Morgunblaðið - 03.03.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Heyrðu
umskiptin
Fáðu heyrnartæki
til reynslu
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Endurskoðaðar tölur frá Hagstofu
Evrópu, Eurostat, benda til þess að
verðlag hér á landi hafi árið 2018 verið
66 prósent hærra en að meðaltali í öðr-
um Evrópulöndum. Þegar Eurostat
birti í fyrrasumar samanburð á neyslu-
útgjöldum heimila í löndum Evrópu ár-
ið 2018 kom fram að verðlag á Íslandi
væri hæst, 56 prósent hærra en með-
altalið í löndum á evrópska efnahags-
svæðinu, þannig að endurskoðun taln-
anna nú leiðir til verulegrar hækkunar.
Fjallað var um þetta á vef Hagstofu
Noregs í síðustu viku.
Þau lönd sem eru næstdýrust eru
Sviss, Lúxemborg og Noregur. Einna
lægst er verðlagið í löndunum á Balk-
anskaga, svo sem Albaníu og Norður-
Makedoníu. Í Tyrklandi er það 62 pró-
sent undir meðaltali Evrópulanda.
Eins og grafið sem hér fylgir sýnir
var matur og drykkur dýrastur í Nor-
egi og Sviss en Ísland var í þriðja sæti.
Áfengi og tóbak var einnig dýrast í
Noregi en Ísland var í öðru sæti. Sam-
göngur (bifreiðar og ferðalög) voru og
dýrari í Noregi en hér. Aftur á móti
voru heilbrigðisþjónusta, menning og
tómstundir, skólaganga og hótel- og
veitingaþjónusta hvergi dýrari en hér
á landi sanmkvæmt þessum endur-
skoðuðu tölum. gudmundur@mbl.is
Hvergi dýrara
en á Íslandi
Verðlag hér var 66% hærra en að
meðaltali í öðrum Evrópulöndum 2018
Verðlag nokkurra vöru- og þjónustufl okka
Í 6 Evrópulöndum 2018
Matur og
drykkur
Áfengi og
tóbak
Heilbrigðis-
þjónusta
Menning og
tómstundir
Menntun Hótel og
veitingaþjónusta
Noregur Ísland Danmörk
Svíþjóð Finnland Sviss
Heimild: Eurostat
og Hagstofa
Noregs
Morgunblaðið/Golli
Nauðsynjar Það kostar oft sitt að
versla í matinn hér á landi.
Allir reikningar frá ríkissjóði og
ríkisstofnunum verða frá og með
1. maí næstkomandi sendir raf-
rænt til viðskiptavina.
Segir í tilkynningu frá fjár-
mála- og efnahagsráðuneytinu, að
markmiðið sé að lækka við-
skiptakostnað allra aðila, nútíma-
væða viðskiptaumhverfi ríkisins
með auknu framboði stafrænnar
þjónustu og framfylgja umhverf-
issjónarmiðum.
Fjársýslan og ríkisstofnanir sjá
um að senda reikningana út til
viðskiptavina. Þeir verða frá og
með 1. maí gerðir aðgengilegir í
gegnum pósthólfið á Island.is.
Jafnframt verður í boði að fá
reikninga senda rafrænt í gegn-
um skeytaþjónustu.
Reikningar eða greiðsluseðlar,
sem verða rafrænir, varða t.d.
þing- og sveitarsjóðsgjöld, bif-
reiðagjöld, þungaskatt, sektir,
komugjöld og fleira.
200 milljóna sparnaður
Ráðuneytið segir, að áætlað sé
að um 200 milljónir króna sparist
á ári með því að nýta rafræna
reikninga, m.a. með lækkun
prentkostnaðar og póstburðar-
gjalda.
Unnið hefur verið að því að
gera viðskiptaumhverfi ríkisins
rafrænt í samræmi við stefnu þar
um. 1. janúar síðastliðinn tók gildi
ákvörðun fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins um að allir reikn-
ingar vegna kaupa ríkisins á vöru
og þjónustu skyldu gefnir út með
rafrænum hætti.
Reikningar ríkisins rafrænir
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnarráðið Frá og með 1. maí verða reikningar ríkisins sendir rafrænt.
Markmiðið að lækka kostnað og nútímavæða umhverfið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR
ÞIG
PÍPARA?
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is