Morgunblaðið - 24.02.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020
Opinn fundur um heilbrigðismál verður í Valhöll á morgun,
þriðjudaginn 25. febrúar, kl. 18.00. Gestur fundarins
er Teitur Guðmundsson læknir og framkvæmdastjóri
Heilsuverndar. Rætt verður um einkarekstur og
uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu og svarar Teitur
spurningum að framsögu lokinni. Allir velkomnir!
Heilbrigðismál
— opinn fundur í Valhöll á morgun
VERKALÝÐSRÁÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
OG MÁLFUNDAFÉLAGIÐ VILJINN Á SUÐURNESJUM
Teitur Guðmundsson læknir og
framkvæmdastjóri Heilsuverndar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér sýnist ekkert fararsnið vera á
fuglinum, þótt hann sé að koma til
og sé orðinn ágætlega fleygur
hérna innanhús,“ segir Friðbjörn
Beck Möller Baldursson, ráðs-
maður á Bessastöðum. Fálkaunginn
sem brotlenti nærri forsetasetrinu
um jólaleytið hefur síðasta mánuð-
inn verið í fóstri á skemmulofti í
einni af byggingum staðarins. Þar
hefur Friðbjörn útbúið ágæta að-
stöðu fyrir fuglinn, sem daglega
fær lambshjörtu í gogginn. Öll að-
hlynning er samkvæmt ráðum
Ólafs Karls Nilsen náttúrufræð-
ings, sem komið hefur reglulega til
að fylgjast með Kríu, eins og fugl-
inn var nefndur. Ólafur hefur í tím-
ans rás mikið sinnt rannsóknum á
íslenska fálkastofninum og þekkir
vel til allra lifnaðarhátta hans.
Kría var bæði horuð og hrakin
þegar Friðbjörn bjargaði henni á
öðrum degi jóla. Hún komst hins
vegar í öruggar hendur, fékk gott
atlæti og hefur það fínt. „Kría er
svolítið óörugg enn og vill sig
hvergi hreyfa þegar ég hef borið
hana út í glugga. Styrktaræfingar á
væng og búk eru því fram undan
svo Kría geti flogið á brott ein-
hvern tíma á vormánuðum,“ segir
Friðbjörn á Bessastöðum.
Kría er enn á Bessastöðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fálki Kría hefur dafnað vel í fóstri hjá Friðbirni, sem er ráðsmaður á forsetasetrinu á Bessastöðum á Álftanesi.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Á meðan Efling og BSRB grípa til
verkfallsaðgerða hefur Starfsgreina-
sambandið (SGS) samið við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og
Landsvirkjun og hefur félagið náð
samkomulagi um útlínur á nýjum
kjarasamningi við ríkið.
Efling er eitt af aðildarfélögum
SGS og er Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar, jafnframt vara-
formaður SGS.
Flosi Eiríksson, framkvæmda-
stjóri SGS, segir aðspurður að það
skjóti ekki skökku við að vel gangi að
semja hjá SGS en illa hjá Eflingu.
Helst sé hægt að kenna sérstaklega
slæmri stöðu í borginni um það.
„Ég held að staðan í Reykjavík sé
alveg einstök og hún endurspeglast í
þeim hnút sem kjaramálin eru í þar
og þeirri óbilgirni sem borgarstjórn-
in hefur sýnt í þeim efnum,“ segir
Flosi.
VLFA samdi á undan SGS
Efling og SGS stóðu saman í við-
ræðum við sveitarfélögin fyrir ára-
mót en eftir deilur við Reykjavíkur-
borg ákváðu forsvarsmenn Eflingar
að stéttarfélagið skyldi semja upp á
eigin spýtur.
Spurður hvort það sé ekki óheppi-
legt að SGS, sem leitast við að vera
leiðandi afl í verkalýðsbaráttunni, og
Efling séu á svo ólíkum stöðum í
kjarabaráttunni segir Flosi:
„Hvort félag fer með sinn
samningsrétt og aðstæður á
hverjum stað og hverjum tíma ráða
því. Verkalýðsfélag Akraness samdi
sérstaklega við sveitarfélögin á und-
an SGS til dæmis og okkur þótti það
heldur ekkert óheppilegt.“
Félagsmenn SGS sinna ekki sömu
störfum og félagsmenn Eflingar á
höfuðborgarsvæðinu. Flosi býst ekki
við því að halla fari á félagsmenn
SGS ef Reykjavíkurborg samþykkir
kröfur Eflingar.
Félagsmenn Eflingar í Reykja-
víkurborg hafa verið í ótímabundnu
verkfalli frá því á mánudaginn í síð-
ustu viku. Í þessari viku verða einnig
greidd atkvæði um vinnustöðvun á
meðal félagsmanna Eflingar sem
starfa hjá sveitarfélögum. Sömuleið-
is verða greidd atkvæði um samúð-
arverkfall hjá félagsmönnum Efling-
ar sem starfa hjá einkareknum
skólum.
