Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.02.2020, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Elsku amma. Nú ertu farin að- eins 3 vikum á eftir honum Nonna mín- um. Þótt sorgin sé sár og sökn- uðurinn eftir ykkur báðum svo erfiður veit ég að þú ert hjá hon- um og hann er öruggur í faðmi þínum. Það fyllir hjarta mitt ró. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig svona lengi hjá mér. Þakklát fyrir þau forréttindi að fá að búa Anna Tyrfingsdóttir ✝ Anna Tyrfings-dóttir fæddist 28. nóvember 1928. Hún lést 12. febr- úar 2020. Anna var jarð- sungin 24. febrúar 2020. hjá ykkur afa í Hólastekknum með eldri börnin mín tvö. Við foreldrarn- ir bara unglingar að eignast okkar fyrsta heimili í öruggu skjóli ykkar afa. Það er ómetan- legt. Ég sakna þín, elsku fallega amma mín og vinkona. Hönd þín svo ótrú- lega mjúk og faðmurinn svo hlýr, stoltið svo mikið og ástin svo skilyrðislaus. Takk, amma, fyrir að vera fyrirmynd mín í líf- inu. Þín vegna er ég sterk, traust, ástrík og góð mamma og get allt sem ég ætla mér. Ég mun aldrei gleyma þinum síðustu orðum til mín þegar þú horfðir á mig þinum ástríku aug- um og fannst svo innilega til með mér: „Elsku hjartans stelp- an mín, þú ert svo sterk, hann Nonni þinn vakir yfir ykkur.“ Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Ég elska þig, amma mín, og knúsaðu afa og Nonna minn frá mér og krökkunum. Þín Unnur Björk. Skein yfir landi sól á sumarvegi, og silfurbláan Eyjafjallatind gullrauðum loga glæsti seint á degi. Við austur gnæfir sú hin mikla mynd hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar í himinblámans fagurtærri lind. (Jónas Hallgrímsson) Eyjafjallatindur hefur alltaf verið fagur, en aldrei fegurri en í augum litlu vinkvennanna sem búa í Landeyjum. Litlu skott- urnar voru sammála Jónasi Hallgrímssyni og reyndu ekki að bæta um betur, þess gerðist ekki þörf. Vinkonurnar höfðu gaman af ljóðum og lærðu þau fljótt. Blessuð góða vinkona mín í 90 ár, Anna Tyrfingsdóttir, er gengin á fund skapara síns og ástvina sem farnir eru á undan. Guð blessi allt það sómafólk. Anna mín var hvíldinni fegin, var búin að þjást svo lengi í baki. Hún hlakkaði til endurfunda við ástina sína og lífsförunaut, Ing- ólf Björgvinsson. Í hugskoti mínu birtist sú sýn sem minn- ingar geyma. Til stóð að unga fólkið á bæj- unum fengi að fara á ball í Njáls- búð. Allir voru prúðbúnir og með góða hesta til reiðar. Mér varð litið á Önnu mína þar sem hún var með stjörnur í augunum við hlið Ingólfs frá Bólstað. Þau þóttu ákaflega glæsileg og döns- uðu auðvitað saman allt ballið. Þau voru svo ástfangin. Allir glöddust og dáðust að fegurð þeirra og hamingju. Gott er að fá að dvelja við þessa minningu. Stundum fórum við krakkarnir á önnur samkomuhús, hér og þar. Til dæmis í Þingborg. Alltaf var gaman. Fórum við ríðandi og höfðum alltaf góða hesta. Æskuheimili okkar Önnu lágu saman og einungis lág girðing og lítill bæjarlækur á milli. Svo það þurfti ekki annað en að brýna raustina og kalla „Anna, komdu út að læk“. Og það sama gerði Anna. Svo var skrafað, sagðar sögur og leyndarmál. Þetta þóttu stelpuskottunum ekki leiðinlegt. Jörðin Þúfa liggur nærri Tungubæjunum. Bjuggu þar systur á okkar aldri og urðu þær góðar vinkonur okkar. Foreldrar okkar allra ræktuðu greiðvikni, hjálpsemi og vináttu sín á milli alla tíð. Anna og Ingólfur stofnuðu heimili í Reykjavík. Einnig ég og Marteinn minn. Á þeim tíma vildu allir fara úr bæ í borg. Við Anna vorum ótrúlega