Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 26

Morgunblaðið - 25.02.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2020 Lengjubikar kvenna A-deild: Valur – Breiðablik................................... 2:3 Fanndís Friðriksdóttir 70., Elín Metta Jen- sen 85. – Rakel Hönnudóttir 17., 49., Sveindís Jane Jónsdóttir 45. England Liverpool – West Ham............................. 3:2 Staðan: Liverpool 27 26 1 0 64:17 79 Manch.City 27 18 3 6 68:29 57 Leicester 27 15 5 7 54:27 50 Chelsea 27 13 5 9 45:37 44 Manch.Utd 27 11 8 8 41:29 41 Tottenham 27 11 7 9 44:36 40 Sheffield Utd 27 10 10 7 29:25 40 Wolves 27 9 12 6 38:32 39 Arsenal 27 8 13 6 39:36 37 Burnley 27 11 4 12 33:39 37 Everton 27 10 6 11 36:41 36 Southampton 27 10 4 13 34:48 34 Crystal Palace 27 8 9 10 24:32 33 Newcastle 27 8 7 12 24:41 31 Brighton 27 6 10 11 32:39 28 Bournemouth 27 7 5 15 26:43 26 Aston Villa 27 7 4 16 34:52 25 West Ham 27 6 6 15 32:48 24 Watford 27 5 9 13 24:43 24 Norwich 27 4 6 17 24:51 18 Danmörk Horsens – AGF......................................... 1:2  Jón Dagur Þorsteinsson var allan tím- ann á varamannabekk AGF. Staðan: Midtjylland 22 18 2 2 36:13 56 København 22 15 2 5 38:24 47 AGF 21 12 3 6 36:23 39 Brøndby 22 11 2 9 41:32 35 Nordsjælland 22 10 4 8 42:31 34 AaB 22 10 4 8 36:26 34 Randers 21 9 4 8 35:28 31 Lyngby 22 9 4 9 28:35 31 OB 22 8 4 10 29:26 28 SønderjyskE 22 6 7 9 28:37 25 Horsens 22 7 4 11 19:40 25 Hobro 22 2 11 9 21:32 17 Esbjerg 22 4 4 14 18:37 16 Silkeborg 22 2 5 15 26:49 11 Svíþjóð Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Hammarby – Varberg............................. 5:1  Aron Jóhannsson lék fyrstu 78 mínút- urnar og skoraði 2 mörk fyrir Hammarby.  Olísdeild karla Stjarnan – Selfoss................................. 29:33 Staðan: Valur 19 13 2 4 525:459 28 FH 19 12 2 5 569:513 26 Haukar 19 11 3 5 512:499 25 Afturelding 19 11 3 5 520:508 25 Selfoss 19 12 1 6 593:574 25 ÍBV 19 11 2 6 558:509 24 ÍR 19 10 2 7 569:530 22 Stjarnan 19 6 5 8 509:518 17 Fram 19 6 2 11 456:483 14 KA 19 5 1 13 502:550 11 HK 19 3 0 16 478:559 6 Fjölnir 19 2 1 16 484:573 5   1. deild karla Skallagrímur – Selfoss......................... 78:85 Staðan: Höttur 19 17 2 1664:1408 34 Hamar 19 17 2 1872:1648 34 Breiðablik 19 15 4 1882:1600 30 Vestri 17 10 7 1498:1372 20 Álftanes 20 10 10 1702:1744 20 Selfoss 18 7 11 1394:1453 14 Skallagrimur 19 3 16 1536:1791 6 Sindri 16 2 14 1292:1482 4 Snæfell 19 2 17 1514:1856 4 NBA-deildin LA Lakers – Boston......................... 114:112 Denver – Minnesota ......................... 128:116 Toronto – Indiana............................... 127:81 Chicago – Washington ..................... 126:117 Oklahoma City – San Antonio ......... 131:103 Golden State – New Orleans ........... 101:115 Portland – Detroit ............................ 107:104 Staðan í Austurdeild: Milwaukee 48/8, Toronto 42/15, Boston 39/ 17, Miami 36/20, Philadelphia 35/22, In- diana 33/24, Brooklyn 26/29, Orlando 24/32, Washington 20/35, Chicago 20/38, Char- lotte 19/37, Detroit 19/40, New York 17/39, Atlanta 17/41, Cleveland 15/41. Staðan í Vesturdeild: LA Lakers 43/12, Denver 39/18, LA Clip- pers 37/19, Houston 36/20, Utah 36/20, Oklahoma City 35/22, Dallas 34/23, Memp- his 28/28, Portland 26/32, New Orleans25/ 32, San Antonio 24/32, Sacramento 23/33, Phoenix 23/34, Minnesota 16/39, Golden State 12/45.   ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – Fjölnir .................. 