Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Göngugarpurinn Arnþórbýður blaðamanni kaffi ogmeð því, en í skál á borði
eru fimm eða sex tegundir af góm-
sætum jólasmákökum sem hann
hefur sjálfur bakað. Arnþór er
jarðfræðingur á eftirlaunum en
hann verður sjötugur á næsta ári.
Hann byrjaði að ganga sér til gam-
ans um fimmtugt og segir það hafa
létt lundina mikið enda gott bæði
fyrir líkama og sál.
Gönguferðirnar urðu fljótt að
ástríðu og veita honum mikla gleði.
Eftir að hann fór á eftirlaun fyrir
fimm árum gaf hann hressilega í
en Arnþór hefur gengið 43 þúsund
kílómetra síðan 2003.
Reykjanesið í uppáhaldi
„Eftir fimmtugt fór ég að ganga og
byrjaði á Reykjanesskaganum en
ég hef gengið hann þvers og kruss.
Það hentar mér vel því það er
stutt að fara. Ég fer yfirleitt alltaf
einn og finnst það gott. Mér finnst
þetta bara svo skemmtilegt. Ég
geng alltaf eitthvað á hverjum degi
núna eftir að ég hætti að vinna og
fer út í öllum veðrum. Ég hitti
sjaldan fólk á Reykjanesi en stund-
um sé ég nýleg fótspor og veit þá
að það eru fleiri eins og ég,“ segir
hann og brosir.
Arnþór segist vera mikill ná-
kvæmnismaður og skráir alltaf
gönguferðirnar í tölvu; leiðina,
vegalengdir og tíma.
„Áður en ég fer plana ég leið-
ina. Ég fer oft á ákveðna staði
sem mér þykir vænt um en hnika
oft aðeins til gönguleiðinni,“ segir
Arnþór og nær í gamalt og
útþvælt landakort af Reykja-
nesskaganum og höfuðborginni.
Þar hefur hann teiknað inn
hverja einustu gönguferð sem
hann hefur farið og er kortið út-
krotað þéttu neti. Blaðamaður gap-
ir enda er þar varla blettur sem
ekki hefur verið genginn.
„Ég geng mest í nágrenni borg-
arinnar og innanbæjar en stundum
annars staðar á landinu. Ég fer
með fjölskyldumeðlimum í eina
gönguferð á ári, eins og í Land-
mannalaugar og þar í kring, og svo
hef ég stundum farið með Ferða-
félaginu og Útivist.“
Eins og maður svifi
Þótt Ísland bjóði upp á endalausar
fallegar gönguleiðir ákvað Arnþór
að prófa að ganga á erlendri
grundu.
„Ég hætti í vinnunni 65 ára og
ákvað þá að ganga til Rómar eftir
pílagrímaleiðinni Via Francigena.
Fyrsti kaflinn var frá Siena en
þetta var hálfsmánaðar ferð. Fyrri
hluta ferðarinnar fór ég með
ítölsku ferðafélagi, en oftast plana
ég ferðirnar í gegnum ferðaskrif-
stofu sem sér um að bóka öll hót-
elin og svo geng ég á milli þeirra.
Þetta var árið 2015 og var svo
skemmtilegt,“ segir Arnþór og
segist þá hafa fengið bakteríuna að
ganga í Evrópu. Næstu árin hélt
hann áfram að ferðast víða um álf-
una og fann sér sífellt nýjar og
spennandi gönguleiðir. Var hann
þó einkum heillaður af Via Franci-
gena sem liggur um fjögur lönd frá
Kantaraborg til Rómar.
„Næsta árið gekk ég yfir Appen-
ínafjöllin og síðan frá Lucca til
Siena. Svo árið 2017 gekk ég yfir
Jarðfræðingurinn Arnþór Óli Arason hefur nóg að gera nú þegar hann er kominn á eftirlaun. Hann gengur daglega og er
Reykjanesið í sérlegu uppáhaldi. Á kortinu má sjá allar gönguleiðir sem farnar hafa verið.
Morgunblaðið/Ásdís
Lengra en
kringum
hnöttinn
Jarðfræðingurinn Arnþór Óli Arason veit fátt
skemmtilegra en að reima á sig gönguskóna
og arka yfir urð og grjót. Nú eða malbikið, en
hann er líklega eini Íslendingurinn sem geng-
ið hefur allar götur Reykjavíkur. Gengnir
kílómetrar síðustu sextán ára eru 43 þúsund;
meira en leiðin umhverfis jörðina.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Arnþór útbýr fallegar mynda-
bækur eftir hverja utanlandsferð,
en hann gengur mikið erlendis.