Morgunblaðið - 24.02.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020
England
Chelsea – Tottenham ............................... 2:1
Burnley – Bournemouth.......................... 3:0
Crystal Palace – Newcastle..................... 1:0
Sheffield United – Brighton.................... 1:1
Southampton – Aston Villa...................... 2:0
Leicester – Manchester City................... 0:1
Manchester United – Watford................ 3:0
Wolves – Norwich..................................... 3:0
Arsenal – Everton .................................... 3:2
Staðan:
Liverpool 26 25 1 0 61:15 76
Manch.City 27 18 3 6 68:29 57
Leicester 27 15 5 7 54:27 50
Chelsea 27 13 5 9 45:37 44
Manch.Utd 27 11 8 8 41:29 41
Tottenham 27 11 7 9 44:36 40
Sheffield Utd 27 10 10 7 29:25 40
Wolves 27 9 12 6 38:32 39
Arsenal 27 8 13 6 39:36 37
Burnley 27 11 4 12 33:39 37
Everton 27 10 6 11 36:41 36
Southampton 27 10 4 13 34:48 34
Crystal Palace 27 8 9 10 24:32 33
Newcastle 27 8 7 12 24:41 31
Brighton 27 6 10 11 32:39 28
Bournemouth 27 7 5 15 26:43 26
Aston Villa 27 7 4 16 34:52 25
West Ham 26 6 6 14 30:45 24
Watford 27 5 9 13 24:43 24
Norwich 27 4 6 17 24:51 18
Portúgal
Sporting Lissabon – SL Benfica ............ 3:2
Cloé Lacasse skoraði annað mark Ben-
fica, 22. mark sitt í 15 leikjum, en lið hennar
tapaði í fyrsta skipti í vetur.
Grikkland
PAOK – Olympiakos ............................... 0:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK í toppslag deildarinnar.
Volos – Larissa......................................... 0:0
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa í leiknum.
Þýskaland
Leverkusen – Augsburg ......................... 2:0
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg á 89. mínútu.
Olísdeild karla
KA – Fram ............................................ 20:21
Haukar – Afturelding .......................... 22:24
Fjölnir – ÍBV ........................................ 25:38
HK – FH ............................................... 20:34
ÍR – Valur.............................................. 23:24
Staðan:
Valur 19 13 2 4 525:459 28
FH 19 12 2 5 569:513 26
Afturelding 19 11 3 5 520:508 25
Haukar 19 11 3 5 512:499 25
ÍBV 19 11 2 6 558:509 24
Selfoss 18 11 1 6 560:545 23
ÍR 19 10 2 7 569:530 22
Stjarnan 18 6 5 7 480:485 17
Fram 19 6 2 11 456:483 14
KA 19 5 1 13 502:550 11
HK 19 3 0 16 478:559 6
Fjölnir 19 2 1 16 484:573 5
Olísdeild kvenna
ÍBV – Stjarnan ..................................... 27:25
KA/Þór – HK ........................................ 33:31
Afturelding – Fram.............................. 11:35
Haukar – Valur..................................... 20:29
Staðan:
Fram 17 16 0 1 546:356 32
Valur 17 14 1 2 473:350 29
Stjarnan 17 8 3 6 429:412 19
HK 17 7 2 8 459:471 16
ÍBV 17 6 2 9 386:409 14
KA/Þór 17 7 0 10 407:475 14
Haukar 17 5 2 10 371:427 12
Afturelding 17 0 0 17 314:485 0
Meistaradeild Evrópu
Zagreb – Aalborg ................................ 31:30
Janus Daði Smárason skoraði 7 mörk
fyrir Aalborg og Ómar Ingi Magnússon 3.
Forkeppni HM 2023 karla
B-riðill:
Ísland – Slóvakía .................................. 83:74
Lúxemborg – Kósóvó ........................... 80:84
Staðan:
Kósóvó 2 2 0 164:158 4
Ísland 2 1 1 161:154 2
Slóvakía 2 1 1 147:148 2
Lúxemborg 2 0 2 145:157 0
Næst er leikið í nóvember 2020.
Dominos-deild kvenna
Valur – Grindavík ............................... 118:55
Breiðablik – Snæfell............................. 77:91
Keflavík – KR ....................................... 77:71
Staðan:
Valur 22 20 2 1896:1426 40
KR 22 16 6 1663:1433 32
Keflavík 21 13 8 1536:1482 26
Haukar 21 13 8 1523:1442 26
Skallagrímur 21 12 9 1414:1444 24
Snæfell 21 7 14 1411:1618 14
Breiðablik 22 3 19 1425:1733 6
Grindavík 22 2 20 1403:1693 4
FRJÁLSAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kristján Viggó Sigfinnsson, sextán
ára Reykvíkingur sem keppir fyrir
Ármann, er orðinn næstbesti há-
stökkvari sögunnar innanhúss hér á
landi. Hann varð Íslandsmeistari í
hástökki með miklum yfirburðum í
gær þegar hann fór yfir 2,15 metra á
Meistaramóti Íslands innanhúss í
Kaplakrika.
