Morgunblaðið - 23.03.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.03.2020, Qupperneq 29
AF LEIKLIST Þorgeir Tryggvason Breski grínistinn DavidMitchell, sem er frægurfyrir sína reiðu rökvísi,benti einu sinni á að með- an skattaundanskot væru möguleg mætti líta á alla skattheimtu sem skatt á heiðarleika: skatthlutfallið ræðst af því hversu hreint þér finnst rétt að koma fram við yfirvöld. Sýn- ingin Skattsvik Development Group undir merkjum tilraunaverkefnisins Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu leiðir hins vegar í ljós að óheiðarleiki er ekki nóg til að koma peningum undan. Það fer vel á því hjá Ást og karókí að sýna á þessum vettvangi, því form sýningarinnar er nokkurskon- ar skýrsla um tilraun: Getur íslensk- ur leikhópur skotið þóknun sinni undan skatti með „hefðbundinni“ skattaskjólsfléttu? Stutta svarið er: nei. Drengirnir komast nokkuð áleiðis með áform sín, enda reynist þroskaður þjónustuiðnaður þrífast víða um heim til að auðvelda slíka vafninga, en á endanum strandar allt á of þröngum fjárhag. Nýleg íþyngjandi löggjöf spilar þar líka inn í en þó er ljóst að þetta hefði gengið upp ef upphæðirnar hefðu verið hærri en sem nemur fimm mán- aðarlaunum listamanna í nýgræð- ingaflokki. Enn sem komið er eru þeir Adolf Smári Unnarsson, Birnir Jón Sigurðsson, Friðrik Margrétar- Guðmundsson, Matthías Tryggvi Haraldsson og Stefán Ingvar Vig- fússon óvelkomnir í koníaksstofu þeirra sem eiga það einungis við eig- in heiðarleika hvað þeir greiða til samfélagsins. Samkvæmt upplýs- ingum frá einum ráðgjafa þeirra fé- laga eru um 70% allra peninga heimsins í skattaskjólum. Það er sú tala sem endurómar í höfði áhorf- enda þegar þeir ganga út úr Borg- arleikhúsinu eftir skýrsluna. Trú- lega dramatískur hápunktur sýningarinnar. Þó að Ást og karókí hafi ráðist í þennan skítlega leiðangur er heið- arleiki grunntónn sýningarinnar. Þannig gangast þeir fúslega við því að það sem þeir bjóða upp á muni minna á efnistök annars íslensks ólíkindaleikhóps: Kriðpleirs. Það eru orð að sönnu, og natúralískur vand- ræðagangshúmorinn liggur vel fyrir Á&K-mönnum. Það birtist strax í upphafi þar sem þeir kynna sig hver og einn til sögunnar og afhjúpa sig sem – eðlilega – allnokkuð fákunn- andi í þeirri list að svikja undan skatti. Og svo – sem er öllu verra – reynast fæstir þeirra bera skyn- bragð á strangheiðarlega skatta- skýrslu. Hápunkti nær þetta gaman þegar þeir glíma við það snúna verk- efni að koma bréfi í hraðpóst, og endist varla vinnudagur til þess. Að því ævintýri undanskildu er sýningin í sjálfu sér ekki sérstök skemmtun, og ætlar greinilega ekk- ert endilega að vera það. Síðasti hluti hennar, vídeóspjallið við úr- ræðagóða ráðgjafann með upplýs- ingarnar um hvar 7/10 af auðæfum heimsins eru niðurkomin, er til dæmis ansi dauflegt sem leikhús. Það er ekki heiglum hent að skilja hvað maðurinn er að leggja til, og það er ekki eins fyndið hvað félagarnir botna lítið í því þegar áhorfandinn er jafn litlu nær. Engu að síður: Allir þessir ósýni- legu peningar. Allt þetta fólk sem vinnur við að koma fé hinna ríku undan. Allar þessar girðingar sem stöðva bara meðaljóninn. Og þessi tæpi þriðjungur fjármuna heimsins sem stendur undir samneyslunni og allir njóta. Líka þeir sem eiga rest. Það er alveg kvöldstundar virði að láta minna sig á þetta. Óvelkomnir í betri stofuna » Þó að Ást og karókíhafi ráðist í þennan skítlega leiðangur er heiðarleiki grunntónn sýningarinnar. 70% „Samkvæmt upplýsingum frá einum ráðgjafa þeirra félaga eru um 70% allra peninga heimsins í skattaskjólum. Það er sú tala sem endurómar í höfði áhorfenda þegar þeir ganga út úr Borgarleikhúsinu eftir skýrsluna. Trúlega dramatískur hápunktur sýningarinnar,“ segir í rýni um Skattsvik Development Group í Borgarleikhúsinu. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell ADifferent Kind of Disaster Movie. m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN ÓSKARSTILNEFNINGAR2 BESTA ERLENDA MYNDINBESTA LE IKARI : ANTONIO BANDERASSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI ★★★★ San Francisco Chronicle ★★★★ Indiewire ★★★★ Hollywood reporter Til að bregðast við samkomubann- inu munu Menningarhúsin í Kópa- vogi vera með vefútsendingar klukkan 13 mánudaga, miðviku- daga og föstudaga út apríl, frá og með deginum í dag. Viðburðaröðin hefur fengið heitið „Kúltúr klukkan 13“ og meðal hinna fjölmörgu sem koma fram eru Sævar Helgi Braga- son, Andri Snær Magnason, Gerður Kristný, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Sigurbjörn Bernharðsson, Halla Oddný, Ragna Fróðadóttir, og Þorgrímur Þráinsson. „Við starfsfólk Menningarhús- anna höfum oft rætt þá hugmynd að streyma viðburðum en kring- umstæður hreinlega hrintu okkur af stað og við erum öll mjög spennt að sjá hvert þessi nýjung leiðir okk- ur í framtíðinni,“ er í tilkynningu haft eftir Soffíu Karlsdóttur, for- stöðumanni menningarmála í Kópavogi. „Við vonumst til þess að viðburðirnir stytti þeim fjölmörgu stundir sem sitja heima í sóttkví eða eru heima við af öðrum ástæðum. Þá er einnig mikilvægt að mæta listamönnum, en við erum ekkert án þeirra og viljum svo sannarlega styðja við bakið á þeim á þessum óvissutímum.“ Fimm menningarhús eru í Kópa- vogi; Bókasafnið, Gerðarsafn, Sal- urinn, Náttúrufræðistofa og Hér- aðsskjalasafn. Morgunblaðið/Hari Fjölbreytilegt Frá opnun sýningar í Gerð- arsafni en þaðan verður streymt í vikunni. Menningarútsend- ingar frá Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.