Morgunblaðið - 31.01.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Bíll með öllum mögu-
legum aukabúnaði
Skráður 10/2012, ný tímareim
(skipt í 152 þ.km. Framhjóladrif, 1,6
TDI, ekinn 153 þ.km. beinskiptur,
dökkbrúnn, leðurklæddur, rafmagn
í sætum, minni í sætum, stafrænt
mælaborð, dráttarbeisli, skynjarar
allan hringinn, álfelgur, navigation,
skjár með bluetooth og öllu
mögulegu, tölvustýrð miðstöð bæði
fram í og aftur í, Xenon ljós sem
elta í beygjum, kastarar, langbogar,
sumar og vetrardekk.
Uppl. í síma 615 8080
TILBOÐ
1.250 þús. staðgreitt
SKODA Superb Station
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hraunbær 146, Reykjavík, fnr. 204-5161, þingl. eig. Berta Gunn-
laugsdóttir, gerðarbeiðandi Hraunbær 146,húsfélag, þriðjudaginn
4. febrúar nk. kl. 10:00.
Reyrengi 2, Reykjavík, fnr. 221-3723, þingl. eig. Bjarney Lára
Sævarsdóttir, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Vörður trygg-
ingar hf., þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl. 10:30.
Hjallahlíð 2, Mosfellsbær, fnr. 223-1058, þingl. eig. Guðni Þorbjörns-
son, gerðarbeiðandi Skatturinn, þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl.
11:00.
Gerplustræti 2, Mosfellsbær, fnr. 236-1979, þingl. eig. Gerplustræti
2-4 ehf., gerðarbeiðandi TM hf., þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl. 11:30.
Naustabryggja 54-56, Reykjavík, fnr. 224-7469, þingl. eig. Örn
Þorvarður Þorvarðsson og Karitas Kristín Ólafsdóttir, gerðarbeið-
andi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl.
14:00.
Frostafold 23, Reykjavík, fnr. 204-1800, þingl. eig. Ari Ívars, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbankinn hf. og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl. 15:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
30. janúar 2020
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Jórunnarstaðir, Eyjafjarðarsveit, 50% eignarhluti, fnr. 215-9023, þingl.
eig. Elmar Þór Magnússon, gerðarbeiðandi Valitor hf., þriðjudaginn
4. febrúar nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
30. janúar 2020
Styrkir
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður veitir styrki til
virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbygg-
ingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki
til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð
úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til
rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka
við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á
Íslandi.
Aðeins umsóknir sem uppfylla allar reglur um
styrki VIRK eru teknar til greina. Nánari upplýs-
ingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og
umsóknareyðublöð má finna á www.virk.is.
Umsóknarfrestur er til og með
15. febrúar 2020
Styrkir VIRK 2020
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Nýtt nám-
skeið í Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Hreyfisalurinn er opinn kl. 9.30-
11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kost-
ar 250 kr., veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í
síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Morgunsagan kl. 11. Göngubretti,
æfingarhjól með leiðbeinanda kl. 12.30. Línudans kl. 13.30. Bókabíll-
inn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir
velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Hugvekja presta kl. 14.30 Línudans kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Slökun með Rás1 kl.
9.45. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Heimsókn frá Háteigsskóla kl. 10.15.
Bingó kl. 13, spjaldið kostar 250 kr., allir velkomnir. Opið kaffihús kl.
14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi í setustofu.
Dalbraut 27 Vist í bókastofu.
Fella- og Hólakirkja Karlakaffi frá kl. 10-11.30. Allir karlar velkomnir.
Má bjóða þér í kaffi og vínarbrauð, spjall og samveru? Gestur okkar
er Ómar Smárason frá KSÍ sem segir frá landsliðinu okkar, stórmót-
um og umspili. Láttu sjá þig. Við tökum hlýlega á móti þér.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Velferðarkaffi
félagsstarf fullorðinna, staða, þróun og tækifæri kl. 8.30-10. Allir
hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Komdu að púsla kl. 9-16.
Botsía kl. 10.30-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Hollvina bingó kl. 13.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Handaband kl. 13. Frjáls spilamenn-
ska kl. 13-16.30. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 og
vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Mánudaginn 3. febrúar verður farið á tón-
leika á Kjarvalsstaði. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsstarfs
á 3. hæð á Vitatorgi. Verið öll hjartanlega velkomin.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl.