Með því sló hann piltametið, 17
ára og yngri, sem Einar Karl
Hjartarson setti árið 1997 en það var
2,12 metrar. Einar, besti hástökkv-
ari sögunnar hérlendis, á Íslandsmet
fullorðinna innanhúss, 2,28 metra,
sem hann setti í Laugardalshöllinni
árið 2001. Kristján var fimmti á af-
rekaskrá fullorðinna frá upphafi fyr-
ir mótið með 2,10 metra en fór upp
fyrir þrjá á listanum og er nú með
næstbesta afrekið frá upphafi, á eft-
ir Einari Karli.
Þegar utanhússafrekin eru skoð-
uð er Kristján sá fjórði besti með
2,13 metra sem hann stökk síðasta
sumar. Einar Karl á þar Íslands-
metið, en hann stökk 2,25 metra á
Smáþjóðaleikunum í San Marínó ár-
ið 2001. Einar Kristjánsson stökk
2,16 metra árið 1992 og Gunnlaugur
Grettisson stökk 2,15 metra árið
1988.
Ari þrefaldur Íslandsmeistari
Ari Bragi Kárason úr FH varð
þrefaldur Íslandsmeistari. Hann
sigraði í 200 m hlaupi karla á 22,11
sekúndum og í 60 m hlaupi karla á
6,98 sekúndum. Ari bætti við þriðja
titlinum þegar hann var í sigursveit
FH í 4x200 metra boðhlaupi.
Sex keppendur urðu tvöfaldir Ís-
landsmeistarar um helgina.
Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH
sigraði í 200 m hlaupi kvenna á 24,84
sekúndum og í 400 m hlaupi kvenna
á 56,33 sekúndum.
Hafdís Sigurðardóttir úr UFA
sigraði í langstökki kvenna með 6,14
metra og í 60 m hlaupi kvenna á 7,68
sekúndum.
Arnar Pétursson úr Breiðabliki
sigraði í 3.000 m hlaupi karla á
8:42,46 mínútum og í 1.500 m hlaupi
karla á 4:07,97 mínútum.
Ísak Óli Traustason úr UMSS
sigraði í langstökki karla með 6,90
metra og í 60 m grindahlaupi karla á
8,42 sekúndum.
María Rún Gunnlaugsdóttir úr
FH sigraði í kúluvarpi kvenna þar
sem hún kastaði 12,82 metra og í 60
m grindahlaupi á 8,82 sekúndum.
Ingibjörg Sigurðardóttir úr ÍR
sigraði í 800 m hlaupi kvenna á
2:16,87 mínútum og var í sigursveit
ÍR í 4x200 metra boðhlaupi.
Úrslit mótsins í heild sinni er að
finna á fri.is.
Kristján orðinn
næstbestur inni
Sextán ára afreksmaður úr Ármanni
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Upphitun Kristján Viggó Sigfinnsson fer yfir byrjunarhæðina í Kaplakrika
í gær. Hann stökk 2,15 metra að lokum og átti þrjár tilraunir við 2,17 metra.
Bournemouth 3:0, á laugardaginn.
Jóhann kom ekki inn á í leiknum.
Manchester City lagði Leicest-
er á útivelli, 1:0, í slagnum um
silfurverðlaunin í deildinni og nú
munar sjö stigum á liðunum í öðru
og þriðja sæti. Gabriel Jesus kom
inn á sem varamaður á 77. mínútu
og skoraði sigurmarkið þremur
mínútum síðar.
Forysta Liverpool minnkaði
þar með í 19 stig, en meistaraefnin
taka á móti West Ham á Anfield í
síðasta leik umferðarinnar í kvöld
klukkan 20. vs@mbl.is
Manchester United er komið í góða
stöðu í slagnum um sæti í Meistara-
deildinni í fótbolta eftir 3:0 sigur á
Watford á Old Trafford í gær. Þetta
var annar sigurleikurinn í röð í
deildinni og með honum lyfti Unit-
ed sér í fimmta sætið, upp fyrir
Tottenham og Sheffield United, og
er einu stigi á eftir Chelsea sem er í
fjórða sætinu.
Bruno Fernandes skoraði úr víta-
spyrnu rétt fyrir hlé og þeir Ant-
hony Martial og Mason Greenwood
bættu við mörkum í seinni hálf-
leiknum.
Gylfi Þór Sigurðsson átti þátt í
báðum mörkum Everton, sem tap-
aði fyrir Arsenal í hörkuleik í Lond-
on í gær, 3:2. Þar voru gríðarlega
mikilvæg stig í húfi í slagnum um
Evrópusæti. Pierre-Emerick Auba-
meyang skoraði annað mark sitt
eftir 25 sekúndna leik í seinni hálf-
leiknum og það reyndist vera sigur-
markið í leiknum. Gylfi lék allan
tímann með Everton.
