Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 17
Um daginn las ég grein sem velgdi undir uggum þeirri viðteknu skoðun að ójöfnuður sé óæskilegur. Þvert á móti var ójöfnuður tal- inn æskilegur. Á meðal röksemda var að rann- sóknir sýndu ekki hvernig fólk færist á milli tekju- og eigna- hópa yfir ævina. Gögn væru iðulega rangtúlk- uð með þeim hætti að samfélagið er sagt skiptast í tvo hópa, þar sem ann- ar býr við skort en hinn allsnægtir. Ég get alveg tekið undir það að svo öfgakennt er samfélagið ekki en það er þó engu að síður staðreynd að nokkrir hópar í samfélögum, m.a. því íslenska, búa við verulegan og áþreif- anlegan skort vegna lágra ráðstöf- unartekna. Öryrkjar, eldri borgarar og láglaunafólk, sem oft er með litla menntun, geta illa fært sig upp um tekjubil sökum þeirrar umgjarðar sem samfélagið setur þeim. Oftar en ekki situr fólk sem tilheyrir þessu tekjulágu hópum fast í fátæktargildru sem það getur hvergi hrært sig í. Sem dæmi má nefna að öryrki sem hefur einungis örorkulífeyri frá Trygginga- stofnun sér til framfærslu er með rúmar 220.000 kr. eftir eftir skatt. Með heimilisuppbót, sem um þriðj- ungur öryrkja fær greidda, fer upp- hæðin í 263.000 kr. Telur þú, lesandi góður, að þú gætir lifað á þessum krónum í heilan mánuð í íslensku sam- félagi? 430 þúsund krónur ættu að vera lágmarkslaun Ef svarið er játandi þá vil ég gjarn- an fá uppskriftina. Ef það er neitandi þá skil ég þig vel. Flestir öryrkjar finna fyrir lamandi skorti þegar líða tekur á mánuðinn. Hvern einn og ein- asta mánuð, árið um kring og oftar en ekki árum saman, jafnvel ævina alla. Við erum ekkert að ýkja. Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um kjaramál hefur tek- ið saman framfærsluviðmið einnar ríkisstofnunar, Umboðsmanns skuld- ara, en þar er framfærsluviðmið fyrir einn í heimili án húsnæðiskostnaðar rúmar 157.000 kr. á mánuði. Heildar- húsnæðiskostnaður er varlega áætl- aður 155.000 kr. og ýmis tilfallandi kostnaður 5.000 kr. Samtals gera þetta rúm 317.000 kr. Tekjur sem t.d. öryrkinn þyrfti að hafa á mánuði fyrir skatta eru því 430.000 kr. til þess að hafa í ráð- stöfunartekjur fram- færsluviðmiðsins en eins og kom fram hér að ofan er veruleikinn langt frá því. Þess vegna reynum við öryrkjar að bera hönd fyrir höfuð okkar og fara fram með góðum rökum og rökstuðningi í baráttu okkar fyrir hærri lífeyri sem er hluti af okkar mannréttindum. Við finnum svo sáran fyrir því að fá litlu ráðið um örlög okkar. Lítil kaupmáttaraukning Í greininni sem ég las um æskilega ójöfnuðinn var ein röksemdin sú að fólk sæti yfirleitt ekki fast á sama stað alla ævi og það væru margir sem t.d. veldu að vera tekjulausir eða tekjulág- ir á meðan þeir sækja sér menntun til að verða betur launaðir sérfræðingar seinna á ævinni. Ég er með fjórar há- skólagráður en þær hafa lítið vægi þegar kemur að útreikningi örorkulíf- eyris. Ég upplifði því mikið tekjufall við það að verða öryrki og detta út af vinnumarkaði og engin uppsveifla virðist vera í spilunum. Örorka er sjaldnast tímabil sem gengur yfir nema í fáum tilfellum og oftast liggur leiðin tekjulega séð aðeins niður á við. ÖBÍ heldur svokallað stefnuþing á tveggja ára fresti þar sem helstu áherslur málefnahópa og forgangs- röðun þeirra er valin. Síðasta stefnu- þing var haldið 2018 og verður aftur núna í ár. Með ofangreint í huga og í sam- ræmi við niðurstöður stefnuþings 2018 þá eru helstu áherslur mál- efnahóps um kjaramál ÖBÍ fyrir árið 2020 m.a. að berjast fyrir því:  Að ríkið hækki óskertan lífeyri almannatrygginga í 430.000 kr.  