Morgunblaðið - 25.02.2020, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
✝ Elsa HerborgÞórarinsdóttir
fæddist á Patreks-
firði 29. nóvember
1930. Hún lést
þann 16. janúar
2020.
Elsa var yngst
barna foreldra
sinna, þeirra Þór-
arins Bjarnasonar,
f. 1878, d. 1963
frá Kollsvík, og
Guðmundínu Einarsdóttur, f.
1887, d. 1956, frá Rauðasandi.
Þeim varð alls 12 barna auðið
en 8 náðu fullorðinsárum. Þau
eru í aldursröð: Ingólfur,
1909-2000; Aðalheiður 1913-
2001; Ingimundur Þorgeir,
1916-2002; Svava, 1917-1989;
Einar, 1922-1979; Elínborg,
1925-1991; Óli Anton, 1928-
1972.
Elsa giftist Guðbrandi
Skúlasyni verkamanni, f. 6.5.
1920, d. 26.5. 2007, og eign-
uðust þau þrjá syni, þá Braga,
f. 1953, fv. forstjóra; Guð-
mund Þór, f. 1957, fv. sjó-
mann, og Kristján Helga, f.
1960, verkamann.
Kona Braga er Helga Jóns-
dóttir, f. 1964. Hann var
Frey, f. 2018 og Daníellu
Freyju, f. 2012, dóttir Hafþórs
er Jasmín Guðrún, f. 1998; og
d) Linda Dögg, f. 1989, gift
Carl Andreas Sveinssyni og
eiga þau eitt barn saman, Ísak
Andreas, f. 2019. Fyrir átti
Linda Ísabellu Líf, f. 2012 og
Carl átti Kamillu Sif, f. 2007.
Móðir þeirra og fyrrverandi
eiginkona Guðmundar er Sig-
rid Hálfdánardóttir. Sonur
Herdísar er Friðrik Andrés-
son, f. 1983, maki Anna Kol-
brún Jenssen og eiga þau þrjú
börn, Mikael Frey, f. 2003,
Diljá Þóru, f. 2008 og Þröst
Mími, f. 2012. Eiginkona
Kristjáns Helga er Marta
Gunnlaug Guðjónsdóttir, f.
1960.
Elsa og Guðbrandur fluttust
til Reykjavíkur 1952 þar sem
þau stofnuðu fjölskyldu og
bjuggu lengst af á Hverf-
isgötu og síðar í Breiðholti.
Síðar fluttu þau í Engihalla í
Kópavogi og eftir að Guð-
brandur lést bjó Elsa á Kópa-
vogsbraut en síðustu árin
dvaldi hún á hjúkrunarheim-
ilinu Hömrum í Mosfellsbæ. Á
langri starfsævi starfaði hún í
verslunum, lengst af í
„Varmá“ og síðar í Glæsibæ
og Kaupstað í Mjódd. Síðustu
starfsárin vann hún á end-
urhæfingardeild Borgar-
spítalans.
Útför hennar fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
kvæntur Árdísi
Ólafsdóttur og
eignuðust þau
þrjú börn: a) Ólaf
Örn, f. 1978 sem á
börnin Tinnu
Katrínu f. 2008 og
Darra Stein, f.
2012, með eig-
inkonu sinni Ingi-
björgu Ólafsdótt-
ur, f. 1976; b)
Guðbrand Þór, f.
1982, en börn hans og eig-
inkonu, Eyglóar Jónsdóttur, f.
1980, eru Marsibil, f. 2009,
Matthildur, f. 2011 og Bragi,
f. 2015; c) Guðrúnu Elsu, f.
1986, gift Birni Þór Vilhjálms-
syni, f. 1973, sonur Björns er
Magnús Kolbjörn, f. 2009.
Guðmundur Þór er kvæntur
Herdísi Ólöfu Friðriksdóttur,
f. 1961. Hann á fjórar dætur.
Þær eru: a) Elsa Ýr, f. 1975,
móðir hennar er Svala
Ágústsdóttir; b) Inga María, f.
