Morgunblaðið - 31.01.2020, Page 20

Morgunblaðið - 31.01.2020, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020 ✝ Jón ÞorkellGunnarsson fæddist í Reykjavík 23. júlí 1979. Hann lést á krabbameins- deild Landspítalans 21. janúar 2020. Foreldrar hans eru Gunnar Þorsteinn Jónsson, f. 10. júlí 1947, og Selma Sig- urðardóttir, f. 23. september 1947. Systkini Jóns Þorkels eru: 1) Hilmar Gísli, f. 28. ágúst 1963, kona hans er Árný Björk Árna- dóttir og eiga þau þrjár dætur og fjögur barnabörn. 2) Sig- urður Gunnar, f. 15. september 1965, kona hans er Hilda Bára Víglundsdóttir og eiga þau fjög- ur börn. 3) Kristinn Baldvin, f. 30. desember 1967, kona hans er Hrafnhildur Hreinsdóttir og eiga þau þrjú börn. 4) Yngvi Rafn, f. 23. mars 1969, kona Nonni ólst upp í Breiðholtinu og gekk í Hólabrekkuskóla. Eft- ir grunnskóla lá leiðin í Iðnskól- ann í Reykjavík þar sem hann lærði prentun. Samhliða námi vann Nonni í Kassagerðinni og Prentmet. Það sem átti hins vegar best við Nonna var að vinna með börnum og ungmenn- um, hann skipti því um starfs- vettvang og hóf störf sem leið- beinandi í Hólabrekkuskóla og þar kynntist hann ástinni í lífi sínu, henni Unni. Hann vann um tíma í Plastprenti, Toyota Kaup- túni og hjá Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur. Hugur hans leitaði þó alltaf aftur til kennslunnar og hóf Nonni störf í Norðlinga- skóla þar sem hann sá um stuðn- ing við nemendur og félags- störf. Eftir að hafa búið um tíma í Norðlingaholtinu festu þau hjón kaup á parhúsi á Selfossi þar sem Nonni hóf störf sem for- stöðumaður íþróttahússins við Sunnulækjarskóla og gegndi hann því starfi á meðan heilsan leyfði. Útför Nonna fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 31. janúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. hans er Íva Sigrún Björnsdóttir og eiga þau þrjú börn. 5) Selma, f. 9. júní 1982, maður henn- ar er Birgir Stein- arsson og eiga þau fjögur börn. Jón Þorkell, allt- af kallaður Nonni, giftist Unni Björk Hjartardóttur 18. desember 2015. Foreldrar hennar eru Hjörtur Elíasson, f. 10. janúar 1957, og Kristín Brynja Ingólfsdóttir, f. 26. desember 1955. Nonni og Unnur eiga saman dótturina Kolbrúnu Klöru, f. 24. júní 2013. Fyrir á Unnur þrjú börn: 1) Brynja Rán, f. 20. október 1994, sambýlismaður hennar er Jó- hann Michael Franks, f. 20. nóv- ember 1992, 2) Hjörtur Breki, f. 14. ágúst 1998, og 3) Anna Krist- ín, f. 1. maí 2008. Elsku hjartans ástin mín eina! Takk fyrir alla ástina, gleðina, hugrekkið, lífið saman og börnin okkar. Ég elska þig. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sakna þín sárt. Þín að eilífu, Unnur Björk. Nonni var besti maður sem ég þekkti, ég get ekki ímyndað mér lífið án hans. Hann gerði lífið léttara og skemmtilegra. Að kveðja Nonna var það erfiðasta sem ég hef gert því hann var ekki bara stjúppabbi minn, hann var besti vinur minn og eiginlega bara hjartað mitt. Ég elska Nonna meira en lífið sjálft og hann hefur alltaf verið í lífi mínu. Hann tók í hjartað mitt og kveikti á því, hann greip í hjartað á mér og sleppti því ekki. Hann var bestur í að hugga og hjálpa manni, hann hjálpaði mér meira en allir aðrir með kvíðann minn. Hann gerði allt til að láta mér líða vel og það tókst og þótt ég sýndi það ekki alltaf vel þá tókst það inni í hjarta mínu. Nonni var það besta sem hefur komið fyrir mig og okkur öll, núna sef ég í bolnum hans og er með hálsmen- ið hans sem hann var alltaf með. Það er svo skrítið að segja að Nonni sé dáinn en þótt hann sé dáinn þá deyr hann aldrei inni í hjarta mínu. Ég elska þig, elsku besti Nonni minn, hvíldu í friði, þú varst mér allt. Nonni, ég vona að þú sjáir hvað ég er að skrifa. Mig langar svo að liggja í fangi þínu aftur eins og ég hef gert allt mitt líf en mun aldrei geta gert aftur. Takk fyrir að vera hjá okkur og takk fyrir að vera í lífi mínu. Núna eru allir að koma heim með gjafir og kveðjur en í hvert sinn sem einhver kemur þá fer maður að gráta út af það er svo skrítið að hlaupa ekki inni í herbergið þitt og segja: „Nonni, það eru komnir gestir, viltu ekki koma fram?