14–17. Allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna-
kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um
hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing
kl.13-15. Allir velkomnir.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Botsía kl. 10-
11. Hádegismatur kl. 11.30. Ekkert starf eftir hádegi vegna þorrablóts.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Brids í handavinnustofu kl. 13. Bingó kl. 13.15.
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, gönguhópur kl.
10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Brids-hópur Korpúlfa kl.
12.30 í Borgum og hannyrðahópur í Borgum frá kl. 12.30. Tréútskurð-
ur kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Vöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11. Föstudagsspjall kl.13.30.
Uppl. í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13.
Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri kl. 13.30. Skráning
hafin í óvissuferðina sem farin verður þriðjudaginn 18. febrúar í
Þjóðmenningarhúsið og kaffi á eftir. Munið dansinn á laugardaginn í
húsnæði Óskanda á Eiðistogi kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ÍSLENDINGASÖGUR, námskeið
um Eyrbyggjasögu kl. 13. Umsjón Baldur Hafstað. Dansleikur Stang-
arhyl 4, sunnudagskvöld 2. febrúar kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum
öll og njótum.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni kl. 13-14.
Kaffi kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Klofahólar, Rangárþing ytra, fnr. 227-0666, þingl. eig. Elín Sigríður
Óladóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, fimmtu-
daginn 6. febrúar nk. kl. 11:00.
Galtalækur lóð 2, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-6402, þingl. eig.
Páll Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 11:40.
Galtalækur lóð, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-6404, þingl. eig.
Páll Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 11:50.
Kot, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-5959, þingl. eig. Jón Gunnar
Sævarsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves,
fimmtudaginn 6. febrúar nk. kl. 12:00.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
30. janúar 2020
200 mílur
✝ Rut Árnadóttirfæddist í Snjall-
steinshöfðahjáleigu
(nú Árbakki) í
Landsveit í Rang-
árvallasýslu 24. maí
1933. Hún andaðist
18. janúar 2020 á
Landspítalanum í
Fossvogi.
Árið 1938 flutti
hún ásamt fjöl-
skyldu sinni að Bala
í Þykkvabæ. Foreldrar hennar
voru Margrét Loftsdóttir, f. 27.
janúar 1899, d. 12. ágúst 1981,
og Árni Sæmundsson, f. 27. júní
1897, d. 17. desember 1990.
Systkini Rutar voru Lovísa
Anna, f. 24. nóvember 1920, Sæ-
mundur, f. 5. september 1924,
Sigríður Theódóra, f. 18. mars
1926, Svava Þuríður, f. 9. júní
1927, og Guðlaugur, f. 9. júní
1927. Eftirlifandi eru Svava og
Guðlaugur.
Rut giftist Unnsteini Þor-
steinssyni, f. 3. mars 1932, d. 31.
ágúst 2018, vélfræðingi frá
Vestmannaeyjum, hinn 31. júlí
1954. Þau eignuðust þrjú börn:
a) Þorsteinn, f. 12.
desember 1951, en
börn hans og Est-
herar Agbaoje Ai-
leme eru August-
ine, Theresa, Adri-
an Unnsteinn og
Cecilia Rut. b) Árni
Sæmundur, f. 16.
október 1958,
kvæntur Önnu
Guðmundsdóttur.
Þau eiga soninn
Karl. c) Sigurlaug Katrín, f. 7.
maí 1961, gift Þorsteini J.J.
Brynjólfssyni. Þeirra börn eru
Brynjólfur, Unnsteinn og Árni
Þór. Barnabarnabörn Rutar og
Unnsteins eru þrjú.
Rut stundaði nám í barna-
skóla Þykkvabæjar. Lengst af
starfsævi sinnar var hún hús-
móðir, utan fimm ár er hún
starfaði sem aðstoðarkona
hjúkrunarfræðings í Fellaskóla í
Breiðholti og fjögur sem starfs-
kona á lager í Hagkaupum
Skeifunni.
Hún verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag, 31. janúar
2020, klukkan 13.
Mig langar að minnast fyrr-
verandi tengdamóður minnar
með nokkrum orðum. Ég
kynntist Rut ung að árum þeg-
ar ég kom inn í fjölskylduna og
tók hún mér strax opnum örm-
um. Hún var einstaklega hlý,
elskuleg og létt í lund. Hún var
falleg kona, alltaf svo vel klædd
og smekkleg og hugsaði svo vel
um sig. Hún gerði allt svo vel
og bar heimili þeirra hjóna því
fagurt vitni. Hún þurfti oft að
taka til hendinni enda sjó-
mannskona og fórst henni það
vel úr hendi sem og önnur störf.
