Morgunblaðið - 31.01.2020, Page 26
MARKAMET
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Christine Sinclair frá Kanada er
orðin markahæsta landsliðskona
heims í fótbolta frá upphafi eftir að
hafa skorað tvívegis fyrir landslið
þjóðar sinnar í fyrrakvöld. Hún
gerði þá tvö mörk á fyrstu 20 mín-
útunum þegar Kanada vann yfir-
burðasigur á St. Kitts og Nevis,
11:0, í undankeppni fyrir Ólympíu-
leikana sem nú stendur yfir í
Texas.
Sinclair jafnaði metið þegar hún
skoraði strax á 7. mínútu og sló
það 15 mínútum síðar. Hún hefur
nú skorað 185 mörk í 290 lands-
leikjum fyrir Kanada.
Áður hafði Abby Wambach skor-
að 184 mörk fyrir bandaríska
landsliðið. Þær tvær eru lang-
markahæstar en Mia Hamm er
þriðja með 158 mörk fyrir Banda-
ríkin. Af körlum er Ali Daei
markahæstur landsliðsmanna með
109 mörk fyrir Íran en níu konur
hafa gert fleiri mörk en hann.
Sinclair er þriðja leikjahæst frá
upphafi en hinar bandarísku Krist-
ine Lilly (352) og Christie Rampone
(311) hafa spilað fleiri landsleiki.
Samherji Dagnýjar í þrjú ár
Sinclair, sem hefur verið fyrirliði
Kanada um árabil, leikur sitt tutt-
ugasta ár með landsliðinu en hún
er 36 ára gömul, fædd í nágrenni
Vancouver, lék þar framan af ferl-
inum og hefur spilað með banda-
rískum liðum frá árinu 2008. Þar
hefur hún leikið með Portland
Thorns frá 2013 og var því sam-
herji Dagnýjar Brynjarsdóttur öll
þrjú árin sem hún lék með Port-
land. Sinclair hefur fagnað banda-
ríska meistaratitlinum þrisvar,
tvisvar með Portland og einu sinni
með Western New York Flash.
Markaskor hennar með landsliði
Kanada er magnað en þar hefur
hún mest gert 23 mörk á einu ári,
2012, og þrisvar leikið 20 lands-
leiki eða meira á einu ári. Hún er
að sjálfsögðu bæði langleikjahæsti
og langmarkahæsti leikmaður
landsliðsins frá upphafi. Landslið
Kanada er í áttunda sæti á heims-
lista FIFA og Sinclair hefur leikið
með því á fimm heimsmeistara-
mótum.
Mörk í fimm lokakeppnum HM
Hún er önnur tveggja kvenna,
ásamt Mörtu frá Brasilíu, sem hafa
skorað á fimm lokamótum HM. Þá
hefur hún leikið með Kanada á
þrennum síðustu Ólympíuleikum
og stefnir á þá fjórðu í sumar. Hún
varð markahæst á Ólympíu-
leikunum 2012 með sex mörk og
vann þar bronsverðlaun með Kan-
ada. Þann leik endurtók hún á ÓL í
Ríó 2016.
Sinclair er í hópi vinsælustu
íþróttamanna Kanada og hefur
fengið margvísleg verðlaun í
heimalandi sínu. Hún hefur verið
kjörin íþróttamaður ársins í land-
inu og var í desember valin besti
knattspyrnumaður Kanada á síð-
asta áratug.
185 Christine Sinclair skorar og
skorar fyrir landslið Kanada.
Metið fallið og alls ekki hætt
Á AKUREYRI
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Nágrannarnir í Þór Akureyri og
Tindastól mættust í gær í 16. um-
ferð Dominos-deildar karla í körfu-
bolta. Leikurinn var mikilvægur
báðum liðum. Stólarnir eru að berj-
ast um heimaleikjarétt í úr-
slitakeppninni en liðið sat í 3. sæti
með 18 stig fyrir leik, sömu stiga-
tölu og Njarðvík, KR og Haukar.
Þór var með 10 stig, í mikilli glímu
um að halda sæti sínu í deildinni.
Gestirnir í Tindastól höfðu tíu
stiga sigur, 96:86, eftir nokkuð jafn-
an leik þar sem Stólarnir leiddu
lengstum.
Gerel Simmons spilaði ekkert
með Tindastól í gær en hann er að
glíma við smávægilega tognun. Nýi
maðurinn þeirra, Terrell Geiger,
fékk því heilan leik til að sanna sig.
Hann sýndi nú lítið í fyrri hálf-
leiknum en honum óx ásmegin þeg-
ar leið á leikinn. Hann átti algjöran
lykilþrist undir lokin sem slökkti
endanlega vonir Þórsara, sem höfðu
á örskotsstundu unnið upp sjö stig.
