Morgunblaðið - 31.01.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 31.01.2020, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020 ✝ Sigurður Þor-steinsson fædd- ist í Reykjavík 9. október 1936. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 18. janúar 2020. Foreldrar hans voru Steinunn Guðbrandsdóttir, f. 9. júní 1899, d. 23. apríl 1982, og Þor- steinn Guðbert Sig- urðsson skólastjóri, f. 14. maí 1886, d. 19. ágúst 1954. Sig- urður var yngstur af fimm systkinum og eru þau öll látin. Þau voru: Egill, f. 1920, d. 1976, María, f. 1924, d. 1988, Guð- brandur, f. 1928, d. 2009, og Guðný, f. 1934, d. 1989. Sigurður kvæntist 14. maí 1966 Ásdísi Minný Sigurð- ardóttur frá Keflavík, f. 19. Miðbæjarskólanum við Tjörnina þar sem Þorsteinn var kennari. Sigurður var fjögurra ára þeg- ar Bretar hertóku borgina. Hann bjó í Reykjavík með for- eldrum sínum til 18 ára aldurs þegar faðir hans lést skyndi- lega, en þá flutti hann ásamt móður sinni og bróður, Agli, sem þá hafði fengið vinnu í toll- inum á Keflavíkurflugvelli, til Keflavíkur. Sigurður starfaði lengst af í fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli þar sem honum líkaði mjög vel. Árið 1964 kynntist hann lífs- förunaut sínum, Keflvíkingnum Ásdísi Minný Sigurðardóttur, og giftu þau sig árið 1966. Sig- urður og Minný byggðu hús á Vesturgötu 34 í Keflavík og hófu sinn búskap þar. Árið 1970 flutti fjölskyldan síðan á Háteig 10 í Keflavík og hefur búið þar síðan. Móðir Minnýjar, Karól- ína, flutti með fjölskyldunni á Háteiginn þar sem eiginmaður hennar, Sigurður, var nýlátinn. Sigurður verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 31. janúar 2020, klukkan 13. september 1941. Faðir hennar var Sigurður Benóný Helgason, f, 1901, d. 1969. Móðir hennar var Karól- ína María Karls- dóttir, f. 1909, d. 1988. Börn Sig- urðar og Ásdísar Minnýjar eru: 1) Karólína Sigríður, f. 1969, maki Jón Sigurðsson, f. 1967. Þau eiga tvo syni og eitt barnabarn. 2) Steinunn Björk, f. 1972. 3) Þor- steinn Sigurður, f. 1977, maki Sandra Skuld Kolbeinsdóttir, f. 1989. Sigurður ólst upp í Reykjavík í kreppunni miklu. Fjölskyldan var á hrakhólum með leigu- húsnæði og bjó víðsvegar um borgina, þar á meðal um tíma í Eitt af því óhjákvæmilega í líf- inu er að deyja en þó er það alltaf jafn sárt þegar dauðann ber að garði. En minningarnar hrannast upp og þær munum við, sem elsk- uðum hann, alltaf eiga. Í minn- ingunni vann pabbi minn í Para- dís. Hann fór oft með mig og systur mína litlar í heimsókn á vinnustaðinn sinn. En til þess að komast þangað varð maður fyrst að fara í gegnum hlið þar sem stóð vörður sem spurði okkur hvert við værum að fara. Vörð- urinn tók síðan ákvörðun um hvort okkur yrði hleypt inn eða ekki. Og síðan var maður skyndi- lega kominn inn í Paradís. Þar var einungis gott fólk og maður skynjaði að öllum þótti vænt um pabba. Vinnustaðurinn var eins og ein stór fjölskylda: elskurnar mínar, eruð þið komnar, má ekki bjóða ykkur nammi? Þetta var alltaf kærkomin setning. Ef þetta var ekki Paradís – hvar þá? Og síðan erum við skyndilega komin inn í Keflavíkurkirkju, sunnu- dagaskólinn. Ég sit á einum af fremstu bekkjunum og sveifla fótunum í takt við tónlistina. Ég kann alla textana og handahreyf- ingarnar utan að. Ég sé að pabbi horfir ástúðlega á mig. Á þessum tíma fóru yfirleitt bara mömmur með börnin sín í sunnudagaskól- ann og svo var pabbi líka. Hann fór einnig oft með okkur í bíó. Honum fannst Bugsy Malone að- eins skemmtilegri en