Morgunblaðið - 31.01.2020, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ídag gangaBretar út úrESB. Það er
síðbúin frétt.
Þjóðin ákvað þetta
með afgerandi
hætti í þjóðar-
atkvæði 23. júní
2016 og hefur svikahröppum því
tekist að draga lappirnar í
nærri fjögur ár!
Afgerandi? – gæti einhver
spurt. Var ekki niðurstaðan
samþykkt með aðeins 52% gegn
48%? Mikið rétt. Og þegar
glöggt er skoðað var sú niður-
staða mjög afgerandi.
Forysta Íhaldsflokksins lagð-
ist eindregið gegn málinu í
kosningabaráttunni og munaði
um hennar vél. Meirihluti for-
ystu Verkamannaflokksins var
þar, þótt leiðtoginn Corbyn
væri tvístígandi, enda lengi tal-
inn brexit-maður í hjarta sínu.
Frjálslyndi flokkurinn var heill
og ákafur gegn útgöngu úr
ESB. Skoski þjóðarflokkurinn
var enn harðari. Eini flokkurinn
sem kvað að með útgöngu átti
engan mann á þingi! Þetta var
því barátta almennings gagn-
vart elítunni sem tapað hafði
áttum.
Obama, forseti Bandaríkj-
anna, var fenginn til að koma við
í Lundúnum og sagði þar við
„sína mikilvægustu bandalags-
þjóð“ að samþykktu Bretar út-
göngu úr ESB og þyrftu því sér-
stakan viðskiptasamning við
Bandaríkin yrðu þeir settir aft-
ast í röð þjóða sem óskuðu eftir
slíku! Slík hótun var með mikl-
um ólíkindum. Gestgjafinn,
David Cameron, gerði enga at-
hugasemd við svo fjandsamlega
og fordæmalausa árás. Enda
hefur síðar verið staðfest að for-
sætisráðherrann pantaði sjálfur
þessa hótun forsetans.
Talið var að King, seðla-
bankastjóri Bretlands, hefði
ekki mikla trú á því að hægt
væri að leggja fræðilegan grunn
að þeim miklu hrakspám sem
„kerfinu“ var nú ætlað að þyrla
upp um hina bresku útgáfu af
heimsendi, sem fylgdi hugsan-
legri útgöngu. Osborne fjár-
málaráðherra handvaldi fyrir
Cameron kanadískan banka-
stjóra til að taka við af King og
spilaði sá með í hræðsluáróðri
allra þeirra samtaka og stofn-
ana sem hafa svo oft sýnt að
þær bregðast aldrei vondum
málstað.
Allar spár Englandsbanka
um áhrif þess að þjóðin hlypi á
sig á kjörstað eru nú í hrúgu
sem óboðlegt drasl. Gengi
pundsins myndi hrynja með
hræðilegum afleiðingum fyrir
dýrtíð í landinu. Og það gerðist
vissulega í fáeinar klukkustund-
ir um morguninn sem úrslitin
lágu fyrir. Fáeinum klukkutím-
um síðar var það komið í samt
lag og smávægileg varanlegri
veiking pundsins varð efna-
hagnum hagstæð.
Nær allar þær hag-
tölur sem fjúka áttu
fjandans til kysi
þjóðin vitlaust
segja nú sömu
sögu. Ekki vantaði
upp á að pótintátar
ESB létu sinn hræðsluáróður
dynja og honum fylgdu iðulega
hótanir um heimatilbúna erfið-
leika og steina í götu. Margt var
spegilmynd af því sem menn
létu hafa sig í hér á landi í átök-
um um Icesave.
BBC, sem þó er eins og hvít-
þveginn engill hvað lögboðna
óhlutdrægni varðar miðað við
ósköpin sem Íslendingar mega
þola, gekk þó eins langt og það
þorði í hlutdrægni sinni í að-
draganda þjóðaratkvæðis. Það
lá svo mikið við. Ólíkt aumingja-
dómnum hér hafa bresk yfirvöld
nú ákveðið að verðlauna ekki
óverjandi framgöngu BBC með
auknum framlögum. Fyrirtækið
dró svo allar götur frá úrslitum
þjóðaratkvæðis taum ESB í svo-
kölluðum samningaviðræðum
um útgöngu. Auðveldaði sú mis-
notkun búrókrötum í kringum
Theresu May að láta hana sitja
uppi með furðusamning, sem
hnýta skyldi Breta áfram á
klafa ESB, hvað sem vilja þjóð-
arinnar leið.
Það munaði aðeins hárs-
breidd að samsærið gegn
bresku þjóðinni tækist. Mark-
miðið var að þeir aðilar og stofn-
anir, sem ríkustu trúnaðar-
skyldur höfðu, myndu misnota
sína aðstöðu til að skelfa þjóðina
í blindandi áróðri frá því að
samþykkja útgöngu. Hún stóð
ofureflið af sér. En þá ákvað
þingforsetinn og þeir þingmenn
sem voru á móti útgöngu, þótt
þeir hefðu heitið því að virða
niðurstöðuna, að nú skyldi
reynt til þrautar að tortíma mál-
inu.
