Morgunblaðið - 09.04.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•
TIL HAMINGJU – ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/happatala og gefðu upp töluna til að komast í pottinn.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 á þriðjudagsmorgun.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á laugardaginn líka, því þú gætir
unnið glænýjan Samsung Galaxy S20+.
13
Heimsviðskipti gætu dregist saman
um allt að þriðjung á þessu ári vegna
kórónuveirufaraldursins, að mati Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar,
WTO. Þetta myndi hafa mikil áhrif á
daglegt líf og hag almennings um
heim allan.
Í yfirlýsingu sem WTO sendi frá
sér í gær sagði að samdrátturinn
gæti numið frá 19-32% og hugsan-
lega stæði heimurinn frammi fyrir
dýpstu efnahagskreppu sem núlif-
andi fólk hefði upplifað.
WTO bendir á það í nýrri hagspá
að þegar hafi verið farið að hægja á
alþjóðaviðskiptum á síðasta ári áður
en kórónuveirufaraldurinn hófst. En
afleiðingar faraldursins væru að við-
skipti víða um heim hefðu nánast
stöðvast. Niðursveiflan nú væri
dýpri en sú sem fjármálakreppan á
árunum 2008 til 2009 olli. Stórir hlut-
ar hagkerfa landa heims væru nán-
ast óstarfhæfir, svo sem ferðaþjón-
usta, smásala og stór hluti
framleiðslu, segir WTO.
Bjartsýn spá gerir ráð fyrir að
hjól atvinnulífsins fari að snúast á ný
á síðari hluta ársins. En einnig sé
hugsanlegt að upphaflegi sam-
drátturinn hafi verið meiri en fyrstu
mælingar sýndu og bataferlið verði
langt og ófullburða.
„En báðar spár gera ráð fyrir að
um allan heim dragist útflutningur
og innflutningur saman um tveggja
stafa tölu á árinu 2020,“ segir WTO
og bætir við að Norður-Ameríka og
Asía muni fara verst út úr þessari
kreppu.
Mesti samdráttur frá lokum
síðari heimsstyrjaldar
Tvö stærstu hagkerfi Evrópusam-
bandsins, Þýskaland og Frakkland,
búa sig nú undir erfiða tíma. Helstu
hagfræðistofnanir Þýskalands sögðu
í gær að útlit væri fyrir að verg
landsframleiðsla myndi dragast
saman um nærri 10% á öðrum fjórð-
ungi ársins.
Og seðlabanki Frakklands sagði
að á síðasta fjórðungi ársins 2019
hefði verið 0,1% samdráttur og vís-
bendingar væru um að samdráttur-
inn hefði numið 6% á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs. Er það mesti
samdráttur sem mælst hefur í
Frakklandi frá lokum síðari heims-
styrjaldar árið 1945.
AFP
Mannlaus strönd Promenade des Anglais í Nice í Frakklandi er mannlaus en venjulega er fjöldi fólks þarna á gangi.
Útlit fyrir þriðjungs sam-
drátt í heimsviðskiptum
Stefnir í dýpstu efnahagslægðina í manna minnum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, og Tedr-
os Adhanom Ghebreyesus, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar WHO, vörðu í gær
aðgerðir WHO í upphafi faraldurs-
ins, eftir að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti sakaði stofnunina í fyrri-
nótt um slæleg vinnubrögð þegar
kórónuveiran lét fyrst á sér kræla.
Sagði Trump meðal annars að svo
virtist sem WHO gengi erinda Kín-
verja og að mögulega þyrfti Banda-
ríkjastjórn að endurmeta fjárfram-
lög sín til stofnunarinnar, en
Bandaríkin eru það ríki sem veitir
mest fé til WHO.
Hvatti Ghebreyesus Bandaríkja-
menn og Kínverja til þess að taka
höndum saman í baráttunni gegn
kórónuveirunni frekar en að deila
sín á milli, því slík samvinna gæti
skilið milli feigs og ófeigs.
Guterres sagði hins vegar að sá
tími myndi renna upp að fara þyrfti
yfir þau viðbrögð sem alþjóðasam-
félagið sýndi í upphafi faraldursins.
Sú stund væri hins vegar ekki nú.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, var í gær sagður á bata-
vegi, en hann dvelur enn á gjör-
gæslu á sjúkrahúsi í Lundúnum. Til-
kynnt voru 938 ný dauðsföll á
Bretlandseyjum í gær, en það er hið
mesta þar í landi frá upphafi farald-
ursins.
60.000 dánir í Evrópu
Ein og hálf milljón manns hefur
nú smitast af kórónuveirunni, þar af
rúmlega 400.000 manns í Bandaríkj-
unum. Þá hafa rúmlega 85.000 látist
af völdum veirunnar, en þar af hafa
rúmlega 60.000 manns dáið í Evr-
ópu. Evrópusambandið tilkynnti í
gær að það vildi framlengja ferða-
bann frá ríkjum utan evrópska efna-
hagssvæðisins fram til 15. maí.
Staðfest var í gær að Mauro
Ferrari, yfirmaður evrópska rann-
sóknaráðsins, hefði fyrr í vikunni
sagt upp störfum, einungis þremur
mánuðum eftir að hann tók til
starfa. Sagðist Ferrari vera vonsvik-
inn yfir viðbrögðum Evrópusam-
bandsins gagnvart kórónuveirunni
og að barátta sín við skrifræðisbákn
sambandsins hefði gert sig afhuga
ESB.
Kalla eftir samvinnu stórvelda
WHO segir samvinnu Bandaríkjamanna og Kínverja geta skipt miklu máli
Boris Johnson sagður á batavegi Ein og hálf milljón staðfestra tilfella
AFP
Wuhan Þessir ferðalangar frá Wuhan ferðuðust í gær með fyrstu lestinni
sem þaðan fór í um tvo mánuði, en ferðatakmörkunum var aflétt í fyrradag.
Bernie Sanders,
öldungadeildar-
þingmaður og
frambjóðandi í
forkosningum
demókrata, til-
kynnti í gær að
hann hygðist
draga framboð
sitt til baka.
Sanders, sem
er 78 ára gamall,
naut mikils fylgis meðal róttækari
meðlima flokksins, en Joe Biden,
fyrrverandi varaforseti, hefur náð
að byggja upp gott forskot í fjölda
þeirra kjörmanna sem á endanum
ráða því hver verður útnefndur sem
forsetaefni flokksins.
Talið er því nær öruggt að Joe
Biden verði mótframbjóðandi Don-
alds Trumps Bandaríkjaforseta í
forsetakosningunum, en þær verða
haldnar 3. nóvember næstkomandi.
Hét Sanders því í gær að hann
myndi vinna með Biden í aðdrag-
anda kosninganna að því markmiði
að koma Trump úr Hvíta húsinu í
haust.
Bernie Sanders
dregur sig í hlé
Bernie
Sanders
BANDARÍKIN