Morgunblaðið - 25.02.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020
LC02 hægindastóll
Leður
Verð 285.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
„BRÓÐIR ÞINN ER FARINN AÐ VINNA Í
VEGGFÓÐURVERKSMIÐJU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... hlutur sem stundum
gerist h-æ-g-t.
VIÐ MÝSNAR ERUM MJÖG
GÓÐAR Í AÐ LÆÐAST
O, ÉG ER NÚ EKKI
SANNFÆRÐUR UM ÞAÐ EN
NÚNA?
ÞÚ MINNTIST EKKERT Á AÐ ÞAÐ SEM VÆRI
KOMIÐ Í HÖFN VÆRI RUSLAPRAMMI!
ÞÚ SAGÐIR AÐ ÞAÐ MYNDI BREYTA LÍFI MÍNU
ÞEGAR ALLT VÆRI KOMIÐ Í HÖFN …
Sonur Björns með Sigríði Gunn-
arsdóttur er Gunnar Bersi Björns-
son, f. 30.11. 1993, sölumaður hjá Ör-
yggismiðstöðinni. Maki: Anastasía
Ísey Cormier, f. 29.8. 1995, hús-
móðir. Barnabörn eru Mikael Bersi,
f. 2015, og Ísabella Alba, f. 2018.
Systkini Björns eru Haraldur Þór
Víðisson, f. 24.11. 1961, tölvunar-
fræðingur, búsettur í Reykjavík;
Haukur Víðisson, f. 28.4. 1963, mat-
reiðslumeistari, búsettur í Garðabæ;
Ingibjörg Margrét Víðisdóttir, f.
17.12. 1964, blómaskreytingakona,
búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Björns: Hjónin Víðir
Páll Þorgrímsson, f. 2.3. 1941, d.
26.3. 2016, kaupmaður, og Jóhanna
Ingibjörg Haraldsdóttir, f. 20.9.
1941, fóstra og fyrrverandi kaup-
maður. Þau ráku saman Tösku- og
hanskabúðina á Skólavörðustíg til
2007, bjuggu lengst af í Kópavogi, en
Jóhanna er núna búsett í Garðabæ.
Björn
Víðisson
Pálína G. Pálsdóttir
húsfreyja á Ljótsstöðum og í Rvík
Jón Björnsson
bóndi á Ljótsstöðum
á Höfðaströnd og
smiður á Siglufirði
Ingibjörg Jónsdóttir
kaupmaður á Siglufirði
og í Rvík, stofnaði Tösku-
og hanskabúðina
Þorgrímur Brynjólfsson
kaupmaður á Siglufirði
og í Rvík
Víðir P. Þorgrímsson
kaupmaður og rak Tösku-
og hanskabúðina
Margrét Guðmundsdóttir
húsfreyja í Syðri-
Vatnahjáleigu
Brynjólfur Jónsson
bóndi í Syðri-
Vatnahjáleigu í
A-Landeyjum
Davíð Sigmundur Jónsson
heildsali í Reykjavík
Einar J. Skúlason
forstjóri í Reykjavík
Salóme Jóhannesdóttir
húsfreyja á Söndum og í Rvík
Jón Jónsson Skúlason
bóndi á Söndum í Miðfirði
og verkamaður í Rvík
Nanna Jónsdóttir
húsmóðir í Rvík
Haraldur Z. Guðmundsson
verslunarmaður í Reykjavík
Jónína Jónsdóttir
húsfreyja á Hvestu
og Hvammstanga
Guðmundur Stefánsson
bóndi á Hvestu íArnarfirði og
vegavinnuverkstj. á Hvammstanga
Úr frændgarði Björns Víðissonar
Jóhanna I. Haraldsdóttir
fv. kaupmaður, bús. í Garðabæ
Helgi R. Einarsson orti í orða-stað vinar (á Tenerife):
Ánægður hér er ég,
á mig kremið ber ég.
Hress á fætur
fer. Um nætur
fjölda hrúta sker ég.
Þessi ástarjátning hans átti vel
við á konudaginn!
Konan mín er megafín,
mildin skín og kætir.
Nýtur sín við glens og grín.
Gamla vínið bætir.
Umhverfismálin eru ofarlega á
baugi á Leirnum sem annars
staðar. Davíð Hjálmar í Davíðshaga
yrkir á Leir:
Kvað Jóna „Þótt sleipt sé af slabbi
ég sleppi ei daglegu labbi
en göslast um polla
sem gargandarkolla.
Ri-rabbrabb, ri-rabbrabb, ri-rabbi!“
Óskar Jónsson yrkir á Boðnar-
miði:
Hún Þuríður gamla á Þverá
þráði það heitast að ver’ á
brókinni ber
og bollur fá sér
í brauðgerð rétt sunnan við Glerá.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
konudegi:
Konur elskum allskonar,
englum líkar,
glæsilegar, gáfaðar,
gæskuríkar.
Mildi gæða heiminn hér
þær hetjur slyngar.
Hvar án þeirra værum vér
vesalingar ?
Hallmundur Guðmundsson segir:
„Til lukku með ykkur kæru KON-
UR og hjartans þakkir fyrir tilvist
ykkar.
Mærum nú karlar kvennafjöld,
knúsum þær og dáum.
Þá oss hlotnast kærleikskvöld
og kossar sem við þráum.
Helgi Ingólfsson yrkir og kallar
„KONUDAGUR 2020“:
Þú ástúð mér veitir og innblástur ljóða,
elsku og hlýju á borði og sæng.
Fyrir þig kveð ég með, frúin mín góða,
fjöðurstaf, stolnum af ástarguðs væng.
Og að lokum eftir Indriða Aðal-
steinsson á Skjaldfönn, – „Þorra-
þræll“:
Genginn burt er gamalt skar
sem geymir sögu ljóta.
Þrælslegur hann Þorri var,
nú þurfum veðurbóta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Umhverfismál og
konudagurinn