Morgunblaðið - 03.03.2020, Qupperneq 14
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Grásleppuveiðar mega hefj-ast í næstu viku og er þaðfyrr heldur en venjulega.Talsverðar takmarkanir
verða á veiðisvæðum við vestanvert
landið til að minnka meðafla og verða
veiðar bannaðar á 14 tilteknum svæð-
um, samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðherra. Í grunninn eru svæðin
samkvæmt tillögum Landssambands
smábátaeigenda, en tvö friðunarhólf
voru stækkuð, þ.e. við Vatnsnes og í
Faxaflóa.
Meðafli spendýra og fugla hefur
um nokkurt skeið verið vandamál við
veiðar á grásleppu og er meðal annars
helsta ástæða þess að veiðarnar
misstu vottun MSC árið 2018, segir í
frétt ráðuneytisins. Þar kemur eink-
um til umtalsverður meðafli sjófugla
auk landsels og útsels, sem eru á vá-
lista Náttúrufræðistofnunar.
„Það er mat LS að ákvörðun félags-
ins að leggja til bann við grásleppu-
veiðum á 14 afmörkuðum svæðum
kunni að vega þungt þegar vottunar-
stofa fer yfir umsókn þar um. Svæðin
eru valin með tilliti til þess að þar er
mikið af landsel og því hætta á að
hann veiðist sem meðafli við grá-
sleppuveiðar,“ segir á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda.
Þar segir um upphafsdag vertíðar,
að í stað 20. mars eins og verið hefur í
áratugi, verði nú heimilt að leggja
netin 10. mars. „Hætt er við að mörg-
um bregði við þar sem áætlanir gerðu
ráð fyrir óbreyttum upphafstíma.“
Veitt í 44 daga í fyrra
Þá segir á vef LS að það séu von-
brigði að í reglugerð sé ekki ákvæði
um að heimilt verði að gera hlé á veið-
um án þess að veiðidagar telji. „Með
slíkri heimild væri hægt að forðast
meðafla og netatjón þegar veðurspá
gerir ráð fyrir langvarandi brælu.“
Í upphafi vertíðar er miðað við 25
daga á hvert veiðileyfi, en eins og áð-
ur verður dagafjöldi endurskoðaður í
ljósi ráðgjafar Hafrannsóknastofn-
unar sem vænta má fyrir 1. apríl. Í
fyrra var leyft að stunda veiðar í 44
daga og er þá miðað við samfelldan
fjölda daga frá því að net eru lögð.
Í frétt ráðuneytisins er bent á að til
að bregðast við vandamálum vegna
óæskilegs meðafla við grásleppu-
veiðar sem og til að bregðast við bágu
ástandi selastofna við landið hafi und-
anfarin misseri verið gripið til ýmissa
aðgerða. M.a. hafi ráðherra sett
reglugerð um bann við öllum beinum
veiðum á sel sem og sölu selaafurða.
Eftirlitsmenn um borð
Nú er komið í reglugerð um grá-
sleppuveiðar að í stað fjögurra daga
skuli net ekki vera lengur í sjó en þrjá
daga áður en þeirra sé vitjað. Nýtt
smáforrit, Afladagbókin, skráir sjálf-
krafa staðsetningu báta við veiðar, en
skipstjórnarmenn skrá afla, ástand
hans og meðafla með einföldum hætti
í forritinu. Með tilkomu þessa forrits
er þess vænst að skráning batni til
muna. Heildarlengd neta verður
óbreytt.
Fram kemur í frétt ráðuneytisins
að ákveðið hafi verið að stórauka eft-
irlit Fiskistofu með grásleppuveiðum.
Í reglugerðinni segir m.a. um þennan
þátt. „Telji Fiskistofa að meðafli grá-
sleppuveiðibáts sé að aflasamsetn-
ingu frábrugðinn meðafla annarra
grásleppuveiðibáta á svipuðum veiði-
svæðum skal Fiskistofa setja veiðieft-
irlitsmann um borð í bátinn til að
fylgjast sérstaklega með veiðum hans
í einn dag. Skal útgerð grásleppu-
veiðibátsins tilkynnt um ákvörðun
Fiskistofu.
Telji Fiskistofa að ástæða sé til að
fylgjast áfram með veiðum grá-
sleppuveiðibátsins vegna meðafla,
skal útgerð bátsins bera kostnað af
veru veiðieftirlitsmanns Fiskistofu
um borð frá og með öðrum degi …“
Svæðum lokað til
að forðast meðafla
Bannsvæði á grásleppuveiðum
Svæði sem verða
lokuð fyrir veiðum með
hrognkelsanetum vertíðina
2020 vegna hættu á
meðafl a sjávarspendýra
Heimild: Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Erdogan,forsetiTyrklands,
hefur löngum sýnt
að hann er ekkert
lamb að leika sér
við og hann er
reiðubúinn að tefla
á tvær hættur.
