Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 9. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 85. tölublað 108. árgangur
SKÁRRA EN
AÐ STRIKA
TÍMABILIÐ ÚT
SIGRÍÐUR MAN
GRÍMSVATNA-
GOSIÐ ÁRIÐ 1934
VÆNLEG AFÞREY-
ING Á UNDAR-
LEGUM TÍMUM
100 ÁRA Á MORGUN 11 MÆLT MEÐ Í SAMKOMUBANNI 29KRÝNDUR MEISTARI 26
Verksamningur um annan áfanga breikkunar Suðurlands-
vegar á milli Hveragerðis og Selfoss var undirritaður milli
Vegagerðarinnar og Íslenskra aðalverktaka í gær. Samning-
urinn hljóðar upp á 5.069 milljónir króna. Framkvæmdir eiga
að hefjast nú í vor og ljúka haustið 2023.
Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV, og Bergþóra Þorkels-
dóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, skrifuðu undir samninginn
og gættu eins og sjá má að viðteknum viðmiðum og reglum til
að hefta útbreiðslu faraldurs kórónuveirunnar.
Veiran hefur aukið álag á sjúkraflutningamenn og hafa
miklar varúðarráðstafanir verið gerðar hjá slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins. Einnig hefur rýmingaráætlun fyrir
Grindavík verið uppfærð með tilliti til varúðarráðstafana.
Fimm milljarða samningur handsalaður á tímum veirunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MKórónuveirufaraldur »4, 6, 13, 14
Ísland er í far-
arbroddi í barátt-
unni gegn kór-
ónuveirufaraldr-
inum og heims-
byggðin öruggari
og heilbrigðari,
þökk sé fórnfýsi
Íslendinga, segir
sendiherra
Bandaríkjanna á
Íslandi í þakkarbréfi til íslensku
þjóðarinnar í Morgunblaðinu í dag.
Bandaríkin séu reiðubúin að
rétta Íslendingum hjálparhönd og
muni á næstu vikum leita leiða til
að styðja við íslenskar heilbrigðis-
stofnanir og starfsfólk »15
Bandaríkin reiðubú-
in að rétta Íslend-
ingum hjálparhönd
Jeffrey Ross
Gunter
Samtök atvinnulífsins (SA) og
önnur félagasamtök í Húsi atvinnu-
lífsins sendu í gær tillögur til
stjórnvalda er varða næsta að-
gerðapakka ríkisstjórnarinnar.
Þetta herma heimildir Morgun-
blaðsins.
Verður pakkinn kynntur eftir
páska, en samkvæmt upplýsingum
blaðsins eru tillögur SA að mörgu
leyti svipaðar og farnar hafa verið
t.d. í Sviss og á Norðurlöndunum.
Rætt er við Ásdísi Kristjánsdóttur,
forstöðumann efnahagssviðs SA,
um stöðuna í efnahagslífinu »6
Leggja fram tillögur
fyrir næsta pakka
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tryggja þarf súrefni til hagkerfisins
innanlands á komandi mánuðum
þar sem afar ósennilegt er að opn-
ast muni fyrir flæði fólks til og frá
landinu fyrr en hægt verður að
bólusetja fólk gegn kórónuveirunni.
Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir,
menntamálaráðherra og vara-
formaður Framsóknarflokksins.
Hún er gestur Viðskiptapúlsins,
hlaðvarps ViðskiptaMoggans, sem
kemur út í dag.
Sérfræðingar hafa bent á að bólu-
efni við kórónuveirunni verði senni-
lega ekki tilbúið fyrr en að ári liðnu.
Lilja bendir á að samfélög um
víða veröld standi nú frammi fyrir
smitsjúkdómi sem ógni heilsu og lífi
fólks og að leggja verði höfuð-
áherslu á að kveða hann niður. Hins
vegar sé mjög mikilvægt samhliða
þeim aðgerðum að örva innlenda
hagkerfið. „Núna er það svo að við
munum ekki sjá fram á að fá er-
lenda ferðamenn um nokkra hríð
vegna þess að í
þessari krísu
verða takmark-
anir á fólksflutn-
ingum vegna
þessarar heil-
brigðisvár sem
við erum að fást
við. Við verðum
að einblína mjög
á innlenda hag-
kerfið okkar.
Hvernig við eflum innlenda eftir-
spurn og einkaneyslu.“
Segir Lilja að sterk staða ís-
lenska þjóðarbúsins, auk þeirra inn-
viða sem hér hafi verið byggðir upp,
gefi okkur ástæðu til bjartsýni. Nú
sé það eitt helsta verkefni okkar að
byggja upp innlenda ferðaþjónustu
sem hafi allar forsendur til að
blómstra. Bendir hún í því sam-
bandi á að opinber söfn búi sig und-
ir mikla og góða aðsókn þegar
samkomubanni verður aflétt hér á
landi.
Lilja segir að umfangsmiklar
ferðatakmarkanir fram að bólusetn-
ingu geri það að verkum að hag-
kerfið verði að hálfu lokað og hálfu
opið. Lífsnauðsynlegt sé að tryggja
snurðulaus vöruviðskipti milli landa,
bæði til þess að koma íslenskum
framleiðsluafurðum á markaði er-
lendis en einnig til að tryggja að-
föng hingað til lands.
„Við þurfum að standa mjög vel
að þeim því þau skipta ofboðslegu
máli,“ segir Lilja.
Tækifærin verði nýtt til fulls
Styrkur íslensks efnahagslífs geri
það einnig að verkum að þegar hag-
kerfin vakni aftur til lífsins þurfi að
nýta tækifærin til fulls. Það verði
bæði gert með því að efla menntun,
vísindastarf og nýsköpun og þar
muni íslensk matvælaframleiðsla
einnig leika lykilhlutverk. Segir
Lilja að nú skipti mestu máli að
nýta tímann og fjármuni vel til þess
að þeir undarlegu tímar sem nú séu
uppi fari ekki til spillis.
Viðtalið við Lilju má nú nálgast á
mbl.is/vidskipti/pulsinn/ en einnig á
helstu hlaðvarpsveitum.
Bólusetning sé
forsenda opnunar
Búa þarf hagkerfið undir opnun að nýju að sögn ráðherra
Lilja
Alfreðsdóttir
Útlit er fyrir að skráð atvinnuleysi í
aprílmánuði geti orðið allt að 16% og
hafa núna um 50 þúsund ein-
staklingar sótt um að fá greiddar at-
vinnuleysisbætur eða hlutabætur á
móti skertu starfshlutfalli. Þetta er
fjölgun úr um 35 þúsund manns sem
skráðu sig á atvinnuleysisskrá eða
sóttu um bætur á móti skertu starfs-
hlutfalli í marsmánuði. Skv. upplýs-
ingum Vinnumálastofnunar er talið
að atvinnuleysið hafi farið upp í
8,5-9% í seinasta mánuði og miðað
við fjölda umsókna er útlit fyrir að
skráð atvinnuleysi verði allt að 16% í
apríl. Þeir einstaklingar sem hafa
misst vinnuna og skráð sig á al-
mennu atvinnuleysisskrána eru
núna um 16 þúsund talsins og hefur
fjölgað um sex þúsund frá því í lok
febrúar. omfr@mbl.is »14
Morgunblaðið/Ómar
50.000
á skrá
Spá allt að 16%
atvinnuleysi í apríl