Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 26
FRJÁLSAR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Hilmar Örn Jónsson, Íslandsmethafi í sleggjukasti, átti næstbesta kast sitt á ferlinum á kastmóti í Laugar- dalnum á laugardaginn er hann kastaði 74,16 metra. Kastið er rúm- um þremur metrum frá lágmarki fyrir Ólympíuleikana en þetta óvænta mót var einmitt haldið fyrir nokkra íþróttamenn til að safna stig- um fyrir leikana sem eiga að fara fram í Tókýó í Japan í sumar. Það er lítið keppt í íþróttum þessa dagana enda samkomubann á Ís- landi vegna útbreiðslu kórónuveir- unnar og fólki ráðlegt að halda tveggja metra fjarlægð sín á milli. Það varð þó ekki til vandræða í Laugardalnum um helgina að sögn Hilmars er Morgunblaðið náði tali af honum. Auðvelt að halda tveimur metrum á fjögurra manna móti „Við vorum fjórir keppendur. Við vildum halda þetta þar sem við misstum af móti í Portúgal. Það er auðvelt að vera undir hundrað manns og halda tveimur metrum á milli manna á svona móti. Við ákváðum að halda eitt mót allavega en svo veit maður ekkert hvernig þetta verður í framtíðinni. Við verð- um bara að bíða og sjá.“ Almannavarnir hafa boðað hertar aðgerðir í baráttunni gegn veirunni og stendur til að setja enn frekar takmarkanir á samkomur manna. Hilmar, sem steig um helgina skref í áttina að því að ná lágmarki fyrir Ól- ympíuleikana, er ekki viss hvort þeir fái að halda fleiri svona mót. „Ef það verða einhverjar hertar áætlanir hjá almannavörnum er spurning hvort við getum það, hreinlega. Það þarf svona tíu, tólf manns til að halda svona mót. Ef það verður minnkað niður í tíu getum við ekki haldið svona mót. Svo á eftir að koma til- kynning frá frjálsíþróttasambandinu um hvort við hreinlega megum halda mót yfirhöfuð,“ sagði Hilmar, sem segist þó ætla að halda áfram að reyna að keppa, jafnvel þótt hann viti ekki einu sinni hvort Ólympíu- leikarnir fari fram. „Mín áætlun er bara að halda áfram og reyna að keppa ef ég get. Ef svo fer að Ólympíuleikarnir verði á réttum tíma finnst mér líklegt að við verðum að halda áfram að hafa mót hérna heima, það er búið að af- lýsa svo mörgum erlendis. Það er frekar auðvelt fyrir okkur að halda mót hérna á Íslandi en við fáum ekki eins mörg stig inn á heimslista fyrir mótin hérna heima. Það er einhver missir að því.“ Hefði ekki verið hissa að fara yfir 76 metrana Eins og fyrr segir átti Hilmar næstbesta kast sitt á ferlinum og það í alhvítum Laugardalnum. Hann sló Íslandsmetið í greininni á síðasta ári þegar hann kastaði 75,26 metra á móti í Bandaríkjunum og bætti met Bergs Inga Péturssonar frá 2008 um 78 sentímetra. Hann segist þó ekki eiga von á öðru en að hann nái að kasta lengra en 76 metra á næst- unni, enda hafi hann æft gríðarlega vel í vetur og eigi mikið inni. „Þetta var á pari miðað við hvern- ig æfingar hafa verið að ganga. Ég hefði ekkert verið hissa að hitta á 76 metra eða meira, en það kom ekki. Það kemur næst, ef það verður eitt- hvað næst.“ Til að komast á Ólympíuleikana þarf Hilmar að kasta 77,50 metra eða enda í einu af 32 efstu sætum á heimslistanum en hann er nú í 41. sæti með 1.140 stig, átta stigum frá Bandaríkjamanninum Conor McCullough sem er sem stendur síð- asti maður inn á leikana. Hilmar á því ágætis möguleika á báðum víg- stöðum. Hann telur sig geta kastað 77,50 metra en takist það ekki, og hann heldur áfram að eiga svipuð köst og um helgina, ætti það að duga honum til að komast inn í gegnum heimslistann. „Þetta var ekkert stórkostlegt í gær miðað við hvernig hefur gengið á æfingum en ef ég held áfram kemst ég inn. Ég á mikið inni og vonandi fæ ég tækifæri til að sýna það.“ Hilmar stefnir ótrauður á Ólympíuleikana  Náði næstbesta árangri sínum í Laugardal á laugardaginn  Óvíst hvort fleiri mót verða haldin hérlendis og óvíst hvort leikarnir fara fram í Tókýó Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sleggja Íslandsmetshafinn Hilmar Örn Jónsson stefnir á Ólympíuleikana. SUND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee er orðinn atvinnumaður hjá kan- adíska félaginu Toronto Titans, sem keppir í stórri alþjóðlegri deild, Int- ernational Swimming League, ISL. Anton verður fyrsti Íslendingurinn sem keppir í deildinni. Hún var stofn- uð á síðasta ári með þátttöku átta fé- laga, Aqua Centurions frá Ítalíu, Energy Standard frá Frakklandi, Iron frá Ungverjalandi, London Roar frá Englandi og bandarísku félag- anna Cali Condors, DC Trident, LA Current og NY Breakers. Nú bætast tvö ný lið við, Toronto Titans og félag frá Tókýó í Japan. Þó að Kanadamenn ættu ekki lið í deildinni á síðasta ári kepptu þrettán kanadískir sundmenn með öðrum lið- um