Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sóttvarnalæknir ræður fólki frá ónauðsynlegum ferðum til fjögurra héraða á norðanverðri Ítalíu vegna hraðrar útbreiðslu kórónuveirunnar COVID-19 þar. Verið er að huga að því hvort þörf er á að vara fólk við ferðum til fleiri landa þar sem veik- in grasserar. Hins vegar er ekki tal- in þörf á að ráðleggja fólki að ferðast ekki á skíðasvæði Norður- Ítalíu. „Dagurinn hefur farið í það að reyna að átta sig á stöðunni á Ítalíu og hvernig eigi að taka á málum vegna hennar. Önnur lönd í Evrópu eru í sömu stöðu,“ segir Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sótt- varnasviði land- læknisembættis- ins. Sóttvarna- stofnun Evrópu gefur út áhættu- mat og tilmæli varðandi kórónu- veiruna og er Ís- land samstíga Evrópusambands- ríkjum í aðgerðum. Fari í sóttkví Tilfellum í löndum utan Kína hef- ur fjölgað síðustu daga. Einkum er litið til örrar útbreiðslu á Ítalíu. Samkvæmt áhættumati Sóttvarna- stofnunar Evrópu aukast líkur á að tilfelli komi til Evrópska efnahags- svæðisins og þar með Íslands frá öðrum löndum en Kína. Sóttvarnalæknir var í gær að uppfæra ráðleggingar til ferðafólks á vef landlæknis. Þær fela í sér að mælt er með því að ferðamenn sem koma frá þeim sveitarfélögum á Ítalíu þar sem sýkingar hafa greinst fari í sóttkví í 14 daga. Ef þeir fá einkenni ættu þeir að hafa samband við lækni í síma 1700 og greina frá ferðasögu. Í gær höfðu sýkingar greinst í Langbarðalandi, Venetó, Emilía-Rómanja og Píemonte. Sótt- varnalæknir ráðleggur fólki frá ónauðsynlegum ferðum til þessara héraða, með sama hætti og Kína. Verið er að huga að sams konar ráðleggingum vegna ferðalaga til nokkurra annarra landa, en Guðrún segir að mest mæði á varðandi Ítal- íu vegna nálægðar við okkur og mikilla samskipta. Hugað verði að öðrum löndum í framhaldinu. Margir eru að fara í skíðaferðir til Norður-Ítalíu um þessar mundir og mikið er því spurt um stöðuna þar. Sóttvarnalæknir mælir ekki gegn ferðum þangað enda segir Guðrún að engar sýkingar hafi greinst í Suður-Týról eða Ölpunum. Ekki með veiruna Guðrún segir að staðan breytist ört og ráðleggingar geti því breyst. Ferðaskrifstofur hér á landi fylgjast vel með stöðu mála á Norður-Ítalíu en samkvæmt frétt mbl.is í gær hafa ferðir ekki verið felldar niður enn sem komið er. Íslenska fjölskyldan sem flutt var heim frá borginni Wuhan í Kína sl. föstudag er ekki smituð af kórónu- veirunni, samkvæmt upplýsingum almannavarnadeildar ríkislögreglu- stjóra. Spurð að því hvort fólk sem feng- ið hefur COVID-19 veiruna en náð bata sé hætt að smita segir Guðrún að þær ráðleggingar hafi verið gefn- ar í upphafi faraldursins að gera mætti ráð fyrir því að fólk gæti smitað aðra í 10 daga eftir að það yrði einkennalaust. Þær geti breyst með betri upplýsingum um veiruna. Enn óhætt að fara í ítölsku Alpana  Ör útbreiðsla kórónuveirunnar á Norður-Ítalíu veldur áhyggjum hér  Sóttvarnalæknir ræður fólki frá því að fara í fjögur sveitarfélög og að fólk sem þaðan kemur fari í sóttkví  Hugað að öðrum löndum Guðrún Sigmundsdóttir „Maður verður að halda í gamlar hefðir,“ segir Fjóla Emils- dóttir. Hún heldur á hverju ári veislu fyrir fjölskyldu sína á sprengidaginn og var í gær að undirbúa sig með því að kaupa saltkjöt og baunir í Nóatúni. Hún tekur fram að dætur hennar og tengdasynir séu ekki mikið fyrir saltkjöt en finnist gott að smakka af þessu tilefni og barnabörnin borði eins og fuglar. Hún kaupi því ekki mikið kjöt. Það þurfi einnig að vera mag- urt því fólkið hennar tali um fituna sem kransæðakítti. Henni og manni hennar finnist þó gott að hafa kjötið miðlungsfeitt. Morgunblaðið/Eggert Vill halda í gamlar hefðir á sprengidaginn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Land hefur risið um 2-3 sentímetra við Kröflu síðustu 18 mánuði. Freysteinn Sigmundsson, jarð- eðlisfræðingur hjá Jarðvísinda- stofnun Háskóla Íslands, segir að líkleg skýring sé örlítið kvikuinn- streymi. Vöktun hafi verið aukin á svæðinu og Almannavörnum verið gert viðvart. Samanborið við Reykjanesið, þar sem land reis um nálægt fimm sentímetrum á skömmum tíma, séu þetta litlar breytingar sem hafi orðið við Kröflu. Spurður hvort landrisið hafi auk- ið líkur á eldgosi á svæðinu segir Freysteinn að svo þurfi ekki að vera. „Kvikuhreyfingar geta verið með margvíslegum hætti og marg- slungnar og mest af kvikuhreyf- ingum neðan jarðar endar án þess að til eldgoss komi. Þetta er með minnstu hreyfingum sem við höf- um getað greint, en það var mögu- legt vegna þess að vöktun er mjög mikil á svæðinu,“ segir Freysteinn. Jarðvísindastofnun Háskólans, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landsvirkjun hafa fylgst náið með framvindunni, en Lands- virkjun er nýtingaraðili á svæðinu og fylgist því sérstaklega með þróuninni, að sögn Freysteins. Eftir Kröfluelda 1975-1984 hélt land áfram að rísa á svæðinu fram til 1989 þegar það stóð hæst. Þá hóf land að síga þar til fyrir hálfu öðru ári. Landrisið var bæði greint með gervihnattamælingum og landmælingum með tækjum á föst- um stöðvum. Sömu aðferðum hefur verið beitt við mælingar á Reykja- nesskaganum undanfarið. Land hefur risið við Kröflu  Kvikuinnstreymi líklegt  Vöktun aukin og vel fylgst með Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kröfluvirkjun Vöktun hefur verið aukin á svæðinu síðustu mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.