“ eins og maður var vanur. Þú ert partur af fjölskyldunni og hefur alltaf verið og munt alltaf vera, og þótt þú sért dáinn þá munt þú alltaf vera í fjölskyldunni minni. Hvíldu í friði, elsku Nonni minn. Þín dóttir, Anna Kristín Kjartansdóttir. Elsku Nonni. Það er sárt að kveðja mann eins og þig. Mann sem elskaði mömmu okkar af öllu sínu hjarta og gaf henni það líf sem hún átti skilið. Mann sem tók okkur opn- um örmum og elskaði okkur eins og sín eigin. Mann sem vildi allt fyrir okkur gera, sem við gátum alltaf treyst á að vera til staðar og var ekkert nema stoltur af því að fá að vera hluti af okkar lífi. Það er með miklum trega sem við göngum inn í framtíðina án þín. Það verður sárt að horfa á stelpurnar vaxa og dafna án þess að hafa þig sér við hlið. Þú varst til staðar þegar við gengum inn í unglingsárin og leiddir okkur inn í fullorðinsárin og það fellur í okk- ar hendur að sjá til þess að litlu systur okkar fái að finna fyrir sama öryggi, hlýju og væntum- þykju og við fengum. Það sem er okkur efst í huga þegar komið er að kveðjustund er þakklæti; þakklæti fyrir tímann okkar saman, fyrir hamingjuna sem þú gafst mömmu og fyrir að hafa gefið okkur hana Kolbrúnu Klöru. Fyrst og fremst erum við þakklát fyrir minningarnar sem við höfum, sem við getum haldið á lífi og deilt með stelpunum þegar þær eldast. Við fengum of stuttan tíma saman en eftir stendur ekk- ert nema hlýjar og góðar minn- ingar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir. ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Nonni, takk fyrir okkur, takk fyrir mömmu og takk fyrir stelpurnar. Þín verður sárt saknað, en þér verður aldrei gleymt. Stóru börnin þín, Brynja Rán og Hjörtur Breki. Það er erfitt að setjast niður og ætla sér að skrifa nokkur orð um barnið sitt. Það er á stund sem þessari sem minningarnar bera mann ofurliði. Tárin streyma og maður spyr sig hver er tilgangur lífsins, að taka ung- an mann í blóma lífsins burt frá eiginkonu og börnum. En það er ekki spurt að því. Það var yndislegt veður, sól og blíða þegar Nonni fæddist, og finnst mér það hafa fylgt honum allt hans líf. Hann sá alltaf það góða í fari fólks, var alltaf tilbú- inn að hjálpa ef hann gæti. Skóla- ganga hans var hefðbundin, barnaskóli, gagnfræðaskóli og svo iðnskóli, þar sem Nonni lærði prentun. Vann hann við það í nokkur ár en fór þó líka í önnur störf á bílaverkstæðum. Það kom svo fljótt í ljós að börn hændust að honum og átti hann eftir að vinna með þeim en það var það sem hann elskaði. Það var ein- mitt í einum skólanum sem hann hitti Unni sína og felldu þau hugi saman og giftu sig eftir að hafa eignast Kolbrúnu Klöru. Það var svo 2017 sem þau festu kaup á parhúsi á Selfossi. Mikil vinna var eftir við húsið og bað hann mig um að hjálpa sér, sem var auðsótt mál. Þá kynntist ég Nonna mínum enn betur, en hann var orðinn mjög veikur í ristlinum en áhuginn og kappið dró hann áfram. Mér fannst ynd- islegt að vera vitni að því hversu samrýnd þau voru með allar ákvarðanir, enda er húsið þeirra glæsilegt í alla staði. Svo kom pallurinn og skjólveggirnir og var unnið af sama kappi og áður, ekkert slegið af þrátt fyrir að heilsan væri ekki upp á það besta. Þú vildir bara klára allt fyrir fjölskylduna þína. Svona varst þú bara, elsku Nonni minn, vildir allt fyrir alla gera. Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur mömmu, vildir alltaf að við vær- um nálægt þér og fékkst okkur til að flytja á Selfoss svo þú gætir alltaf kíkt við hjá okkur og við til þín. Það eiga svo margir um sárt að binda og sakna þín mikið, eig- inkona og börnin, systkini þín, við mamma og bara allir sem kynntust þér. Hvíli í friði, elsku Nonni okkar. Pabbi og mamma. Nonni bróðir hefur verið kall- aður til starfa á æðri stöðum. Af hverju svona snemma? Drengur sem alltaf hefur tekið aðra fram fyrir eigin velgengni og lífshætti, frama og peninga. Ég er þá tala um þá minnimáttar og þá sem eiga erfiðara en flestir að feta spor meðalmennskunnar, sér- staklega unga krakka. Sennilega er þörf fyrir hans einstöku krafta á æðri stöðum, það er eina skýringin. Nonni þurfti að hafa meira fyrir lífinu en margir aðr- ir. Veikindi hans voru alvarleg, en hann tókst á við þau af hug- rekki og með jákvæðni að vopni, og er það lýsandi fyrir hann. Það var fljótt ljóst með Nonna að að- stoð og væntumþykja gagnvart börnum sem stóðu utan hins verndaða ramma var honum hugleikin. Ég þekki svo marga krakka sem tala vel um hann. Ég plataði hann í að læra til prent- iðnaðar og Nonni kláraði það með stæl og vann hjá mér um hríð. Hann var flottur prentari og náði fljótt tökum á hinum ýmsu afbrigðum prenttækni- nnar, kominn með glimrandi góð laun. En þetta var ekki það sem hann ætlaði sér. Hann hætti í prentaranum og fór aftur að vinna við stuðning barna með sérþarfir og seinna sá ég að það voru hans ær og kýr og hætti að hneykslast á umskiptunum, en launin voru eins ólík og hægt er að hugsa sér, en það skipti hann engu máli, bara krakkarnir. Nú síðast vann hann sem forstöðu- maður íþróttahússins á Selfossi og gat þar stokkið inn í aðstæð- ur, ef honum fannst vera þörf á því. Það starf var fullkomið fyrir Nonna, þar gat hann verið í kringum íþróttir og börn, eitt- hvað sem hann elskaði af öllu hjarta. Ég á agalega erfitt með að sætta mig við það að geta ekki heyrt í honum. Nonni var – og er – ótrúlega stór hluti af mínu lífi. Sigurður Gunnar Gunnarsson. Ég trúi ekki enn að þú sért farinn. Þó að staðfesting á veik- indum þínum lægi fyrir þá hélt maður alltaf í vonina, alveg fram á síðasta dag. Svo hellist sorgin yfir mann af þvílíkum þunga að mér finnst ég ekki geta andað. Við vorum örverpin í fjölskyld- unni, tvíeykið Nonni og Selma. Meira að segja til barnabók sem ber þennan flotta titil. Við áttum allt lífið framundan, áttum að verða gömul saman, fylgjast saman með börnum okkar vaxa úr grasi, verða amma og afi en skyndilega er allt breytt. Æskuminningarnar rifjast upp. Við ólumst upp á ástríku heimili í stórum systkinahópi þar sem eldri bræður okkar fluttu einn af öðrum að heiman og eftir vorum við tvö með mömmu og pabba. Lékum okkur í bíló á efri hæðinni þar sem sængin í hjóna- rúminu var risastóra fjallið sem bílarnir keyrðu yfir, ein jólin fékk ég Barbie-heimilið og þú Barbie-rokkhljómsveitina. Nin- tendo-tölvan sem við áttum sam- an var óspart notuð þegar við vorum orðin aðeins eldri, kunn- um flesta leikina utan að og vor- um orðin lunkin í að blása aftan á tölvuleikina til að allt virkaði. Þú hélst með Manchester United og KR og auðvitað gerði litla syst- irin það líka. Þegar þú fékkst áhuga á hnefaleikum horfði ég með, við vöktum frameftir og vöknuðum stundum um miðjar nætur með pabba til að horfa á bardaga með Mike Tyson, hann var sko aðalmaðurinn og