Morgunblaðið - 08.02.2020, Page 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
60 ára Sigurveig ólst
upp í Reykjavík en býr
í Garðabæ. Hún er
hárgreiðslumeistari og
þroskaþjálfi að mennt
og starfar sem
þroskaþjálfi í Salaskóla
í Kópavogi. Hún er í
hlaupahópi Stjörnunnar og hefur þrisvar
hlaupið hálfmaraþon.
Maki: Árni Eggertsson, f. 1956, vél-
fræðingur í álverinu í Straumsvík.
Börn: Björn, f. 1980, og Eggert, f. 1983.
Barnabörnin eru orðin fjögur.
Foreldrar: Björn Gunnlaugsson, f. 1926,
d. 2012, húsgagnasmiður og rak eigið
fyrirtæki, og Helga Ágústsdóttir, f.
1934, húsmóðir. Hún er búsett í Reykja-
vík.
Sigurveig
Björnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú færð skömm í hattinn frá lækn-
inum þínum, þú hvílir þig ekki nóg. Hlýddu
nú einu sinni og farðu fyrr að sofa næstu
daga.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki streitast á móti breytingum.
Komdu vini til hjálpar. Stundum verður
maður að kyngja stoltinu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Veltu fyrir þér möguleikum til
breytinga í lífi þínu og gerðu það sem til
þarf. Ef þú opnar augun betur sérðu að
þér eru allir vegir færir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allir þurfa ást og allir eru færir um
að gefa hana. Umbyltu lífi þínu og vittu til,
þú verður hamingjusamasta persóna sem
finnst undir sólu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fátt er skemmtilegra en góðar
stundir í faðmi fjölskyldunnar. Dagurinn
hentar vel bæði til félagslífs og skipulagn-
ingar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gefðu þér tíma til að hringja í þá
sem þú hefur ekki heyrt í lengi. Eitthvað er
að gerast í ástamálunum.
23. sept. - 22. okt.
VogMundu að öllum orðum fylgir einhver
ábyrgð svo lofaðu engu nema að þú getir
staðið við það. Þér liggur mikið á hjarta.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Rómantískt samband þarfn-
ast smávegis innspýtingar. Leystu málin
vegna gamallar skuldar og þá geturðu um
frjálst höfuð strokið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þrátt fyrir að vinir og vanda-
menn séu ekki á sömu leið og þú, þá líður
þér vel. Heilsan er það mikilvægasta sem
þú átt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að huga að því hvernig
þú getur bætt fjárhagsstöðu þína og allar
aðstæður þínar. Sýndu öðrum fyllstu kurt-
eisi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú eru góðar aðstæður til þess
að leggja út í hagnýtt samstarf sem skilar
árangri til langs tíma litið. Gerðu þér samt
ekki of miklar vonir í byrjun.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þó að vinnan og fjármálin eigi hug
þinn allan í dag finnur þú fyrir þörf til þess
að bregða á leik. Þú hefur vindinn í fangið í
dag en það breytist fljótt.
G
uðrún Þóranna Jóns-
dóttir er fædd 8. febr-
úar 1950 í Ártúnum í
Blöndudal, A-Hún., og
ólst þar upp við öll
venjubundin sveitastörf.
Guðrún fór 8 ára í barnaskóla í
Húnaveri. „Ég á góðar minningar
frá þeim árum, séra Jón Kr. Ísfeld
var sóknarprestur í Bólstaðar-
hlíðarprestakalli á þessum árum og
kenndi okkur sveitabörnunum í 1.
og 2. bekk unglingaskóla.“ Eftir
landspróf á Blönduósi lá leiðin til
Reykjavíkur í Kennaraskóla Ís-
lands þar sem hún lauk kennara-
prófi 1970. Eftir nokkur ár í
kennslu ákvað Guðrún að leita sér
frekari menntunar 1975 og fór til
Gautaborgar í Svíþjóð ásamt eig-
inmanni sínum og nam þar sér-
kennslu við Lärarhögskolan í Möln-
dal og var þar í tvö ár. Hún tók
námsorlof 2006 og lauk meistara-
námi frá Háskóla Íslands 2010.
Guðrún kenndi almenna kennslu í
grunn- og barnaskólum á nokkrum
stöðum á landinu, í Grundarfirði, á
Selfossi, í Öskjuhlíðarskóla og
Seljaskóla í Reykjavík, á Raufar-
höfn, á Hvammstanga og endaði
aftur á Selfossi. „Mér þótti
skemmtilegt að kenna og var dug-
leg að sækja kennaranámskeið sem
var alltaf boðið upp á eftir kennslu
á vorin eða í ágúst.“ Síðustu tólf ár
í starfi sinnti hún deildarstjóra-
stöðu í sérkennslu við Vallaskóla á
Selfossi.
