Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.02.2020, Blaðsíða 29
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sellóleikari Sæunn Þorsteinsdóttir. Hljómdiskur Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Concurrence, sem Sono Luminus gefur út, hlýtur mikinn lof- dóm í marshefti tónlistarritsins Gramophone. Á henni leikur sveitin Quake eftir Pál Ragnar Pálsson, Oceans eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Píanókons- ert nr. 2 eftir Hauk Tómasson. Ein- leikarar eru Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari og Víkingur Ólafsson pí- anóleikari en hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Segir í upphafi gagnrýninnar að bæði flutningur og upptaka verk- anna á disknum séu framúrskarandi og í niðurlagi að stjörnurnar í hópi flytjenda séu hljóðfæraleikarar SÍ sem sé vel stjórnað af Daníel sem hafi góðan skilning á ólíkum stílum og túlkun. Segir um sveitina að hún sé undursamleg líkt og tónleikahús hennar Harpa. Lofdómur í Gramophone MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI  Rás 2  FBL m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN BESTA MYNDIN m.a. ÓSKARSVERÐLAUN4 ÓSKARSVERÐLAUN BESTI LEIKARINN: Joaquin Phoenix BESTA TÓNLISTIN: Hildur Guðnadóttir2 Kvæðakvöld Iðunnar verður í kvöld kl. 20 til 22.30 og er yfirskrift þess „Láttu hlátur lyfta brá“. Kvöldið fer fram á efri hæð Sólons sem er í Bankastræti 7a í miðbæ Reykja- víkur. Kvæðamannafélagið Iðunn stendur fyrir skemmtidagskrá þar sem flutt verður fjölbreytt efni, meðal annars gamanmál í bundnu og óbundnu máli og eru flytjendur úrvalskvæðafólk, segir í tilkynn- ingu. „Má þar fyrst nefna Ragn- heiði Gröndal en hún tekur þátt í kvæðakvöldinu í fyrsta skipti. Einn- ig koma fram Pétur Húni Björns- son, Bára Grímsdóttir, Þórarinn Már Baldursson, Linus Orri Gunn- arsson Cederborg, Rósa Jóhannes- dóttir og Rósa Þorsteinsdóttir. Þau flytja meðal annars efni eftir þekkta hagyrðinga Iðunnar, þau Sigurlín Hermannsdóttur, Helga Zimsen, Þórarin Má Baldursson og minning bragsnillingsins Hjálmars Freysteinssonar verður heiðruð, en hann féll frá fyrir stuttu. Einnig verður hlutavelta – Segulbönd Ið- unnar og fleiri glæsilegir vinn- ingar,“ segir í tilkynningu og kynn- ir verður hagyrðingurinn Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Aðgangseyrir 1.500 kr. og vakin athygli á því að einungis er tekið við reiðufé og að allur ágóði rennur í ferðasjóð Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Kemur fram Ragnheiður Gröndal. Láttu hlátur lyfta brá Haldinn verður fyrirlestur og leiðsögn veitt um sýninguna Saga úr jörðu. Hofstaðir í Mývatnssveit, sem opnuð var um helgina í Bogasal Þjóðminjasafnsins, í dag kl. 12. Hrönn Konráðsdóttir, verkefnastjóri sýning- arinnar, og dr. Hildur Gestsdóttir, fornleifa- fræðingur og stjórnandi uppgraftarins á Hof- stöðum, halda stutta kynningu í fyrirlestrasal og ganga svo með gesti um sýninguna í Boga- sal. Í tilkynningu segir að á Hofstöðum í Mý- vatnssveit hafi verið grafinn upp gríðarstór veisluskáli frá víkingaöld sem sé eitt stærsta mannvirki sem rannsakað hafi verið á Íslandi. Þá var grafinn upp kirkjugarður á Hofstöðum sem í hvíldu einstaklingar sem tengdir voru fjölskylduböndum og beinin eru sögð veita áhugaverðar upplýsingar um líf og aðstæður fólksins. Fyrirlestur og leiðsögn í Þjóðminjasafni Saga Endurgerð andlits byggð á höfuðkúpu konu sem fannst í kirkjugarðinum. ið ötull við að kynna brasilíska tón- list. Lopes kennir trommu- og slag- verksleik í þremur tónlistarskólum, á Akureyri, Fjallabyggð og við Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Brasilískt! nefnist hljómsveit