Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020 Stærðir: 18–24 Verð: 9.995 Margir litir SMÁRALIND www.skornirthinir.is Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. í fyrstu skónum frá Biomecanics SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ Alhliða bókhaldsþjónusta Eignaskiptayfirlýsingar Fjárhagsbókhald Afstemmingar Viðskiptamannabókhald Launavinnslur Virðisaukaskattur Reikningagerð Skattframtöl Ársreikningar Fjármálastjórn Áætlanagerð Eignaskiptayfirlýsingar Skráningartöflur Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S: 896 4040 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir Kr. 6.900 Str. S-XXXL Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is ESA, Eftirlitsstofnun EFTA dregur í efa að ákvæði um leyfisveitingar í stjórnarfrumvarpi um leigubifreiða- akstur, sem nú er fyrir Alþingi, séu í samræmi við 31. grein samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta kemur fram í bréfi sem Valgerður Guðmundsdóttir, aðstoðarforstöðu- maður skrifstofu innri markaðar ESA, sendi samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytinu í október í fyrra. Bréfið var gert opinbert í fyrsta sinn á vef Alþingis í síðustu viku. Frumvarpið um leigubílaakstur má rekja til bréfs sem ESA sendi ís- lenskum stjórnvöldum í janúar 2017. Þar kom fram að stofnunin hefði haf- ið frumkvæðisathugun á leigubif- reiðamarkaðnum á Íslandi og mögu- legum hindrunum að aðgengi að honum. Var frumvarpið samið og lagt fram á Alþingi í haust sem leið til að koma í veg fyrir að ESA höfðaði dómsmál á hendur íslenska ríkinu, en á því voru taldar nokkrar líkur. Í frumvarpinu eru þau skilyrði sett að hver sá sem stundar leigubifreiða- akstur hér á landi skuli hafa rekstr- arleyfi og til að fá það þarf viðkom- andi að eiga lögheimili innan EES-svæðisins og starfsstöð hér á landi sem sé virk og traust. Frá þeirri starfsstöð skal starfseminni vera stjórnað og þar skulu öll grunnvið- skiptaskjöl er varða reksturinn vera geymd og aðgengileg. Að auki er gerð krafa um viðeigandi starfshæfni og gott orðspor. Í bréfi ESA kemur fram að stofn- unin telur að leigubifreiðaakstur á Íslandi heyri undir ákvæði 31. grein- ar EES-samningsins. Þar er kveðið á um staðfesturétt, rétt til að hefja og stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi og fyrirtækjarekstur í öðru EES-ríki samkvæmt sömu lögum og reglum og viðkomandi ríki setur eigin ríkis- borgurum. Í ljósi dóma EFTA-dóm- stólsins og og Mannréttindadómstóls Evrópusambandsins (CJEU) þurfi að vera skýr rök fyrir öllum þreng- ingum á réttindum samkvæmt um- ræddri grein samningsins. Vera megi að ákvæði um leyfisveitingar í frumvarpinu brjóti gegn 31 grein- inni. ESA hyggst fylgjast með fram- vindu málsins og meta stöðuna þegar frumvarpið hefur verið afgreitt. Gæti brotið gegn samningi  Eftirlitsstofnun EFTA gerir athugasemdir við stjórnarfrumvarp um leigubifreiðar  Frumvarpið var samið vegna athugunar ESA á íslenskum leigubifreiðamarkaði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frumvarp ESA telur takmarkanir leyfisveitinga fara gegn EES-samningi. Háskóli Íslands fékk góða heimsókn í gær. Þangað mætti nýr rektor Uni- versity of Minnesota (UMN), Joan T.A. Gabel, ásamt átta manna sendi- nefnd. Kynntu þau sér starf háskól- ans og funduðu með ýmsum fulltrú- um skólans um aukið samstarf skólanna tveggja. Gabel varð í fyrrasumar fyrsta konan til að gegna starfi rektors UMN og heimsóknin til Íslands er fyrsta ferð hennar til erlends sam- starfsskóla. Á dagskrá í heimsókn- inni var m.a. fundur með Jóni Atla Benediktssyni rektor og öðrum stjórnendum Háskóla Íslands. UMN og Háskóli Íslands hafa átt í samstarfi um stúdenta-, kennara- og starfsmannaskipti í 38 ár en UMN var fyrsti erlendi skólinn sem Háskólinn gerði slíkan tvíhliða sam- starfssamning við. Skólarnir hafa jafnframt á síðustu árum eflt rann- sóknasamstarf sitt og er áhugi á að útvíkka samstarfið enn frekar, bæði í rannsóknum og kennslu, segir í til- kynningu um heimsóknina. Auk styrktarsjóða beggja skóla er starfandi hér á landi Hollvinafélag fyrrverandi nemenda UMN á Ís- landi. Jónína Ólafsdóttir Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands, er formaður félagsins. Minnesota-háskóli var stofnaður árið 1851 og stunda rúmlega 60 þús- und nám við skólann á nokkrum stöðum í fylkinu en langstærsti kampusinn er í Minneapolis/St. Paul. Skólinn er alhliða rannsókn- arháskóli og er m.a. í 79. sæti á matslista Times Higer Education yf- ir bestu háskóla heims. HÍ fékk góða heim- sókn frá Minnesota  Nýr rektor háskólans með sendinefnd Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Heimsókn Rektor UMN og sendinefnd í aðalbyggingu háskólans í gær. Heimildir til gerðar tímabundinna leigusamninga eru takmarkaðar verulega, stuðlað er að gerð lang- tímaleigusamninga og virkari for- gangsrétti leigjenda til áframhald- andi leigu. Þetta er á meðal þeirra þátta sem er að finna í frumvarpi til laga um breytingu á húsa- leigulögum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra, kynnti breytingarnar á opnum fundi í gær sem bar yfir- skriftina: „Það á að vera öruggt að leigja“. Eftir hrunið árið 2008 stækkaði leigumarkaðurinn um 70%. Á ár- unum 2013-2019 hækkaði leigan um 45% og tekjulægri ein- staklingar hafa færst meira yfir á leigumark- aðinn. Árið 2019 greiddu 22% leigjenda yfir helming ráðstöf- unartekna í húsaleigukostn- að. Um 8.000 heimili greiða yfir 50% af ráðstöfunartekjum í leigu- kostnað. Þetta kom meðal annars fram á fundinum. Tillögurnar eru alls 48 og skiptast í átta flokka. 48 tillögur í frumvarpi um húsaleigu Ásmundur Einar Daðason Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.