19.45 Í KVÖLD! FRJÁLSAR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Ármenningurinn Kristján Viggó Sig- finnsson, 16 ára, sló um helgina 23 ára gamalt piltamet í hástökki innanhúss þegar hann fór með sigur af hólmi í greininni á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss í Kaplakrika í Hafnarfirði. Kristján gerði sér lítið fyrir og stökk hæst 2,15 metra en Ein- ar Karl Hjartarson átti gamla metið, 2,13 metra, ásamt Kristjáni en gamla metið hafði staðið frá árinu 1997. Kristján var með mikla yfirburði í greininni en hann byrjaði á því að reyna við 2,15 metra og náði því strax í annarri tilraun. Hann reyndi svo þrí- vegis að stökkva yfir 2,17 metra sem tókst ekki. „Það er alltaf gaman að bæta sig eins og ég gerði um helgina en í sann- leika sagt þá hefði ég viljað stökkva talsvert hærra. Keppni í hástökki á Ís- landi er ekki mikil og ég er svo gott sem einn eftir í greininni. Á Meistara- mótinu vinn ég í raun greinina í mínu öðru stökki á mótinu og það er þess vegna erfitt stundum að halda áfram af fullum krafti, vitandi það að maður sé búinn að gera nóg til þess að vinna mótið. Ég tel að það myndi auðvelda mér lífið ef við værum fleiri að keppa og með þessar hæðir því þá væri pressan mun meiri að bæta sig í hverju einasta stökki til þess að eiga mögu- leika á verðlaunum. Eftir að ég fór yfir 2,15 metra um helgina leið mér mjög vel og það var ekki sama sprengjan í mér þegar ég reyndi við 2,17 en það er vissulega alltaf gaman að bæta sig í íþróttum.“ Kristján var tíu ára gamall þegar hann byrjaði að æfa frjálsar íþróttir en hástökkvarinn viðurkennir að hann hafi ekki haft mikinn áhuga á íþróttum til að byrja með. „Ég byrjaði að æfa frjálsar íþrótt- ir þegar ég var ungur og ég tók þátt í minni keppni í kringum ellefu ára aldurinn. Í upphafi tók ég í raun þátt í öllum greinum þar sem fólk var að reyna að átta sig á því í hverju ég væri bestur. Ég hafði takmarkaðan áhuga á þessu persónulega til að byrja með og var hálfpartinn þving- aður í frjálsar íþróttir þar sem ég vildi ekki æfa neitt á mínum yngri árum. Ég vann hástökkskeppnina á mínu fyrsta móti og með sigrinum kom aukinn áhugi. Þegar ég var tólf ára setti ég svo mitt fyrsta Íslands- met utanhúss í hástökki og ég hef í raun æft greinina af kappi síðan þá.“ Hugurinn leitar yfir hafið Kristján viðurkennir að hann sé bú- inn að stefna að því lengi að fara yfir 2,15 metrana en hann ætlar sér stóra hluti í framtíðinni og stefnir á háskóla- nám í Bandaríkjunum. „Á síðasta ári var ég í ákveðnu basli við að komast yfir 2,03 metra en svo fer ég á Norðurlandamót ungmenna síðasta sumar í Kristiansand í Noregi og þar var samkeppnin gríðarleg. Þar stökk ég hæst 2,13 metra og eftir það mót hef ég alltaf verið að fara yfir 2,10 að lágmarki á mótum. Á æfingum er ég ekki að einbeita mér of mikið að hæðinni og þar er það atrennan sem ég æfi einna mest. Á síðasta ári voru strákarnir á heimslistanum að stökkva í kringum 2,20 metra þannig að það er markmiðið mitt núna. Ég hef góðan tíma til þess að ná því markmiði og ég tel það mjög raunhæft enda aðeins fimm sentimetrum frá stökkinu mínu um helgina. Ég horfi svo til Bandaríkj- anna upp á skólagöngu að gera því ég hef hug á því að fara í framhaldsnám þar eftir menntaskóla á íþróttastyrk. Þar ætti ég líka að geta fengið mjög góða þjálfun því það eru engir eigin- legir hástökksþjálfarar á Íslandi sem eru bara að einbeita sér að þeirri grein eins og úti í Bandaríkjunum sem dæmi. Ég ætti því að geta lært mun meira úti en á Íslandi.