Grease sem var mín uppáhalds. Og núna er ég skyndilega stödd í höll í Kóngsins Köbenhavn og ég sit í drottning- arstól úr skíragulli. Ég er bara eitthvað svo þreytt í fótunum, bara fjögurra ára og hallir eru svo ansi stórar og margir gangar. Ókunnugur maður stendur fyrir framan mig, hann er greinilega mjög reiður og mér skilst á handahreyfingum hans að ég megi ekki sitja í þessum stól. Ég horfi illu auga á manninn, merki- leg með mig á svipinn. Þessi mað- ur hlýtur að vera eitthvað mjög skrýtinn. Til hvers að vera með stóla sem ekki má sitja á? Ég er heldur ekki að gera neitt af mér, bara að hvíla lúin bein um stund- arsakir, en þá kemur pabbi skyndilega hlaupandi og bjargar mér. Ég get alltaf stólað á pabba. Minningarnar eru ótal fleiri sem ég mun ávallt geyma í hjarta mér. Sigurður Þorsteinsson var mjög góður maður og hjónaband hans og mömmu var einstakt. Honum og móðurömmu minni sem bjó hjá okkur varð aldrei sundurorða. Hún tók mig meira að segja stundum afsíðis og sagði: Steinunn, þú mátt ekki vera svona erfið við hann pabba þinn og vera að stríða honum. Eins og t.d. að sauma ermarnar á jakkanum hans saman. Fyrir gamlárskvöld keypti hann stjörnuljós, ekki bara fyrir börn- in sín heldur fyrir alla krakkana á Háteignum. Og þegar ég var að fara í próf í Háskóla Íslands og var stressuð sagði ég stundum við pabba: Ég er svo kvíðin ég held ég sé skítfallin. Þá sagði hann: Ég held það líka, örugg- lega skítfallin og það er allt í lagi. Það deyr enginn og verður ekki heimsendir þótt þú myndir falla. Þá hætti ég alveg að vera stress- uð og gekk alltaf vel. En þú, elsku pabbi, ert sko ekki fallinn. Lífsins skóli er æðstur allra skóla og ég gef þér fullt hús stiga, þú færð 10 frá mér. Meira: mbl.is/andlat. Steinunn Björk Sigurðardóttir. Elsku pabbi minn hefur nú kvatt okkur, en maður er aldrei alveg undirbúinn undir slíkan at- burð. Sigurður Þorsteinsson var alveg sérstaklega góður maður, já það má með réttu segja alveg einstakur maður. Hann gerði líf mitt og margra annarra svo miklu auðugra en það hefði ann- ars verið án hans. Og hvað er betra í lífinu en að mörgum líði þannig þegar litið er yfir farinn veg. Það er svo margs að minnast og minningarnar sem eru ótal margar hrannast upp. Ég man eftir því þegar fjölskyldan var að fara til Reykjavíkur þegar ég var lítill. Þá sagði pabbi áður en lagt var í hann: Á ég að galdra, hókus pókus og síðan var hann skyndi- lega kominn með ópalpakka í hendurnar. Síðan jöpluðum við systkinin og mamma á ópalinu á leiðinni. Þegar ég var lítill veikt- ist ég og var lagður inn á Landa- kotsspítala í Reykjavík, pabbi fékk frí í vinnunni og var hjá mér í meira en mánuð. Hann sinnti börnunum sínum af kostgæfni. Sigurður Þorsteinsson var mjög listrænn, hann var mjög flinkur að teikna og hafði gaman af að föndra. Hann bjó meðal annars til stafakarla handa mér þegar ég var að læra að lesa. Þetta var löngu áður en stafakarlarnir komu á markað. Sigurður Þor- steinsson bjó til vegg í kjallara flugstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli með myndum úr ís- lenskri náttúru. Hann gerði þetta smám saman og þetta var orðið stórt listaverk. Þegar útlendir birgjar komu í vinnuheimsóknir til Íslands var stundum farið með þá niður í kjallarann til að skoða listaverkið hans Sigga Þorsteins og voru þeir oft andaktugir yfir verkinu. Pabbi var alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt með manni og gaf manni mikinn tíma. Hann tók mig oft með sér í vinnuna og fríhafnarstarfsfólkið