Morgunblaðið - 03.03.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Upptökutæki
Þér er í lófa
lagið
að taka upp
!
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við þurfum ekki að óttast endur-
skoðun. Hún er löngu tímabær og ég
er sannfærður um að hún er for-
senda frekari framþróunar grein-
arinnar,“ sagði Kristján Þór Júl-
íusson landbúnaðarráðherra í ávarpi
við setningu búnaðarþings í gær.
Þar boðaði hann vinnu við gerð land-
búnaðarstefnu fyrir Ísland.
Guðrún Sigríður Tryggvadóttir,
formaður Bændasamtaka Íslands,
ræddi einnig um mikilvægi landbún-
aðarstefnu í setningarræðu. „Við
þurfum að koma á heildstæðri stefnu
um landbúnaðinn og hvaða hlutverki
hann á að þjóna fyrir þjóðfélagið.
Skýr stefna er grundvöllur þess að
íslenskur landbúnaður geti þróast
og tekist á við þær áskoranir sem
landbúnaðargeirinn og dreifbýlið
stendur frammi fyrir.“
Guðrún sagði að örar breytingar á
ytra umhverfi og neysluháttum
væru áskorun fyrir frumframleið-
endur og alla fæðukeðjuna. „Þessar
breytingar gera það að verkum að
landbúnaðarinn þarf að aðlagast
nýju umhverfi og það hratt.“
Vinnan er samvinnuverkefni
Ráðherra minnti á að búvöru-
samningar hefðu lengi verið önnur
meginstoð íslensks landbúnaðar.
Síðustu samningar tóku gildi í upp-
hafi árs 2016 og gilda til 10 ára en
gert er ráð fyrir reglulegri endur-
skoðun. „Þetta fyrirkomulag hefur
ýmsa kosti og skapar tiltekinn fyr-
irsjáanleika. Ég er hins vegar á
þeirri skoðun að til framtíðar þurfi
heildstæðari stefnumörkun fyrir ís-
lenskan landbúnað,“ sagði Kristján.
Hann tók fram að mótun landbún-
aðarstefnu yrði samvinnuverkefni
bænda, neytenda og atvinnulífs og
stuðlaði að frekari sátt um framtíð
íslensks landbúnaðar. Tók landbún-
aðarráðherra fram að verkefnið yrði
í forgangi í landbúnaðarráðuneytinu
á næstu misserum og kvaðst hann
vonast eftir uppbyggilegu samtali og
samstarfi við bændur.
Þarf ekki að óttast endurskoðun
Landbúnaðarráðherra boðar vinnu við mótun landbúnaðarstefnu Formaður Bændasamtaka Ís-
lands segir að skýr stefna sé grundvöllur þess að íslenskur landbúnaður geti tekist á við áskoranir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaunahafar Fjölskyldurnar á Espiflöt í Biskupstungum og Garði í Eyjafirði tóku við viðurkenningum sínum úr hendi landbúnaðarráðherra.
Garðyrkjubýlið Espiflöt í Reykholti
í Biskupstungum og kúabúið Garð-
ur í Eyjafirði fengu landbúnaðar-
verðlaun ársins 2020.
Espiflöt, fyrirtæki Axels Sæland
og Heiðu Pálrúnar Leifsdóttur, er
einn stærsti framleiðandi blóma
hér á landi með mikið úrval teg-
unda og litaafbrigða. „Á Espiflöt
hefur verið byggð upp glæsileg
starfsemi sem er til fyrirmyndar í
íslenskum landbúnaði,“ segir í
rökstuðningi fyrir verðlaunaveit-
ingunni. Aðalsteinn og Garðar
Hallgrímssynir reka hið myndar-
lega bú í Garði í Eyjafirði með fjöl-
skyldum sínum. Þeir eru með
tæknivætt kúabú með mikilli rækt-
un. Þá er rekið þar kaffihúsið Kaffi
kú. „Í Garði er rekin fyrirmyndar-
starfsemi þar sem tækniþróun
hefur verið nýtt í því augnamiði að
auka verðmætasköpun og bæta
velferð dýra. Þá hafa bændur í
Garði gefið almenningi gott tæki-
færi til að kynnast betur íslensk-
um landbúnaði,“ segir í rökstuðn-
ingi.
Espiflöt og Garður verðlaunuð
LANDBÚNAÐARVERÐLAUN 2020
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Búnaðarþing Allmargir gestir voru við setningu þingsins í ár. Þar á meðal
voru núverandi og fyrrverandi alþingismenn og ráðherrar.
Sorphirða hófst að nýju í Reykjavík
í gær eftir að undanþága fékkst frá
verkfalli Eflingar vegna lýðheilsu-
sjónarmiða. Var byrjað að hirða
sorp í Breiðholti og er gert ráð fyr-
ir að hægt verði að hirða sorp í
Árbæ í dag, en sorphirða er öll á
eftir áætlun vegna verkfallsins og
má því víða sjá yfirfullar sorptunn-
ur og -geymslur í borginni.
Reykjavíkurborg vill brýna fyrir
fólki að tryggja aðgengi að sorp-
geymslum, sé það ekki gert kann
úrgangurinn að verða skilinn eftir.
Þá er fólki bent á að setja umfram-
sorp í stóra plastpoka.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lýðheilsusjónarmið komu
sorphirðunni af stað á ný