetta ákveðið á
fundi fulltrúa
Hafró og útgerðar í gær. Í upphafi
verður mesta áherslan lögð á að
kanna loðnugöngur við Suðaustur-
land enda hafa borist tilkynningar
frá togurum um loðnu fyrir austan
land. »4
Fyrsta leitarskipið
af stað um helgina
Loðna Ekki fannst
næg loðna í janúar.
Forstjóri Boeing hefur skipað hönn-
uðum fyrirtækisins að skoða frá
grunni hugmyndir um nýja milli-
stóra vél sem lengi hefur verið rætt
um að sé í burðarliðnum. Árið 2015
voru uppi áform um að hefja hönnun
og smíði á nýrri vél sem myndi leysa
af hólmi Boeing 757 og 767 vélar á
borð við þær sem floti Icelandair
samanstendur af. Margt bendir til
að Boeing hafi misst af lestinni þar
sem nú eru aðeins þrjú ár í að Air-
bus afhendi fyrstu A321XLR-vélina
sem fyllir skarðið sem 797-vélin átti
að fylla. Icelandair segir að óvissan
með síðastnefndu vélina hafi engin
áhrif á flotaáform félagsins. »10
Morgunblaðið/RAX
Risi Boeing leitar leiða til styrkja
stöðu sína í samkeppni við Airbus.
Allt á huldu
um nýja vél
Boeing skoðar 797