Morgunblaðið - 24.02.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 24.02.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is Gítarar Frábært úrv al „VIÐ URÐUM AÐ REKA RAKARANN – HANN VAR KOMINN MEÐ SVO MIKINN HANDSKJÁLFTA. ” „ANNAR YKKAR VERÐUR MÍN HÆGRI HÖND Í SÖLUTEYMINU.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá fiðrildi í magann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG HÖNDLA MÁLIN EKKI NÓGU VEL … ÞÚ VERÐUR BARA AÐ SKIPA ÖÐRUM AÐ GERA ÞAÐ SEM ÞARF! ÞJÓNN! HANN Á AÐ BORGA REIKNINGINN MINN! „KÆRA SPYRÐU HUNDINN, ER RANGT AÐ GEFA HUNDINUM SÍNUM FITANDI GOTTERÍ?” VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! OG LÁTA AÐRA AXLA ÁBYRGÐ? EINMITT? JÁ. ÞÚ ÁTT AÐ GEFA KETTINUM ÞAÐ Fjölskylda Eiginkona Ingimundar er Guðný Helgadóttir, f. 2.8. 1947, fyrrverandi deildarstjóri í mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Helgi J. Halldórsson, f. 17.11. 1915, d. 13.10. 1987, kennari og þýð- andi, og Guðbjörg Guðbjartsdóttir, f. 17.10. 1920, d. 3.1. 2015, húsmóðir og vann á Þjóðminjasafninu. Þau voru búsett í Reykjavík. Fyrri eiginkona Ingimundar er Ingunn Helga Þór- oddsdóttir, f. 11.9. 1949, kennari. Þau skildu 1997. Börn Ingimundar og Ingunnar eru 1) Ari Ingimundarson, f. 29.6. 1972, verkfræðingur, búsettur í Reykjavík. Ari er giftur Beatriz Palmarola Adrados og synir þeirra eru Halldór Luis Arason Palmarola, f. 2006, og Alexander Ingi Arason Palmarola, f. 2009; 2) Ingibjörg Ingimundardóttir, f. 23.5. 1975, verslunarmaður, búsett í Reykja- vík. Sonur hennar er Ari Andrey Ivansson Shelykh, f. 2012; 3) Gísli Halldór Ingimundarson, f. 13.5. 1982, stærðfræðingur, búsettur í Reykjavík. Gísli er giftur Sigur- borgu Selmu Karlsdóttur og sonur þeirra er Benjamín Tumi, f. 2018. Fyrir átti Ingunn Steingrím Þór- arin Blöndal, 31.1. 1968, rafeinda- verkfræðing. Bróðir Ingimundar er Gunn- steinn Gíslason, f. 13.9. 1946, mynd- listarmaður í Reykjavík. Foreldrar Ingimundar voru hjón- in Ingibjörg Þorbjörg Ingimundar- dóttir, f. 19.10. 1915, d. 18.8. 1970, matreiðslukona, og Gísli Kristjáns- son, f. 17.2. 1920, d. 26.2. 1995, húsa- smiður og verkstjóri. Þau voru bú- sett í Reykjavík. Ingimundur Gíslason Valgerður Guðmundsdóttir húsfreyja í Ormskoti Oddur Ívarsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð Elín Oddsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Kristján Jónsson trésmíðameistari í Vestmannaeyjum Gísli Kristjánsson verkstjóri í Reykjavík Margrét Árnadóttir húsfreyja áArngeirsstöðum Jón Erlendsson bóndi og rennismiður á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð GunnsteinnGíslason myndlistarmaður í Reykjavík Oddgeir Kristjánsson tónskáld í Vestmannaeyjum Gróa Sölvadóttir húsfreyja í Tungu Þórður Sigurðsson bóndi í Tungu í Skutulsfirði Sigríður Ingibjörg Þórðardóttir húsfreyja á Kletti Ingimundur Þórðarson bóndi á Kletti í Gufudalssveit Þorbjörg Jóhannesdóttir húsfreyja á Kletti Þórður Arason bóndi á Kletti Úr frændgarði Ingimundar Gíslasonar Ingibjörg Ingimundardóttir matreiðslukona í Reykjavik Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði og kallar „Spak- vitringa“: Ég heyrði tvo spekinga spjalla, svo spaka, að það má kalla, að jafnist þeir, bara þessir tveir, á við Þingeyjarsýsluna alla. Áður hafði hann ort og kallar „Bólfarir“: Hann Grímur var glæsimenni og gisti hjá Dalrós á Enni, en staður hann var, honum stóð ekki par, samt stóð ekki vitund á henni. Hafsteinn Reykjalin Jóhannesson yrkir: Hann Gísli er dæmalaus glanni, en góðverk öll vann hann með sanni. Glaður og töff, gleiður og röff og gekk alltaf langt fram af manni. Gunnar Hólm Hjálmarsson hefur orð á því að fyrrverandi dóms- málaráðherra gagnrýni setu Ró- berts R. Spanó við Mannréttinda- dómstól Evrópu og nú hafi hún líka áhyggjur af því að dómstóllinn skaði lýðræðið. Síðan áréttar hann sinn skilning á þessu fram settan í orðastað hennar: Lýðræðið lækka mun róminn og lítill mun af því sóminn. Ég fæ ekki leynt og fyrirgef seint að fá ekki að skipa í dóminn. Sigurlín Hermannsdóttir skrifar: „Þegar ég hlustaði á Matta Matt Eurovision-söngvara skildi ég hvað felst í því að kunna mál aftur á bak og áfram. Í framhaldi af því fæddist þessi vitleysa“: Samkvæmin sækir hann göfug þar sæt eru vínin og höfug. En þjóðin er spennt er þakkar hann pent því orðræða hans er víst öfug. Helgi Ingólfsson yrkir: Þau bögglast mjög, bragformin ungu, en bylta oft hlassinu þungu. Frá lungum í háls er limran mjög frjáls, uns loksins hún strandar á tungu. Og að lokum eftir Jón Thorodd- sen: Heilsa ég bæði dóna og dverg og durg á sínum garði: Komið þér sælir, Klingenberg, kammerráð á Skarði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af spakvitringum og fleira fólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.