1980, gift Howard Michael
Scott og eiga þau tvö börn,
Elíönu Sóleyju, f. 2008 og
Benjamín Zane, f. 2010; c)
Katrín Ósk, f. 1983, maki Haf-
þór Smári Sigmundsson, og
eiga þau tvö börn, Alexander
Mamma fæddist ein systkina
sinna á Patró en hin ellefu í
Kollsvík þar sem afi var for-
maður á bát. Á Patró ólst
mamma upp í hlýjum faðmi
ömmu Guðmundínu sem bjó yf-
ir miklum kærleik sem hún var
örlát á og fyrirmynd mömmu í
lífinu. Afi var fiskmatsmaður
og formaður verklýðsfélagsins
í plássinu en það hlutverk mót-
aði hana líka, þaðan fékk hún
jafnaðarmennskuna í blóðið.
Afi var að vísu ekki krati, hann
lét sjálfstæðismenn gjarnan
keyra sig á kjörstað – til að
spara bensínið hjá framsókn-
armönnum.
Mamma hitti pabba ung.
Þau fóru suður fljótlega eftir
stríð eins og alþýðufólk gerði á
þessum árum, og amma og afi
fylgdu á eftir. Ég naut þess í
frumbernsku að eiga þau að.
Svo bættust við móðursystkini
mín og börn þeirra. Hverfis-
gata 92b var samkomuheimili,
þar var skeggrætt og mamma
tók upp gítarinn og söng.
Samhliða uppeldisstörfum
var mamma jafnan á vinnu-
markaði, lengst við verslunar-
störf. Eldri borgarar kannast
kannski við „Elsu í Varmá“ en
Varmá var í eigu Grímars Jóns-
sonar, kaupmannsins á horninu
á Hverfisgötu og Vitastíg. Þessi
smávöruverslun var eins konar
félagsmiðstöð hverfisins.
Mamma var hrókur alls fagn-
aðar og vinsæl hjá viðskiptavin-
um. Þeirra á meðal voru þjóð-
þekktir einstaklingar, t.d.
Albert Guðmundsson sem síðar
varð ráðherra, sem komu til að
hitta Grímar, sem á yngri árum
var landsliðsmaður í knatt-
spyrnu,. Þetta var hverfi þar
sem fólk bjó við kröpp kjör, t.d.
í Bjarnaborg sem var hinum
megin götunnar gegnt Varmá.
Oft bar svo við að ekki var til
salt í grautinn, heimili urðu fyr-
ir áföllum vegna veikinda,
áfengisdrykkju eða miskunnar-
leysis hafsins. Ég held að það
sé ekki ofmælt þegar sagt er að
mamma hafi oft gengið í hlut-
verk félagsráðgjafans enda ekki
fagfólki til að dreifa. Sumar
barnafjölskyldur tók hún í
fangið þegar erfiðleika bar að.
Ég held að Albert hafi oft tekið
upp seðlaveskið eftir ábendingu
mömmu, og reitt fram fjárhæð
sem dugði til að fylla pappa-
kassa af nauðsynjavöru. Raun-
ar minnist ég þess að hafa
stundum verið í hlutverki
sendisveinsins, sem kom köss-
unum fyrir en lét sig hverfa áð-
ur en móttakandinn áttaði sig á
hvaðan góssið kæmi. Samhjálp-
in tók á sig ýmsar myndir,
mamma fól pabba það verkefni
að næla í fiskspyrðu við löndun
hjá Togaraafgreiðslunni og
koma fyrir á tröppum ná-
granna, kvenna með barnahóp.
Mamma var akkeri stórfjöl-
skyldunnar, samnefnarinn,
heimili hennar var heimili allra.
Ættrækni var henni í blóð bor-
in. Fram í andlátið spurði hún
um sitt fólk. Og trúin á elsta
soninn var takmarkalaus. Þeg-
ar ég sagði henni að ég hefði
látið af störfum og væri kom-
inn í framboð til barnaréttar-
nefndar SÞ og að kosið yrði í
New York var hún þess fullviss
að ég yrði kjörinn forseti
Bandaríkjanna. Alzheimer
drepur nefnilega ekki trú fólks
á barnið sitt.
