Morgunblaðið - 25.02.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
Alhliða bókhaldsþjónusta
Eignaskiptayfirlýsingar
Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S: 896 4040
Fjárhagsbókhald Afstemmingar
Viðskiptamannabókhald
Launavinnslur Virðisaukaskattur
Reikningagerð
Skattframtöl Ársreikningar
Fjármálastjórn Áætlanagerð
Eignaskiptayfirlýsingar Skráningartöflur
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
varaði við því í gær að ríki heims
yrðu að búa sig undir „mögulegan al-
heimsfaraldur“ vegna kórónuveir-
unnar. Tedros Adhanom Ghebre-
yesus, framkvæmdastjóri WHO,
sagði það einkum vera áhyggjuefni
hversu mjög tilfellum veirunnar
hefði fjölgað á skömmum tíma á Ítal-
íu, Íran og Suður-Kóreu, en öll ríkin
tilkynntu í gær um andlát af völdum
faraldursins. Þá bættust Afganistan,
Barein, Írak, Kúveit og Óman í gær í
hóp þeirra ríkja þar sem veirunnar
hefur orðið vart.
Þá var tilkynnt að 150 til viðbótar
hefðu látist í Kína, þar sem farald-
urinn kom fyrst upp, og hafa nú
nærri 2.600 manns látið lífið vegna
kórónuveirunnar þar. Kínversk
stjórnvöld segja að þau hafi náð að
halda aftur af veirunni með um-
fangsmiklum sóttvarnaraðgerðum
þar sem faraldurinn hefur látið á sér
kræla.
Saka Íran um yfirhylmingu
Fjögur dauðsföll voru tilkynnt í
Íran í gær og hafa því tólf látist þar í
heildina. Er það mesti fjöldi dauðs-
falla af völdum veirunnar utan Kína.
Grunsemdir hafa þó vaknað um að
ástandið í landinu sé enn verra en
stjórnvöld þar hafa viðurkennt, en
greint var frá því í írönskum fjölmiðli
að þingmaður frá borginni Qom
hefði sagt að minnsta kosti 50 manns
látna þar.
Stjórnvöld í Íran hafa hafnað
ásökunum þingmannsins en hétu því
um leið að þau myndu vera
„gagnsæ“ þegar kæmi að upplýs-
ingagjöf um kórónuveiruna. Hins
vegar hefur verið bent á að einungis
64 tilfelli hafi verið tilkynnt af
írönskum stjórnvöldum, sem myndi
þýða mun hærri dánartíðni en sést
hefur til þessa í Kína.
„Rautt“ neyðarástand
Tveir létust af völdum veirunnar í
gær í Suður-Kóreu, og hafa nú átta
manns látist í faraldrinum þar í
landi. Moon Jae-in, forseti Suður-
Kóreu, lýsti yfir „rauðu neyðar-
ástandi“ vegna faraldursins, en
meira en 830 manns hafa nú smitast
af kórónuveirunni í landinu.
Er það mesti fjöldi staðfestra til-
fella utan Kína, en stór hluti þeirra
er rakinn til faraldurs í kristnum
sértrúarsöfnuði í borginni Daegu.
Þar búa 2,5 milljón manns, og hefur
þeim verið gert að halda sig innan-
dyra vegna faraldursins. Þá hafa
stjórnvöld í Hong Kong og Mongólíu
tilkynnt að þau muni ekki hleypa
ferðalöngum frá Suður-Kóreu til
landsins.
Íhuga frekari einangrun
Fimm hafa nú látist á Ítalíu, þar af
fjórir í Langbarðalandi og einn í
Venetó-héraði. Faraldurinn hefur
haft mikil áhrif á héruðin tvö, en þau
eru meðal helstu framleiðslusvæða
landsins. Nokkrum leikjum í ítölsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu var
frestað um helgina vegna faraldurs-
ins, og þá hafði hann einnig áhrif á
tískuvikuna í Mílanó.
