Morgunblaðið - 25.02.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
Andríki skrifar um bílinn og af-látsbréfin og bendir á að bíla-
flotinn losi aðeins um 6% af heildar-
losun Íslend-
inga af kol-
tvísýringi.
Vegna þessarar
losunar hafi
stjórnvöld ráð-
ist í mikla
neyslustýringu
á bílum og elds-
neyti, ýtt fólki frá bensínbílum yfir í
„dýrari og meira sótmengandi
Dieselbíla“.
Þá er minnt á að „[m]illjarðarkróna streyma svo úr landi á
hverju ári til framleiðenda pálma-
olíu og annars lífeldsneytis. Flest
eru þessi uppátæki að forskrift ESB.
Þó má öllum vera ljóst að þessi
losun frá bílum mun smám saman
hverfa með þeirri þróun sem á sér
stað í bílaframleiðslu“.
Enn segir Andríki: „Á sama tímaog stjórnvöld hundelta bíleig-
endur vegna losunar selja þau úr
landi upprunaábyrgðir á raforku.
Það er einnig gert samkvæmt reglu-
verki ESB. Sambandið hefur ákveð-
ið að hægt sé að falsa uppruna orku
gegn greiðslu. Við furðu lostnum
raforkukaupendum hér á landi blasa
þær staðhæfingar á rafmagnsreikn-
ingum að stór hluti raforkunnar sé
framleiddur með bruna olíu, kola og
gass. Það hafi í för með sér tiltekna
losun CO2 á hverja kWh sem hér er
framleidd. Að ógleymdum vænum
skammti af kjarnorkuúrgangi.“
Þannig séu stjórnvöld í „dýrriherferð gegn bíleigendum sem
losa 1 milljón tonna á ári“ um leið og
þau klíni „árlega á Íslendinga 9
milljóna tonna útblæstri frá ESB
með sölu upprunavottorða. Af þess-
um aðgerðum til samans tapar Ís-
land svo milljörðum króna á ári í er-
lendri mynt. Mengunin heim,
milljarðar út“.
„Mengunin heim,
milljarðar út“
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Þann 1. mars næstkomandi verða teknar í notkun
tvær hraðamyndavélar á hringveginum, við bæinn
Tún í Flóa austan Selfoss. Um er að ræða staf-
ræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraða-
brot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki
er tekin mynd nema um brot sé að ræða.
Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggis-
áætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga
úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðar-
slysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti sam-
gönguáætlunar, segir í frétt á vef Vegagerðar-
innar. Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri,
Samgöngustofa og Vegagerðin vinna að uppsetn-
ingu hraðamyndavélanna.
Hraðamyndavélar af nýrri kynslóð voru teknar
í notkun í fyrra. Í stað þess að mæla hraða bifreiða
á ákveðnum tímapunkti, svokallaðan punkthraða,
líkt og hefðbundnar hraðamyndavélar, reikna þær
út meðalhraða á tiltekinni vegalengd. Þannig er
hægt að finna meðalhraða ökumanns á vegarkafl-
anum auk þess sem þetta kemur í veg fyrir að fólk
geti hægt á sér rétt áður en það kemur að mynda-
vél og sloppið við sekt. sisi@mbl.is
Hraðabrot send strax til lögreglu
Hraðamyndavélar
settar upp austan Selfoss
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Hraðinn mældur Nokkrar myndavélar eru við
vegi landsins. Flestar þeirra mæla punktahraða.
Prentsögusetur var formlega opnað
á Laugavegi 29b, bakhúsi Brynju,
síðastliðinn föstudag, fimm árum
eftir að samnefnt félag var stofnað.
Félagið Prentsögusetur var eink-
um stofnað í þeim tilgangi „að
stuðla að söfnun, skráningu og
varðveislu minja sem tengjast
prentsmiðjurekstri á Íslandi frá
upphafi, með megináherslu á þróun
tækjabúnaðar, efnisnotkunar og
vinnubragða“ eins og stendur í
markmiðalýsingu.
Heimir Br. Jóhannsson, for-
maður Prentsöguseturs og
forstöðumaður safnsins, rak áður
Bókamiðstöðina í Brynjuportinu
svonefnda á Laugavegi 29b. Þar
er Prentsögusetrið eða Gamla
prentsmiðjan, eins og aðstand-
endur félagsins kalla staðinn, en
stefnt er að því að prentsögusetur
verði opnað almenningi í aflögðu
fjósi og hlöðu á Skálholtsstað eftir
um 18 mánuði.
steinthor@mbl.is
Prentsögusetur form-
lega opnað í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Prentsögusetur Heimir Br. Jóhannsson, forstöðumaður safnsins.