Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
40 ára Elva er fædd og
uppalin á Akureyri en
býr í Reykjavík. Hún er
hjúkrunarfræðingur að
mennt frá Háskólanum
á Akureyri og er vakt-
stjóri yfir símaráðgjöf
hjúkrunarvaktarinnar á
Læknavaktinni.
Maki: Guðmundur Freyr Jóhannsson, f.
1979, lyf- og bráðalæknir á Land-
spítalanum.
Börn: Tristan Egill Elvuson, f. 2000, Lúkas
Egill Elvuson, f. 2005, og Bríet Egla Elvu-
dóttir, f. 2017.
Foreldrar: Guðbjörg Halldórsdóttir, f.
1963, búsett í Bretlandi, og Ragnar Gunn-
arsson, f. 1963, búsettur í Reykjavík.
Elva Björk
Ragnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt ná takmarki þínu ef þér
tekst að virkja annað fólk til að hjálpa til.
Markmið þitt á þessu ári ætti að vera að
sættast við þig og sjá kostina sem þú býrð
yfir.
20. apríl - 20. maí
Naut Hristu af þér alla hræðslu og helltu
þér í það sem þig langar mest að gera.
Mundu að einn góðan veðurdag stendur þú
í sömu sporum og foreldrar þínir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Heilinn í þér þarfnast þjálfunar,
rétt eins og líkaminn. Notfærðu þér vel-
gengnina sem þér hefur hlotnast. Ekki líta
um öxl með eftirsjá, framtíðin er þín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur verið einn á báti of lengi
og ættir að finna þér félagsskap við fyrsta
tækifæri. Vinur þinn á eitthvað erfitt og þú
ættir að athuga hvort þú getur eitthvað
gert til hjálpar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að hreyfa þig eitthvað í dag, ef
þú getur. Hver hefur sinn djöful að draga,
ekki bara þú. Blandaðu geði við fleira fólk.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu öll lögfræðileg mál bíða betri
tíma og láttu önnur og mikilvægari mál
ganga fyrir. Þú ert full/ur gleði og lætur
gott af þér leiða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að líta yfir farinn veg og skoða
líf þitt gagnrýnum augum. Ef þú bregður út
af vananum færðu nýtt sjónarhorn á hluti.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú kaupir mikið þessa dagana
og stendur í alls kyns braski. Hlustaðu á
þær skýringar sem þér eru gefnar á vissu
máli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það liggur vel á þér í dag. Nýtt
fólk í kringum þig dregur fram nýjar hliðar á
persónuleika þínum og svo sjaldséðar að
það kemur þeim, og þér, í opna skjöldu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú færð það á tilfinninguna að
ekki sé allt með felldu þá er það sennilega
rétt hjá þér. Leitaðu að orsökinni og reyndu
að lagfæra hlutina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sérhvert augnablik dagsins þarf
ekki að vera skipulagt. Fólk er til í að deila
leyndarmálum sínum með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekkert freista þín svo að fjár-
málin fari ekki úr böndunum. Það verður
glatt á hjalla næstu vikurnar hjá þér.
skemmtilegt, maður kynnist mörgu
fólki og það er gott að geta hjálpað
fólki í þeim vandamálum sem heyrn-
arskerðing veldur. Starfið krefst
þess einnig að sinna endurmenntun
stöðugt þar sem tæknin breytist
mjög hratt. Frá upphafi hef ég sótt
ráðstefnur og námskeið nokkrum
sinnum á ári og það hefur gefið tæki-
færi til að ferðast mikið og til
margra áhugaverða staða.
Við hjónin eigum hús nálægt
Flúðum og líður hvergi betur en þar
í sveitasælunni. Erum þar eins mikið
og við getum og njótum útivistar af
ýmsu tagi. Við höfum átt írska
setter-hunda í 17 ár og þeir þurfa
mikla hreyfingu og njóta frelsisins í
sveitinni. Ég var smitaður af tengda-
foreldrum mínum af hinum skæða
golfvírus fyrir um 10 árum og hann
ágerist með árunum.“
Tónlist hefur alltaf verið stór hluti
af lífi Björns og hann fór ungur í tón-
listarskólann í Kópavogi og lærði
klassískan gítarleik. „Tónlistariðk-
unin datt svo út í nokkuð mörg ár
þar til eiginkonan gaf mér rafgítar
B
jörn Víðisson er fæddur
25. febrúar 1970 í
Reykjavík. Hann ólst
upp á Hraunbraut í
vesturbæ Kópavogs til
13 ára aldurs en flutti þá í Arnar-
nesið. Hann stundaði knattspyrnu
og handbolta með Breiðabliki upp í
meistaraflokk.