sem fram kemur í kvöld á djasskvöldi Kex hostels og hefjast leikar kl. 20.30. Sveitina skipa brasilísku hljóðfæraleikararnir Guito Thomas og Rodrigo Lopes ásamt gesta- hljóðfæraleikaranum Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur á básúnu. Thomas og Lopes búa í Ólafsfirði og starfa á Norðurlandi. Tríóið mun leika verk listamanna á borð við Paulinho da Viola, Baden Powell, João Bosco, Djavan, Gon- zaguinha, Gilberto Gil, Caetano Veloso og Tom Jobim. Thomas hef- ur, auk þess að kenna, starfað sem organisti Siglufjarðarkirkju og ver- Brasilískt! Tríóið sem leikur á Kex hosteli í kvöld, þau Guito Thomas, Rodrigo Lopes og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir. Hljómsveitin Brasilískt! á Kex hosteli Ásbjörg Jónsdóttir lauk meist- araprófi í tónsmíðum frá Listahá- skóla Íslands og hefur breiðan tón- listarlegan bakgrunn, allt frá djasssöng til kórastarfs og hefur þroskað tónsmíðagáfu sína jafnt og þétt í kammerverkum sem sameina léttleika og ljóðrænu, eins og því er lýst í tilkynningu. Gunnar Karel lauk meistaraprófi í tónsmíðum frá Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn og segir að heim- speki og leikhús eigi ekki minni skerf af honum en tónlistin og að hann hafi tekið þátt í uppsetningu fjölda leiksýninga og samið eða snið- ið hljóðheim þeirra. Tónverk hans séu gjarnan eins og leiksvið þar sem hugmyndir takast á. María Huld Markan Sigfúsdóttir þekkir fiðluna sem flytjandi og hef- ur í nokkrum tónverkum sínum Tónskáldin Ásbjörg Jónsdóttir, Sig- urður Árni Jónsson, Gunnar Karel Másson og María Huld Markan Sig- fúsdóttir hafa verið valin úr hópi sextán umsækjenda til að semja strengjakvartett fyrir Salinn. Er um nýtt verkefni að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu, og nefnist það Tónverk 20/21. Markmiðið með verkefninu er að stuðla að frum- sköpun í tónverkagerð og að kynna íslensk tónskáld. Tónskáldin fjögur munu semja strengjakvartetta sérstaklega með Salinn í huga og verða verkin síðan frumflutt í tónleikaröðinni Tíbrá í Salnum veturinn 2020-21. Sam- starfsaðili Salarins í Tónverki 20/21 er Strokkvartettinn Siggi sem mun frumflytja verkin.„Það er mikið gleðiefni fyrir okkur í Salnum að fá þessi fjögur öflugu tónskáld til liðs við okkur. Þau eru hvert öðru ólík í tónsköpun og getum við búist við fjölbreyttum strengjakvartettum næsta vetur,“ er haft eftir Aino Freyju, forstöðumanni Salarins, en eitt af hlutverkum Salarins er að stuðla að frumsköpun í tónverka- gerð og að efla nýsköpun í tónlist, eins og fram kemur í tilkynning- unni. Í valnefnd sátu þau Atli Ingólfs- son fyrir Salinn, Karólína Eiríks- dóttir fyrir Tónskáldafélag Íslands og Una Sveinbjarnardóttir fyrir Strokkvartettinn Sigga. kannað hljóðheim hennar með frum- legum hætti. María nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og hefur mikla reynslu sem tónskáld og flytj- andi en auk kammerverka hennar, sem hafa verið tekin upp og flutt víða um heim, hefur hún samið fyrir hljómsveit og tónlist við nokkrar kvikmyndir, skv. tilkynningu. Sigurður Árni Jónsson lauk meistaraprófi í tónsmíðum og hljóm- sveitarstjórn í Svíþjóð og stjórnar Ensemble Dasein í Gautaborg. Hann hefur rannsakað ýmis blæ- brigði kammerskriftar á sannfær- andi hátt, eins og því er lýst en eftir hann liggja jafnframt tvö hljóm- sveitarverk. Tónverk 20/21 er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar og unnið í samvinnu við Tónverka- miðstöð Íslands. Semja fyrir Tónverk 20/21 Tónskáld Ásbjörg, Gunnar, María og Sigurður semja fyrir Tónverk 20/21.  Fjögur tónskáld voru valin úr hópi sextán umsækjenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.