Morgunblaðið - 31.01.2020, Side 28

Morgunblaðið - 31.01.2020, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 6 ÓSKARSTILNEFNINGAR ÓSKARSTILNEFNINGAR11  Rás 2  FBL LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD Við úthlutun styrkja menningar, íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur var tilkynnt að Reykjavík En- semble, fjölþjóðlegur listhópur undir stjórn Pálínu Jónsdóttur leik- stjóra, verði listhópur Reykjavíkur 2020. Var hópurinn styrktur um tvær milljónir króna. Aldrei hafa borist fleiri umsóknir en í ár. Alls var 251 umsókn til með- ferðar þar sem sótt var um nær 374 miljónir króna. Ráðið hafði 58 millj- ónir til úthlutunar og veitti vilyrði fyrir 90 styrkjum og fimm nýjum þriggja ára samstarfssamningum fyrir þá upphæð. Fyrir eru 11 hóp- ar með eldri samninga í gildi. Tveir samstarfssamningar eru endurnýjaðir við menningarhúsið Mengi og myndlistartvíæringinn Sequences en nýir samstarfssamn- ingar eru gerðir við kórinn Schola Cantorum, Óperudaga í Reykjavík og Myndhöggvarafélagið vegna sýningarraðarinnar Hjólsins, áfanga III, IV og V. Þá eru ótaldir sex nýir borgar- hátíðasamningar við RIFF, Hinseg- in daga, Hönnunarmars, Iceland Airwaves, Myrka músíkdaga og Reykjavík Dance Festival fyrir samanlagt 50 milljónir á ári í þrjú ár. Einnig má nefna úrbótasjóðinn, tveggja ára verkefni sem í ár veitti átta milljónir til níu tónleikastaða. Styrkt Pálína Jónsdóttir, stjórnandi Reykjavík Ensemble, og Ewa Marcinek samstarfskona tóku við styrknum. Reykjavík En- semble valinn list- hópur Reykjavíkur Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Öllu afgreiðslufólki kvikmyndahúss- ins Bíó Paradís hefur verið sagt upp og að óbreyttu verður starfsemi hússins lögð niður í sumar. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis kvikmyndanna ses, sem rekur Bíó Para- dís, segir að bíóinu verði lokað 1. maí. Ástæðan sé stórhækkuð húsaleiga miðað við þá sem nú er greidd. Þá hækk- un ræður félagið ekki við og neyð- ist því til að loka bíóinu. „Ég mun segja upp skrif- stofufólki, sýningarmanni og mér sjálfri 1. apríl, við látum af störfum 30. júní og í maí og júní munum við ganga frá eigum bíósins og ganga frá því að loka þessum rekstri,“ segir Hrönn. Reksturinn aldrei gengið betur Hrönn segir reksturinn hafa gengið mjög vel. „Við höfum aldrei verið með fleiri gesti, aldrei selt jafnmarga miða og reksturinn hefur aldrei gengið betur,“ segir hún. „Við vorum svo heppin að gera mjög hagstæðan leigusamning við fyrri eiganda hússins, það var hálf- gert vandræðahús og gekk ekkert að selja það þannig að við fengum mjög lágt leiguverð, vel undir mark- aðsverði og það hefur líka hjálpað Bíó Paradís. Ég veit ekki hvort við værum hér hefðum við þurft að borga markaðsverð fyrir leiguna. Húsið er líka í ákveðnu ásigkomu- lagi, það hefur ekkert verið gert fyrir það. Nýr eigandi hússins kom inn fyrir fimm árum og gerði okkur strax grein fyrir því að hann ætl- aðist til að fá markaðsverð fyrir leiguna að þessum samningi loknum og við höfum öll vitað að hann rynni út núna 2020. Ég hef verið í við- ræðum við ríki og borg reglulega núna síðasta árið út af þessari stöðu. Við vissum öll að þetta væri að skella á en það er því miður ekk- ert á borði, hvorki frá ríki né borg, til að leysa stöðuna,“ segir Hrönn en nýr eigandi hússins er félagið Karl mikli ehf. Hrönn segir auðvitað ekki hlut- verk eiganda hússins að niðurgreiða menningarrekstur og því ekki við hann að sakast. „Leigan mun vera á verði sem við ráðum ekki við,“ segir hún. Ekkert annað í boði –Það er ekkert annað húsnæði í boði því það þyrfti væntanlega að vera annað bíóhús og fokdýrt að byggja þannig hús? „Já, og við höfum alveg skoðað hvort hægt væri að flytja. Ég treysti mér ekki til að reka þetta bíó í öðru póstnúmeri, við erum eina bíóið í miðbænum og margt af því sem við gerum snýst mikið um að við erum í hringiðu mannlífs og menningarlífs og líka veitingastaða, þessa miðbæjarlífs, og við tengjum vel við að vera í alfaraleið. Fólk ger- ir kvöld úr því að koma hingað og fara út að borða og á aðra staði. Mér þætti því langsótt og erfitt að hafa bíóið í úthverfi og ef græja á heilt bíó annars staðar kostar það alveg jafnmikið og þetta,“ svarar Hrönn. Mjög mikilvægt starf –Þið eruð eina „art house“-bíóið á landinu, eins og það er jafnan kall- að, og eina bíóið sem sinnir af al- vöru kvikmyndum frá öðrum lönd- um en Bandaríkjunum og sýningum á költmyndum og sígildum kvik- myndum, ekki satt? „Jú, og við erum eina menningar- stofnunin á landinu sem sinnir kvik- myndalæsi sem er orðið mjög stórt fyrirbæri um allan heim, tökum á móti 8.000 grunnskólabörnum á ári og höfum tekið á móti framhalds- skólanemum líka. Við erum með frí- ar skólasýningar og kennslu í kvik- myndalæsi, sem er mjög mikilvægt starf,“ segir Hrönn og aðspurð segir hún ekki líklegt að önnur kvik- myndahús taki að sér þetta hlutverk þar sem það skili ekki tekjum. Hrönn segir Bíó Paradís orðið rótgróið í íslensku menningarlífi og fólk skilji orðið vel út á hvað starf- semi þess gengur og af hverju hún sé mikilvæg kvikmyndalistinni. Enn er von –Þið lokið ekki alveg strax, er ekki enn von um að fjármagn fáist þannig að hægt verði að halda áfram starfsemi? „Jú, ég ætla ekkert að leyna því að nú leitum við allra leiða. Við vilj- um alls ekki gefa upp á bátinn allt þetta gífurlega starf, þróunarstarf. Við erum komin svo langt í því sem við erum að gera og gerum það vel, höfum aldrei verið vinsælli og aldrei verið með fleiri árskortshafa, aldrei fleiri fastagesti eða jafngóða að- sókn,“ svarar Hrönn. „Það er ekki þannig að hægt sé að leggja þetta niður og að einhver annar geti byrj- að frá grunni,“ segir hún. Bíó Paradís lokað að óbreyttu  Hækkuð leiga sögð ástæðan  Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri segir reksturinn aldrei hafa gengið jafnvel og nú  Annað húsnæði ekki í boði Morgunblaðið/Golli Menningarstofnun Bíó Paradís hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem listrænt kvikmyndahús og haldið fjölda kvik- myndahátíða og sérviðburða. Hér má sjá ljósmynd af einum viðburði hússins, frumsýningu á fyrsta þætti þriðju þáttaraðar uppvakningaþáttanna The Walking Dead árið 2013. Mættu fjölmargir uppvakningar á hana. Hrönn Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.