Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 6
Ótímabundið verkfall félagsmanna
Eflingar hjá Reykjavíkurborg hefur
nú staðið yfir í eina viku og er sam-
komulag enn ekki í sjónmáli. Síðasti
sáttafundur var haldinn 19. febrúar.
Samninganefnd Eflingar sendi frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem hún
kvaðst bjóða til viðræðna við borgina
á forsendum yfirlýsinga Dags B.
Eggertssonar borgarstjóra frá því
fyrir helgi, sem ,,gefa til kynna að
borgin sé tilbúin að koma betur til
móts við Eflingarfélaga en kynnt var
á undangengnum samningafundi.
Nefndin telur að með yfirlýsingum
sínum hafi Reykjavíkurborg þannig
hugsanlega skapað meiri grundvöll
til áframhalds viðræðna en ætlað var
og kallar eftir staðfestingu borgar-
innar á því,“ að því er segir í frétta-
tilkynningu stéttarfélagsins í gær.
Harpa Ólafsdóttir, formaður
samninganefndar Reykjavíkur-
borgar, sagðist eiga von á því að
ríkissáttasemjari myndi nú boða til
fundar þar sem Efling hefði sent frá
sér yfirlýsingu og óskað eftir því.
„Ég geri því ráð fyrir því að sátta-
semjari muni boða til fundar,“ sagði
hún síðdegis í gær.
Spurð um þá fullyrðingu Eflingar
að ósamræmi sé á milli þess tilboðs
sem borgin kynnti hjá ríkissátta-
semjara 19. febrúar og þess hvernig
talsmenn borgarinnar lýstu tilboð-
inu í fjölmiðlum í framhaldinu segir
Harpa að samninganefndirnar muni
bara funda og fara yfir stöðuna. „Við
þurfum fyrst að hittast og bera
saman bækur okkar og skerpa á
sameiginlegum skilningi. Það er
mjög mikilvægt.“
Í frétt á vefsíðu borgarinnar 20.
febrúar var sagt að tilboð borgar-
innar til starfsfólks Eflingar á leik-
skólum hefði verið opinberað sem
fæli eftirfarandi í sér: „Heildarlaun
ófaglærðs starfsfólks í leikskólum
hækka í 460.000 krónur á mánuði
með álagsgreiðslum. Grunnlaunin
hækka um 110.000 krónur, úr
311.000 krónum í 421.000 krónur.
Heildarlaun ófaglærðs deildar-
stjóra í leikskólum hækka í 572.000
krónur með álagsgreiðslum. Grunn-
launin hækka um 102.000 krónur, úr
418.000 krónum í 520.000 krónur.
Til viðbótar kemur m.a. stytting
vinnuvikunnar. Launahækkanirnar
koma fram á samningstíma sam-
kvæmt tímalínu Lífskjarasamnings-
ins.“
Í yfirlýsingu samninganefndar
Eflingar í gær segir að ekki sé hægt
að skilja þetta „öðruvísi en svo að til-
boð um hækkun grunnlauna um 20
þúsund krónur umfram 90 þúsund
króna heildarhækkun grunnmánað-
arlauna að fordæmi Lífskjarasamn-
ingsins nái til allra ófaglærðra fé-
lagsmanna Eflingar á leikskólum
borgarinnar annarra en deildar-
stjóra“.
Í tilkynningum borgarinnar og í
ummælum borgarstjóra séu grunn-
launahækkanir umfram Lífskjara-
samninginn boðnar án fyrirvara um
hvaða leiðir verði farnar.
„Ég get ekki neitað því að við höf-
um klórað okkur talsvert í kollinum
yfir framsetningu borgarinnar í fjöl-
miðlum á tilboði hennar í kjölfar
samningafundarins síðasta miðviku-
dag,“ er haft eftir Sólveigu Önnu
Jónsdóttur, formanni Eflingar, sem
segir einnig: „Landsmenn sem
fylgdust með fjölmiðlum hafa vænt-
anlega skilið þetta sem tilboð um
minnst 110 þúsund skilyrðislausa
hækkun grunnlauna Eflingarfélaga
sem eru í almennum ófaglærðum
störfum á leikskólum. Þetta er ekki í
samræmi við það sem var kynnt fyrir
okkur í herberginu.“
Nýtt og endurbætt útspil?