samstiga í barneignum, eignuðumst fjórar dætur hvor, allar á svipuðum aldri. En Anna og Ingólfur bættu um betur með komu Björgvins Njáls. Á fyrstu árum okkar í borg- inni var mikil kreppa og skömmtun á öllum sköpuðum hlutum. Stundum þurftum við að leita að aurum í skúffum og skotum og vonast eftir að finna smá aur til að kaupa í soðið. En nóg var af ást og hlýju. Við rifj- uðum þetta stundum upp þegar við áttum allt til alls. Við vinkonur og makar okkar brugðum okkur stundum á dans- leik. Gjarnan bundið við átthag- ana. Alltaf var gaman hjá okkur. Enda áttum við skemmtilegustu og flottustu eiginmennina. Kæru ættingjar Önnu og Ing- ólfs, við biðjum ykkur guðs blessunar. Sigríður Ársælsdóttir og Ragnheiður, Ingibjörg og María Marteinsdætur. ✝ Ester Ósk Lilj-an Óskarsdótt- ir fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 21. febrúar 1982. Hún lést 14. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar eru Svanborg Liljan Eyþórs- dóttir, f. 14. nóv- ember 1954, og Óskar Aðalsteinsson, f. 25. nóvember 1960. Systkini hennar eru Ólafur Eyberg, f. 6. febrúar 1975, Jónas Páll, f. 5. apríl 1978, og Vilborg Helga Liljan, f. 28. júní 1987. Ester Ósk Liljan lætur eftir sig einn son, Arn- ar Óla Þórarins- son, f. 16. ágúst 2005. Sambýlis- maður hennar var Sigurður Þór Mýr- dal Gunnarsson, f. 12. júlí 1966. Ester Ósk ólst upp á Akranesi og bjó þar mestalla ævi. Hún vann ým- is störf í gegnum tíðina. Ester Ósk Liljan lenti í slysi 13. febrúar og lést hún í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæslu- deild Landspítalans. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 25. febrúar 2020, klukkan 13. Ólýsanlegur harmur er nú kveðinn að fjölskyldu þinni, elsku Ester mín. Eftir hörmu- legt slys ert þú tekin frá okkur langt um aldur fram og það er svo ofboðslega sárt. Þú varst svo falleg og góð manneskja. Fjölskylda þín var búin að ganga í gegnum svo mikinn missi ástvina á undanförnum fáum árum að ég hélt að það væri ekki hægt að leggja meira á ykkur. Ég hélt í vonina að þú kæmir til baka en þetta var svo alvar- legt að ekkert var hægt að gera fyrir þig. Ég er svo þakklátur að hafa kynnst þér, elsku Ester. Þú gafst aldraðri móðir minni svo fallegt hlýlegt grænt ullar- sjal sem hún tók ástfóstri við. Mamma kvaddi þessa jarðvist nokkrum klukkustundum á eftir þér. Þið munuð fylgjast að inn í ljósið. Þú bauðst mér í Þjóðleikhúsið á Meistarann og Margarítu. Þú varst búin að lesa bókina oft. Þú varst svo ánægð með leikhús- ferðina. Við áformuðum að halda upp á afmælið þitt 21. febrúar með ferð í Bláa Lónið og fara út að borða. Þú vildir stundum halda afmælið í viku. Áhugamál þín voru að taka ljósmyndir, prjóna, teikna, su- doku og að ráða krossgátur. Þú hafðir mikinn áhuga á húðflúri. Gerðir mikið grín að mér og kallaðir mig flúra. Ég var bara með eitt pínulítið tattú. Við fengum okkur tvö eins tattú. Við kynntumst svo vel þegar þú fékkst í augað og varst á Landspítalanum. Ég færði þér betri mat og við spjölluðum mik- ið saman. Þegar sameiginleg vinkona okkar hún Sigríður and- aðist varð vinskapur okkar svo sterkur í sorginni. Við áttum svo fallega vináttu saman. Við fórum saman á tónleika Rolling Stones í París, tvisvar í sömu vikunni. Þú skemmtir þér svo vel. Fórum svo að leita að Keith Richards. Þú gerðir leik- þátt um litlu lyftuna á hótelinu og myndaðir allt saman. Alltaf til í að hafa gaman. Einnig fór- um við tvisvar til Kanarí með Arnari Óla og áttum skemmti- legt frí. Þú tókst þátt