Morgunblaðið - 23.03.2020, Page 32
Bono, söngvari írsku hljómsveitarinnar U2, birti á dög-
unum myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann
syngur splunkunýtt lag, Let Your Love Be Known, sem
hann sagðist hafa samið klukkutíma áður en hann kvik-
myndaði sig syngja það. Hann tileinkar lagið Ítalíu, þar
sem landið hafi orðið einkar illa fyrir barðinu á kórónu-
veirufaraldrinum. Bono kveðst syngja fyrir heilbrigðis-
starfsmenn í framlínu baráttunnar og vísar í textanum
einnig til Ítalanna sem syngja hver fyrir annan af svöl-
um sínum þar sem þeir eru heima í útgöngubanni. Lag-
inu hefur verið deilt í fleiri milljónir skipta á miðlunum.
Bono tileinkar nýtt lag sitt Ítölum
MÁNUDAGUR 23. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Þetta er ekki óskastaða. Maður reynir eitthvað að æfa
heima en maður er ekki með endalausar hugmyndir, svo
það verður fljótt þreytt. Það er sem betur fer lítið eftir
af þessu og þetta fer að klárast,“ segir Ýmir Örn Gísla-
son, landsliðsmaður í handknattleikmaður og leik-
maður Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi, sem er í ein-
angrun heima hjá sér þar sem þjálfari liðsins og nokkrir
leikmenn hafa greinst með kórónuveiruna. »27
Ekki með endalausar hugmyndir
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þjálfarar hjá Karatefélaginu Þórs-
hamri hafa útbúið og birt á Youtube
og Facebook-hópi félagsins mynd-
bönd og tillögur að æfingum sem
hægt er að gera heima í stofu. Æfing-
arnar eru jafnframt aðgengilegar á
opinni Face-
book-síðu
Þórshamars.
„Þar geta all-
ir fylgst með
og prófað,
komið í kara-
teprufu í kór-
ónufríinu og
komist að því
hvort þeim
finnist þetta ekki gaman,“ segir
María Helga Guðmundsdóttir, starf-
andi formaður Þórshamars, þjálfari
og margfaldur Íslands- og bikar-
meistari.
María segir að þegar kórónuveiran
vatt upp á sig hafi þjálfararnir hugs-
að í lausnum og síðan sett inn æfingu
á hverjum virkum degi í liðinni viku.
Hugmyndin er að hver dagur sé
helgaður einum aldurshópi og getu-
stigi og mánudagar eru til dæmis
helgaðir yngstu þátttakendunum.
„Þannig fá allir eina sérsniðna æf-
ingu og geta síðan tekið þátt í æfing-
um fyrir aðra hópa, prófað eitthvað
út fyrir sinn sérsniðna ramma,“ segir
hún.
Félagið er með síðu á Facebook
fyrir iðkendur þess og þar hafa þeir
verið hvattir til þess að setja inn
myndir af sér að æfa, deila úr eigin
reynsluhorni meðan á samkomu-
banninu stendur. „Þannig höldum við
tengslunum og félagsmenn upplifa að
þeir séu í þessu saman, þó að við
séum ekki á sama staðnum.“
Iðkendur á öllum aldri
Þórshamar var stofnaður 1979 og
hefur löngum verið eitt af stærstu og
öflugustu karatefélögum landsins.
Félagið hefur verið með æfingaað-
stöðu í Brautarholti 22 í Reykjavík í
um 30 ár. Iðkendur eru frá fimm ára
og upp úr. „Elstu iðkendurnir eru
núna á sjötugsaldri og elsti maður,
sem hefur farið í svart belti í Þórs-
hamri, var 71 árs þegar hann þreytti
prófið.“
María segir að samkomubannið
valdi raski hjá öllum. Börnin séu við-
kvæm fyrir því að hróflað sé við rút-
ínu þeirra. Þau séu svo háð öllum
öðrum í kringum sig og hafi litla
stjórn á því hvað þau geri sjálf.
„Þetta er mikil áskorun fyrir börn og
barnafjölskyldur en allir eru að
reyna að aðlagast breyttum tímum
og breyttri samfélagsgerð,“ segir
María.
„Alls konar möguleikar eru í bann-
inu,“ heldur hún áfram. „Hægt er að
láta áskoranirnar ýta sér inn á
ótroðnar slóðir og læra eitthvað nýtt.
Ég hef æft karate síðan ég var 11 ára
1999 og þjálfað síðan ég var 15 ára,
en ég hafði aldrei kennt karatetíma
með enga nemendur, bara myndavél,
fyrr en ég tók upp fyrsta tímann fyrir
viku. Ég hef lært ýmislegt um
kennsluaðferðir mínar og á vonandi
eftir að verða betri eftir því sem tím-
inn líður. Ég held að hinir kenn-
ararnir geti sagt það sama. Við tölum
saman, skiptumst á hugmyndum og
reynum að hjálpast að auk þess sem
við erum í sambandi við kennara er-
lendis í sömu sporum.“
Sumar karateæfingar er ekki hægt
að gera án félaga, en María segir að
nýr veruleiki sé engu að síður
skemmtilegur. „Neyðin kennir naktri
konu að spinna og þetta er skemmti-
leg áskorun og skemmtileg viðbót en
hún varir vonandi ekki að eilífu.“
Fríar æfingar fyrir alla
Gleði Kátir félagar í Þórshamri eftir æfingu. Nú æfir hver í sínu horni.
Karatefélagið Þórshamar bendir almenningi á opna síðu á netinu
Ljósmynd/Viima Lampinen
Á Landakotstúni María Helga Guðmundsdóttir tók upp æfingar fyrir helgi.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir, Costco og flestum stórmörkuðum.
Sykurlaustog ángerviefna
3ja
mánað
a
skamm
tur
DLÚX Vítamínmunnúði
tryggir hámarksupptöku
D-vítamín
fyrir ónæmiskerfið
Þegar kemur að því að viðhalda heilsu
okkar árið um kring, þar á meðal á
tímum aukinnar áhættu eins og í dag,
gegnir næring lykilhlutverki. C-vítamín,
hvítlaukur og krydd eins og engifer hefur
löngum verið þekkt sem náttúruleg
ónæmisörvun, envaxandi fjöldi klínískra
rannsókna sannar að D-vítamín er
ósungna hetjan sem við öll þurfum til að
halda sýkingu í skefjum.
Munum eftir
D-vítamíninu
– alla daga