var allt svo gott við mig, þetta var góður vinnustaður. Elsku pabbi minn, ég er svo þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég elska þig um alla ei- lífð. Guð geymi þig. Sigurður Þorsteinsson. Elsku pabbi minn hefur nú kvatt okkur, en maður er aldrei alveg undirbúinn undir slíkan at- burð. Sigurður Þorsteinsson var alveg sérstaklega góður maður, já það má með réttu segja alveg einstakur maður. Hann gerði líf mitt og margra annarra svo miklu auðugra en það hefði ann- ars verið án hans. Og hvað er betra í lífinu en að mörgum líði þannig þegar litið er yfir farinn veg. Það er svo margs að minnast og minningarnar sem eru ótal margar hrannast upp. Ég man eftir því þegar fjölskyldan var að fara til Reykjavíkur þegar ég var lítill. Þá sagði pabbi áður en lagt var í hann: Á ég að galdra, hókus pókus og síðan var hann skyndi- lega kominn með ópalpakka í hendurnar. Síðan jöpluðum við systkinin og mamma á ópalinu á leiðinni. Þegar ég var lítill veikt- ist ég og var lagður inn á Landa- kotsspítala í Reykjavík, pabbi fékk frí í vinnunni og var hjá mér í meira en mánuð. Hann sinnti börnunum sínum af kostgæfni. Sigurður Þorsteinsson var mjög listrænn, hann var mjög flinkur að teikna og hafði gaman af að föndra. Hann bjó meðal annars til stafakarla handa mér þegar ég var að læra að lesa. Þetta var löngu áður en stafakarlarnir komu á markað. Sigurður Þor- steinsson bjó til vegg í kjallara flugstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli með myndum úr ís- lenskri náttúru. Hann gerði þetta smám saman og þetta var orðið stórt listaverk. Þegar útlendir birgjar komu í vinnuheimsóknir til Íslands var stundum farið með þá niður í kjallarann til að skoða listaverkið hans Sigga Þorsteins og voru þeir oft andaktugir yfir verkinu. Pabbi var alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt með manni og gaf manni mikinn tíma. Hann tók mig oft með sér í vinn- una og fríhafnarstarfsfólkið var allt svo gott við mig, þetta var góður vinnustaður. Elsku pabbi minn, ég er svo þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Ég elska þig um alla eilífð. Guð geymi þig. Þorsteinn Sigurður Sigurðsson. Í dag verður til moldar borinn Sigurður Þorsteinsson. Þá ég fæðist er Sigurður tíu ára, og var þá í heiminn komið fyrsta systk- inabarn Sigurðar, sem átti eftir samvistir við hann æ síðan. Aldrei brást mér Sigurður, aldrei hrekkti hann og engan trúrri þekkti ég alla hans ævi. Hann hélt mér um hönd ungum, varði mig áföllum, leiddi mig sér við hlið í uppgötvun heimsins, frá bernsku fram á unglingsár. Var alltaf til staðar og leyfði mér að vera með. Gætti mín fyrir systur, las mér bækur til stillu, fór með mig í göngur og í bíó í Reykjavík út frá Skólavörðuholti. Síðar suður með sjó var hann með mig stálpaðan til ferða og gerða. Var með á heiðum við fiskveiðar, sýndi mér staði og starfsemi og fór með mig sem ungling margar ferðir um landið. Sigurður var mér uppeldis- hjálp, heldur böldnum, eins og eitthvað sjálfsagt gott sem lífið átti til. Sem hann er horfinn, þá loks- ins skildi ég hver hafði um svo margt alið mig upp. Ég kveð frænda minn með söknuði og virðingu og votta eiginkonu hans og börnum samúð og virðingu, við höfum mikils misst. Meira: mbl.is/andlat Þorsteinn Hákonarson Fallinn er frá Sigurður Þor- steinsson. Þessi uppeldisbróðir minn úr braggahverfinu á Skóla- vörðuholtinu var á margan hátt athyglisverður maður. Hógvær maður, hlýr, heiðarlegur, rétt- sýnn, hjálplegur. Aldrei man ég eftir að hann hallaði réttu máli, aldrei man ég eftir að hann talaði illa um nokk- urn mann. Honum tókst að lifa lífi sínu vammlaus. Líf hans rann eins og tær berglind í jökulflaumi lífsins án þess mikið bæri á honum. „Þó veröld sjái ei vatnslind þá, í vit- und guðs hver dropi er talinn.