Guðrún hefur verið formaður
Kvenfélags Selfoss í 6 ár samtals og
setið í stjórn félagsins frá 2007. „Ég
hef starfað í kvenfélögum bæði fyr-
ir norðan og sunnan. Það hefur
veitt mér mikla ánægju og ég hef
eignast margar vinkonur í þeim
félagsskap meðfram því að sinna
ýmsum trúnaðarstörfum í kven-
félögunum sem félagskonur hafa
treyst mér fyrir.
Nú síðustu ár hef ég tekið að mér
störf fyrir tímaritið Húsfreyjuna
sem kemur út fjórum sinnum á ári.
Sinni ég þar formennsku útgáfu- og
ritstjórnar ásamt því að lesa próf-
arkir með tveim valinkunnum
kennurum.“
Guðrún hefur haft mikið yndi af
söng alla tíð. „Ég held að ég hafi
verið nokkuð samfellt í kórum frá
því að ég var 16 ára og söng í
kirkjukórnum hjá föður mínum. Nú
syng ég með Hörpukórnum sem er
kór eldri borgara á Selfossi. Ég
hvet alla þá sem eru hættir störfum
á vinnumarkaði að kynna sér starf-
semi eldri borgara á sínu svæði. Því
það er gefandi að taka þátt í félags-
starfi og oft er margt áhugavert í
boði. Maður er manns gaman.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Guð-
mundur Guðmundsson, f. 3.6. 1945,
kennari og fyrrverandi sviðstjóri
hjá Landgræðslu ríkisins. For-
eldrar hans voru hjónin Magnús
Guðmundur Guðmundsson, f. 11.8.
1908, d. 17.4. 1979, bóndi í Vorsa-
bæjarhjáleigu í Flóa, og Anný Guð-
jónsdóttir, f. 17.10. 1908, d. 12.5.
1993, ljósmóðir í Gaulverjabæjar-
hreppsumdæmi.
Börn Guðrúnar og Guðmundar
eru 1) Jónas Víðir Guðmundsson, f.
24.9. 1975, kennari á Selfossi. Maki:
Elísabet Sif Helgadóttir kennari.
Börn þeirra eru Guðmundur Alex-
ander, f. 2.1. 2006, Anný Elísabet, f.
28.5. 2007 og Agnes Ísabella, f. 27.6.
2009; 2) Anný Björk Guðmunds-
dóttir, f. 16.12. 1977, rekstrarstjóri
hjá Rönning á Selfossi. Sonur An-
nýjar er Magnús Ari Melsted, f.
23.12. 2004; 3) Sigríður Dögg Guð-
mundsdóttir, f. 16.1. 1981, verk-
efnastjóri hjá Íslandsstofu og býr á
Seltjarnarnesi. Maki: Árni Helga-
Guðrún Þóranna Jónsdóttir kennari – 70 ára
Börn og tengdabörn Stödd í Hörpu.
Maður er manns gaman
Með móður og systkinum Á 95 ára afmæli Sigríðar Ólafsdóttur, móður
Guðrúnar, á Bakkaflöt í Skagafirði, 4.11. 2019. Guðrún er önnur frá hægri.
Með maka og barnabörnum Ferming elsta barnabarnsins, Magnúsar Ara.
30 ára Þuríður er
Reykvíkingur, ólst upp
í Grafarvogi en býr í
Úlfarsárdal. Hún er
með BA-gráðu í tóm-
stundafræði frá Há-
skóla Íslands. Þuríður
er í fæðingarorlofi en
snýr svo aftur sem flugfreyja hjá Ice-
landair eftir það.
Maki: Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, f.
1986, lögfræðingur hjá Skattinum.
Börn: Auðunn Hlíðkvist, f. 2014, Emil
Hlíðkvist, f. 2017, og Matthildur Hlíðkvist,
f. 2019.
Foreldrar:Ragnheiður Erlendsdóttir, f.
1957, húsmóðir í Reykjavík, og Davíð
Steinþórsson, f. 1958, bifreiðarstjóri í
Reykjavík.
Þuríður
Davíðsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Matthildur Hlíðkvist
Bjarnadóttir fæddist 12. maí
2019 á fæðingardeild Landspít-
alans. Hún vó 4.356 g og var 53
cm löng. Foreldrar hennar eru
Þuríður Davíðsdóttir og Bjarni
Hlíðkvist Kristmarsson.
Nýr borgari