Hvað get ég móðir sagt um öll þau
ár,
sem okkur gafst þú, sælu þína og
tár?
Ég veit þú hefur vakað, þráð og
beðið.
Og einhvern veginn er það svo um
mig,
að allt hið besta hefur verið sagt
um þig,
sem aðrir hafa um aðrar mæður
kveðið.
(Jakobína Sigurðardóttir)
Bragi Guðbrandsson.
Hjartans eldur hefur brunnið,
horfið það sem áður var,
lífsins starf svo lengi unnið
með ljósi margan ávöxt bar.
Þú sem gafst mér ást í æsku
sem entist vel á lífsins braut,
í faðmi þínum frið og gæsku
fann ég leysa hverja þraut.
Þú sem barst þinn harm í hljóði
hræddist ekki dauðans mátt.
Er falla tár, með fögru ljóði
ég fæ að kveðja þig í sátt.
Þá var ég fræ í fögru beði
það fengu vökvað tárin þín.
Og andi þinn er eilíf gleði,
elsku besta mamma mín.
(Kristján Hreinsson)
Blessuð sé minning mömmu.
Kristján
Guðbrandsson.
Amma Elsa var hluti af lífi
okkar systkinanna í þrjátíu og
átta ár, að meðaltali. Á svo
löngum tíma mótast manneskja
og aðlagast breytingum í innri
og ytri veruleika sínum. Sumt
breytist þó ekki; það sem kalla
mætti kjarna, grundvallarþætti
persónuleikans.
Hún hafði hlýja og góða
nærveru. Við vorum velkomin
til hennar hvenær sem var. Það
var engin þörf á því að hafa
eitthvað sérstakt fyrir stafni
hjá ömmu og afa. Það var nóg
að sitja í sófanum og njóta þess
að eiga þau að. Hjá þeim ríkti
friður og ró.
Hún skammaði okkur aldrei
og þegar var púki í okkur klór-
aði hún á okkur bakið. Einu
sinni gaf hún bræðrunum hvor-
um sinn vasahnífinn, í óþökk
móður þeirra. Þegar mamma
spurði út í þetta, sagði amma,
hissa á spurningunni, að dreng-
ir þyrftu að eiga vasahníf.
Amma hafði áhuga á fólki. Í
eldhúsinu á Hjaltabakka var
kaffi á könnu, marmarakaka á
disk og fólk að tala saman. Á
milli gestakoma var eldhús-
borðið þakið dagblöðum og
tímaritum, kveikt á útvarpinu.
Með hækkandi aldri fór amma
að klippa út viðtöl og fréttir og
líma í bækur. Hún var að varð-
veita sögur fólks sem átti það
eitt sameiginlegt að henni þótti
lífsreynsla þess mikilvæg, frá-
sagnirnar forvitnilegar.
Á jólunum gerði amma
möndlugraut sem hún bar fram
með íssósu. Okkur var sama um
möndluna en átum þó yfir okk-
ur á hverju ári. Uppskriftin er
ekki til, en við áttum mörg
samtöl við ömmu um hvernig
skyldi útbúa grautinn. Við er-
um enn að reyna. Óli var lík-
lega sjö eða átta ára þegar
hann þrammaði upp tröppurnar
í Hjaltabakkanum og sagði við
foreldra okkar: „Hvað ætli hún
amma sé með gómsætt fyrir
okkur núna?“ Hann kom fyrst-
ur okkar orðum að því hversu
gott það var að borða hjá
ömmu.
Sem dæmi um hversu nýtin
amma var, þá vann Guðbrandur
sem sendill hjá bakaríi síðasta
sumarið sem afi lifði og fór til
þeirra alla föstudaga með brauð
og kleinur. Hann átti með þeim
rólega stund, spjallaði við þau
og fylgdist með þeim. Þau voru
stolt af honum. Fljótlega áttaði
hann sig á því að þau borðuðu
alltaf gamalt brauð því þegar
gamla brauðið var loksins búið
var hið nýja orðið gamalt. Hann
fór að fjarlægja gamla brauðið
við hverja komu en ömmu
fannst það sóun. Það var ágætis
áminning um hversu ólíka tíma
við höfum upplifað.