Rúmlega 50.000 manns hafa verið
settir í sóttkví í norðurhluta Ítalíu og
hefur lögreglan sett upp vegartálma
til þess að tryggja að sóttkvíin haldi.
Giuseppe Conte, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði að einangrunin gæti
staðið yfir í nokkrar vikur.
Slæm áhrif á efnahagslífið
Áhrif kórónuveirunnar hafa einnig
náð til efnahagsins, en hlutabréfa-
markaðir í Evrópu féllu um meira en
3% vegna ótta um að faraldurinn
gæti haft gríðarlega slæm áhrif á
efnahaginn. Mest voru áhrifin á Ítal-
íu, þar sem vísitalan féll um 5,4%
þegar markaði var lokað í Mílanó, og
FTSE-vísitalan í Lundúnum féll um
3,3%. Bandaríkjastjórn tilkynnti um
helgina að ástandið í Kína myndi
hafa neikvæð áhrif á efnahaginn, og
féll Dow Jones-vísitalan um 2,8% við
opnun markaða í Wall Street.
Vara við alheimsfaraldri
Tilfellum kórónuveirunnar fjölgar í Evrópu, Asíu og Mið-Austurlöndum Ný
dauðsföll í Íran, Suður-Kóreu og Ítalíu Markaðir taka byltu vegna faraldursins
Langbarðaland
Veneto-
hérað
FRAKKL.
SVISS
Í TAL ÍA
Mílanó
Feneyjar
Miðjarðarhaf
maps4news.com/©HERE
+190 tilfelli +50.000
manns í
sóttkví
Aðgerðir á Ítalíu vegna kórónuveiru
Heimildir: Heilbrigðisráðuneyti Ítalíu
Vo’ Euganeo
Lodi
Lodi
AUSTURRÍKI
Adría-
haf
50 km
4 dauðsföll
3 á Langbarðalandi
1 í Venetohéraði
Casalpusterlengo
Maleo
Fombio
Somaglia
Codogno
miðja
faraldurs
Castiglione d’Adda
Bertonico
San Fiorano
Plaisance
CastelgerundoTerranova dei Passerini
5 km
í sóttkví
AFP
Sóttkví Þessir hermenn gættu vegartálma við þorpið Vo Vecchio í gær,
en það er innan einangrunarsvæðis á norðurhluta Ítalíu vegna faraldursins.
Fjöldi manns, bæði börn og full-
orðnir, slasaðist í þorpinu Volk-
marsen í Þýskalandi þegar bíl var
ekið á fullri ferð inn í skrúðgöngu.
Ökumaðurinn var handtekinn á
staðnum en lögreglan sagði of
snemmt að segja hvort hann hefði
keyrt viljandi inn í mannfjöldann.
Árásin átti sér stað á „rósadag“,
en þá er hefð í Þýskalandi að börn og
fullorðnir klæði sig í grímubúninga
og taki þátt í alls kyns hátíðahöldum
sem hluti af kjötkveðjufagnaði fyrir
páskana. Samkvæmt lögreglunni í
sambandsríkinu Hesse hefur öllum
frekari skrúðgöngum þar verið
frestað í varúðarskyni.
Bíl ekið inn í
mannþröng
Rannsókn Lögreglumenn fara yfir
aðstæður þar sem bíllinn ók um.
AFP
Thomas Thab-
ane, forsætisráð-
herra Lesótó,
mætti fyrir rétt í
gær, grunaður
um aðild að
morði eiginkonu
sinnar. Gert var
ráð fyrir að lesin
yrði upp formleg
ákæra á hendur
honum þess efn-
is, en þess í stað var máli Thabane
skotið til hæstaréttar landsins, sem
þarf að skera úr um það hvort for-
sætisráðherrann njóti friðhelgi í
morðmálum.
Stjórnarandstaðan í Lesótó lagði
fram vantrauststillögu á hendur
Thabane á föstudag. Verði hún
samþykkt gæti Thabane rofið þing
og efnt til kosninga.
Máli Thabane skotið
til hæstaréttar
Thomas
Thabane
LESÓTÓ
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?