Þá var staðan allt í einu orðin 85:81
fyrir Stólana og tæpar tvær mín-
útur eftir. Þristurinn breytti stöð-
unni í 88:81 og eftir hann var sigur
Stólanna nánast í höfn.
Þórsarar urðu fyrir skakkaföllum
seint í fyrri hálfleik þegar Mantas
Virbalas fór meiddur af velli og kom
hann ekkert meira við sögu.
Í raun má segja að leikurinn hafi
verið jafn allan tímann en það sem
helst reið baggamuninn var tvennt.
Stólarnir tóku tíu fleiri fráköst í
leiknum og söknuðu Þórsarar
Mantas sárlega í seinni hálfleiknum.
Síðan verður að minnast á afleita
vítahittni Þórsara, sem var aðeins
65% en hún lagaðist samt þegar leið
á leikinn.
Bestu menn Þórs í gær voru
Bandaríkjamennirnir Terrence
Motley og Jamal Palmer. Spánverj-
inn Pablo Hernandes var öflugur en
Kólumbíumaðurinn Hansel Atencia
var í strangri gæslu allan leikinn og
sást minna en venjan er. Stólarnir
voru með einn yfirburðaskorara í
Sinisa Bilic en landi hans Jaka
Brodnic sá um fráköstin. Króatinn
Jasmin Perkovic virtist sprunginn
strax í fyrri háfleik og nýttist liðinu
illa. Áður var minnst á framlag
Geigers en Pétur Rúnar Birgisson
hrökk svo í gang þegar leið á leik-
inn.
KR vann ÍR í einvígi liðanna
sem mættust í úrslitaeinvíginu um
Íslandsmeistaratitilinn á síðustu
leiktíð á heimavelli, 120:92. Um
sannkallaðan liðssigur var að ræða,
en fimm leikmenn KR skoruðu 10
stig eða meira. Sigurinn var kær-
kominn hjá KR-ingum eftir óvænt
tap fyrir Þór Akureyri í síðasta leik.
KR er á fínni siglingu og með þrjá
sigra í síðustu fjórum leikjum. Það
skyldi þó ekki vera að KR-ingar
toppi enn og aftur á réttum tíma.
Stutt sigurganga ÍR-inga er á enda,
en þeir unnu tvo leiki í röð fyrir leik-
inn gegn KR. ÍR er í sjöunda sæti
og fer væntanlega í úrslitakeppnina.
Haukar hafa flogið skemmti-
lega undir radarinn fræga, en þeir
unnu fjórða leik sinn í röð í deildinni
er Þór Þorlákshöfn kom í heimsókn
í Ólafssalinn, 92:86. Haukar náðu
litlum stöðugleika í leik sinn framan
af tímabilinu. Liðið vann og tapaði
til skiptis og voru Haukamenn ekki í
umræðunni þegar kom að liðum sem
væru líkleg í úrslitakeppninni. Haldi
sigurgangan áfram eru Haukar til
alls líklegir. Þórsarar hafa gefið
verulega eftir að undanförnu eftir
fína byrjun á leiktíðinni og var tapið
í gær það þriðja í röð og það fimmta
í síðustu sex leikjum. Liðið er aðeins
tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Stólarnir með
montréttinn
fyrir norðan
KR vann einvígi liðanna sem léku til
úrslita í fyrra Haukar á sigurbraut
Morgunblaðið/Eggert
Sókn KR-ingurinn Matthías Orri Sigurðarson sækir að körfunni gegn
sínum gömlu félögum. Danero Thomas úr ÍR fylgist með honum.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Reykjavíkurmót karla
Undanúrslit:
KR – Víkingur R . 1:1 (6:4 eftir vítakeppni)
Ægir Jarl Jónasson 75. – Óttar Magnús
Karlsson 7.
Valur – Fjölnir ......................................... 1:0
Kaj Leo í Bartalssstovu 54.
KR og Valur mætast í úrslitaleik í Egils-
höll á mánudagskvöldið, 3. febrúar.
Fótbolti.net-mót karla
Úrslitaleikur:
Breiðablik – ÍA......................................... 2:5
Gísli Eyjólfsson 54., Benedikt V. Warén 60.
Rauð spjöld: Guðjón Pétur Lýðsson 73.,
Brynjólfur Darri Wilumsson 76. – Tryggvi
Hrafn Haraldsson 15., 39., 51., Marteinn
Theodórsson 32., Steinar Þorsteinsson
(víti) 66.
