Morgunblaðið - 09.04.2020, Síða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Freyr Bjarnason
Jóhann Ólafsson
Þór Steinarsson
Kórónuveirufaraldurinn hefur náð
toppnum hvað varðar fjölda nýrra
sýkinga miðað við fjölda þeirra sem
er að batna. Það má þó ekki mikið út
af bregða og hlutirnir eru fljótir að
breytast ef upp koma nýjar hópsýk-
ingar. Þetta kom fram í máli Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis á upp-
lýsingafundi almannavarna í gær.
Síðustu tvo daga hefur fjöldi nýrra
smita verið töluvert minni en áður en
greint var frá 30 nýjum smitum í
gær þrátt fyrir að fjölmörg sýni
hefðu verið tekin, eða samtals 1.955
hjá bæði sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans og Íslenskri erfða-
greiningu. Hlutfall þeirra sem
greindust með ný smit og voru í
sóttkví var 60%. Heildarfjöldi smita
er því orðinn 1.616 og heildarfjöldi
sýna sem tekin hafa verið 30.947.
„Við getum sagt að við séum búin
að ná toppnum. Fjöldi þeirra sem
batnar er meiri en nýgreindra. Ég
held að við getum glaðst yfir þeirri
stöðu sem við erum í núna,“ sagði
Þórólfur og nefndi að samfélagsmit
væri lítið sem og dreifingin á land-
inu. Hann sagði að áfram fylgdum
við bestu spá varðandi útbreiðslu
veirunnar miðað við spálíkan Há-
skóla Íslands en værum nálægt
verstu spá varðandi fjölda þeirra
sem eru á gjörgæslu. Alls eru ellefu
á gjörgæslu, þar af níu á Landspít-
alanum og tveir á Akureyri. Á Land-
spítalanum eru sex í öndunarvél og
einn á Akureyri og þá hefur einn
verið tekinn úr öndunarvél á Akur-
eyri.
Fólk muni að hlúa að sjálfu sér
Á fundinum með Þórólfi voru
Alma Möller landlæknir, Víðir Reyn-
isson yfirlögregluþjónn, Sigríður
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
lækninga á Landspítalanum, og Þór-
unn Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara.
Alma hóf erindi sitt líkt og venja
er á að útdeila hrósi og í þetta sinn
fengu hrósið þeir fjölmörgu starfs-
menn sem munu starfa í heilbrigðis-
og velferðarþjónustu yfir páskana og
þurfa að vera í viðamiklum hlífðar-
fatnaði við krefjandi aðstæður.
Hún tók undir með Þórólfi um að
við værum komin á eða yfir hápunkt-
inn hvað varðar fjölda nýgreindra
smita en tók fram að hápunktinum í
heilbrigðisþjónustunni yrði ekki náð
fyrr en eftir viku til tíu daga. Álagið
yrði því áfram viðvarandi, sérstak-
lega á gjörgæsludeildunum þar sem
sjúklingar þurfa að liggja inni um
ákveðinn tíma.
„Við þurfum að hafa úthald í þetta
og ég vil minna okkar frábæra heil-
brigðisstarfsfólk og stjórnendur á að
hlúa að sjálfum ykkur og hvert að
öðru,“ sagði hún og sendi í leiðinni
kærar kveðjur til sjúklinga og að-
standenda og minnti á að þau væru í
góðum höndum. Um 1.100 manns
eru nú skráðir í bakvarðasveit heil-
brigðisþjónustunnar og um 1.400 í
bakvarðasveit velferðarþjónustunn-
ar.
Spítalinn breyttur fyrir alla
„Við höfum á nokkrum vikum
rúmlega tvöfaldað þann rúmafjölda
sem við höfum á gjörgæslu,“ sagði
Sigríður Gunnarsdóttir sem mætti á
fundinn fyrir hönd Landspítalans.
Hún sagði spítalann vera breyttan í
dag fyrir alla; sjúklinga, aðstandend-
ur og starfsmenn, enda hefði starf-
semi á fjórum nýjum legudeildum
verið breytt til að taka á móti sjúk-
lingum með kórónuveirusýkingu. Til
að sinna þeim væri þörf á 30-50%
meiri hjúkrun en alla jafna fyrir
hefðbundna sjúklinga. Það væri
bæði vegna alvarleika veikindana og
öðruvísi verklags við meðferð
þeirra. Til að manna þessar deildir
hefði þurft að færa hjúkrunarfræð-
inga til í störfum innanhúss auk þess
sem leitað hefði verið í bakvarða-
sveitina. Þá væru dæmi um að
hjúkrunarfræðingar hefðu boðist til
þess að stytta fæðingarorlof sitt til
að veita aðstoð.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir hrósaði
þeim Víði, Þórólfi og Ölmu í hástert
og sagði fund almannavarna vera
orðinn aðalafþreyingu hennar skjól-
stæðinga. Hún benti á að margir í
hópi eldri borgara, sérstaklega þeir
sem byggju einir, fyndu fyrir ein-
manaleika. „Hann er að verða dálítið
djúpstæður, hættulegur og það kall-
ar á aðgerðir,“ sagði hún og hvatti
fólk til að gerast símavinir, sem
hringja í fólk sem er 85 og eldra í
gegnum kerfi hjá Reykjavíkurborg.