svo var Bubbi að lýsa bardögunum, átrúnaðargoðið þitt. Sumrin okkar í Þjórsárdalnum voru mörg og endalausar gleðistundir sem við áttum þar með fjöl- skyldu og vinum, bæði í uppvext- inum og svo seinna meir þegar við vorum komin með okkar eig- in börn. Ég varð móðir snemma og bjó heima með þér og for- eldrum okkar. Þú gekkst Ró- berti mínum í föðurstað og dekr- aðir við hann og gafst honum alla þína ást og athygli, þú munt allt- af eiga sérstakan sess í hjarta hans. Við kynntumst stóru ástinni í lífi okkar á svipuðum tíma. Það sem ég gladdist með þér þegar þú kynntist henni Unni þinni og stofnaðir með henni heimili. Þig hafði alltaf dreymt um að verða faðir og þarna fékkstu konu og þrjú börn á einu bretti. Að vera fjölskyldufaðir átti svo vel við þig, það var eins og þú hefðir aldrei gert neitt annað. Nokkr- um árum síðar eignuðumst við svo börn á sama árinu þegar þú eignaðist litla gullmolann þinn hana Kolbrúnu og ég minn þriðja son. Þú varst að springa úr stolti og ég með þér. Hún varð eðlilega algjör pabbastelpa og er það enn. Það var ómetanlegt að fylgjast með þér í þessu hlutverki og sjá hve mikið þú elskaðir öll börnin þín fjögur og hana Unni þína. Síðustu árin vorum við koll- egar, það lá svo vel fyrir þér að vinna með börnum og ungmenn- um og þar liggur líka áhugasvið mitt. Þú varst vinsæll og fólk lað- aðist að þér. Ég fylltist stolti í hvert sinn sem fólk dásamaði þig og komst svo að því að ég væri litla systir þín. Allir sem þekktu þig dáðu þig, þú varst einstök manneskja með hjarta úr gulli, stóri bróðir minn sem ég hef allt- af litið upp til. Ég mun alltaf halda minningu þinni á lofti, elsku Nonni minn. Selma systir. Ef ég ætti eina ósk þá værir þú ennþá hér, elsku Nonni minn, verkjalaus, hamingjusamur pabbi og ástfanginn upp fyrir haus af Unni þinni. Allt eins og það hefði átt að verða, verður því miður aldrei. Það er svo óendanlega sárt að þurfa kveðja þig og reyna að sætta sig einhvern veginn við að þú varst tekinn allt of snemma frá okkur og fyrir að þú hafir þurft að þjást svona eftir ótrú- lega hetjulega baráttu við krabbamein. Lífið getur verið svo óréttlátt og í sorginni trúi ég þessu varla, finnst þetta svo óraunverulegt. Vissi að það yrði á brattann að sækja en hélt samt svo innilega og sterkt í vonina að þér myndi batna, allavega í smátíma. Þá hefði ég fengið tækifæri til að bjóða þér á sólarströnd með fjöl- skyldunum okkar sem þið fjöl- skyldan misstuð af í fyrrasumar sökum veikinda þinna. Fjölnir minn var svo staðráðinn í að bjóða þér á United-leik í VIP- sæti þegar þér væri farið að líða betur, sem varð svo aldrei því miður. Staðan er bara svona þótt ég geti ekki sætt mig við hana eins og er. Ég vissi alveg í hvað stefndi, en hvað með smátíma verkjalausan og glaðan eins og þú varst nánast alltaf. Vonin er sterkasta vopnið okkar í svona baráttu og sama hversu slæmt ástandið var orðið þá trúði ég hreinlega á kraftaverk alveg til loka. Svo ertu bara allt í einu far- inn og hugsanir mínar snúast nánast bara um „hvað ef þetta og hvað ef hitt og hvað varð svo um kraftaverkið sem ég grátbað um svo oft?