Að ríkið dragi verulega úr tekju- skerðingum í almannatryggingakerf- inu.  Að ríkið hækki skattleysismörk þannig að ekki verði greiddur tekju- skattur af tekjum undir 335.000 á mánuði en það myndi einnig koma öðrum tekjulágum hópum í samfélag- inu til góða og væri hin mesta kjara- bót.  Að ríkisstjórnin setji lög til að koma í veg fyrir að lífeyrissjóðir skerði greiðslur til örorkulífeyrisþega vegna greiðslna úr almannatrygg- ingakerfinu. Kjarahópurinn hefur uppreiknað upphæðir í samræmi við launa- vísitöluhækkanir. Hækkun skattleysismarka Hér er um mannréttindamál að ræða, bæði fyrir öryrkja og aðra, og til að undirstrika það má nefna nokkrar staðreyndir. Hlutfall stað- greiðslu af óskertum lífeyri almanna- trygginga hefur lítið hækkað. Sem dæmi má nefna að persónuafsláttur hefur aðeins hækkað um rúmar 13.000 kr. á síðustu 11 árum en sú þróun hefur leitt til þess að skatt- byrði lífeyrisþega hefur aukist mikið. Lækkun skattbyrði hjá lágtekjufólki eykur ráðstöfunartekjur og þar með lífsgæði. Þess vegna leggur kjarahóp- urinn til að skattleysismörk á mánuði verði hækkuð til að tryggja að tekjur undir 335.000 kr. á mánuði verði ekki skattlagðar. Það kæmi öllu lág- tekjufólki vel og jafnvel þeim sem eru í neðri millistétt. Það myndi kallast kaupmáttaraukning, sem jafnvel tæki lífskjarasamningunum fram, en við öryrkjar höfum verið algjörlega utan garðs í þeim efnum enda er ríkið ein- rátt þegar kemur að „samningum“ um kaup og kjör. Að lokum þetta: Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál tel- ur brýnt að halda alltaf á lofti grein- um mannréttindasamninga um rétt sérhvers manns til viðunandi lífs- afkomu og sífellt batnandi lífsskil- yrða, eins og segir réttilega í samn- ingi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk. Það er verst að veruleik- inn er allt annar og vonin er dauf. Í mínum huga er því ójöfnuðurinn ekki æskilegur. Það er löngu komið að ör- yrkjum! Réttur allra til viðunandi lífs- afkomu og batnandi lífsskilyrða Eftir Unni H. Jóhannsdóttur »Hærri skattleysis- mörk væru raunveru- leg kaupmáttaraukning fyrir öryrkja sem eru utangarðs þegar kemur að kjarasamningum enda er ríkið þar einrátt. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. uhj@simnet.is Straumsvík – að slátra mjólkurkúnni Ég held að ekkert fyrirtæki á Íslandi, fyrr né síðar, hafi verið lagt í þvílíkt og annað eins einelti og álverið í Straumsvík og hefur fyrirtækið þurft að sæta miklum og hat- römmum árásum alla tíð. Misviturt fólk hef- ur gargað og hrópað á torgum um að loka eigi fyrirtækinu nú þegar, engu skeytandi um afleiðingar þess fyrir starfsmenn fyrirtækisins, land og þjóð. Nú þegar fyrirtækið á í erfiðleikum er þetta fólk fljótt til að hefja upp sinn gamla útslitna og út- jaskaða söng; lokum, lokum, lokum strax í dag. Eins og Stefán E. Stefánsson blaðamaður bendir á í Morgun- blaðinu 19. febrúar síðastliðinn er ómögulegt að átta sig á því hvort það er léttúð eða barnaskapur sem rekur þetta fólk áfram. Freistast maður til þess að halda að um hvort tveggja sé að ræða auk yfirgrips- mikillar vanþekkingar á efnahags- málum, gangverki efnahagsmála og skilningsleysis á því hvaðan þeir peningar koma sem greiða alla okkar gríðarmiklu samneyslu, svo sem rekstur Landspítala, umhverfisráðuneytis- ins og Umhverfisstofn- unar. Smávegis tölfræði Álverið skapar um 60 milljarða í gjald- eyristekjur, þar af fara 23 milljarðar í greiðslu launa og raforku. Hag- fræðistofnun áætlar að álverið skapi um 