Morgunblaðið - 31.01.2020, Qupperneq 13
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Hart er nú tekist á í sölum öldunga-
deildar Bandaríkjaþings um hvort
kalla eigi til vitni í málaferlum full-
trúadeildarinnar til embættissvipt-
ingar á hendur Donald Trump
Bandaríkjaforseta.
Styrinn stendur einkum um hvort
knýja beri John Bolton, fyrrverandi
þjóðaröryggisráðgjafa Trumps, til
þess að bera vitni fyrir öldungadeild-
inni, en að minnsta kosti þrír þing-
menn repúblikana hafa lýst yfir vilja
til þess að heyra hvað hann hefur
fram að færa um sakargiftirnar á
hendur forsetanum.
Hvíta húsið og lögfræðingateymi
Trumps hafa reynt að koma í veg
fyrir að Bolton beri vitni, en þjóðar-
öryggisráð Bandaríkjanna hefur
ályktað að stór hluti fyrirhugaðrar
bókar Boltons, „The Room Where It
Happened“, innihaldi leyndarmál „af
hæstu gráðu“ sem varði þjóðar-
öryggi Bandaríkjanna og því megi
hún ekki koma út í núverandi mynd.
Charles Cooper, lögfræðingur
Boltons, hefur hafnað ályktun ráðs-
ins og segir að ekkert sem fram komi
í handriti bókarinnar gæti talist
leynilegt, en völdum köflum úr hand-
ritinu var lekið í fjölmiðla vestanhafs
um síðustu helgi.
Veit öll leyndarmálin
Þar kom meðal annars fram að
Bolton segir Trump hafa sagt við sig
að hann vildi halda eftir hernaðar-
aðstoð til Úkraínumanna til þess að
þrýsta á um rannsókn á spillingar-
málum sem gætu komið sér illa fyrir
Joe Biden, fyrrverandi varaforseta,
sem nú tekur þátt í forvali demó-
krataflokksins fyrir forsetakosning-
arnar í nóvember næstkomandi.
Demókratar segja að eigi þessi frá-
sögn við rök að styðjast sé ljóst að
Trump hafi misbeitt valdi sínu til
þess að reyna að tryggja sér endur-
kjör með bellibrögðum.
Vilja ekki að Bolton beri vitni
Bók Boltons sögð geyma „leyndarmál
af hæstu gráðu“ Óvíst hvort meirihluti
repúblikana heldur í atkvæðagreiðslunum
Lögfræðingateymi Trumps gaf til
kynna í fyrrinótt að Hvíta húsið
myndi höfða mál til þess að koma í
veg fyrir að Bolton bæri vitni, þar
sem vitnisburður hans gæti snert
þjóðaröryggi. „Hann veit öll
leyndarmál þjóðarinnar,“ sagði Pat-
rick Philbin, einn af lögfræðingum
Trumps í málinu. Sagði Philbin að
slíkur málarekstur gæti tekið marga
mánuði og þar með lamað störf öld-
ungadeildarinnar í allan þann tíma.
Öldungadeildin hyggst greiða at-
kvæði um vitnaleiðslur í kvöld en
einfaldan meirihluta þingmanna þarf
til þess að af þeim verði. Óvíst er
hvort meirihluti repúblíkana, sem nú
hafa 53 þingmenn af 100, muni halda
eftir lekann úr handriti Boltons um
síðustu helgi.
Takist Mitch McConnell, leiðtoga
repúblikana, hins vegar að halda
uppi flokksaga í sínum herbúðum er
talið líklegt að hann muni kalla eftir
því að forsetinn verði sýknaður eða
málinu vísað frá strax í næstu viku.
AFP
Washington Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana, mætir til fundar í öld-
ungadeildinni en hart er tekist á um hvort kalla eigi vitni fyrir deildina.
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, tilkynnti í gær eftir
fund neyðarnefndar stofnunarinnar að lýst yrði yfir
neyðarástandi á heimsvísu vegna kórónaveirunnar.
Um miðjan dag í gær hafði höfðu verið skráð um 7.711
sjúkdómstilfelli í Kína, flest í eða nálægt borginni Wuh-
an, og 170 dauðsföll af völdum veirunnar. Þar af létust 38
sólarhringinn á undan. Einnig voru staðfest um 100 til-
felli í yfir 15 öðrum löndum.
Rússar tilkynntu í gær að landamærum ríkisins og
Kína yrði lokað í dag og hætt yrði að gefa út rafrænar
vegabréfsáritanir til kínverskra ríkisborgara til að reyna
að koma í veg fyrir að kórónaveiran bærist til Rússlands.
