Morgunblaðið - 23.03.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 3. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 70. tölublað 108. árgangur
KORTIÐ EKKI
MEÐ BERNIE
Í LIÐI
SKATTSVIK Á FJÖLUNUM
MIKIL FÉLAGS-
VERA AÐ
EÐLISFARI
ÁST OG KARÓKÍ 29 VALGERÐUR SJÖTUG 24FORKOSNINGAR 14
Ragnhildur Þrastardóttir
Alexander Gunnar Kristjánsson
Stefán Gunnar Sveinsson
Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða tak-
markaðir við 20 manns frá og með miðnætti í
nótt og hefur samkomubann sem áður náði til
samkomna 100 manns því verið þrengt.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tók
ákvörðun um þetta í gær en ákvörðunin er að
öllu leyti byggð á tillögum Þórólfs Guðnasonar
sóttvarnalæknis. Samkomubanninu er ætlað að
hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Sérstök und-
anþága er fyrir matvöru- og lyfjaverslanir og
verður takmörkun á skólahaldi óbreytt.
Samkomubannið nær til almennings-
samgangna og verður ýmsum stöðum einnig
lokað vegna þess, t.a.m. skemmtistöðum,
líkamsræktarstöðvum og sundlaugum. Þá verð-
ur starfsemi sem krefst mikillar nálægðar milli
fólks bönnuð, þar undir fellur t.a.m. starfsemi
nuddstofa, hárgreiðslustofa og snyrtistofa.
„Við erum að ganga lengra til þess að halda
áfram að hefta faraldurinn,“ segir Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra. Hún treystir því
að Íslendingar muni fylgja tilmælum yfirvalda.
„Ég held að samfélagið sé algjörlega tilbúið
að taka þátt í því sem við erum að gera. Fólk er
að taka ábyrgð í því að vera samfélag í orðsins
fyllstu merkingu.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
telur að samkomubannið hafi tekist vel fram að
þessu. „Ég er full þakklætis gagnvart öllum
sem hafa þurft að leggja töluvert á sig,“ segir
Svandís og nefnir sem dæmi starfsfólk Strætó,
skóla og ýmissa fyrirtækja.
Katrín segir að mögulega verði gripið til
harðari aðgerða. „Við erum mjög reiðubúin
undir það að það þurfi að herða aðgerðir enn
frekar.“
Svandís tekur í sama streng. „Það er alveg
ljóst að við eigum nokkur verkfæri eftir í
verkfærakistunni,“ segir Svandís og vísar til að-
gerða sem önnur ríki hafa gripið til.
Lengd bannsins óvissu háð
Spurð um hvað gæti falist í enn hertari að-
gerðum segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra að það sé undir sótt-
varnalækni og almannavörnum að koma með til-
lögu um það.
Spurð hvort ríkisstjórnin hafi rætt mögu-
leikann á útgöngubanni segir Áslaug:
„Við höfum fyrst og fremst rætt tilmæli sótt-
varnalæknis og almannavarna til þessa og mun-
um áfram eiga í samstarfi við þau þegar kemur
að hertari aðgerðum.“
Samkomubannið gildir til 12. apríl næstkom-
andi en það gæti þó orðið lengra.
„Þetta er auðvitað óvissu háð. Við getum
reynt að spá fyrir um það hversu langan tíma
faraldurinn mun taka en það eru ekki annað en
spádómar. Í öllu falli tel ég að það sé mikilvægt
að við séum öll viðbúin því að þetta geti staðið í
töluverðan tíma,“ segir Katrín.
Allir hafi hlutverki að gegna
Svandís segir að ekki hafi verið talin ástæða
til að loka grunnskólum og leikskólum. Þess til
stuðnings nefnir hún að smit séu bæði ólíklegri
og vægari hjá börnum auk þess sem mikilvægt
sé að framlínustarfsfólk geti sinnt sínum störf-
um en þurfi ekki að vera heima með börnin.
Svandís segir eftirtektarvert að flest ný smit
greinist enn hjá einstaklingum sem eru í
sóttkví. Það sé til marks um hve öflugt smit-
rakningateymi almannavarna sé, en enn er unn-
ið að því að meta hvert einasta smit.
