Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 10

Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 ALLT Í FERMINGAR- VEISLUNA Smiðjuvegi 9 • 200 Kópavogur • s. 567 9911 • www.alltikoku.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á ALLTIKOKU.IS Frábært úrval af fermingarstyttum sykurskreytingum servíettum – löberum Sjón er sögu ríkari, kíktu við ! Yfir 12.000 vörunúmer Skipulagsstofnun er að hefja kynn- ingu á frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar Vesturlandsvegar á 9 kílómetra kafla á Kjalarnesi, milli Varmhóla og vega- móta Hvalfjarðarvegar. Verkfræðistofan Efla vann skýrsl- una fyrir Vegagerðina og var henni skilað inn til Skipulagsstofnunar 21. janúar sl. Efla vinnur einnig að frum- hönnun vegarins ásamt Vegagerð- inni. Vegagerðin hefur boðað til opins húss í Klébergsskóla á Kjalarnesi fimmtudaginn 27. febrúar milli kl. 16 og 18, þar sem frummatsskýrslan verður kynnt. Gefst gestum tækifæri til að spyrja út í hana og væntanlegar framkvæmdir. Fulltrúar Vegagerðar- innar verða á staðnum. Boðið verður upp á kaffiveitingar Tilgangur frummatsskýrslu er að leggja mat á umhverfisáhrif fyrirhug- aðrar framkvæmdar og að veita al- menningi, umsagnaraðilum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að mynda sér skoðun á efnistökum um- hverfismatsins og koma athugasemd- um á framfæri. Skýrslan er aðgengileg á vef Skipu- lagsstofnunar, www.skipulag.is, frá og með 24. febrúar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. apríl 2020 til Skipulags- stofnunar eða með tölvupósti. Að loknum kynningartíma verða svör við athugasemdum sett inn í frummatsskýrslu. Skipulagsstofnun hefur síðan sex vikur til að ganga frá álitsgerð. Um leið og Skipulagsstofnun lýkur matsferlinu mun Vegagerðin sækja um framkvæmdaleyfi. Ætti það að fást í júní/júlí ef allt gengur að óskum. sisi@mbl.is Kynna breikkun Vesturlandsvegar  Vegagerðin heldur fund á Kjalarnesi Morgunblaðið/Ómar Breikkun fyrirhuguð Umferð á Vesturlandsvegi og út úr bænum. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tvö uppbyggingarsvæði í Reykjavík verða hluti af alþjóðlegri hugmynda- samkeppni, „Reinventing Cities“, en það eru grænar þróunarlóðir í Gufu- nesi og við Sævarhöfða. Reykjavík tilheyrir hópi svokallaðra C40-borga um heim allan, sem leggja áherslu á bætta lýðheilsu og sjálfbærni. Þróunarlóðin við Sævarhöfða er nærri 3 þúsund fermetrar. Þarna eru 45 metra há mannvirki, sements- turnar, og athygli vekur að í keppnislýsingu eru þeir sagðir geta verið þarna áfram en í nýju hlutverki í Bryggjuhverfi vestur. Einnig var á lóðinni athafnasvæði Björgunar um árabil, þar sem sjávarefni var dælt á land, það unnið og geymt. Björgun hætti starfsemi þarna í fyrra. Það var Sementsverksmiðja rík- isins sem reisti sementsturnana tvo við Sævarhöfða árið 1967. Þetta var mikil framkvæmd og voru tankarnir steyptir með skriðmótum. Sement var flutt með skipum frá Akranesi og því dælt upp í tankana. Sementinu var síðan dreift á höfuðborgar- svæðinu með sérútbúnum bílum. Notkun tankanna var hætt Þessi starfsemi lagðist síðan af og hafa tankarnir ekki verið í notkun lengi. Tankarnir eru nú í eigu borgarinnar, sem vill að þeir fái nýtt hlutverk. Nefnd hefur verið veit- ingastarfsemi í þessu sambandi. Árið 2017 var framkvæmd viðhorfs- könnun meðal íbúa Bryggjuhverfis og vildi mikill meirihluti þeirra, 83%, láta rífa tankana. Þróunarsvæðið í Gufunesi, sem er hluti af samkeppninni, er nærri 5 þúsund fermetrar. Er áréttað í keppnislýsingu að svæðið í heild verði segull skapandi lista og að á keppnissvæðinu sjálfu, sem er við ströndina, séu mikil tækifæri fyrir heilsutengda starfsemi. Áburðar- verksmiðja ríkisins var starfandi í Gufunesi árin 1954 til 2001. Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn mánudaginn 2. mars kl. 