í skot- keppni og skaust öllum ref fyrir rass með hittni þinni. Nutum þess að vera í sólinni og hvílast og borða góðan mat. Þú kynntir fyrir mér tónlist Megasar og honum sjálfum, tón- list fleiri listamanna. Kenndir mér að spila kasínu. Gaman að spila við þig, þú varst svo fljót að reikna. Þú varst svo einstak- lega barngóð, það var svo gam- an að fara með þér á kaffihús með dætrum Lenu. Þú varst svo stolt þegar Vilborg systir þín skírði í höfuðið á þér. Þú bauðst mér í skírnina og ég sá hvað þú varst hamingjusöm. Þú varst svo mikill töffari. Þú kvaddir mig alltaf með kossi. Þegar þú vannst hjá BM Vallá húseiningum að klippa járn þá þurfti tvo starfsmenn til að klippa ef þú varst ekki á vakt- inni. Arnar Óli minn, harmur þinn er mestur, ég bið góðan Guð að styrkja þig og hjálpa þér að standast þessa raun. Augasteinn mömmu sinnar. Innilegar samúðarkveðjur til Sigurðar, Óskars, Svanborgar, systkina og ástvina allra. Elsku Ester, þú varst alltaf best. Minningin lifir. Hvíl í friði. Þinn vinur, Ásgeir Sævar. Ester þýðir stjarna. Fyrir 14 mánuðum átti ég stjörnurnar mínar tvær hérna hjá mér, ömmu mína Ester og Ester Ósk eða dedduna mína eins og ég kallaði þig alltaf þeg- ar við vorum litlar. Þegar ég fæddist tókstu strax að þér að vera stóra systir mín og þannig var það allar götur síðan. Eftir að pabbi lést ólumst við svo upp að hluta til saman hjá ömmu okkar og afa, þeim langbestu. Það er ekki hægt að byrja neins staðar að tala um hversu dásamlega góðhjörtuð þú varst, elsku stelpan mín. Alltaf tilbúin að hjálpa við hvað sem er. Hver á núna að baka tölu- stafabrauðin fyrir afmælin hjá stelpunum? Vera sveitt á efri vörinni með mér í afmælis- stressi, segja mér skemmtilegar sögur um pabba minn og tala um það hversu góður hann var þér, hugga mig þegar ég sakna ömmu alltof mikið og fá hlát- ursköst yfir hlutum sem enginn skilur neitt í? Að missa þig er þyngra en tárum taki og ég sætti mig aldr- ei við það. Sterkasta stelpan það ert þú. Hvaða kona hefði farið að redda málunum og ekki vílað fyrir sér að fara að hjálpa til við að festa þakplöturnar fyrir óveðrið? Engin nema þú því þú gekkst bara í verkin. Þú tókst ekki þátt í þessu lífsgæðakapphlaupi eins og margir á þínum aldri heldur voru það hlutirnir og fötin sem höfðu tilfinningalegt gildi sem þú vildir hafa nálægt þér. „Lena, finnst þér í lagi að ég fái bolinn sem amma var í þegar hún var sjötug?“ Uu já, Ester, auðvitað! „Æ, þú veist þetta er samt alveg svona bolur sem ég þurfti að spyrja þig um.“ Óskin þín og litla Stína sakna elsku bestu yfirfrænkunnar sinnar sem var alltaf til í að leika. Við erum prinsessurnar hennar Est- erar sagði Viktoría við mig bara fyrir nokkrum dögum. Þær mál- uðu myndir á bol sem þú áttir að fá í afmælisgjöf, ég veit að þú hefðir ekki farið úr honum því þannig frænka varst þú. Sorgin er óbærileg og lífið er litlaust án þín. Ég gleymi því aldrei hvar ég var þegar þú hringdir og sagðir okkur að þú værir ólétt. Það var við heimasímann í holinu hjá mömmu og þú á Eskifirði, þvílík gleði. Svo kom hann í heiminn og það sem hann var fallegt barn, þá var ég að raka í vinnu- skólanum og mamma kom til mín með útprentaða mynd af prinsinum okkar nýfæddum og það var ást við fyrstu sýn. Ég mun gera allt sem ég get fyrir strákinn þinn. Við vorum ólíkar á margan hátt en svo miklu meira líkar. Strengurinn á milli okkar mun aldrei slitna þrátt fyrir að þú sért núna komin í sumarlandið. Um jólin gafstu mér styttu með tveimur systrum á steini, mér þótti svo vænt um hana og hún er ennþá dýrmætari núna. Það var bara fyrir nokkrum dögum að lagið Ómissandi fólk kom til tals þar sem ég var og ég hugsaði um allt ómissandi fólkið mitt sem væri í kirkju- garðinum. Þú ert ómissandi Est- er og ég veit ekki hvernig við öll förum í gegnum þetta. Stjarnan mín á himnum, hvíl í friði. Alltaf þín Lena. Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir Leiðir okkar Hrefnu lágu saman á fallegu sumar- kvöldi árið 1995 og urðum við fljótt góðir vinir. Hrefna naut þess að dansa og mikið var gert af því á þessum árum. Eftir að sambúð okkar hófst þá gerðum við margt saman. Við ferðuð- umst víða, bæði innanlands og utan. Segja má að það minni mig allt á Hrefnu mína hvert á land sem farið er. Húsbílaferðirnar, með vinum okkar, voru ófáar og ávallt var Hrefna hrókur alls Hrefna Erna Jónsdóttir ✝ Hrefna ErnaJónsdóttir fæddist 23. nóv- ember 1934. Hún lést 5. febrúar 2020. Hrefna Erna var jarðsungin 14. febr- úar 2020. fagnaðar í þeim ferðum. Eins eru þær fjöldamörgu Spánarferðir sem við fórum í mér ógleymanlegar, þar nutum við okkar vel í sólinni og hitan- um. Hrefna var úr- ræðagóð mann- eskja, leysti úr málum og gerði það vel, fólk hlustaði á hana. Ég er ánægður með að Hrefna og mamma mín náðu að kynnast og fór vel á með þeim. Erfitt var að horfa upp á veik- indi Hrefnu síðustu misseri en Hrefna var sterk í þeirri bar- áttu. Ég verð ævinlega þakk- látur fyrir alla þá velvild sem börn Hrefnu hafa sýnt mér og góðmennsku í gegnum árin. Ég mun sakna Hrefnu minnar. Sigurður (Sissi). Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega BERGS INGA GUÐMUNDSSONAR, Skálahlíð 11, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks og íbúa Skálatúnsheimilisins. Pálmi Árni Guðmundsson Lene Birch Vestergaard Kristján Jón Guðmundsson Drífa Gústafsdóttir Jónína Elva Guðmundsdóttir og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RANNVEIG HANSÍNA JÓNASDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka, 13. febrúar. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 29. febrúar klukkan 14. Hrafnhildur Þorleifsdóttir Smári Kristófersson Hallgrímur Þ. Gunnþórsson Susana R. Gunnþórsson Soffía Gunnþórsdóttir Sigurgeir Svavarsson Elsa K. Gunnþórsdóttir Jón Jónsson Inga Jóna Gunnþórsdóttir Gunnlaugur Kárason Jónas S. Gunnþórsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, JAKOB BJÖRNSSON, fyrrv. orkumálastjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík, laugardaginn 15. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. febrúar klukkan 15. (Ath. ekki Fossvogskirkju eins og áður var auglýst). Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimer-samtökin, alzheimer.is. Sigrún Birna Jakobsdóttir Magnús Óskarsson Stefán Þór Hermannsson Björn Arnar Kárason Hanna Lára Baldvinsdóttir Eva Karen Magnúsdóttir María Helen Magnúsdóttir Kamilla Nótt B. Sævarsdóttir Nadía Nótt B. Arnarsdóttir Baltasar Jakob Arnarsson Margrét Dís Arnarsdóttir Alexía Lind Arnarsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR ARNAR GUÐMUNDSSONAR skipstjóra. Starfsfólki Hraunbúða eru færðar bestu þakkir fyrir einstaklega góða umönnun og hugulsemi meðan á dvöl stóð. Sigrún Hjörleifsdóttir Ómar Örn Magnússon Anna Kristín Magnúsdóttir Hermann Þór Marinósson Hjördís Inga Magnúsdóttir Atli Már Magnússon Þórdís Gyða Magnúsdóttir Baldvin Þór Sigurbjörnsson Guðmundur Jón Magnússon Ólöf Halla Sigurðardóttir og afabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.