„Fólk er oft tilbúið með þá vinnu, og sjálft
búið að rekja ferðir sínar og hverja það hefur
umgengist.“
Spurð um sérstök skilaboð til þjóðarinnar á
þessum fordæmalausu tímum segir Katrín:
„Við höfum öll okkar hlutverki að gegna í
þessum aðstæðum og það hvernig við höfum
tekist á við þetta hingað til fyllir mig von og
bjartsýni. Það er þó töluverð brekka eftir að
klífa svo það mun reyna á úthald okkar.“
Mögulega hert aftur
Samkomubannið þrengt niður í 20 manns frá miðnætti Líkamsræktum, sund-
laugum og skemmtistöðum lokað Ríkisstjórnin reiðubúin fyrir harðari aðgerðir
MKórónuveiran »2-6, 9-14
Möguleikar
upplýsingatækni
gera samfélagið
vel undirbúið til
að mæta kórónu-
veirunni og ógn-
um hennar.
Ástandið ýtir
raunar hratt
undir þá þróun
að líf fólks verði í
meira samræmi
við það sem ný tækni gefur tilefni
til, segir Ægir Már Þórisson, for-
stjóri Advania.
Aðeins um helmingur 500 starfs-
manna Advania mætir nú í höfuð-
stöðvarnar. Aðrir rækja störf sín í
fjarvinnslu. „Ekkert verður samt
eftir COVID. Allt leitar í nýjan far-
veg; samskipti fólks, atvinnuhættir,
verslun, ferðalög, menning og svo
framvegis,“ segir Ægir Már, sem
telur samkomubann hafa orðið erf-
itt í framkvæmd væru ekki á Ís-
landi sterkir innviðir og öflug fjar-
skipti. „Allt það sem við höfum
tileinkað okkur á þeim tíma sem
faraldurinn gengur yfir tökum við
með okkur inn í framtíðina.“ »11
Faraldurinn mun
breyta framtíðinni
Ægir Már
Þórisson
Kynningar-
átak Árvakurs,
Stöndum sam-
an, hófst nú
um helgina og
hefur urmull
ábendinga nú
þegar borist á
netfangið
stondumsam-
an@mbl.is. Ábendingarnar eiga
nær allar sameiginlegt að sýna
hversu öflugur samhugur okkar er
þegar hætta steðjar að samfélagi
okkar.
Til að mynda hafa íþróttafélög,
skólar og einstaklingar víðs vegar
um landið tekið að sér að ryðja snjó
fyrir þá sem ekki geta sinnt því
sjálfir nú. Morgunblaðið, mbl.is og
K100 munu greina frá því helsta.
»9, 11, 14 og 32
Samstaðan skín
alls staðar í gegn
Talsverður fjöldi manna hefur
komið að þróun íslenskrar vöru
sem talin er draga úr smithættu
sem stafar af veirum, einkum er
varðar smit í gegnum slímhúð í
munni og koki, að sögn Einars
Stefánssonar, prófessors í læknis-
fræði við Háskóla Íslands.
Þá hefur Þorsteinn Loftsson,
prófessor í lyfjafræði, unnið með
honum að verkefninu auk Stellu
Ragnar Sigurðardóttur, lyfjafræð-
ings og framkvæmdastjóra Lipid
Pharmaceuticals, og Katrínar Pét-
ursdóttur, forstjóra Lýsis. Þá segir
hann einnig Sigurð Guðmundsson,
smitsjúkdómalækni og fyrrverandi
landlækni, og Arthur Löve, prófess-
or í veirufræði, hafa veitt ráðgjöf.
Varan nýtir fríar fitusýrur sem
eyðileggja hjúpaðar veirur og er
hún væntanleg á markað á næstu
dögum. »10
Draga úr smithættu
með fitusýrum
Fámennt en góðmennt var við afgreiðslukassa verslunarinnar Costco í gær, þar sem venjulega er maður við mann. Svipaða sögu má segja af öðrum stöð-
um hérlendis sem mannmergð einkennir gjarnan en Íslendingar virðast nú þegar farnir að taka tilmælum um að halda sig heima alvarlega. Þannig var
einnig sérstaklega fámennt í miðborginni um helgina samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en nokkuð var um útköll í heimahús.
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
568
staðfest tilfelli
á Íslandi
308.130
tilfelli í
170 löndum
6.340
í sóttkví
á Íslandi
13.444
látnir af völdum
kórónuveirunnar
Íslendingar virðast nú þegar vera farnir að halda sig heima