“ Mesta gæfuspor hans var þeg- ar hann kynntist Minný og sam- an eignuðust þau gæfuríkt heim- ili. Ég var heimagangur á heimili foreldra Sigurðar. Ég var alinn upp hjá ömmu minni sem var ekkja og vann úti. Ég var því mikið einn og átti ætíð athvarf á heimili Þorsteins og Steinunnar. Faðir hans kennarinn Þorsteinn G. Sigurðsson var einstakur mað- ur, fróður og yfirvegaður, snjall hagyrðingur. Enn man ég eftir Steinunni þar sem hún stóð bros- andi og glaðlynd við kolaeldavél- ina. Þorsteinn kenndi okkur Sigga að tefla, spila lomber og manna og marga góða siði. Í rauninni mótaðist líf mitt á þessum aldri af kynnum mínum af þessu heimili. Endurminningin merlar æ og á þeim stundum vakir þakklæti í huga mínum. Skaphöfn Sigurðar bar mikil merki Þorsteins föður hans. Þegar Þorsteinn dó flutti þessi fjölskylda til Keflavíkur og leiðin milli okkar lengdist og brautir okkar lágu hvor í sína áttina. Minný og börnum þeirra Sig- urðar sendi ég mínar samúðar- kveðjur. Guðmundur G. Þórarinsson. Sigurður Þorsteinsson Systir mín, HILDUR SOLVEIG PÁLSDÓTTIR, Stýrimannastig 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 21. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 31. janúar klukkan 15. Jóninna Margrét Pálsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Neðstaleiti 5, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 24. janúar. Friðjón Alfreðsson Halldóra Þórdís Friðjónsd. René Andersen Jón Arnar Friðjónsson Þórhallur H. Friðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐFINNUR FRIÐFINNSSON, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 26. janúar. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 8. febrúar klukkan 13. Halla Elimarsdóttir Þorsteinn Friðfinnsson Anna Husgaard Andreasen Guðbjörg E. Friðfinnsdóttir Geirmundur Vilhjálmsson Sveinn Friðfinnsson Aðalheiður Friðfinnsdóttir Lúðvík Rúnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN LÁRUSSON, Strikinu 12, Garðabæ, áður Þinghólsbraut 25, Kópavogi, lést á lungnadeild A6, Landspítalanum í Fossvogi, að kvöldi 25. janúar. Ólöf Sigríður Jónsdóttir Jón Lárus Stefánsson Hildigunnur Rúnarsdóttir Stefán Stefánsson Guðrún Svava Stefánsdóttir Guðmundur I.A. Kristjánsson Björn Grétar Stefánsson Katrín Dögg Teitsdóttir og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARI RÖGNVALDSSON vélstjóri, Vestursíðu 9, áður Skálagerði 2, Akureyri, er lést 20. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 3. febrúar klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hetjurnar, félag langveikra barna á Norðurlandi. Sigríður Halldóra Hermannsdóttir Anna Guðný Aradóttir Ásgeir H. Steingrímsson Hermann Arason María Ólafsdóttir Ingibjörg Aradóttir Trausti Guðmundsson Sigríður Matthildur Aradóttir Sindri Már Heimisson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST KARL SIGMUNDSSON, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 24. janúar, verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju miðvikudaginn 5. febrúar klukkan 13. Ágústína Ólafsdóttir Sigmundur Rúnar Karlsson Ásta Brynja Baldursdóttir Ólöf Ásta Karlsdóttir Hermann Þorsteinsson Ingibjörg Lilja Karlsdóttir Jón Ingþór Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.