Morgunblaðið - 23.03.2020, Side 11

Morgunblaðið - 23.03.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ekkert verður samt eftir COVID-19. Allt leitar í nýjan farveg; samskipti fólks, at- vinnuhættir, verslun, ferðalög, menning og svo framvegis. Við stöndum á þröskuldi mikilla þjóðfélagsbreytinga,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. „Samkomubann með öllu sem því fylgir hefði sjálfsagt orðið mun erfiðara í fram- kvæmd en reynst hefur ef ekki væru hér til staðar sterkir innviðir og öflug fjarskipti. Sam- félagið heldur áfram að virka þótt fólk sé í stórum stíl heima við. Samskipti fólks hafa núna á allra síðustu dögum færst að stórum hluta yfir á netið. Allt það sem við höfum til- einkað okkur á þeim tíma sem faraldurinn gengur yfir tökum við með okkur inn í fram- tíðina.“ Bæta öryggi og eldveggi Veröldin hefur haft endaskipti með kórónuveirufaraldrinum og þó erum við að- eins á byrjunarreit. Hagkerfin verða öðru- vísi og dagleg vinna fólks mun sömuleiðis breytast. Að staðaldri starfa rúmlega 500 manns Advania við Guðrúnartún í Reykja- vík. Hjá þessu stóra upplýsingatæknifyrir- tæki mætir nú innan við helmingur starfs- fólks í höfuðstöðvar á morgnana. Í sumum deildum er allt starfsfólk heimavinnandi en úr öðrum koma nokkrir á skrifstofuna og sitja þá í hæfilegri farlægð hver frá öðrum. Húsnæðinu hefur verið skipt upp í svæði og er enginn samgangur á milli. „Hér hefur verið mun meira álag en venjulega í sumum deildum, til dæmis meðal þeirra sem sinna netmálum og aðstoða fyrir- tæki og stofnanir í að styrkja innviði sína svo að starfsfólk þeirra geti unnið að heim- an. Allar grunnforsendur fyrir víðtækri fjarvinnu hafa verið til staðar hér á landi, en í sumum tilvikum þarf að auka öryggi og setja upp eldveggi og þess háttar. Svo hefur auðvitað verið mikið að gera hjá okkur í sölu af búnaði í vefverslun okkar, þar sem vörur sem nýtast vegna fjarvinnu seljast vel. Þetta er þó tímabundið ástand; eins og öll önnur fyrirtæki búum við okkur undir samdrátt.“ Starfsstöðvar breytast Að fólki gefist kostur á að sinna störfum sínum að heiman með fjarvinnu hefur lengi tíðkast og færist í vöxt. „Sem stjórnandi er ég jákvæður fyrir þessum breytingum og hef talað fyrir þeim í gegnum árin,“ segir Ægir. „Fjölskyldufólk með börn, sem er áberandi í starfsmannahópi okkar, þarf svigrúm sem er sjálfsagt að veita þegar hægt er að sinna skyldum sínum að heiman. Utan um þetta þarf hins vegar að vera rammi og regla; það er erfiðara að beita sig aga heima við og sá taktur sem fylgir vinnustað dettur eðlilega niður. Fastar starfsstöðvar verða áfram til staðar en eðli þeirra verður öðruvísi.“ Ægir horfir út um gluggann á húsi Adv- ania út yfir Sæbrautina. Bílar eru miklu færri en að jafnaði á virkum degi, bílastæði eru auð og engir túristar að spóka sig við Sólfarið. Ferðafólkið kemur auðvitað aftur en bragurinn verður annar. „Fundum mun væntanlega fækka, fólki verður skapað meira svigrúm til að vinna þar sem því hentar best. Umferðin og mengunin verður minni og fleiri bílastæði laus, spái ég. Þetta verður forvitnileg framtíð,“ tiltekur forstjórinn. Tileinka sér tækni Ein af allra skýrustu birtingarmyndum samkomubanns er að í framhaldsskólunum gildir nú heimanám með fyrirlestrum og stuðningi kennara yfir netið. Eins og fram kemur annars staðar í Morgunblaðinu í dag kemur þetta vel út að fenginni reynslu einn- ar viku. Tölur um samskipti á Innu, sem er tölvukerfi framhaldsskólanna og er í þjón- ustu Advania, sýna að í síðustu viku voru sendir tölvupóstar í kerfinu, þá yfirleitt milli nemenda og kennara, að jafnaði 70 þúsund á dag borið saman við 30 þúsund áður en bann- ið var sett á. Aukningin er 133% og síðuflett- ingum í kerfinu fjölgaði um 83% og voru í síðastliðinni viku um 530 þúsund á dag. „Skólarnir undirbúa fólk fyrir framtíð- ina og börn og unglingar eru alveg ótrúlega fljót að tileinka sér nýja tækni og samskipta- möguleika hennar. Því segi ég að ef horft er til upplýsingatækni og þeirra möguleika sem hún skapar er samfélag 21. aldarinnar vel undirbúið að mæta kórónuveirufaraldrinum og ógnum hans. Þetta ástand ýtir hratt í þá átt að lifa og starfa í samræmi við það sem ný tækni gefur tækifæri til,“ segir Ægir Már Þórisson að síðustu. Samfélagið hefur endaskipti á tímum veirunnar og samskipti fólks verða stafræn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forstjóri Upplýsingatæknin gerir samfélag 21. aldarinnar vel undirbúið að mæta COVID-19, segir Ægir Már Þórisson. Tíminn líður hratt og klukkunni verður ekki snúið til baka. Við stöndum á þröskuldi mikilla breytinga Mannamót Fundahöld og ráðstefnur verða með öðru móti. Bæjarstjórn Akureyrar kom saman til skrafs og ráðagerða á föstudag, á fjarfundi, sem er í raun og veru tímanna tákn. Stjórn Náttúrustofu Suðurlands hefur sent frá sér ályktun þar sem allir þeir sem fara með efni sem geta valdið sjófuglum eða öðru umhverfi olíumengun eru hvattir til að fara að öllu með gát. Tilefnið er að undanfarið hefur mikið orðið vart við dauða sjófugla í Eyjum, í fjörum við Dyrhólaey og Þorlákshöfn eða illa út- leikna fugla af grút og olíu. Fjölda fugla hefur verið komið til starfsfólks Sea Life í Vestmannaeyjum sem hefur hreinsað fuglana og komið þeim til bjargar. Talsvert hefur verið um grútarblauta fugla í höfn- inni í Eyjum og einnig hafa fundist olíublautir fuglar víðar á Heimaey. Hvetur Náttúrustofan til þess að allt verði gert til að koma í veg fyrir að olía eða annað sem er lífríkinu hættulegt berist í sjó. „ Nú fer sá tími í hönd að sjó- fuglar fari að huga að uppsátri til varps. Því þurfa allir að vera vak- andi yfir því að slík mengun, sem hefur orðið mörgum fuglinum að aldurtila, komist ekki í tæri við sjó- fugla, hvorki innan hafnar né utan. Stöndum saman að vöktun og vel- ferð sjófugla hér í Eyjum og við suðurströndina,“ segir enn fremur í ályktun stjórnar Náttúrustofu Suðurlands. Hvetja til varúð- ar fyrir fuglana Mengun Margir olíublautir fuglar hafa fundist á Suðurlandi, einkum æðarkollur. Morgunblaðið/ÞÖK  Náttúrustofa Suðurlands ályktar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.