Fleiri ríki sem eiga landamæri að Kína þar á meðal
Mongólía og Kasakstan, hafa gripið til svipaðra aðgerða.
Þá hafa flugfélög, meðal annars British Airways, Luft-
hansa, Finnair og SAS, hætt tímabundið beinu flugi til
Kína.
Vísindamenn lyfjafyrirtækisins Inovio í San Diego í
Bandaríkjunum vinna nú að gerð bóluefnis gegn veirunni
með nýrri genatækni. Er áformað að hefja tilraunir á
mönnum snemmsumars og hugsanlega yrði hægt að
bólusetja gegn veirunni í stórum stíl undir lok ársins.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tilkynnti í gær að þar á bæ
væri fylgst grannt með áhrifum faraldursins á efnahags-
líf heimsins.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri
WHO, sagði eftir neyðarfundinn í gær að stofnunin hefði
mestar áhyggjur af því að sjúkdómurinn ætti eftir að
berast til ríkja þar sem heilbrigðiskerfi væru veikburða.
Þá sagði hann að WHO teldi enga ástæðu til þess að
setja hömlur á ferðalög til Kína eða viðskipti við landið
vegna kórónaveirunnar, en nokkur flugfélög hafa lýst því
yfir að þau hafi aflýst flugferðum til Kína. „Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin mælir ekki með, og leggst í raun gegn,
hömlum,“ sagði Ghebreyesus á blaðamannafundi í Genf í
Sviss í gær. gummi@mbl.is
Neyðarástandi lýst
yfir á heimsvísu
Rússland og fleiri ríki loka landamærum sínum að Kína Inflúensu
Ebólu
Bólusótt
Lömunarveiki
Hundaæði
HIV
Veirur hafa valdið nokkrum
mannskæðustu sjúkdómum
mannkynssögunnar
Þær geta lifað sníkjulífi á öllum
lífsformum, svo sem dýrum,
jurtum, sveppum og sóttkveikjum
Ákveðnar veirur eru háðar
ákveðnum hýslum
Á síðustu fimmárumhefur
fjöldi veirutegunda semgreinst hafa
aukist 20-falt
Meðal útbreiddustu lífsforma á jörðinni en samt er minna vitað um þær
en annað lífsform
Á sama tíma virðst þær gegna
mikilvægu hlutverki í
þróun og uppruna lífsins
Þá gætu þær lagt lið í baráttu
við ofurbakteríur sem eru
ónæmar gegn sýklalyfjum
Þær geta nýtt sér frumur
hýslanna til að
fjölga sér
Þær geta ekki fjölgað
sér utan hýsla
Vísindamenn eru ekki sammála
um hvort þær séu lifandi
Veirur finnast alls staðar
á jörðinni
Handan góðs eða ills?Veirur eru örsmáar -minni en
bakteríur
Eðli veira
Heimild: New Scientist/Science Direct/ncbi.nlm.nih.gov/news-medical.net
Þar á meðal
Sænsku þingmennirnir Jens Holm
og Hakan Svenneling lýstu því yfir í
gær að þeir hefðu tilnefnt um-
hverfissinnann Gretu Thunberg og
hreyfingu hennar til friðarverð-
launa Nóbels í ár.
Þingmennirnir, sem báðir koma
úr sænska Vinstriflokknum, sögðu í
bréfi sínu til norsku Nóbelsverð-
launanefndarinnar að þrátt fyrir
ungan aldur hefði Thunberg lagt
hart að sér til að opna augu stjórn-
málamanna fyrir vánni í loftslags-
málum.
Thunberg, sem tilkynnti í gær að
hún hefði sótt um einkaleyfi á nafni
sínu og mótmælahreyfingarinnar
„Fridays for Future“, eða föstudag-
ar til framtíðar, var einnig nefnd
sem mögulegur verðlaunahafi í
fyrra, en Abiy Ahmed Ali, forsætis-
ráðherra Eþíópíu, fékk þau fyrir að
stilla til friðar í deilum Eþíópíu og
Erítreu.
Tilnefningar til friðarverðlauna
Nóbels verða að hafa borist fyrir 1.
febrúar og hafa fjölmargir heimild
til þess að veita útnefningu sína,
þar á meðal fyrri verðlaunahafar,
útvaldir háskólaprófessorar, þing-
menn og ráðherrar og sjálfir með-
limir verðlaunanefndarinnar.
AFP
Tilnefnd Thunberg (fyrir miðju) hefur vakið athygli með mótmælum sínum.
Thunberg tilnefnd
til friðarverðlauna
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS