Morgunblaðið - 23.03.2020, Page 8

Morgunblaðið - 23.03.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 Ríkisstjórnin kynnti umfangs-miklar efnahagsaðgerðir á laugardag og er ástæða til að vona að þær verði til þess að gera ein- hverjum fyrirtækjum kleift að komast í gegnum það efnahags- áfall sem þjóðin stendur nú frammi fyrir. Um leið standa vonir til þess – og þar á milli er augljóst og sterkt samhengi – að sem fæstir missi vinnuna vegna ástandsins.    Fjárhæðirnar sem kynntar vorueru háar, 230 milljarðar króna eða tæp 8% af landsfram- leiðslu eins og það var sett fram, en þær deilast þó mjög misjafnlega og eru líka að töluverðu leyti háð- ar ákvörðunum viðskiptabank- anna.    Þetta er ekki óeðlilegt, en gall-inn er sá að eins og aðgerð- irnar eru settar fram veita þær aðallega skjól þeim sem misst hafa 30-40% tekna sinna. Fyrirtæki geta fallið við skyndilegt tekjutap sem er minna að umfangi.    Þó að þessar aðgerðir skiptimiklu fyrir mörg fyrirtæki, aðallega í ferðaþjónustu, duga þær ekki fyrir atvinnulífið í heild sinni. Þessu virðast ráðherrarnir raunar vera sammála því að þeir tala um að líkur séu á frekari aðgerðum.    Í næstu aðgerðum er nauðsyn-legt að horfa til lækkunar skatta. Það dugar ekki að nær all- ar aðgerðirnar snúist um að fresta skattheimtu, meðal annars vegna þess að erfitt er að sjá að fyrirtæki geti staðið undir tvöfaldri skatt- heimtu hluta af næsta ári, en einn- ig vegna þess að atvinnulífið í heild sinni þarf sárlega á því að halda nú að létt verði á álögum – varanlega. Eina aðgerð vantar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rússneski stórmeistarinn Jan Nepomnjasjtsjí, kallaður Nepo, er einn efstur á Áskorenda- mótinu í skák sem er haldið í Jekaterínborg í Rússlandi. Hann lagði Kínverjann Wang Hao í fimmtu umferðinni sem fram fór í gær og er með þrjá og hálfan vinning. Í öðru sæti er franski stór- meistarinn Maxime Vachier- Lagrave með þrjá vinninga. Mótinu á að ljúka 3. apríl en ef einhver keppenda sýkist af kórónuveirunni verður því frest- að og það klárað síðar. Sjötta umferð hefst í dag kl. 11 að ís- lenskum tíma. Sigurvegarinn á áskorenda- mótinu mun tefla heimsmeist- araeinvígi við Norðmanninn Magnús Carlsen síðar á árinu. Nepo efstur á áskorendamótinu Ljósmynd/Maria Emelianova-Chess Skák Nepo, til hægri, að tafli við Fabiano Caruana í fjórðu umferð. Dagur Norðurlandanna er í dag, 23. mars, en 58 ár eru liðin frá undir- ritun Helsinkisáttmálans, sem er eins konar „stjórnarskrá“ norræns samstarfs. Dagsins verður minnst með margvíslegum hætti um öll Norðurlönd, en með mjög breyttu sniði vegna kórónuveirunnar. Norræna félagið í Reykjavík hef- ur af þessu tilefni sent frá sér álykt- un aðalfundar, þar sem kallað er eft- ir aukinni kennslu í dönsku, norsku og sænsku. Hvetur félagið mennta- málaráðherra, sveitarstjórnir og skólastjórnendur til að hefja nú þeg- ar samráð og undirbúning að stór- sókn í kennslu í þessum tungu- málum. Samkvæmt gildandi aðalnámskrá er gert ráð fyrir því að enska sé fyrsta mál, en danska, norska eða sænska annað tungumál. Bendir Norræna félagið á að námskráin geri einnig fyrir því að við lok grunn- skóla eigi nemendur að hafa náð sama hæfnistigi í ensku og einu af Norðurlandamálunum þremur. „Öllum ætti að vera ljóst að því fer fjarri að markmiðum aðalnámskrár grunnskóla, um sambærilega hæfni nemenda í ensku og einu Norður- landamáli, hafi verið náð á liðnum árum og augljóst að frá því að ensk- an var gerð að fyrsta erlenda tungu- málinu, í stað Norðurlandamáls, hef- ur stöðugt sigið á ógæfuhliðina í námi og kennslu Norðurlandamál- anna og verulega dregið úr hæfni þjóðarinnar í dönsku, norsku og sænsku,“ segir m.a. í ályktuninni. Norræna félagið telur að snúa þurfi þessari þróun við, enda sé hæfni í tungumálunum mikilvægur grunnur að nánu samstarfi Norður- landaríkjanna. Vilja aukna kennslu í norrænum málum  Dagur Norður- landanna er í dag Morgunblaðið/Arnþór Samstarf Fánar Norðurlandaríkj- anna við hún við Norræna húsið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.