Boris Johnson tapaði hverri
atkvæðagreiðslunni af annarri
og var þá synjað um kosningar!
Loks náði hann að merja fram
kosningar í landinu, þegar and-
stæðingarnir léku af sér. Hann
vann stórsigur, langt umfram
björtustu vonir hans.
Bretland er eitt öflugasta ríki
ESB. Það munaði engu að vilji
bresku þjóðarinnar yrði hafður
að engu. Forystumönnum
Íhaldsflokksins, fyrst Cameron
og svo May, mátti ekki treysta
yfir þröskuld. Svo er látið hér
eins og Íslandi væri óhætt að
„prufa aðild“ og gæti svo farið
ef það vildi!
Það hefur gerst í millitíðinni
að íslensk yfirvöld réttlættu
ömurleg svik sín í orkupakka-
málinu með því að neitunarvald
Íslands samkvæmt samningi
um EES um lögleiðingu tilskip-
ana hefði gufað upp! Sjálf for-
sendan sem Sjálfstæðisflokkur-
inn sagði við samþykkt EES
vera grundvöll hennar.
Eyðileggingar-
herferðin gegn
Bretum er óhugn-
anleg, en af henni
má mikið læra}
Bretar gengnir úr gildru
F
lóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna skilgreinir nú rúmlega
20 milljónir einstaklinga sem
flóttafólk af völdum stríðsátaka
og ofsókna á heimsvísu. Hér er
um mikinn vanda að ræða sem verður ekki
leystur nema með samstilltu átaki fjölmargra
ríkja og á alþjóðlegum vettvangi.
Ísland tekur árlega á móti kvótaflóttamönn-
um í samstarfi við Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna. Íslensk stjórnvöld hafa tekið
á móti 247 slíkum einstaklingum frá árinu
2015. Stefnt er að því að taka á móti 85 á þessu
ári og 100 á því næsta. Um er að ræða sýr-
lenskt flóttafólk sem er í flóttamannabúðum í
Líbanon, afganskt flóttafólk í Íran og flóttafólk
í sérstaklega viðkvæmri stöðu í Kenía.
Auk kvótaflóttamanna hefur umsækjendum
um alþjóðlega vernd hér á landi fjölgað veru-
lega á síðustu árum. Það er fólk sem kemur til landsins á
eigin vegum. Árið 2009 bárust 35 slíkar umsóknir en þær
voru 1.096 árið 2017 eða rúmlega 30 sinnum fleiri. Á síðasta
ári voru umsóknir 867 talsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Eurostat var Ísland árin
2017 og 2018 í 25. sæti yfir þau ríki Evrópu sem fengu til
sín flesta umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ef miðað er
við umsækjendur á hverja milljón íbúa var Ísland í 6. sæti á
sama lista. Í samanburði við Norðurlöndin voru umsóknir
um alþjóðlega vernd hlutfallslega flestar á Íslandi árið
2019.
Til viðbótar við þá 376 umsækjendur um alþjóðlega
vernd sem fengu jákvæða niðurstöðu hjá Út-
lendingastofnun árið 2019 fengu 155 ein-
staklingar alþjóðlega vernd eða mannúðarleyfi
hjá kærunefnd útlendingamála, sem aðstand-
endur flóttamanna hér á landi eftir umsókn til
Útlendingastofnunar eða sem kvótaflóttamenn.
Í heild fékk því 531 einstaklingur vernd hér á
landi í fyrra en 288 einstaklingar árið 2018.
Við meðferð þessara viðkvæmu mála verður
að sýna fólki virðingu og mannúð. Um leið verð-
ur að tryggja jafnræði. Umsóknir fara í fagleg-
an farveg hjá Útlendingastofnun og kærunefnd
útlendingamála. Kærunefndin metur ákvarð-
anir stofnunarinnar. Nefndin er sjálfstæð og úr-
skurðir hennar endanlegir. Henni var komið á
fót til að bregðast við gagnrýni m.a. frá Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Rauða
krossi Íslands.
Íslenskt stjórnkerfi hefur átt fullt í fangi með
að taka á móti þessum fjölda umsækjenda um alþjóðlega
vernd. Kostnaður dómsmálaráðuneytisins vegna útlend-
ingamála fór úr ríflega 663 m.kr. árið 2014 í u.þ.b. 3,6 millj-
arða króna árið 2019.
Eðli málaflokksins kallar á reglulega endurskoðun til að
meta hvað megi betur fara og hvort verið sé að gera nóg
með hliðsjón af innlendum og erlendum skuldbindingum.
Þar sem viðfangsefnið er fólk og líf þess er bæði mikilvægt
og sanngjarnt að umræða um málaflokkinn sé málefnaleg,
almenn og yfirveguð. aslaugs@althingi.is
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Jafnræði, virðing og mannúð
Höfundur er dómsmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lágmarkshlutfall evrópsksefnis í fjölmiðlaveitumsem miðla myndefni eftirpöntun skal vera 30%,
samkvæmt drögum að frumvarpi um
breytingu á fjölmiðlalögum.