Þetta sumar var gaman að
fylgjast með samvinnu þeirra í
eldhúsinu. Afi tók úr upp-
þvottavélinni og setti óhreint
leirtau í skápana. Sjónin var
farin að gefa sig svo amma tók
leirtauið og setti aftur í vélina.
Enn setti afi í skápana og
svona gat þetta gengið í nokkr-
ar umferðir áður en tókst að
loka hringnum.
Amma var hlý, mikið fyrir
knús og kossa. Í síðustu heim-
sókn Guðrúnar Elsu til hennar
var slíkt kjass enn tungumálið
sem henni var tamast. Á meðan
hún snapaði kossa frá ömmu
rifjaði hún upp að amma sagð-
ist alltaf geta étið okkur, „engl-
ana hennar ömmu sinnar“. Guð-
rún Elsa tók orð hennar sér í
munn þegar hún knúsaði hana
bless og það síðasta sem amma
Elsa sagði við hana var: „Og ég
þig.“
Ólafur Örn, Guðbrandur
og Guðrún Elsa.
Hinn 18. febrúar 2020 var
Elsa frænka til grafar borin,
kona sem síðust systkina sinna
kveður þennan heim og er
kvödd með sárum söknuði.
Lífsbaráttan var oftast hörð og
barátta við kröpp kjör. Elsa var
yngst þeirra systkina, en hún
var eins konar samnefnari fyrir
þau öll. Hjá henni var stöðugur
straumur ættingja og vina, að
hluta til vegna afa sem hún
sinnti af mikilli kostgæfni. Á
námsárum mínum átti ég tíma-
bil þar sem ég kynntist henni
meir en áður og upplifði ég
hvernig líf eiginkonu verka-
manns var með öllum tilbrigð-
um lífsins. Ást á manni og
börnum, gleði, sorgir, fátækt og
andlegt ríkidæmi sem sífellt
var miðlað af. Elsa hafði gaman
af söng og var liðtæk við gít-
arspil og var oft sungið og spil-
að þegar fólk kom saman. En
eitt lag er í huga mér sem hún
flutti oft og söng af mikilli
næmni, það lag er eftir Sig-
valda Kaldalóns og texti eftir
Davíð Stefánsson, Lofið þreytt-
um að sofa:
Þeim gleymist oft, sem girnast söng
og dans,
að ganga hljótt hjá verkamannsins
kofa.
Ó hafið lágt við litla gluggann hans
og lofið dagsins þreytta barni að
sofa.
Þið njótið góðs af verkum sem hann
vann.
Þið vitið að hann býr við lítil efni.
Sú lund er hörð, sem hæðir snauðan
mann.
Það hjarta kalt sem rænir þreyttan
svefni.
Elsa og Baddi bjuggu sér
gott heimili og komu þau upp
þremur mannvænlegum drengj-
um, sem hver sem er gæti verið
stoltur af. Ég er mjög þakk-
látur Elsu fyrir allt og allt og
gleðst yfir þeirri arfleifð sem
hún skilur eftir sig. Braga,
Guðmund, Kristján og fjöl-
skyldur. Hjá þeim er hugur
minn.
Bjarni Ingólfsson.
Elsa Herborg
Þórarinsdóttir
✝ Þór Valdi-marsson
fæddist í Reykja-
vík 30. maí 1952.
Hann lést eftir
stutt veikindi 1.
febrúar 2020.
Móðir Greta Ást-
ráðsdóttir, f. 30.
mars 1929. Stjúp-
faðir Jón Hilmar
Jónsson, f. 29.
mars 1931, d.