“ Allt er svo óskiljanlegt. Þess vegna er kannski missirinn svona hrikalega sár. Á sama tíma og ég græt af söknuði og vanmætti þá er ég þér svo innilega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fyrir þann tíma sem við fengum saman. Svo þakklát fyrir að þú hafir birst Unni systur og heillað hana upp úr skónum frá fyrstu sýn og gefið henni og okkur Kol- brúnu. Þú varst besti pabbi í öll- um heiminum og líka heimsins besti eiginmaður. Það getur Unnur systir auðveldlega stað- fest. Minnisstætt er mér þegar þið hélduð fallegasta óvænta brúðkaup ever! Þú gerðir alla daga betri fyrir Önnu Kristínu okkar. Brynja Rán og Hjörtur Breki duttu líka aldeilis í lukku- pottinn með stjúppabba. Það sem þau elska þig og sakna. Þú varst einfaldlega með kærleiks- pláss í hjartanu fyrir alla í kring- um þig. Elskaðir Unni þína svo heitt og þið áttuð svo vel saman. Minn- ist þess líka þegar þú varst á spítalanum og við ræddum sam- an í síma, þá hafðirðu alltaf frek- ar áhyggjur af því hvernig Unni liði. Þú sagðist ætla að „massa þetta“ en gætir samt ekki lofað því að allt færi vel. Þú varst sem sagt að hughreysta mig í veik- indum þínum á meðan ég hágrét í símtalinu. Þannig maður var Nonni. Það eina sem ég get sætt mig við eftir að við misstum þig er að þú þurfir ekki að kveljast lengur, elsku besti Nonni minn. Ég lofa þér að ég mun passa upp á Unni þína og börnin ykkar og gefa þeim alla mína ást og um- hyggju til æviloka. Hvíldu í friði, elsku Nonni minn. Við sjáumst síðar. Hrafnhildur. Þau eru orðin allmörg árin síð- an við Nonni kynntumst. Hann var á höttunum eftir henni Unni minni hennar Kristínar systur og reyndi allt sem hann gat til að gera hosur sínar grænar fyrir henni. Án þess að láta á því bera þá verð ég að viðurkenna að hon- um tókst mjög vel til – ég vildi bara ekki að hann vissi af því. Hann átti að hafa fyrir þessu og augun mín áttu ekki að gefa til kynna að hann væri á góðri leið – augun sem hann í upphafi okkar samveru óttaðist mjög. Við Nonni unnum saman á tímabili en þar sannaði Nonni enn og aft- ur hversu góður og vel gerður einstaklingur hann var. Ég þori að fullyrða að öllum líkaði vel við Nonna. Persónutöfrar hans og framkoma var þannig að manni þótti vænt um hann frá fyrstu kynnum. Þann 15. desember 2015 fékk ég tölvupóst frá Nonna þar sem hann óskaði eftir formlegri inn- göngu í Hólastekksfjölskylduna því hann vildi giftast henni Unni sinni. „Jafnframt skuldbind ég mig til að sinna öllum þeim störf- um sem mér kann að vera út- hlutað á vegum stórfjölskyldunn- ar og sinna þeim eftir bestu getu. En fyrst og fremst skuldbind ég mig til að elska og virða alla með- limi stórfjölskyldunnar eins og um mína eigin ættingja sé að ræða, en samt aðallega Unni Björk Hjartardóttur og börnin hennar.“ Það er óhætt að segja að Nonni hafi staðið við sitt eins og hann gerði reyndar alltaf, hann elskaði hana Unni sína og börnin þeirra öll einlæglega og bar mikla virðingu fyrir því ástar- sambandi sem hann var í alveg frá fyrsta degi. Í svari sem Nonni fékk við beiðninni kom fram að „til að standast þær kröfur sem þar eru gerðar, þarf viðkomandi að vera rúmlega full- kominn í alla staði, vel gefinn, fríður sýnum, ljúfur og dagfars- prúður, manneskjulegur, hjálp- fús og undirgefinn“. Það er skemmst frá því að segja að Nonni stóðst allar kröfurnar með prýði. Yndisleg og látlaus gifting fylgdi í kjölfarið, þar sem þau ákváðu að ganga veginn til eilífð- ar saman. Það er því erfitt að þurfa að sætta sig við að hann hafi þurft að láta í minni pokann í baráttu sinni við krabbameinið, þrátt fyr- ir mikla baráttu og þá trú að hann gæti haft betur, alveg fram á síðustu stundu. Með jákvæðina að vopni ætlaði hann að sigra eins og honum hafði tekist í fyrri veikindum sínum. En mikið óskaplega getur lífið stundum verið mikið ósanngjarnt. Nonni var svo einstakur drengur. Þegar við Sóley mín vorum að ræða fráfall Nonna við Björgeyju Njálu sagði hún að Jón Þorkell Gunnarsson HINSTA KVEÐJA Elsku pabbi. Þú ert besti pabbi í heimi og ég vildi að þú gætir verið með mér. Þín Kolbrún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.