deildarinnar. Toronto Titans hef- ur nú samið við nokkra þeirra ásamt keppendum víðs vegar að. Margt af fremsta sundfólki heims er í liðunum tíu sem hefja keppni í deildinni í haust en keppnistímabilið stendur frá september og fram í apríl 2021. Toronto Titans hefur kynnt keppn- isfólk sitt smám saman undanfarna daga. Um leið og Anton var kynntur til leiks var boðað að búið væri að semja við Bandaríkjamanninn Blake Pieroni sem varð Ólympíumeistari í 4x400 m boðsundi í Ríó 2016 og heims- meistari í 200 metra skriðsundi í 25 metra laug árið 2018. Hann keppti fyrir LA Current á síðasta tímabili. Fjórði fljótasti í heimi Robert Kent, framkvæmdastjóri Titans og fyrrverandi sundmaður, sagði á heimasíðu félagsins að hann væri afar spenntur fyrir því að fá Anton í raðir Titans. „Það er ansi sætt að krækja í fjórða fljótasta bringusundsmann í heimi,“ sagði Kent um Íslendinginn, en Anton er sem kunnugt er eini íslenski íþrótta- maðurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar. Hefði unnið sex mót í fyrra Í umfjöllun sundvefjarins Swim- swam um Anton og komu hans til Titans segir að hann hefði með ár- angri sínum í 200 metra bringusundi á síðasta ári unnið sex af átta mótum deildarinnar á fyrsta tímabili hennar. Anton mun keppa í 50, 100 og 200 metra bringusundi fyrir Titans. Hann setti Íslandsmet í 50 og 100 m bringusundi í 50 metra laug á síðasta ári, auk þess að eiga metið í 200 metra bringusundi frá 2015. Í 25 metra laug á hann Íslandsmetin í öll- um þremur greinunum, sem hann setti öll á heimsmeistaramótinu í Kína í desember 2018. Þar fyrir utan á Anton Íslandsmetin í 200 og 400 m fjórsundi og 400, 800 og 1.500 m skriðsundi í 50 metra laug og metin í 400, 800 og 1.500 m skriðsundi í 25 metra laug. Þau met eru öll frá ár- unum 2012 til 2015 enda hefur Anton einbeitt sér að bringusundinu á und- anförnum árum. Morgunblaðið/Eggert Ólympíufari Anton Sveinn McKee er á leiðinni í nýtt umhverfi í sundinu með því að ganga til liðs við kanadíska félagið sem er í alþjóðlegri deild. Spennandi að fá Anton Svein  Atvinnumaður hjá sundliði Toronto Titans sem keppir í heimsdeildinni ISL 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 23. mars 1972 „Þetta var stórkostlegur leikur og þetta er skemmtilegasta ferðin sem ég hef farið með lands- liði, ef til vill vegna þess hve árangurinn hef- ur verið góður,“ segir Hjalti Ein- arsson, landsliðs- markvörður í handbolta og íþróttamaður ársins 1970, við Morgunblaðið eftir að Ísland vinnur Búlgaríu 19:10 í for- keppni Ólympíuleikanna og tryggir sér sæti á Ólympíu- leikunum í München 1972. 23. mars 1978 Barist var við að halda Skíða- mót Íslands í Reykjavík um páskana þetta ár og í Morgun- blaðinu þennan dag segir: Stökkkeppninni á Skíðamóti Ís- lands varð að fresta í gær vegna veðurs, en bylur var bæði á Hellisheiði og í Blá- fjöllum. Í gærkvöldi átti að taka ákvörðun um hvar og hve- nær stökkkeppnin fer fram. 23. mars 1986 Körfuknattleiksmaðurinn Pét- ur Guðmundsson er genginn til liðs við stórlið Los Angeles Lakers í banda- rísku NBA- deildinni. Þar er honum ætlað að vera til taks fyrir miðherj- ann goðsagnakennda Kareem Abdul-Jabbar. Pétur kemur því í NBA-deildina á ný eftir fjög- urra ára hlé, en þar lék hann áður með Portland Trail Blazers. 23. mars 1990 „Við komum mjög vel undir- búnar, ætluðum okkur að vinna og sýndum að við erum best- ar,“ segir Björg Hafsteins- dóttir, fyrirliði Keflavíkur, eftir yfirburðasigur á Haukum, 62:29, í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í körfubolta í Laugar- dalshöllinni. 23. mars 2000 Á forsíðu íþróttablaðs Morgun- blaðsins þennan dag er stór mynd af brosmildum Guðjóni Þórðarsyni, knattspyrnustjóra Stoke City, en lið hans hafði kvöldið áður tryggt sér rétt til að mæta Bristol City í úrslita- leik bikarkeppni ensku neðri- deildarliðanna á Wembley. Brynjar Björn Gunnarsson, Arnar Gunnlaugsson og Bjarni Guðjónsson voru allir í liði Stoke sem vann Rochdale 1:0. 23. mars 2009 Helena Sverrisdóttir lék fyrst Íslendinga í úrslitakeppni bandaríska há- skólakörfubolt- ans, „March Madness“, þeg- ar lið hennar, TCU, komst í fyrstu umferð úrslitakeppn- innar. Helena, sem var á fyrsta ári í skólanum, var besti leik- maður liðsins í ósigri gegn South Dakota State. 23. mars 2013 „Ég sagði við Kolbein þegar ég stillti boltanum upp að ég ætl- aði að reyna að setja hann yfir vegginn og upp í hægra hornið. Það tókst,“ segir Gylfi Þór Sig- urðsson við Morgunblaðið um fyrra mark sitt í 2:1 útisigri Ís- lands gegn Slóveníu í undan- keppni HM í Ljubljana. Gylfi jafnaði metin beint úr auka- spyrnu. Á ÞESSUM DEGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.