Jóhann Berg Guðmundsson
kom inn í leikmannahóp Burnley á
ný, eftir fjarveru vegna meiðsla frá
5. janúar, þegar lið hans vann
Þrjú mörk og sterkari staða
AFP
United Mason Greenwood og Ant-
hony Martial fagna marki í gær.
Valur og FH hafa verið heitustu lið-
in í Olísdeild karla í handbolta eftir
áramót. Þau eru einu taplausu liðin
í umferðunum fimm á þessu ári og
verða í tveimur efstu sætunum þeg-
ar 19. umferð lýkur í kvöld.
Valur lagði ÍR í hörkuleik í
Austurbergi, 24:23, í gærkvöld þar
sem sigurmark Róberts Arons Hos-
terts var skorað þegar enn voru
fimm mínútur eftir af leiknum.
Magnús Óli Magnússon gerði 7
mörk fyrir Val og Hafþór Már
Vignisson 6 mörk fyrir ÍR.
FH vann stórsigur á HK, 34:20,
eftir að hafa verið 8:5 undir um
miðjan fyrri hálfleik. Ásbjörn Frið-
riksson skoraði 7 mörk fyrir HK
sem er nú nær fallið úr deildinni.
Fjölnir féll með stórtapi gegn
ÍBV á heimavelli í gær, 25:38. Eyja-
menn unnu þar sinn fjórða sigur í
fimm leikjum eftir áramót.
Haukar eru heillum horfnir og
töpuðu 22:24 fyrir Aftureldingu á
heimavelli í fyrrakvöld. Fjórða tap
þeirra í röð. Framarar björguðu
sér endanlega frá falli með því að
sigra KA 21:20 á Akureyri með
mögnuðum endaspretti.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Tilþrif Arnar Snær Magnússon skorar fyrir Fram í sigrinum á KA.
Valur og FH heitustu
liðin eftir áramótin
Baráttan um fjórða sætið í Olísdeild kvenna í handknatt-
leik og þar með keppnisrétt í úrslitunum um meistara-
titilinn harðnaði til muna á laugardaginn þegar KA/Þór
lagði HK að velli, 33:31, í fjörugum leik á Akureyri í 17.
umferð deildarinnar. Hin þrautreynda Martha Her-
mannsdóttir gerði hvorki fleiri né færri en 13 mörk fyr-
ir KA/Þór en Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði níu
mörk fyrir HK. Kópavogsliðið heldur fjórða sætinu en
er nú aðeins tveimur stigum á undan KA/Þór og ÍBV.
Eyjakonur náðu í mikilvæg stig með því að sigra
Stjörnuna 27:25 þar sem Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði
8 mörk fyrir ÍBV og Sólveig Lára Kjærnested 7 fyrir
Stjörnuna. Um næstu helgi mætast HK og ÍBV í Kópavogi og Haukar og
KA/Þór í Hafnarfirði í algjörum lykilleikjum í þessari baráttu.
Haukar duttu niður í umspilssæti með tapi gegn Val, 20:29, þar sem
Lovísa Thompson skoraði 7 mörk fyrir Val og Sara Odden 5 fyrir Hauka.
Fram burstaði fallnar Aftureldingarkonur, 35:11, og á deildarmeistara-
titilinn næsta vísan. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði 6 mörk.
Harður slagur um fjórða sæti
Martha
Hermannsdóttir
Þótt sex umferðum sé ólokið af Dominos-deild kvenna í
körfuknattleik er formsatriði fyrir Valskonur að tryggja
sér deildarmeistaratitilinn. Þær rótburstuðu Grindavík
á laugardaginn, 118:55, á meðan KR, eina liðið sem gæti
mögulega náð þeim, tapaði í Keflavík, 77:71.
Valur er með átta stiga forskot á KR og nægir að
vinna tvo af síðustu sex leikjunum, t.d. gegn botnliðum
Breiðabliks og Grindavíkur, til að toppsætið sé í höfn.
Dagbjört Dögg Karlsdóttir skoraði 26 stig fyrir Val
gegn Grindavík og Helena Sverrisdóttir 20.
Daniela Wallen skoraði 29 stig fyrir Keflavík gegn
KR en Danielle Rodriguez skoraði 34 stig fyrir KR-inga.
Amarah Coleman skoraði 30 stig fyrir Snæfell, sem vann Breiðablik
91:77 í Kópavogi. Danni Williams skoraði 38 stig fyrir Breiðablik.
Viðureign Hauka og Skallagríms, sem eru í hörðum slag við Keflavík
um þriðja og fjórða sætið, var frestað vegna veikinda hjá Borgnesingum.
Formsatriði fyrir Valskonur
Dagbjört Dögg
Karlsdóttir