Hún var mjög myndarleg
handavinnukona og naut ég
góðs af því. Hún saumaði og
prjónaði á mig flíkur sem
klæddu mig svo vel, voru svo
fallegar og miklar uppáhalds-
flíkur sem ég átti lengi. Hún
var frábær kokkur og minnist
ég glæsilegu hlaðborðanna á
hátíðum og tyllidögum. Það var
dýrmætt að kynnast svona konu
sem var mér alla tíð mikil og
góð fyrirmynd.
Ég minnist ferðalaga, sum-
arbústaðadvalar og skemmti-
legra samverustunda með fjöl-
skyldunni. Við unnum saman
einn vetur þegar ég starfaði
sem skólahjúkrunarfræðingur
og var hún aðstoðarkona mín,
þar áttum við góðar stundir
saman. Þegar ég bjó í Dan-
mörku er mér minnisstætt þeg-
ar ég heimsótti þau hjón til
Englands þar sem þau dvöldu
um tíma vegna starfa Unn-
steins.
Rut fór með mér í búðir og
fannst ástæða til að hjálpa mér
að dressa mig upp.
Það er sama hvar borið er
niður í minningabankanum, allt-
af koma upp svo góðar minn-
ingar tengdar þessari yndislegu
konu. Erfitt er að tala um hana
án þess að geta manns hennar,
en Unnsteinn lést í ágúst síðast-
liðnum. Það varð ekki langt á
milli þeirra enda var samveran
orðin löng, þau kynntust ung að
árum og voru alla tíð mjög sam-
rýnd og samstiga.
Síðustu mánuðina dvaldi hún
á Hrafnistu í Hafnarfirði, þegar
ég heimsótti hana þangað tók
hún á móti mér með orðunum:
„Elsku stelpan mín.“ Það voru
forréttindi að fá að vera elsku
stelpan hennar.
Við Birgir vottum fjölskyld-
unni innilega samúð. Hafðu
þökk fyrir allt, elsku Rut.
Ingibjörg Kristín
Ingólfsdóttir (Stína).
Rut Árnadóttir
Sigrún var okkur
svo miklu meira en
kennari. Hún fylgdi
stærstum hluta
bekkjarins eftir fyrstu sjö árin í
grunnskóla og við hefðum ekki
getað beðið um betra start út í líf-
ið en það sem hún gaf okkur. Hjá
Sigrúnu var alltaf einhver auka
„sykur“ í öllu. Hvort sem það voru
límmiðarnir sem hún kom alltaf
með heim úr Ameríkuferðunum
sínum, hlýja brosið og umönnunin
sem hún sýndi okkur alltaf, eða
hin reglulegu heimboð þar sem
öllum bekknum var boðið heim til
hennar í sprell og gaman. Hún tók
líka alltaf vel á móti okkur þegar
við mættum óboðin í heimsókn.
Það var svo í lok árs 2010 að
bekkurinn ákvað að hittast á
„reunioni’“. Það var einróma
löngun hjá hópnum að heyra í Sig-
Sigrún
Þórarinsdóttir
✝ Sigrún Þór-arinsdóttir
fæddist 10. maí
1957. Hún lést 16.
janúar 2020.
Útför Sigrúnar
fór fram 24. janúar
2020.
rúnu og bjóða henni
með okkur. Hún
brást okkur ekki
frekar en fyrri dag-
inn og kom og átti
með okkur frábæra
kvöldstund yfir mat
og drykk. Hún gaf af
sér það kvöld eins og
hún hafði alltaf gert.
Hlustaði af miklum
áhuga á allt sem
hafði á daga okkar
allra drifið síðustu 11 árin og
leyfði okkur vel að heyra hvað
hún væri stolt af því að hafa feng-
ið að taka þátt í vegferð okkar
allra, og það gerði hún svo sann-
arlega. Meira en hún hefur líklega
vitað.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til fjölskyldu Sigrúnar og
nánustu vina. Hún var stórkost-
leg og hennar verður án efa mikið
saknað, af mörgum.
Á næsta „reunioni“ verður
skálað fyrir þér, Sigrún. Það er
klárt mál!
Fyrir hönd nemenda SÞ-
bekkjar Selásskóla árin 1992-
1999,
Tinna Rós Steinsdóttir.