Enginn fundur er fyrirhugaður í
deilum Eflingar við Reykjavíkur-
borg og sömu sögu er að segja af
deilu stéttarfélagsins við Samtök ís-
lenskra sveitarfélaga.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Eflingar, segir þó raunhæft að
Efling nái að semja við sína deilu-
aðila í vikunni sé samningsvilji fyrir
hendi.
„Aðallega er það spurning um af-
stöðu Reykjavíkurborgar. Ef hún er
tilbúin að fara í að opna á einhverjar
af þeim leiðum sem við höfum lagt til
til þess að ná þessari launaleiðrétt-
ingu fram eða vill sjálf setja fram
boðlega leið til þess eigum við að
sjálfsögðu að geta náð saman nokkuð
fljótt.“
Þó svo að engir formlegir fundir
séu fyrirhugaðir segir Viðar að virkt
samtal eigi sér stað í baklandinu.
„Við erum líka að velta upp öllum
möguleikum á því hvernig hægt sé
að framkvæma þessa launaleiðrétt-
ingu sem við teljum í dag að sé sátt
um að framkvæma.“
Telur sátt um launaleiðréttingu
Framkvæmdastjóri SGS segir stöðuna í Reykjavík sérstaklega erfiða Raunhæft að Efling nái að
semja við borgina í þessari viku Veltur á samningsvilja Reykjavíkurborgar, segir Viðar Þorsteinsson
Morgunblaðið/Hari
Kjör Efling hefur talað fyrir launa-
hækkunum innan kvennastétta.
Flosi
Eiríksson
Viðar
Þorsteinsson
Þrír grunnskólar á höfuð-
borgarsvæðinu; Réttarholts-
skóli, Grandaskóli og Voga-
skóli, bjóða einungis
sumum nemenda sinna upp
á staðnám í dag og vinna
með svokallað veltukerfi til
að bjóða sem flestum nem-
endum sínum menntun í
skólanum.
Þeir tveir fyrstnefndu
hafa verið lokaðir að hluta
síðan í síðustu viku.
Fjórði grunnskólinn,
Hamraskóli, þarf svo að
loka að stórum hluta á
morgun.
Anna Bergsdóttir, skólastjóri Hamraskóla, segir að stór hluti skólans
sé nú að verða þannig að ekki sé lengur hægt að kenna þar vegna
óþrifnaðar. Er það vegna þess að tvær starfskonur Eflingar sjá um að
þrífa þann hluta skólans.
„Eflingarkonur þrífa býsna stóran hluta skólans,“ segir Anna.
Lokunin snertir alla nemendur en unnið verður að því að sem flestir
nemenda fái að mæta í skólann.
1.500 leikskólabörn hafa ekki fengið að mæta í leikskólann frá því að
verkföllin hófust fyrir viku og snertir verkfallið enn fleiri leikskólabörn.
Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna Heimilis og
skóla, segir að ástandið verði sífellt alvarlegra eftir því sem verkfallið
dregst á landinn.
„Það er kannski helst þessi óvissa sem foreldrum finnst óþægileg,
að vita ekki alveg hvernig þetta fer og hversu lengi þetta stendur yfir.“
Fjórir skólar þurfa að loka að
stórum hluta vegna óþrifnaðar
ÓVISSAN VELDUR FORELDRUM ÓÞÆGINDUM
Skólar Verkfallið hefur einnig áhrif á matar-
þjónustu, bæði innan grunn- og leikskóla.
Morgunblaðið/Hari
Bjarni Bene-
diktsson, fjár-
málaráðherra og
formaður Sjálf-
stæðisflokksins,
hefur hug á að
halda áfram að
leiða flokkinn.
Frá þessu
greindi hann í
Silfrinu í gær.
Þar var Bjarni
spurður að því hvort hann vildi að
gengið yrði til kosninga vorið 2021
eða um haustið sama ár, þegar
kjörtímabili ríkisstjórnarinnar er
raunverulega lokið.
Bjarni sagði að enn væri óljóst
hvenær kosningar yrðu en hann
hefði nú þegar gert upp hug sinn.
„Það kostaði blóð, svita og tár að
komast til valda. Af hverju í ósköp-
unum ætti maður að gefa það frá
sér hálfu ári áður en lög segja til
um?“ sagði Bjarni.
„Í stuttu máli myndi ég vilja
kjósa að hausti 2021.“
Spurður hvort hann hafi velt fyr-
ir sér að leiða Sjálfstæðisflokkinn í
næstu kosningum sagði Bjarni að
það vildi hann gjarnan.
„Mér líður þannig að ég sé ekki
búinn. Mér líður þannig að ég hafi
stuðning og það sé verk að vinna.
Að okkur hafi tekist vel við að fást
við afleiðingar fjármálahruns og að
við séum komin á góðan stað og far-
in að horfa til framtíðar,“ sagði
Bjarni og bætti því við að spenn-
andi væri að móta framtíð Íslands.
Bjarni vill leiða Sjálfstæðisflokkinn áfram
Bjarni
Benediktsson