Björn gekk í grunnskóla í Kárs-
nesskóla og í gagnfræðaskóla í Þing-
holtsskóla og varð stúdent af
íþróttabraut í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ 1990. Samhliða fjölbrauta-
skólanum stundaði hann tveggja ára
nuddnám og útskrifaðist sem nudd-
fræðingur úr Svæðameðferðarskóla
Íslands. „Þaðan lá leiðin til Bourne-
mouth í Englandi í kírópraktors-
nám, lauk einum vetri þar en hætti
því námi þar sem ég fann mig ekki í
því.“
Björn flutti þá heim og opnaði eig-
in nuddstofu í Kópavogi og hóf nám í
nálastungum. Hann starfrækti
nuddstofu til 2001 og var mikið að
vinna með íþróttafólki og starfaði
fyrir félagslið og landsliðið í hand-
bolta m.a. „Ég fékk mikinn áhuga
fyrir vaxtarrækt og keppti ásamt
eiginkonunni á Íslandsmeistara-
mótinu 1999 og 2000.“
Á þessum tíma var Björn farinn
að íhuga nýjan starfsvettang og fyr-
ir tilstuðlan föður síns varð úr að
hann stofnaði einkarekna heyrnar-
tækjastöð. „Faðir minn var heyrnar-
skertur og hafði ekki fengið sér
heyrnartæki þar sem biðin var þá
2-3 ár hjá Heyrnar- og Talmeinastöð
Íslands. Hann fór beint til framleið-
andans Oticon í Danmörku og fékk
heyrnartækin hjá þeim og úr varð að
ég fékk umboð fyrir þeim.
Heyrnartækni var opnað 2001 og
við fengum strax góðar viðtökur
enda hafði ríkið verið með einokun á
sölu heyrnartækja fram til þessa.
Tveimur árum síðar hófst samstarf
við Árna Hafstað, heyrnar- og tal-
meinafræðing, sem séð hefur um
starfsemi Heyrnartækni á lands-
byggðinni. Anna Linda eiginkona
mín, sem er hjúkrunarfræðingur að
mennt, kom svo til liðs við fyrirtækið
2006 og höfum við rekið það saman
síðan. Starfið er mjög gefandi og
og við það kviknaði neistinn aftur.
Ég fór þá að stunda einkatíma í
djassgítarleik hjá Ómari Guðjóns-
syni og tók stig í tónfræðum frá FÍH
í kvöldskóla ásamt eiginkonu minni
sem tók upp á því að læra á píanó og
er búin að taka miðstigspróf í því. Í
framhaldi lauk ég svo grunnstigi í
djassgítarleik. Ég færði mig svo aft-
ur yfir í klassíska gítarinn og hef
verið í einkatímum hjá Pétri Valgarð
Péturssyni í fjögur ár. Það á við mig
eins og marga aðra gítarleikara að fá
söfnunaráráttu fyrir gíturum og í
dag á ég tíu gítara af ólíkum teg-
undum.“
Fjölskylda
Eiginkona Björns er Anna Linda
Guðmundsdóttir, f. 10.3. 1973, hjúkr-
unarfræðingur og nemi í heyrnar-
fræðum í Edinborg. Þau eru búsett í
Garðabæ. Foreldrar Önnu Lindu
eru hjónin Guðmundur Sigurvins-
son, f. 12.5. 1948, skrifstofumaður,
og Kristín Dagný Magnúsdóttir, f.
6.3. 1949, skólaliði. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Björn Víðisson, framkvæmdastjóri Heyrnartækni – 50 ára
Í sveitasælunni Björn ásamt setter-hundunum sínum, Bono og Baron.
Tónlistin stór hluti af lífinu
Hjónin Anna Linda og Björn á
ferðalagi í Alicante á Spáni.
30 ára Daníel ólst upp
í Vesturbæ Reykjavík-
ur og á Selfossi en býr
í Kópavogi. Hann er
lærður flugmaður og
flugkennari hjá Flug-
skóla Íslands. Daníel
er flugumsjónarmaður
hjá Bláfugli og flugkennari hjá Keili.
Maki: Heiðrún Sigurðardóttir, f. 1990,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi.
Dætur: Elísa Dögun Daníelsdóttir, f.
2016, og Signý Ýr Daníelsdóttir, f. 2019.
Foreldrar: Pétur Hafsteinn Birgisson, f.
1960, innanhússarkitekt hjá GKS, og
Sigurborg Kjartansdóttir, f. 1962, grunn-
skólakennari í Vallaskóla á Selfossi. Þau
eru búsett á Selfossi.
Daníel
Pétursson
Til hamingju með daginn
Kópavogur Signý Ýr Daníelsdóttir fædd-
ist 4. ágúst 2019. Hún vó 4.285 g og var
51 cm löng. Foreldrar hennar eru Daníel
Pétursson og Heiðrún Sigurðardóttir.
Nýr borgari