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og í framhaldi verður farin vettvangs- ferð á svæðin tvö með leiðsögn. Erlendir hönnuðir hafa þegar boðað komu sína ásamt íslenskum koll- egum, segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri býður til fundarins. Samkeppni undir merkjum C40 hefur áður verið haldin, þ.e. árið 2017. Þá voru lóðirnar þrjár, við Frakkastíg/Skúlagötu, á Ártúns- höfða og við Lágmúla 2/Suðurlands- braut. Sementstankarnir fái nýtt hlutverk Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson Sævarhöfði Sementstankarnir setja mikinn svip á svæðið sem til stendur að skipuleggja í alþjóðlegri samkeppni. Svæðið verði segull skapandi lista.  Halda alþjóðlega hugmyndasam- keppni grænna borga  Mikil tækifæri Skipulagsstofnun hefur tekið þá ákvörðun að fyrirhugað hótel og íbúðauppbygging í landi Svínhóla í Össurárdal í Lóni, sem er skammt norðan við Höfn í Hornafirði, sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrif- um. Fram kemur þó í niðurstöðu Skipulagsstofnunar að starfsemin muni hafa ýmis áhrif og telur hún rétt að binda leyfisveitingar ýmsum skilyrðum sem fjallað er um í greinargerð. Það er Alfaland Hotel ehf. sem stendur að verkefninu, en eins og fram hefur komið hafa Jakob Frí- mann Magnússon, tónlistar- og at- hafnamaður, og Áslaug Magnús- dóttir, athafnakona í New York, kynnt þessi áform um uppbyggingu á heilsutengdri ferðaþjónustu að undanförnu. Í greinargerð er uppbyggingar- áformunum lýst. Til stendur að reisa blöndu af íbúðum og hótelher- bergjum í landi Svínhóla og ráðgert er að reisa heilsulind á svæðinu. Hótelið geti hýst allt að 203 gesti í aðalbyggingu og stökum smáhýsum en á svæðinu verði einnig 20 ein- býlishús. Hefur verið samið við hótelkeðjuna Six Senses Hotels Re- sorts Spas um rekstur á hótelinu. „Um er að ræða umfangsmikla uppbyggingu fyrir ferðamenn. Meðal annars er gert ráð fyrir hótelbyggingu með um 70 her- bergjum auk 15 smáhýsa og 20 ein- býlishúsa. Þá er gert ráð fyrir starfsmannaaðstöðu og um 4.500 m2 af bílastæðum. Samanlagt bygg- ingarmagn verður um 20.000 m2. Gert er ráð fyrir að á svæðinu dvelji 203 gestir og allt að 160 starfsmenn. Gert er ráð fyrir að rask vegna lagna verði á bilinu 9.000–12.000 m2. Framkvæmdar- aðili mun nýta svarðlag og stað- argróður eins og hægt er til að lág- marka áhrif á líffræðilega fjöl- breytni og ásýnd svæðis,“ segir í greinargerð Skipulagsstofnunar. Í nágrenni við verndarsvæði Í umfjöllun stofnunarinnar segir að um sé að ræða nokkuð umfangs- mikla framkvæmd sem jafnframt sé staðsett í næsta nágrenni við verndarsvæði. Gera megi ráð fyrir að uppbyggingin og fyrirhuguð starfsemi muni auka álag á nær- liggjandi vistkerfi, þ.e. verndar- svæðið Lónsfjörð. ,,Annars vegar er um að ræða möguleg áhrif á líf- ríki Lónsfjarðar vegna fráveitu frá starfseminni og hins vegar mögu- leg áhrif á það fuglalíf sem sækir í lónið vegna aukinnar umferðar fólks um verndarsvæðið. Með hlið- sjón af boðuðum mótvægis- aðgerðum telur Skipulagsstofnun þó ólíklegt að fyrirhuguð fram- kvæmd komi til með að hafa áhrif á verndargildi Lónsfjarðar.“ Vegna athugasemda tóku áform fram- kvæmdaraðila breytingum á meðan málsmeðferð stóð yfir til að koma til móts við þær með mótvægis- aðgerðum. Verður fráveita sjálf- rennandi og skólpi safnað frá bygg- ingum innan hótelsvæðisins og leitt í skólphreinsistöð sem verður með þriggja þrepa hreinsun. Byggja á upp lágreistan varnargarð meðfram Össurá. Grænt ljós á hótel fyrir 203 gesti og 20 einbýlishús  Bygging hótels í Lóni ekki háð mati á umhverfisáhrifum  Starfsmenn allt að 160  Heilsutengd ferðaþjónusta Höfn Djúpi- vogur Össurárdalur í Lóni Álftafjörður Lónsvík Össurárdalur Svínhólar Til stendur að reisa blöndu af íbúðum og hótelherbergjum í Lóni. Heilsulind verður á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.