Sólveig Anna sagðist einnig trúa
því að hér væri ekki um að ræða
markaðsmennsku eða fegrunarað-
gerðir, heldur nýtt og endurbætt út-
spil af hálfu borgarinnar sem félagið
væri tilbúið að líta jákvæðum
augum. „Ef það er réttur skilningur
hjá okkur þá teljum við það mikil-
vægt skref í rétta átt. Við bjóðum
borginni að staðfesta sameiginlegan
skilning á þessu og hefja við okkur
viðræður á þeim grunni, þar sem
jafnframt verði viðurkennt að slíkar
hækkanir þurfi einnig að ná til sögu-
lega vanmetinna kvennastarfa utan
leikskólanna, eins og við höfum alltaf
krafist.“ omfr@mbl.is
Deilendur
vilja setjast við
sáttaborðið
Búist er við boðun nýs sáttafundar
í deilu Eflingar og Reykjavíkurborgar
Morgunblaðið/Eggert
Safnast upp Afleiðingar verkfallsins aukast dag frá degi. Víða um borgina má sjá yfirfullar ruslatunnur.
Ljósmynd/Efling
Í kjaradeilu Samninganefnd Eflingar kom saman í gær og samþykkti yfir-
lýsingu þar sem boðið er til viðræðna á forsendum yfirlýsinga borgarinnar.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
Hægt er að bóka tjónaskoðun hj
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
á okkur á net n
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
HSRETTING.IS
547 0330
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Róðurinn þyngist dag frá degi og
verkfallið er farið að hafa æ meiri
áhrif á daglegt líf,“ segir Margrét
Vala Gylfadóttir,
sem býr í Hlíð-
unum í Reykja-
vík. Hún er móð-
ir þriggja ára
drengs sem er í
leikskólanum
Hlíð við Engihlíð,
en deildin hans
hefur verið lokuð
síðan allsherjar-
verkfall félags-
manna í Eflingu
sem vinna hjá Reykjavíkurborg
hófst á mánudag í síðustu viku.
Vaxandi áhyggjur
Margrét kveðst greina vaxandi
áhyggjur meðal foreldra vegna
stöðunnar sem uppi er í verkfallinu.
Mörg dæmi séu þess að fólk þurfi
að taka sér frí frá vinnu til að sinna
börnum sínum og þar með sé
gengið á orlofsrétt komandi
sumars. Slíkt sé bagalegt, því yfir-
leitt reyni fólk að taka sumarfrí sitt
á sama tíma og leikskólunum er
lokað á sumrin. Hér rekist hvað á
annað.
„Bakland fólks er auðvitað mis-
jafnlega sterkt og ég þarf ekki að
kvarta,“ segir Margrét Vala, sem
segist búa svo vel að sonur sinn
geti meðan á verkfallinu stendur
verið hjá ömmu sinni og afa yfir
daginn. Stundum hafi hann svo
komið með henni í vinnuna og suma
dagana hefur Margrét Vala líka
unnið heima og drengurinn verið
þar.
„Ég vinn á Hagstofunni og meðal
yfirmanna þar er fullur skilningur á
minni stöðu. Almennt talað hljóta
þó að vera einhver takmörk á þeirri
þolinmæði sem atvinnurekendur
hafa í þessum aðstæðum. Hver ein-
asti dagur er púsluspil; maður þarf
að redda þessu og hinu og skutlast
og skjótast til að allt gangi upp.
Svo finn ég líka á drengnum að
tætingurinn fer illa með hann.
Fasta rútínan er dottin út og slíkt
er slæmt fyrir alla, ekki síst
börnin.“ sbs@mbl.is
Róður þyngri þeg-
ar rútína dettur út
Foreldrar leikskólabarna eru í vanda
í verkfallinu Hver dagur er púsluspil
Margrét Vala
Gylfadóttir