Hann slapp þó aðeins naum-
lega þegar hluti hers lands
hans gerði sprengjuárásir á
sumarhús forsetans. Fjand-
vinur Erdogans, Pútín, leið-
togi Rússsa, varaði starfs-
bróðurinn við því hvers honum
sýndist vera von örskömmu
áður en sprengjurnar féllu.
Ýmsir hafa verið mjög hugs-
andi yfir því að Bandaríkja-
menn, sem eru með mikla her-
stöð í Tyrklandi, skyldu ekki
hafa verið í hlutverki þess sem
barg lífi forsetans, því ótrú-
legt þykir að þeirra njósna-
hnettir hafi ekki vitað jafn-
mikið eða meira en þeir
rússnesku.
Það vakti einnig athygli að
þessa örlagaríku nótt og
morguninn eftir vildu hvorki
Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, né Obama for-
seti fordæma uppreisn
Tyrkjahers gagnvart þjóð-
kjörnum forseta í Natóríki.
Það fór ekki á milli mála að
þeir félagar vildu sjá hvort
herinn myndi hafa erindi sem
erfiði, áður en þeir tækju af-
stöðu!
Erdogan braut uppreisn
þessa hluta hersins á bak aftur
með atbeina almennings í Ist-
anbul með hreint ævintýra-
legum hætti.
Og þegar hann hafði sýnt að
hann hefði enn tögl og hagldir
var fylgt mjög fast á eftir.
Hundruð manna voru hand-
tekin næstu daga og þá ekki
síst „svikararnir í þjóðar-
hernum“. Þá var tekið til við
meinta áhangendur þeirra og
beina og óbeina stuðnings-
menn. Og var þá víða komið
við.
Dómurum sem Erdogan
taldi að hefðu stutt eða haft
samúð með uppreisnarmönn-
um var ýtt úr embættum og
sumir handteknir. Sömu örlög
biðu fjölmargra starfsmanna á
ýmsum fjölmiðlum landsins og
víða í stjórnkerfinu.
Ekki þarf að taka fram að
þegar svo snör handtök voru
höfð styttu menn sér mjög leið
og aðfarirnar hefðu ekki stað-
ist neina skoðun og því síður
samanburð við það sem al-
mennt er talið gilda í vestræn-
um lýðræðisríkjum. Að vísu er
þar hvergi að finna reynslu
fyrir því hvernig skuli brugð-
ist við ef herinn reynir að taka
forseta lands af lífi með morð-
árás.
Samband Tyrklands og leið-
toga Evrópusam-
bandsins hefur
verið sérkennilegt
síðustu árin og
jafnvel áratugi.
Látið hefur verið
eins og Tyrkland
hafi verið á hægri
hreyfingu í átt til þess að
ganga í Evrópusambandið. En
þeir sem hafa átt trúnaðar-
samtöl við þá sem mestu hafa
ráðið í Evrópu á þessum tíma
voru ekki duldir þess að þar
var um hrein látalæti að ræða.
Nokkur kaflaskil urðu þeg-
ar Merkel, kanslari Þýska-
lands, sýndi óvæntan og ótrú-
legan dómgreindarskort
þegar hún óvænt bauð flótta-
menn utan landa ESB
hjartanlega velkomna í
stórum stíl til Þýskalands og
þar með auðvitað til þeirra
landa álfunnar sem tilheyra
sambandinu. Þegar flóttafólk-
ið fyllti milljónina á undra-
skömmum tíma og fór enn
hratt vaxandi sprakk Merkel á
limminu enda henni orðið ljóst
að hún hafði óvart tekið
ákvörðun um að leysa ESB
upp stöðvaði hún ekki þessa
þróun.
Í miklu óðagoti og neyð var
samið við Erdogan forseta að
halda nærri þremur milljónum
flóttamanna innan gaddavírs-
girðinga gegn gjaldi, allt þar
til mál skipuðust til betri veg-
ar, sem hefur svo dregist.
Frá þessum tíma hefur for-
setinn veifað þessari ógn yfir
ráðmönnum í Berlín og Bruss-
el. Hann hefur sakað þá um að
standa ekki við greiðslur sínar
fyrir fangagæsluna. Og hann
hefur ekki látið við það sitja
heldur haft í hótunum um að
lyfta upp gaddavírnum bæði
vegna þessa greiðslufalls og
ekki síður þegar evrópskir
leiðtogar hafa dregið taum
andstæðinga Tyrklands að
mati forsetans.
En fram að þessu hefur for-
setinn látið hótanirnar duga.
En í helgarlokin taldi Erdog-
an að nóg hefði nú reynt á
hans þolinmæði og sanngirni
og beindi hann nokkur hundr-
uð þúsund flóttamönnum í átt
til Grikklands og sá þeim fyrir
fari með langferðabifreiðum
að landamærunum.
Staða kanslara Þýskalands
var fyrir allnokkru orðin mjög
veik og hún átt fullt í fangi
með að fá að sitja áfram í sín-
um stóli. Þetta skynjar Erdog-
an vel og kýs því að láta á við-
kvæmustu málin reyna. Þessi
vandi kynni því að magnast
hratt, rétt eins og önnur smit
sem veröldin er að eiga við af
sífellt veikari mætti um þessar
mundir. Það er mörg veiran
sem getur undið upp á sig með
illviðráðanlegum afleiðingum.
Nú verður ekki betur
séð en að endur-
teknar hótanir
Erdogans séu að
breytast í veruleika}
Enn er barið að dyrum
K
órónuveiran Covid-19 fer nú
eins og logi um akur heims-
byggðarinnar. Sýktum til-
fellum fjölgar stöðugt. Nú
hefur veikin greinst í um 70
löndum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin dregur
lappirnar við að lýsa yfir heimsfaraldri þó
Covid-19 uppfylli tvö af þeim þremur skil-
yrðum sem til þurfa að koma svo það megi
verða. Í fyrsta lagi: Veiran smitast milli
manna, veiran er banvæn og þriðja skil-
yrðið er svo að hún finnist um heim allan,
og þannig er staðan í dag. Það er nóg að
skoða kort til að sjá það.
Nú hafa um 90 þúsund manns fengið
veikina. Þar af eru rúmlega þrjú þúsund
dáin. Það eru ríflega þrjú prósent þeirra
sem hafa fengið sjúkdóminn. Átján prósent
þeirra sem glíma við sjúkdóminn sem stendur eru
skilgreind sem alvarlega veik. Dánarhlutfallið er enn
alvarlegra ef litið er til þess hve margir annaðhvort
ná bata eða deyja. Tæpum 47 þúsundum er batnað,
þrjú þúsund dáin. Það eru sex prósent.
Ef tölurnar eru réttar þá eru þetta staðreyndirnar
sem við horfumst í augu við. Hér á landi hafa dyrnar
fyrir smit inn í landið staðið galopnar. Áherslan lögð
á að byrgja brunninn eftir að við værum dottin ofan í
hann. Sex hafa þegar greinst með veiruna og um 260
eru í sóttkví.
Nú er að taka saman höndum öll sem eitt til að
koma í veg fyrir faraldur út um allt land. Í
spænsku veikinni 1918, sem líka var inflú-
ensa og allir kannast við, létust um 2,6%
þeirra sem sýktust í Reykjavík. Talið er að
2/3 Reykvíkinga hafi fengið veikina. Á
Akranesi fór hlutfall látinna upp í 4,6%.
sem eru álíka eða ívið lægri tölur en við
sjáum nú.
Gagnvart slíkri vá þjónar engum til-
gangi að tala niður hættuna sem af henni
stafar. Við verðum að nálgast vandann af
yfirvegun og raunsæi. Fólk fer ekki var-
lega nema það viti hvað er í húfi. Nú ætti
þetta kannski ekki að vera svo alvarlegt
mál að sumra mati sem segja að þetta sé
nú bara eins og hver önnur flensa. Dánar-
tíðnin segir þó allt annað. Samt gerir jafn-
vel menntaður og hingað til almennt virtur
læknir lítið úr því sem nú stendur fyrir dyrum og
getur þróast í stórslys. Ég sem kjörinn fulltrúi sæti
jafnvel óbeinu ámæli og er mætt með fyrirlitningu í
ríkisfjölmiðlinum RÚV fyrir það að ég skuli dirfast
að spyrja spurninga og veita stjórnvöldum aðhald í
þessu máli.
Það er alveg ljóst að staðan er alvarleg. Í ná-
grannalöndum okkar er talað af fullri alvöru um
hættuna. Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga
niður í mér.
Inga
Sæland
Pistill
Covid-19
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Útflutningsverðmæti grásleppuafurða sem fluttar voru á erlenda mark-
aði í fyrra nam um 2,8 milljörðum. Grásleppukavíar gaf mestu verðmætin
eða rúmlega 1,3 milljarða, söltuð grásleppuhrogn um 850 milljónir og
frosin grásleppa rúmar 600 milljónir. Mest af frosinni heilli grásleppu
hefur undanfarin ár farið til Kína.
Grásleppuveiðar eru bundnar veiðileyfum og á vertíðinni í fyrra voru
249 leyfi í notkun, en meðaltal síðustu tíu ára eru 284 leyfi.
2,8 milljarðar fyrir afurðir
249 LEYFI VORU NOTUÐ Í FYRRA