Morgunblaðið - 31.01.2020, Síða 32
SMÁRALIND – KRINGLAN
PRONTO matarstell
frá Kahla
Diskur 20,5 cm 1.890,-
Matardiskur 26 cm 2.590,-
Súpudiskur 22 cm 2.190,-
Skál 14 cm 2.590,-
Espresso bolli 8 cl 1.490,-
Espresso bolli 10 cl 1.490,-
Cappuccino bolli 25 cl 1.690,-
Kaffikrús 28 cl 1.990,-
Tekrús 40 cl 2.290,-
Kaffibolli 16 cl 1.690,-
PRONTO 16 cl kaffibollarnir
komnir aftur
Sérframleiddir fyrir okkur
TAKMARKAÐ MAGN
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistar-
maður og tónlistarfræðingur, var út-
nefndur bæjarlistamaður Seltjarn-
arness 2020 við hátíðlega athöfn á
Bókasafni Seltjarnarness í byrjun
viku. Árni hefur starfað að tónlistar-
málum með margvíslegum hætti,
sem tónlistarfræðingur, kennari, pí-
anóleikari, kórstjóri og sem listrænn
ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands og gefið út þrjár bækur
um tónlist á íslensku. Fyrir
skömmu kom svo út bók
eftir hann í Bandaríkj-
unum,
Jón
Leifs
and
the
Musical
Invention
of Iceland.
Árni bæjarlistamaður
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 31. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Tindastóll, KR og Haukar unnu öll
leiki sína í Dominos-deild karla í
körfubolta í gærkvöld. Fyrir leikina
voru þau í 3.-5. sæti, öll með 18
stig. Staðan hefur því lítið breyst,
nema hvað stigin eru orðin 20. KR
vann ÍR á heimavelli, Haukar unnu
Þór frá Þorlákshöfn í Hafnarfirði
og Tindastóll vann útisigur á Þór
frá Akureyri. »26
Þrjú lið hnífjöfn eftir
góða sigra í gærkvöldi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Dúettinn EKKI
MINNA Duo
heldur tónleika
í Iðnó í kvöld kl.
22 og eru þeir
liður í dagskrá
Myrkra músík-
daga. Dúettinn
skipa Bretinn
Andrew Power
sellóleikari og
Jónas Ásgeir
Ásgeirsson harmonikkuleikari sem
búa báðir í Kaupmannahöfn og flytja
nýja norræna tónlist. Á tónleikum
þeirra á Myrkum músíkdögum munu
Andrew og Jónas flytja ný verk eftir
dönsk tónskáld sem samin voru sér-
staklega fyrir dúóið og frumflytja
nýtt gagnvirkt gjörningstónverk eft-
ir Áslaugu Rún Magnúsdóttur.
EKKI MINNA Duo á
Myrkum músíkdögum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bassinn Davíð Ingi Ragnarsson
vann til verðlauna á Grandi Voci Ist-
anbul 2020-söngkeppninni sem fram
fór í Istanbúl í Tyrklandi og lauk um
liðna helgi og syngur hlutverk Sar-
astrós í Töfraflautunni eftir Mozart í
sérstakri uppfærslu í Salzburg síðar
á árinu. „Frammistaðan er einn
stærsti áfanginn síðan ég byrjaði að
syngja,“ segir hann. „Þetta er mikill
heiður og ég er ákaflega þakklátur
skipuleggjendum fyrir stuðninginn.“
Um 120 óperusöngvarar skráðu
sig til leiks, 62 þeirra víðs vegar að
úr heiminum tóku þátt í keppninni
og níu, þar á meðal Davíð, komust í
úrslit. Nokkrum verðlaunahafa var
boðið að taka þátt í Oper im Berg-
uppfærslum í Salzburg í ár, þar á
meðal Davíð. „Þessi keppni er fyrir
unga söngvara, hugsuð sem stökk-
pallur fyrir þá, og hefur verið árlega
í Salzburg í Austurríki en var nú í
Istanbúl í fyrsta sinn,“ segir Davíð.
Þegar hann frétti að hún yrði í Ist-
anbúl hafi hann sótt um að vera með
enda ekki langt að fara frá Ísrael þar
sem hann býr með ísraelskri unn-
ustu og starfar við að selja hug-
búnað, einkum til bandarískra stór-
fyrirtækja.
Körfubolti og söngur
Óperusöngur fellur ekki vel að
fullu starfi í hugbúnaðarfyrirtæki,
að sögn Davíðs. „Það er erfitt að
samræma þetta,“ segir hann. Hann
bætir við að þátttakendur í Istanbúl
hafi ýmist verið atvinnusöngvarar
eða söngnemar og hann því skorið
sig úr. „Ég varð að taka vinnuna
með mér til Istanbúl,“ segir hann.
„Enginn annar keppandi lauk við að
syngja og fór síðan rakleiðis upp á
hótel til þess að selja hugbúnað.“
Davíð var Íslandsmeistari í 10. og
11. flokki í körfubolta með Fjölni.
„Þegar ég var yngri spáði ég aðal-
lega í körfubolta,“ segir hann, en
hann var meðal annars valinn í
landsliðshóp 17 ára og yngri um
aldamótin. Hann steig fyrst fram á
söngsviðið þegar hann var níu ára.
„Þá bjuggum við í Chicago og for-
eldrar mínir vildu að ég reyndi fyrir
mér í söng og komu mér í kirkju-
kór,“ rifjar hann upp. Hann fór síðan
fyrst í söngtíma 16 ára, lærði söng í
Söngskóla Reykjavíkur og var síðan
í einkakennslu í Berlín. Eftir að
hann lauk formlegu námi fyrir um
áratug hefur hann unnið reglulega
með brasilískum kennara í New
York í gegnum skype á netinu til að
laga og bæta sönginn. „Söngnámi
lýkur aldrei, maður vill alltaf bæta
sig og þetta er ein leið til þess,“ segir
hann. „Markmiðið er að ná lengra og
lengra í söngnum, ná að syngja í
þekktum óperuhúsum.“
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
uppfærslan verður í Salzburg en
Davíð bíður spenntur eftir tækifær-
inu. „Ég vona að fleiri dyr opnist í
framhaldinu,“ segir hann.
Grandi Voci Istanbul 2020 Bassinn Davíð Ingi Ragnarsson vann til verðlauna í söngkeppninni.
Söng sig inn í hlutverk
Sarastrós í Salzburg
Davíð Ingi Ragnarsson fagnaði merkasta áfanganum