Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Side 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020
Enskukennari í bænum White-
water í Wisconsin í Bandaríkj-
unum, sem er á leið á eftir-
laun, var gripinn glóðvolgur
fyrir skemmstu við þá iðju að
hægja sér í almenningsgarði.
Hann tjáði yfirvöldum að hann
væri bjáni og að hann hefði
framið verknaðinn vegna þess
að það hentaði
honum og til að
sýna vanvirð-
ingu. Ekki var
um einangrað
atvik að ræða,
en kennarinn
mun hafa gert
þetta reglulega,
stundum oft á
dag, undanfarin
tvö ár eða svo.
Kennaranum,
Jeffrey Church-
well, var gert að
greiða sekt og skaðabætur til
hreinsideildar bæjarins fyrir að
þrífa upp eftir hann.
Það var blaðið The Janes-
ville Gazette sem greindi fyrst
frá málinu í vikunni.
Upp komst um Churchwell í
haust þegar lögreglumaður
stöðvaði hann er hann hugðist
keyra á bíl sín-
um inn í garð-
inn. Lögreglan
hafði haft augun
hjá sér um
skeið enda
ítrekaðar kvart-
anir borist frá
starfsfólki
garðsins. Bíllinn
hafði áður sést í
nágrenni garðs-
ins, sem beindi
athygli að
Churchwell.
Hægði sér reglulega
í almenningsgarði
Þessi garður tengist ekki efni
fréttarinnar.
Settu þína
ráðstefnu
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnurS IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S
Óskum eftir fallegum og táp-miklum stúlkum á háskóla-aldri til að sitja fyrir á ljós-
myndum og koma fram í mynd-
böndum.“
Þannig hljóðaði auglýsing á vef-
síðunni Craigslist sem fjöldi stúlkna
í Kaliforníu brást við árið 2016. Erf-
itt er að lesa út úr orðalaginu að í
raun og sann þyrftu svarendur að
koma naktir fram og hafa kynferð-
islega tilburði í frammi fyrir framan
mynda- og tökuvélarnar. Þegar á
hólminn var komið var það þó akk-
úrat það sem aðstandendur auglýs-
ingarinnar ætluðust til.
Íhuguðu að stytta sér aldur
Konurnar sem tóku þátt í gjörn-
ingnum voru allar á aldrinum átján
til 23 ára, þegar efnið var tekið upp,
og kom reynslan illa við sumar
þeirra, sem einangruðust í fram-
haldinu félagslega og íhuguðu jafn-
vel að stytta sér aldur. Fyrir vikið
leituðu þær réttar síns og í vikunni
komst dómstóll í San Diego að þeirri
niðurstöðu að brotið hefði verið á
konunum. Dæmdi dómarinn 22 kon-
um bætur upp á samtals einn og
hálfan milljarð króna.
Ekki nóg með að konurnar hefðu
verið leiddar í gildru. Dómurinn
komst einnig að þeirri niðurstöðu að
myndböndin, sem vefsíðan GirlsDo-
Porn framleiddi, hefðu verið sett á
netið, þrátt fyrir að konurnar hefðu
verið fullvissaðar um að það yrði
ekki gert. Svæðisstöð CBS fullyrti
fyrir helgina að sakborningarnir,
þeirra á meðal Michael J. Pratt,
framkvæmdastjóri GirlsDoPorn, og
leikarinn Andre Garcia, ættu yfir
höfði sér ákærur um kynlífsmansal.
Samkvæmt sömu heimild situr
Garcia inni ásamt fleirum en Pratt
gengur laus.
Deilt á vinsælli síðu
Ef marka má fréttaveituna Court-
house var myndböndunum deilt á
ákriftarvefsíðum GirlsDoPorn fáein-
um vikum eftir að þau voru tekin
upp og í framhaldinu á Pornhub,
sem er ein vinsælasta síða þessarar
gerðar í heiminum.
„Stefnendur hafa ekki ennþá bitið
úr nálinni vegna málsins og hafa af-
leiðingarnar í mörgum tilvikum ver-
ið átakanlegar,“ segir í rökstuðningi
dómarans, Kevins Enrights.
„Konurnar hafa upplifað grófa
áreitni, orðið fyrir tilfinningalegu og
sálrænu áfalli og mannorðshnekki;
þær hafa misst vinnuna, glatað
náms- og atvinnutækifærum og
sambönd laskast, bæði innan og utan
fjölskyldu. Þær hafa farið út af spor-
inu og lífi þeirra verið umturnað.
Þær hafa orðið að samfélagslegum
úrhrökum. Allnokkrir úr röðum
stefnenda hafa glímt við sjálfsvígs-
hugsanir,“ segir ennfremur.
Ennfremur kom fram við réttar-
haldið að sakborningarnir hefðu
greitt konum fyrir að segjast vera
fyrirsætur úr fyrri myndatökum á
þeirra vegum og til að ábyrgjast að
einkalíf þeirra hefði verið verndað.
Sent á samnemendur
Við dómhaldið kom fram að ein
kvennanna varð fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu að klám-
myndband sem hún tók þátt í var
sent á hóp nemenda, kennara og
annarra starfsmanna við lagadeild-
ina sem hún lagði stund á nám við.
Það gerðist eftir að hún fékk sér lög-
mann til að freista þess að hafa uppi
á skjölunum sem hún skrifaði undir.
Hinir ákæru neita að hafa sent
myndbandið.
Narraðar
í klám
Dómstóll í Kaliforníu hefur dæmt 22 ungum kon-
um bætur upp á samtals einn og hálfan milljarð
króna vegna þess að þær voru plataðar til að leika
í klámmyndum sem síðan var lekið á netið.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
AFP
Myndin tengist ekki
efni fréttarinnar
með beinum hætti.