“ Evrópumót U18 ára fer fram í Rieti á Ítalíu um miðjan júlí og þá fer heims- meistaramót U20 ára fram í Nairobi í Kenía í byrjun júlí en þangað stefnir íslenski hástökkvarinn. „Það eru fimm keppnisferðir á döf- inni hjá mér næsta sumar, þar á meðal EM U18 og HM U20, þannig að það er nóg fram undan. Ég þarf að velja og hafna þegar kemur að mótum því stundum stangast þau hvert á við ann- að en ég hef lagt áherslu á það í gegn- um tíðina að keppa í mínum aldurs- flokki gegn andstæðingum á svipuðum aldri og ég er á, þótt það sé vissulega gaman að keppa á þessum allra stærstu mótum líka,“ bætti hástökkv- arinn efnilegi við í samtali við Morgun- blaðið. Hálfpartinn þvingaður í frjálsíþróttir  Sextán ára hástökkvari bætti 23 ára gamalt piltamet í greininni innanhúss Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson Bestur Kristján Viggó Sigfinnsson er Íslandsmeistari í hástökki karla inn- anhúss eftir að hafa farið yfir 2,15 metra á Meistaramótinu um helgina. Liverpool slapp með skrekkinn í bráðfjörugum leik gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu á Anfield í gærkvöld og knúði að lokum fram sigur, 3:2. Sadio Mané skoraði sigurmarkið á 81. mínútu en markvörðurinn Al- isson var bjargvættur Liverpool undir lokin þegar hann varði frá Jarred Bowen úr dauðafæri. Liver- pool hefur þar með unnið 18 leiki í röð og jafnaði með því met Man- chester City í sigurleikjum í deild- inni. Þá er liðið nú aðeins 12 stigum frá meistaratitlinum. Liverpool slapp fyrir horn AFP Sigurmark Sadio Mané fagnar ásamt Trent Alexander-Arnold. Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, kveðst hafa skoðað vel viðureign Tottenham og Bayern München í Meistaradeildinni í vetur þegar Bayern vann 7:2 sigur í London. Chelsea tekur á móti Bay- ern í 16-liða úrslitunum á Stamford Bridge í kvöld. „Við eigum eftir að lenda í vandræðum einhvern tíma í þessum tveimur leikjum því Bayern er ótrúlegt lið þegar það er með boltann en það verður krefjandi að leysa það,“ sagði Lampard í gær. Í hinum leik kvöldsins mætast Napoli og Barcelona. Verðum einhvern tíma í vanda AFP Chelsea Frank Lampard stýrir lið- inu gegn Bayern í kvöld. Einar Sigtryggsson Akureyri Ísland er komið á blað á HM kvenna í íshokkí sem fer nú fram á Akur- eyri. Ísland mætti funheitu liði Nýja-Sjálands í gærkvöldi. Eftir slæman 6:1-skell gegn Ástralíu í fyrrakvöld stigu íslensku stelpurnar allt í botn og keyrðu yfir Nýsjálend- inga. Ísland vann góðan 4:1 sigur eftir að hafa legið í sókn stóran part leiksins. Leikmenn Íslands komu grimmir til leiks og var 2:0 eftir fyrsta leik- hlutann. Stöllurnar Sunna og Silvía Rán Björgvinsdætur sáu um að skora en þær spila saman með Södertälje í Svíþjóð. Saga Blöndal bætti við glæsimarki í öðrum leik- hluta og var því 3:0 á töflunni þegar lokaleikhlutinn hófst. Sá leikhluti var langfjörugastur og sóknarleikur góður hjá báðum liðum. Hvort lið skoraði eitt mark. Nýja-Sjáland minnkaði muninn í 3:1 um miðjan leikhlutann en mínútu síðar svaraði Silvía Rán. Sigur Íslands var því aldrei í hættu. Báðir markverðirnir voru í stuði og komu í veg fyrir fleiri mörk með glæsilegum vörslum. Allt annað var að sjá til liðs Ís- lands í gær eftir skelfilegt tap í fyrsta leiknum gegn Ástralíu, þar sem Ísland lenti 6:0 undir. Þá var mikið slen yfir liðinu og leikmenn að vinna illa saman. Liðið hafði ham- skipti á milli leikja og með sömu spilamennsku ætti það að ná langt á mótinu. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Mark Silvía Björgvinsdóttir skorar annað mark Íslands úr þröngu færi. Hamskipti á milli leikja hjá Íslandi  Fyrsti sigurinn á HM á heimavelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.