1.250 störf, bein og óbein, þar af eru yfir 400 bein störf. Álver- ið í Straumsvík er annar stærsti við- skiptavinur Landsvirkjunar en 23% af raforkusölu Landsvirkjunar fara til álversins í Straumsvík. Álverið hefur verið einn stærsti vinnustað- urinn í Hafnarfirði svo árum skiptir. Lokun álversins hefði því gríðarlega mikil áhrif á bæjarsjóð og einnig hafnarsjóð en Hafnarfjarðarhöfn á og rekur höfnina í Straumsvík. Upphafið Það er trúlega löngu fallið í gleymsku hjá flestum að bygging og rekstur álversins í Straumsvík lagði hornstein að því að Ísland hóf að mjaka sér frá að vera fátækt, ein- hæft og einangrað land er lýtur að atvinnustarfsemi. Lagði fyrirtækið grunninn að því að hafist var handa við að rafvæða landið af alvöru og á ekki síst sinn þátt í því að Lands- virkjun varð til. Vegna þess hversu landið var fátækt, einhæft og ein- angrað gekk það ekki þrautalaust fyrir sig að fá útlendinga til að íhuga að fjárfesta hér. Það eru heil 70 ár síðan hugmyndir um álver kviknuðu hér á landi en það var þegar ráðu- neyti Steingríms Steinþórssonar var við völd. Síðan liðu heil 16 ár þangað til að samningur um bygginu álvers í Straumsvík var undirritaður við Alusuisse 28. mars 1966. Starfsmenn Einar af mestu áhyggjum þeirra sem ætluðu sér að reisa álverið í Straumsvík á sínum tíma var að til þess væri ekki nóg verkkunnátta í landinu en íslenskt vinnuafl var fljótt að slá á þessar áhyggjur Alusuisse. Síðan bygging og rekstur álversins hófst hefur afburða hópur starfsmanna starfað hjá fyrirtækinu eða fyrir fyrirtækið. Lífsafkomu þessa fólks er nú stefnt í hættu. Græðgisvæðing Landsvirkjunar? Lengstum var gott samkomulag milli Landsvirkjunar og álversins í Straumsvík um fyrirkomulag sölu og kaupa á raforku. Báðir aðilar skildu að það væri hagur beggja að vel gengi hjá báðum. Svo virðist sem að í kringum árið 2010 hafi þarna orðið breyting á. Komin var til valda í landinu „hrein vinstristjórn“ en vinstrimenn, sumir hverjir allavega, hafa alla tíð verið áberandi í and- stöðu sinni við byggingu og rekstur álversins og fundið því allt til for- áttu. Nýr forstjóri var ráðinn til Landsvirkjunar og nokkuð víst er að dagskipun hafi komið til Landsvirkj- unar frá ríkisstjórninni um að nú skyldi brjóta upp raforkusamninga stóriðjufyrirtækjanna og láta þá finna til tevatnsins. Enginn velkist í vafa um það að Landsvirkjun getur hækkað sitt raforkuverð að vild og þarf hvorki að spyrja kóng né prest um það. En það hafa aldrei þótt mikil búvísindi að slátra mjólkur- kúnni. Að sönnu er álverið skuldbundið til að kaupa raforku af Landsvirkjun fram til ársins 2036 og tekjustreymi af samningnum því tryggt til 2036. Í þessu sambandi vil ég taka undir með Ágústi Bjarna Garðarssyni, forseta bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar, þar sem hann sagði á Vísi 14. febrúar síðastliðinn „Lands- virkjun er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki í eigu íslensku þjóðar- innar.“ Að lokum Fram hefur komið að engin úttekt á samkeppnishæfni orkufreks iðn- aðar hefur verið gerð af hálfu stjórnvalda, ekki einu sinni þegar þessi grundvallarbreyting raforku- sölustefnunnar var gerð árið 2010. Samkvæmt iðnaðarráðherra hafa stjórnvöld ákveðið að láta gera þessa úttekt og er það vel. Rétt er þó í lokin að minna á að eins og ríkisstjórn Íslands stóð fyrir því árið 2010 í gegnum Landsvirkjun að ger- breyta raforkusamningum stóriðju þá geta núverandi stjórnvöld haft hönd í bagga við að laga eða leið- rétta þá miklu misbresti sem urðu við þá stefnubreytingu, ríkissjóður er jú eini eigandi Landsvirkjunar. Hægt er að taka undir orð bæj- arstjórans í Hafnarfirði, Rósu Guð- bjartsdóttur, sem sagði í Morgun- blaðinu 13. febrúar síðastliðinn: „Nú er boltinn hjá ríkinu, það er ljóst.