Evrópska efnið skal vera sýnilegt og
fjölbreytt. Fjölmiðlaveita getur ver-
ið einstaklingur eða lögaðili sem
starfsrækir fjölmiðil. Fjölmiðlaveit-
ur með litla veltu verða undan-
þegnar þessari skyldu. Í ljósi þess
hvað skyldan er umfangsmikil og
tæknileg er gert ráð fyrir því að gef-
inn verði eins árs aðlögunartími.
Tilefni breytingarinnar er fyrir-
huguð innleiðing á tilskipun ESB
sem breytir tilskipun um hljóð og
myndmiðlun. „Að baki breytingar-
tilskipuninni liggur einnig að áhorfs-
venjur fólks hafa breyst og þá sér-
staklega barna. Línulegt áhorf hefur
minnkað og meira er horft á efni í
ólínulegri dagskrá og á mynd-
deiliveitum. Nauðsynlegt var talið
að reglur um fyrrnefndar miðl-
unarleiðir yrðu samræmdar til að
stuðla að jafnræði fjölmiðla óháð
þeirri miðlunarleið sem þeir kjósa.
Þá hefur einnig orðið gífurleg
tækniþróun á undanförnum árum,
þá sérstaklega þegar litið er til þess
hvernig efni er miðlað og því nauð-
synlegt að lagaumhverfið endur-
spegli þær breytingar,“ segir í Sam-
ráðsgáttinni.
Aukin vernd á ýmsum sviðum
Í greinargerð með frumvarps-
drögunum kemur m.a. fram að ríkari
kröfur verði gerð til fjölmiðla og fjöl-
miðlaveitna um að tryggja vernd
barna gegn viðskiptaboðum með því
að sýna ekki kostað barnaefni.
Einnig verði gerð breyting sem
kveði á um skyldu fjölmiðlaveitna til
að auka aðgang sjón- og heyrnar-
skertra að efni þeirra.
Ákvæði um hatursumræðu hef-
ur líka verið uppfært og tekur til
fleiri hópa en áður. Auk þess verður
bannað að hvetja til hryðjuverka.
Þessu er breytt vegna breyttra leiða
sem myndefni er miðlað eftir og
aukningar á notendaframleiddu efni,
en með því verður auðveldara að
koma hatursáróðri og hvatningu til
hryðjuverka á framfæri.
Lagt er til að nýjum kafla verði
bætt í fjölmiðlalög um réttindi og
skyldur mynddeiliveitna. Með því
verða ákveðnir þættir í starfsemi
þeirra felldir undir fjölmiðlalög, þótt
slíkar veitur séu ekki fjölmiðlar í eðli
sínu. Framkvæmdastjórn ESB hef-
ur gefið út leiðbeiningar um hvað
teljist til mynddeiliveitna. Tilteknir
hlutar samfélagsmiðla eins og Face-
book, YouTube og Instagram eru
taldir vera mynddeiliveitur. Það eru
þeir hlutar sem miðla myndefni,
hvort sem það er frá miðlunum sjálf-
um eða notendaframleitt efni.
Auglýsingareglur verða rýmk-
aðar. Hámark auglýsinga á að verða
20% á tilteknum tímabilum en ekki
bundið við 20% á klukkustund eins
og nú.
Fjölmiðlanefnd mun fá aukin
verkefni, verði frumvarpið að lögum.
Þar á meðal er skýrslugjöf til Eftir-
litsstofnunar EFTA. Eins fær hún
það hlutverk að efla miðla- og upp-
lýsingalæsi almennings. Hlutverk
samráðshóps evrópskra fjölmiðla-
eftirlitsstofnana (ERGA) verður lög-
fest með tilskipuninni. Fjölmiðla-
nefnd mun því taka þátt í öllu starfi
ERGA án þess þó að hafa kosninga-
rétt. Talið er að bæta þurfi við einu
stöðugildi hjá nefndinni.
Evrópskt efni í leig-
um verði minnst 30%
Morgunblaðið/ÞÖK
Áhorf Drög að ýmsum breytingum á fjölmiðlalögum eru nú til kynningar.
Þetta er m.a. gert til að koma til móts við breytingar á áhorfshegðun fólks.
Morgunblaðið/ÞÖK
Mennta- og menningarmála-
ráðuneytið leitar nú umsagna
um drög að frumvarpi um
breytingar á fjölmiðlalögum
(38/2011). Drögin eru birt í
Samráðsgátt stjórnvalda (sam-
rad.is). Í kynningu á frumvarp-
inu segir m.a. að í mati fram-
kvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins á tilskipuninni
um hljóð- og myndmiðlunar-
þjónustu hafi komið fram að
hún fæli ekki í sér fullnægj-
andi vernd barna og neytenda
á mynddeiliveitum. Einnig var
sýnt fram á ósamræmi á milli
krafna til línulegrar og ólínu-
legrar miðlunar. Auk þess
þyrfti að endurskoða reglur til-
skipunarinnar um við-
skiptaboð.
Umsagnarfrestur um frum-
varpið er til 12. febrúar.
Breytingar
í bígerð
FJÖLMIÐLALÖG