Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Iðnaðarmenn vinna að því í kappi
við tímann að ljúka smíði nýrra
söluhúsa við Ægisgarð í Gömlu
höfninni í Reykjavík fyrir sumarið.
Mikilvægt er að ljúka verkinu áður
en háannatími hvalaskoðunarfyrir-
tækja gengur í garð.
Jarðvinna vegna húsanna og
lagna hefur gengið heldur brösug-
lega að undanförnu vegna tíðarfars,
að því er fram kemur í minnisblaði
Guðmundar Eiríkssonar, forstöðu-
manns tæknideildar Faxaflóahafna,
sem lagt var fram á síðasta stjórn-
arfundi hafnanna.
Nokkur flókin úrlausnarefni
Guðmundur bætir við að upp hafi
komið upp nokkur flókin úrlausn-
arverkefni við útfærslu húsanna út
frá gögnum hönnuða. Þessum út-
færsluatriðum fari fækkandi svo
bundnar eru vonir við að tafir
vegna þessa séu yfirstaðnar að
mestu.
Hafnarstjórn ákvað á fundi 12.
apríl 2019 að taka tilboði E. Sig-
urðssonar ehf. í byggingu söluhús-
anna við Ægisgarð. Tilboðsverðið
var 398,6 milljónir króna. Gengið
var frá verksamningi 15. maí, 2019
og gerir hann ráð fyrir að verkinu
verði lokið 30. apríl 2020.
Á verkfundi 23. janúar sl. var
bókað að verktakinn reikni með að
standa við ákvæði samningsins um
afhendingu og lagði hann fram
drög að endurskoðaðri verkáætlun
því til staðfestingar. Guðmundur
segir í minnisblaðinu að það sé álit
starfsmanna tæknideildar, sem sjá
um verkefnastýringu og eftirlit, að
allt þurfi að ganga upp svo verkinu
ljúki innan þessa tímaramma.
Unnið er að gerð samningsforms
vegna væntanlegra leigjenda að-
stöðunnar við Ægisgarð. Stjórn
Faxaflóahafna sf. samþykkti í fyrra
að gerður yrði afnotasamningur við
eftirfarandi fyrirtæki vegna nýrra
söluhúsa við Ægisgarð: Special To-
urs, Elding, Sea Safari, Seatrips,
Reykjavík by Boat, Happy Tours
og Katla Whale Watching.
Mun aðstaða þessara fyrirtækja
til að selja farmiða í hvalaskoð-
unarferðir og aðrar ferðir batna
stórlega með tilkomu nýju
húsanna.
Vinna í kappi við tímann við söluhús
Ótíðin í vetur hef-
ur tafið framkvæmd-
ir við nýju húsin sem
rísa við Ægisgarðinn
Morgunblaðið/sisi
Í byggingu Framkvæmdir í fullum gangi við smíði húsanna við Ægisgarð og er unnið virka daga sem um helgar. Húsin eiga að vera tilbúin fyrir sumarið.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þyrluskíðavertíðin er að hefjast.
Enn virðist vera aukning í þessari
grein ferðaþjónustunnar sem
grundvallast á innflutningi er-
lendra ferðamanna að megninu til.
„Það er nokkuð vel bókað. Maður
hefur þó smá áhyggjur af veir-
unni,“ segir Björgvin Björgvinsson
skíðamaður sem rekur Viking Hel-
iskiing og gerir út frá Siglufirði á
fjöll á Tröllaskaga. Áætla má með
að um 1.000 manns nýti þessa þjón-
ustu hér á landi á ári hverju.
Þrjú fyrirtæki stærst
Þrjú fyrirtæki eru stærst í þess-
ari grein, öll með aðalstarfsemi sína
á Tröllaskaga, tvö íslensk og eitt
bandarískt. Auk Viking Heliskiing
má nefna Arctic Heli Skiing sem
Jökull Bergmann rekur og gerir út
frá Klængshóli í Skíðadal, afdal
Svarfaðardals. Það fyrirtæki aug-
lýsir einnig þyrluskíðaferðir til
Grænlands og býður slíkar ferðir í
Glerárdal ofan Akureyrar. Þriðja
fyrirtækið eru Deplar Heli Skiiing í
Fljótum. Sex til sjö þyrlur eru í
flutningum með skíðafólk allan
daginn á hávertíðinni og er ekki
pláss fyrir mikið fleiri á þessu
svæði, að sögn Björgvins. Þótt
fyrirtækin geri út á svipuð svæði
segir Björgvin að engir árekstrar
verði. Reynt sé að hafa samvinnu
þannig að menn séu ekki að fara á
sömu fjöllin á sama tíma. Flug-
menn og leiðsögumenn ræði mikið
saman í þeim tilgangi.
Reynt fyrir sér víðar
Fyrirtækin hafa reynt fyrir sér á
öðrum svæðum. Björgvin segir til
dæmis að hans fyrirtæki hafi boðið
ferðir í fjöll við Skjálfandaflóa og
inni í Eyjafirði. Þá hafi verið reynt
að bjóða þyrluskíðaferðir á Suður-
og Suðvesturlandi. „Það eru fínustu
fjöll þar en snjórinn er ekki nógu
áreiðanlegur. Hann er mest hér
fyrir norðan,“ segir Björgvin.
Til þess að fara inn á nýtt svæði
þarf ýmis leyfi, bæði til að nýta
landið, til að tryggja öryggi gesta
og starfsfólks og flugöryggi
Bergmenn ehf. hafa haft leyfi til
að nota þyrlur til að flytja skíðafólk
upp á fjöll við Glerárdal inn af Ak-
ureyri frá árinu 2017. Leyfin hafa
verið gefin út til eins árs og svo var
einnig nú þótt fyrirtækið óskaði
eftir fimm ára leyfi. Glerárdalur er
fólkvangur og þurfti leyfi Umhverf-
isstofnunar auk Akureyrarbæjar
og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
eystra.
Umhverfisstofnun telur í umsögn
sinni að þetta form útivistar sam-
rýmist friðlýsingarskilmálum fólk-
vangsins. Leyfið var veitt með skil-
yrðum, meðal annars um að
þyrlurnar myndu ekki trufla annað
útivistarfólk í dalnum og fjöllunum
og gætt yrði sérstaklega að vatns-
vernd.
Enn aukning í þyrluskíðamennsku
Þrjú stærstu fyrirtækin gera út á Tröllaskaga Áætlað er að 1.000 manns nýti sér þjónustuna
6-7 þyrlur í flutningum á fólki allan daginn yfir hávertíðina Ekki nægur snjór á Suðurlandi
Morgunblaðið/Snorri Guðjónsson
Tröllaskagi Þyrla og búnaður tilbúinn fyrir næsta rennsli niður fjall.