Katar
Al-Arabi – Umm-Salal............................. 1:1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Dominos-deild karla
Haukar – Þór Þ..................................... 92:86
KR – ÍR ............................................... 120:92
Þór Ak. – Tindastóll ............................. 86:96
Staðan:
Stjarnan 15 13 2 1371:1218 26
Keflavík 16 12 4 1425:1293 24
Tindastóll 16 10 6 1403:1336 20
KR 16 10 6 1387:1341 20
Haukar 16 10 6 1430:1366 20
Njarðvík 15 9 6 1280:1150 18
ÍR 16 8 8 1351:1436 16
Þór Þ. 16 6 10 1280:1314 12
Grindavik 15 5 10 1255:1340 10
Þór Ak. 16 5 11 1371:1523 10
Valur 16 5 11 1278:1389 10
Fjölnir 15 1 14 1279:1404 2
Dominos-deild kvenna
Valur – Keflavík.................................... 80:67
Staðan:
Valur 18 16 2 1509:1185 32
KR 18 13 5 1368:1171 26
Keflavík 18 12 6 1329:1265 24
Haukar 18 12 6 1298:1230 24
Skallagrímur 18 10 8 1215:1191 20
Snæfell 18 6 12 1202:1375 12
Breiðablik 18 2 16 1110:1412 4
Grindavík 18 1 17 1160:1362 2
1. deild karla
Höttur – Hamar.................................... 70:75
Breiðablik – Vestri ............................. 104:98
Staðan:
Höttur 16 14 2 1376:1199 28
Breiðablik 15 13 2 1529:1257 26
Hamar 15 13 2 1472:1307 26
Álftanes 16 8 8 1366:1395 16
Vestri 14 7 7 1231:1140 14
Selfoss 14 5 9 1076:1126 10
Snæfell 15 2 13 1200:1481 4
Skallagrimur 13 2 11 1063:1264 4
Sindri 12 1 11 964:1108 2
Evrópudeildin
Alba Berlín – Fenerbahce .................. 70:74
Martin Hermannsson skoraði 10 stig,
tók 1 frákast, gaf 2 stoðsendingar og stal 3
boltum með Alba á 26 mínútum.
Danmörk
Horsens – Randers .......................... 105:107
Finnur Freyr Stefánsson þjálfar
Horsens.
Efstu lið: Randers 32, Horsens 30,
Bakken Bears 28, Svendborg 20.
NBA-deildin
Indiana – Chicago............................. 115:106
Brooklyn – Detroit ........................... 125:115
New York – Memphis ...................... 106:127
San Antonio – Utah .......................... 127:120
Sacramento – Oklahoma City ......... 100:120
Portland – Houston .......................... 125:112
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Mustad-höllin: Grindavík – Fjölnir..... 18.30
MG-höllin: Stjarnan – Njarðvík .......... 20.15
1. deild karla:
Ice Lagoon-höll: Sindri – Skallagrímur .. 20
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – Stjarnan ........................ 19.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Víkingur ............... 18
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Víkingur ............... 20
REYKJAVÍKURLEIKAR
Alþjóðlegt keilumót í Egilshöll kl 10 til
17.
Skvass, Stórhöfða 17, kl. 17 til 21.
Hjólreiðar, brekkusprettur á Skóla-
vörðustíg kl. 19.
Crossfit í Laugardalshöll kl. 16 til 21.
Í KVÖLD!
Portúgalski knattspyrnumaðurinn
Bruno Fernandes er loksins orðinn
leikmaður Manchester United sem
gekk frá kaupum á honum frá
Sporting Lissabon í gær eftir lang-
dregið ferli. United greiðir 47 millj-
ónir punda fyrir þennan 24 ára
gamla sókndjarfa miðjumann og
upphæðin gæti hækkað í allt að 68
milljónir punda, eftir því hvernig
hann stendur sig. Fernandes hefur
skorað 15 mörk í 28 mótsleikjum
fyrir Sporting í vetur og gerði 33
mörk á síðasta tímabili. Hann hefur
spilað 19 landsleiki fyrir Portúgal.
Frágengið með
Fernandes
AFP
Tilbúinn Bruno Fernandes er orð-
inn leikmaður Manchester United.
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvars-
son vann til gullverðlauna í svigi á
móti í Jasná í Slóvakíu í gær. Mótið er
hluti af Evrópumótaröð Alþjóðaól-
ympíuhreyfingar fatlaðra.
Hilmar var með besta tímann í
fyrri og seinni ferðinni en heildar-
tíminn var 1:46,42 mínúta. Ítalinn
Davide Bendotti varð annar, fjórum
sekúndum á eftir Hilmari.
Hilmar vann til gullverðlauna í
stórsvigi á miðvikudag og hefur því
unnið tvenn gullverðlaun á mótinu og
er hann efstur á stigalista Evrópu-
mótaraðarinnar í svigi og stórsvigi.
Hilmar krækti í
annað gull
Ljósmynd/Íþróttasamband fatlaðra
Gull Hilmar Snær Örvarsson með
gullverðlaunin um hálsinn.