Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
60 ára Eggert er Reyk-
víkingur, ólst upp í
Holtahverfi og býr á
Háteigsvegi. Hann er
menntaður páku- og
slagverksleikari frá
Tónlistarskólanum í Vín
og er í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Eggert er einnig í
söngsveitinni Voces Thules, m.a.
Maki: Dagbjört Helena Óskarsdóttir, f.
1963, snyrtifræðingur.
Börn: Auður Vala, f. 1990, Einar Daði, f.
1993, Páll Nordal, f. 1997, og Jóhannes
Nordal, f. 2002.
Foreldrar: Páll Þorsteinsson, f. 1920, d.
2008, múrarameistari, og Margrét Egg-
ertsdóttir, f. 1925, d. 2003, söngkona.
Þau voru búsett í Reykjavík.
Eggert Pálsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er aldrei of seint að læra og
allt nám kemur þér til aukins þroska.
Sama landslag getur virst drungalegt eða
himneskt, allt eftir því hvernig birtan er.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur verið að gera það nákvæm-
lega sama og allir aðrir, en það lítur ekki
þannig út. Ekki liggja á liði þínu, heldur
kastaðu þínum málum fram til umræðu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það vantar ekki mikið upp á að
þér takist að klára það verkefni sem þér
hefur verið falið. Dagurinn í dag er eins og
töfrabragð, þú þarft ekki að skilja allt til
hlítar til að njóta dagsins.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er þín stund komin því eftir því
er beðið að þú segir hug þinn og fylkir
fólki á bak við þig. Þú býrð yfir mikilli orku
sem þú getur sótt í þegar aðstæður krefja.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það vantar ekki innblásturinn í kring-
um þig, þótt þú vitir ekki hvað þú eigir að
gera til að byrja á verkefnum. Reyndu bara
nýja hluti og bara eins og þú vilt þá.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Svartsýni hvíslar í eyra þér – eða
kannski er það bara innsæið að vara þig
við. Taktu þér frí frá þínum hversdagslegu
störfum ef þú mögulega getur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu óhræddur við að kynna þér
framandi hluti. Reyndu að umkringja þig
fallegum hlutum til að lyfta sál þinni í
hæstu hæðir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur aldeilis tekið í að
þurfa stöðugt að vera á tánum út af öllum
hlutum. Innileg trúnaðarsamtöl færa fólk
nær hvert öðru og styrkja vináttuböndin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það verður lítið úr framtíðar-
draumunum ef ekkert er gert til þess að
þeir rætist. Um leið og þú tekur hlutunum
eins og þeir eru sættistu við þá.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú átt að skoða allar hliðar
mála vandlega áður en þú stekkur á réttu
lausnina. Atvinnutækifærin sem þú girnist
eru nær en þig grunar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu engan komast í þín mál
nema þú hafir áður gengið úr skugga um
að þú getir treyst viðkomandi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einbeittu þér að því sem máli
skiptir og láttu önnur mál lönd og leið.
V
algerður Sverrisdóttir
fæddist 23. mars 1950 að
Lómatjörn í Grýtu-
bakkahreppi og ólst þar
upp. „Ég á bara góðar
minningar um bernskuna þar til
mamma veiktist, en hún dó þegar ég
var 10 ára,“ segir Valgerður. „Eftir
fráfall mömmu þurftum við systurnar
að stóla mikið á okkur sjálfar og
kannski hefur það að einhverju leyti
haft góð áhrif á okkur en það var oft
svolítið erfitt.“
Valgerður lauk prófum frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 1967,
stundaði þýskunám við Berliz-skóla í
Hamborg 1968-69 og enskunám við
Richmond-skólann í London 1971-72.