“ Eftir Magnús Magnússon » Það hafa aldrei þótt mikil búvísindi að slátra mjólkurkúnni. Höfundur er rekstrarhagfræðingur og stjórnarmaður í hafnarstjórn Hafnarfjarðarbæjar. Magnús Ægir Magnússon UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Lýðræði er enn vinsælt orð þótt ann- markar þess séu lýðnum löngu ljósir eða a.m.k. valds- mönnum ljósir. Lýð- ræði samfara sér- eignarrétti á landi og kapítali leiðir til ósjálfbærrar þróunar sem ógnar heildar- hagsmunum sam- félagsins og komandi kynslóðum. Hin nýja fyrirmynd er augljós; kínverska sameignar- fyrirkomulagið þar sem landið og auðlindir þess eru í sameign þjóðarinnar. Í slíku skipulagi gera stofnanir samfélagsins sig gildandi með því að vinna náið með vald- höfum að mótun almannavilja og innleiðingu sjálfbærra heildar- hagsmuna. Góð fyrirmynd öllum samstarfsaðilum ríkisins í því efni er Ríkisútvarpið, RÚV. Eignarhaldi eða yfirráðum á landi og auðlindum er að öllu jöfnu best komið hjá ríkisvaldinu eða tengdum stofnunum þess og sam- starfsaðilum á sviði náttúruvernd- ar og sjálfbærrar þróunar. Maður- inn í kapítalískri græðgi sinni er illu heilli líkastur aðskotadýri á landinu sem ógnar vistfræðilegu jafnvægi villtrar náttúru. Með stofnun víðlendra verndarsvæða og þjóðgarða getur ríkisvaldið spornað gegn ósjálfbærri starf- semi og náttúru- og loftslagsspill- andi kjötframleiðslu. Þjóðgarðar kalla á mikla sérfræðiþekkingu á sjálfbærri þróun og eru því mikil lyftistöng fyrir háskólamenntaða sérfræðinga. Sveitarfélögum er síður treystandi til að vera vernd- arar hálendisins. Vegna hags- munaárekstra er sveitafólk víst til að hleypa bæði búfé og jeppalýð upp á heiðar til að naga þar og pústa út sóti. Ýmsir hagsmunaðilar landbún- aðar og áróðursmenn gegn lofts- lagsvánni vaða nú á súðum í fjöl- miðlum. Á málflutningi þeirra má skilja að stjórnmálamenn hafi brotið landbúnaðarráðuneytið í mél og sópað brotunum undir teppi í þremur mismunandi ráðu- neytum og Búnaðarstofa hafi farið líka leið. Álíta þeir að nú standi til að veita hefðbundnum íslenskum landbúnaði náðarhöggið með stofnun risaþjóðgarðs á fjöllum. Góðir hálsar, reynum að halda söns- um og horfa fram á veginn í stað þess að rýna sífellt í baksýnis- spegilinn. Sjálfbærrar framtíðar vegna hefur þótt nauðsynlegt að stíga niður fæti gegn þeim sterku stofn- unum sem varið hafa hagsmuni bænda og hefðbundins íslensks landbúnaðar. Hefðbund- inn landbúnaður, griparækt og kjötframleiðsla fellur illa að nátt- úruverndar- og loftslagssjónar- miðum. Menn skyldu hafa hugfast að áróður hagsmunaaðila gegn sér- fræðingum loftslagsvárinnar er eins konar stríðsglæpur og glæpur gegn mannkyninu og jörðinni eins og Andri Snær, spámaðurinn rétt- láti, benti á í Fréttablaðinu 5. október sl. Mér finnst Andri Snær síður en svo taka of djúpt í árinni og þessi ummæli jaðra ekki einu sinni við ofstæki. Það er til siðs að taka þá sem fremja glæpi gegn mannkyni af lífi en mér þykir bannfæring og útskúfun nútíma- legri. Sjálfbæra sameign- arfyrirkomulagið Eftir Guðjón Braga Benediktsson Guðjón B. Benediktsson »Hin nýja fyrirmynd er augljós; kín- verska sameignarfyrir- komulagið þar sem landið og auðlindir þess eru í sameign þjóðar- innar. Höfundur er hagfræðingur. gbb7@hi.is Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.