Viðfangsefni næstu mánaða
Fjöldi smitaðra á Vestfjörðum
heldur áfram að aukast smám sam-
an eftir að hópsýkingar komu upp
þar í byrjun mánaðar. Mikill kraft-
ur hefur verið í sýnatöku síðustu
daga, sérstaklega á Ísafirði, segir
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigð-
isstofnunar Vestfjarða, í samtali við
Morgunblaðið. Telur hann að búið
sé að ná nokkuð vel utan um ástand-
ið á Vestfjörðum, þar sem 54 smit
hafa greinst og 321 er í sóttkví.
„Við væntum þess að þetta verði
viðfangsefni næstu vikna og mán-
aða að takast á við eitthvað sem
kemur upp hér og þar,“ sagði Gylfi.
„Við erum að verða betri í því og
vitum líka að við getum reitt okkur
á aðstoð annars staðar frá ef þörf
krefur.“
Faraldurinn hefur náð toppnum
Hápunktur álags á heilbrigðisþjónustu verður eftir 7-10 daga Hafa tvöfaldað fjölda gjörgæslurúma
Covid-sjúklingar þurfa 30-50% meiri hjúkrun Einmanaleiki djúpstæður vandi meðal eldri borgara
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 45 517
Útlönd 0 0
Austurland 6 42
Höfuðborgarsvæði 1.162 2.461
Suðurnes 72 184
Norðurland vestra 35 32
Norðurland eystra 46 176
Suðurland 166 352
Vestfirðir 54 321
Vesturland 30 110
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands
Óþekktur
Erlendis
30.947 sýni hafa verið tekin
633 einstaklingar hafa náð bata
6 einstaklingar eru látnir
39 eru á sjúkrahúsi 13 á gjör-gæslu
977 eru í einangrun
Fjöldi smita frá 28. febrúar til 7. apríl
Heimild: covid.is og landspitali.is
1.616 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
1.616
983
28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7.
1.500
1.250
1.000
750
500
250
þeirra sem
hafa greinst
voru í sóttkví
78%
53%
11,5% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,78% sýna tekin hjá ÍE
13.898 hafa lokið sóttkví4.195 manns eru í sóttkví
Staðfest smit
Virk smit
Ljósmyndari/Kristinn Magnússon
Áfangi Þó að toppnum hafi verið náð má lítið út af bregða. Álagið á heilbrigðisþjónustu verður áfram mikið.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rýmingaráætlun fyrir Grindavík
hefur verið uppfærð með tilliti til
varúðarráðstafana vegna kórónu-
veirufaraldursins. Rögnvaldur
Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá al-
mannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra, sagði að skipulaginu hefði
verið breytt nýlega.
„Það er gert ráð fyrir því í skipu-
laginu í dag að fólk geti verið í
sóttkví eða einangrun,“ sagði Rögn-
valdur. Ef kæmi til rýmingar yrði
þeim sem væru í einangrun haldið
sér og eins þeim sem væru í sóttkví.
Þannig ættu þessir hópar ekki að
vera innan um fólk sem hvorki væri í
sóttkví né einangrun. Þessi aðgrein-
ing á að gilda alveg frá því að fólk fer
að heiman og alla leið á áfangastað
þar sem þessum hópum verður hald-
ið aðskildum.
Rögnvaldur sagði að almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra hefði
notið aðstoðar Rauða krossins,
björgunarsveitanna og lögreglunnar
við að endurskipuleggja rýmingar-
áætlunina. „Það voru allir mjög
lausnamiðaðir og málið bara leyst,“
sagði Rögnvaldur.
Hann sagði að það hefði aðeins
róast á stjórnstöð almannavarna eft-
ir miklar tarnir í vetur, og menn
kæmust nú heim úr vinnunni á
skikkanlegum tíma. Rögnvaldur
sagði að starfsmenn stjórnstöðvar-
innar reyndu að lágmarka samskipti
við fólk utan vinnunnar til að forðast
kórónuveirusmit líkt og t.d. starfs-
fólk Landspítalans gerði.
„Konan mín er hjúkrunarfræð-
ingur og það kemur enginn heim til
okkar nema heimilisfólkið og við för-
um ekkert nema við þurfum þess
nauðsynlega,“ sagði Rögnvaldur.
Rýmingaráætlun uppfærð
Taka verður tillit
til kórónuveiru-
faraldursins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grindavík Rýmingaráætlun hefur
verið uppfærð vegna faraldurs.
Smitrakningarappið Rakning
C-19 hefur þegar komið að not-
um við rakningu kórónuveiru-
smits, að sögn Kjartans Hreins
Njálssonar, aðstoðarmanns
landlæknis. Hann nefndi dæmi
frá því í fyrradag.
„Þá var appið notað til að
fríska upp á minnið. Fólk hafði
verið á ferðalagi og ruglaði
saman dögum. Þá var hægt að
nýta appið til að fá úr því skorið
hvar þau höfðu verið. Appið hef-
ur þegar skilað tilætluðum ár-
angri. Það er algjörlega frá-
bært,“ sagði Kjartan.
Búið var að sækja appið í rétt
rúmlega 121 þúsund síma í gær-
morgun. Kippur kom í niður-
halið síðasta sólarhringinn.
Vonast er til að enn fleiri sæki
appið. gudni@mbl.is
Komið í 121
þúsund síma
SMITRAKNINGARAPPIÐ