Valgerður var ritari hjá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins 1967-
68, ritari hjá kaupfélagsstjóra KEA
1969-70, læknaritari á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 1970-71,
stundaði kennslu við Grenivíkurskóla
1972-76 og kenndi í hlutastarfi 1977-
82. Valgerður hefur verið húsfreyja
og bóndi á Lómatjörn frá 1974. Hún
var alþingismaður fyrir Framsóknar-
flokkinn á Norðurlandi eystra 1987-
2009, var iðnaðar-og viðskipta-
ráðherra 1999-2006, var samstarfs-
ráðherra Norðurlanda 2004-2005, og
utanríkisráðherra 2006-2007. „Ég hef
fyrst og fremst jákvæðar minningar
frá þessum árum. Vissulega voru árin
sem ég gegndi stöðu ráðherra við-
burðarík og ekki alltaf logn í kringum
mig en ég man miklu betur eftir öllu
því sem var jákvætt.“
Valgerður sat í stjórn KEA 1981-
92, í stjórn SÍS 1985-92, í stjórn
Slippstöðvarinnar á Akureyri 1989-
91, í skólanefnd Samvinnuskólans
1990-96 og formaður 1995-96, hún var
varaformaður Framsóknarflokksins
2007-2008 og formaður flokksins
2008-2009. Valgerður sat í í ýmsum
nefndum Alþingis, hún sat í Norður-
landaráði 1987-90 og 1995-99, var for-
maður Íslandsdeildar Norðurlanda-
ráðs 1995-99, sat í Íslandsdeild
ÖSE-þingsins 1999 og 2007-2009, sat
í stjórn Norræna menningarmála-
sjóðsins 1991-93 og 1995-98 og var
formaður hans 1995 og var vara-
forseti Alþingis 1992-95. Hún sat í
stjórn Fjarskiptasjóðs um tíma, er
afmælisdaginn minn og var búin að fá
sal hér í Reykjavík og skemmtikrafta
en það er náttúrlega öllu frestað eitt-
hvað inn í framtíðina. Það er óhætt að
segja að þetta ástand sem nú varir
hentar mér ákaflega illa. Ég er mikil
félagsvera og vil helst hafa fullt af
fólki í kringum mig. En nú er bara
ekkert um það að ræða.“
Fjölskylda
Eiginmaður Valgerðar er Arvid
Kro, f. 13.9. 1952, bóndi á Lómatjörn.
Foreldrar Arvids voru hjónin Ingrid
Agnete Kro, f. 19.9. 1924, d. 11.6.
2001, og Magne Jostein Kro, f.
8.5.1923, d. 13.2. 2006, en þau stund-
uðu lengst af búskap í Hauge í
Noregi.
Dætur Valgerðar og Arvids eru 1)
Anna Valdís Kro, f. 12.12. 1978, leik-
skólakennari í Reykjavík; 2) Ingunn
Agnes Kro, f. 27.3. 1982, hdl. og
stjórnarmaður í Reykjavík. Maður
hennar er Hjalti Þór Pálmason, fram-
kvæmdastjóri hjá Mannverki ehf.
Þau eiga dæturnar Ylfu, f. 2010,
Valgerður Sverrisdóttir, ferðaþjónustubóndi og fyrrverandi ráðherra – 70 ára
Gleðistund Fjölskyldan þegar yngsta barnabarnið var skírt. Hún fékk nafnið Hekla Sól.
Vill hafa fólk í kringum sig
Afmælisbarnið Valgerður fyrir
framan gamla húsið á Lómatjörn.
formaður Þróunarsamvinnunefndar
og einnig formaður nefndar um mál-
efni aldraðra. Auk þess hefur hún
verið formaður sóknarnefndar Lauf-
ás og Grenivíkursóknar frá 2011.
Valgerður hefur rekið ferðaþjón-
ustu á Lómatjörn ásamt manni sínum
síðustu árin. „Gamla húsið sem er að
verða 100 ára var tekið í gegn og er
leigt út til ferðamanna yfir sumarið.
Mér finnst starfið í kringum ferða-
þjónustuna mjög skemmtilegt og
held að ég taki bara nokkuð vel á móti
gestum. Nú hafa stjórnvöld mælt
með að Íslendingar ferðist innan-
lands í sumar þannig að ég á von á
góðu sumri. Að öðru leyti eru áhuga-
málin að vera með fjölskyldunni,
ferðast og að fylgjast með enska bolt-
anum, svo eitthvað sé nefnt. Ég fylgi
Manchester United að málum og er
mjög ánægð með hvað þeir eru að
hressast. Það var eiginmaðurinn sem
kom mér inn á þessa braut en hann er
náttúrlega sérlegur stuðningsmaður
Norðmannsins Óla Gunnars.
Ég hafði undirbúið veislu á
30 ára Helena ólst
upp á Álftanesi en
býr í Hafnarfirði. Hún
er geislafræðingur að
mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík og
er geislafræðingur hjá
Krabbameinsfélaginu.
Maki: Stefán Þór Halldórsson, f. 1988,
nemi í tölvunarfræði við Háskólann í
Reykjavík.
Synir: Brynjar Þór, f. 2015, og Breki
Fannar, f. 2019.
Foreldrar: Sigurborg Íris Vilhjálms-
dóttir, f. 1972, félagsráðgjafi í þjónustu-
miðstöð Árbæjar, og Gunnar Þór Jó-
hannesson, f. 1962, eigandi
Gólfefnavals. Þau eru búsett á Álfta-
nesi.
Helena Ýr Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Breki Fannar Stefánsson
fæddist 15. febrúar 2019. Hann vó 3.735 g
og var 50,5 cm langur. Foreldrar hans eru
Helena Ýr Gunnarsdóttir og Stefán Þór
Halldórsson.
Nýr borgari