1992. Systkini Þórs eru Marín,
f. 1947, Karl, f. 1949, d. 1992,
Jón Gretar, f. 1966. Eiginkona
Þórs er Guðlaug Guðjóns-
dóttir. Foreldrar hennar Guð-
jón S. Öfjörð, f. 18.9. 1929, d.
29.3. 1994, og
Fanney G. Magn-
úsdóttir, f. 24.9.
1930, d. 10.3. 1996.
Synir Þórs og
Guðlaugar eru
Gretar Öfjörð,
sambýliskona hans
er Ingigerður
Stella Logadóttir.
Börn Gretars eru
Katla og Fannar
Már. Sonur Ingi-
gerðar er Ómar Logi. Valdi-
mar, hans börn eru Emil og
Indía.
Útför Þórs fór fram í kyrr-
þey að hans ósk 11. febrúar
2020 frá Fossvogskapellu.
Elsku hjartans Þór minn.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín eiginkona og vinur.
Hvíl í friði, ástin mín.
Guðlaug
Guðjónsdóttir.
Mig langar að minnast góðs
vinar og mágs til 50 ára sem við
kvöddum í fallegri athöfn í Foss-
vogskapellu 1. febrúar síðastlið-
inn þar sem Rolling Stones, Cat
Stevens og Bubbi hljómuðu í há-
tölurunum alveg í hans stíl. Einu
sinni hringdi Þór í mig og var á
leið til RVK: Maggi, nú er illa
komið fyrir gamla Stónsaranum
með tvær fimmtugar í aftursæt-
inu, og svo hló hann ógurlega.
Þór var ekki mikið fyrir úti-
legur, það kom í ljós eitt sum-
arið á Flúðum í tjaldútilegu og
það rigndi eins og hellt væri úr
fötu og Þór tilkynnti okkur þá:
þetta geri ég aldrei aftur og
hann stóð við það. Þór spilaði
fótbolta með Umf. Selfoss í
mörg ár og var mjög liðtækur í
vörninni og fékk viðurnefnið
jarðýtan. Hann sagði alltaf: það
sleppur enginn framhjá mér,
annaðhvort boltinn eða maður-
inn, aldrei bolti og maður. Síð-
ustu 5 árin hafði Þór glímt við
sjúkdóm sem leiddi til þess að
hann varð að hætta að keyra
leigubílinn fyrir 3 árum og það
fór illa í okkar mann sem var
ekki sáttur við að þurfa að
hætta en mér fannst hann sætta
sig við þetta allt saman síðast-
liðið sumar; fór að labba úti og
braggast aðeins og leið betur.
En 29. des. komu skilaboð frá
Gullu systur minni: Þór er kom-
inn á bráðamóttökuna mikið
veikur. Þar greindist hann með
illvígan sjúkdóm sem gekk mjög
hratt og Þór kvaddi okkur á
líknardeildinni í Kópavogi 1.
febrúar. Ég heimsótti Þór á
líknardeildina þremur dögum
fyrir andlátið og þegar við
kvöddumst og horfðumst í augu
þá vissum við báðir að þetta var
í síðasta skiptið sem við hittumst
í þessu lífi. Elsku Gulla mín, þú
hefur staðið eins klettur í veik-
indum Þórs með strákana þína
þér við hlið og tengdadóttur og
barnabörnin. En öll él styttir
upp um síðir og sólin kemur upp
og þið jafnið ykkur smám saman
og lífið heldur áfram, en minn-
ingin um Þór lifir.
Magnús Öfjörð.
Þór
Valdimarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRLAUG JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis í Lækjasmára 6,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
21. febrúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
27. febrúar klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
björgunarsveitirnar.
Þórný Harðardóttir Guðjón Hauksson
Helga Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁRDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Brekkubæ 17,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
sunnudaginn 9. febrúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Ingvar Þorvaldsson
Börkur Ingvarsson Guðrún Brynja Skúladóttir
Björn Geir Ingvarsson Valborg Huld Elísdóttir
Þóra Ingvarsdóttir Halldór Þór Þórhallsson
Þorvaldur Ingvarsson Ingibjörg Lóa Ármannsdóttir
ömmu- og langömmubörn