Morgunblaðið - 09.04.2020, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Englands-drottningflutti ör-
stutt ávarp vegna
atburðanna þar og í
Samveldinu. Hún
hefur senn ríkt í 70
ár. Það er þekkt að
klukka valdsins
kemur mönnum
fyrr eða síðar „fram úr seinasta
söludegi“. Það tekur þó aug-
ljóslega ekki til drottningar. Á
ferli sínum hefur drottningin
aðeins flutt fimm ávörp af þessu
tagi. Og það var áhrifamikið.
Flytjandinn, sem verður 94
ára eftir fáeina daga, flutti það
algjörlega væmnis- og tilgerð-
arlaust. Það var varla að hún
nefndi veiruna á nafn. Hún rifj-
aði upp að fyrir 80 árum hefði
hún ung, með aðstoð systur
sinnar, flutt útvarpsávarp til
þjóðarnnar. Tilefnið var að
nauðsynlegt var talið að taka
börn frá foreldrum og koma til
vandalausra því mikilla loft-
árása var vænst í stórborg-
unum. Það hefði verið þung-
bært en óhjákvæmilegt þá eins
og sambærilegar ráðstafanir
núna. Og síðar í sínu stutta
ávarpi vísaði hún aftur undir
rós til stríðsins mikla: Við eig-
um huggun vísa, og það jafnvel
þótt við kunnum áfram að mæta
erfiðleikum, að betri tíð mun
renna upp. Við munum njóta
samfélags við vini okkar á ný.
Við verðum í faðmi fjölskyld-
unnar á ný; „we will meet
again“. Þótt átta áratugir væru
liðnir og ekkert meira sagt vissi
þjóðin samstundis hvað drottn-
ingin var að fara. Hún vitnaði í
söng Veru Lynn, sem frægur
varð ásamt The White Cliffs of
Dover og öðrum og færði Bret-
um kjark, tiltrú og von á váleg-
um tímum. „We will meet
again“ var slegið upp á flestar
forsíður. Og margir voru spurð-
ir um álit á ávarpinu og töldu
nánast einróma það þakkarefni,
og þar voru einnig þeir sem
kusu að taka fram að þeir væru
andvígir skipan konungdæmis.
Langoftast var umsögnin sú að
viðkomandi var „djúpt snort-
inn“ eða því um líkt. Og Vera
Lynn var spurð. Hún, 103 ára,
fagnaði ávarpinu og sagði vel til
fundið að nefna We will meet
again.
Í vikunni birtist grein í Wall
Street Journal sem vakið hefur
athygli. Þar vísar höfundurinn
einnig til persónulegrar reynslu
er hann fjallar um hið einstæða
andrúm sem fylgi faraldri kór-
ónuveirunnar. Hann segir að
ástandið „kalli fram minningar
um tilfinnningar hans þegar
hann fór ungur fram í 84. fylk-
ingu fótgönguliða í „Battle of
the Bulge“. Nú, eins og seint á
árinu 1944, sé tilfinning fyrir
óræðri hættu sem beinist ekki
að neinum sér-
stökum en geri til-
viljanakennt eyði-
leggjandi árásir.
Þó sé mikilvægur
munur á þessum
löngu liðnu atburð-
um og því sem við
upplifum nú.
Þrautseigja
Bandaríkjanna þá var styrkt af
staðföstum ásetningi þjóð-
arinnar. Nú þegar samstöðu-
skortur hái þjóðinni sé þörf á
öflugu og framsýnu ríkisvaldi til
að sigrast á hindrunum og erf-
iðleikum sem ekki séu fordæmi
fyrir sé horft til magns og víð-
feðmis. Miklu skipti að trú al-
mennings bíði ekki hnekki svo
þjóðarsamheldnin bresti ekki
og sama gildi um alþjóðlegan
frið og stöðugleika. Þar talar
Henry Kissinger, fyrrverandi
öryggisráðgjafi Nixons og síðar
utanríkisráðherra. Hann verður
97 ára 27. maí. Kissinger bendir
á að það tryggi framþróun þjóða
og þær blómstri ef meðal þeirra
ríki vissa um að hörmulegir erf-
iðleikar komi ekki stofnunum
þeirra í opna skjöldu, og að þær
séu færar um halda afleiðingum
þeirra innan marka og tryggja
jafnvægi innanlands ný.
Kissinger telur að þegar far-
aldurinn verður fyrir bí verði
ýmsar ríkisstofnanir þjóða tald-
ar hafa brugðist í sínu verkefni.
Hvort slíkur dómur verði reist-
ur á sanngirni skipti naumast
máli. Raunveruleikinn sé sá að
„heimurinn verði aldrei samur
eftir kórónuvírusinn“ segir
hann. En hitt, að ætla sér að
taka upp deilur varðandi liðinn
tíma núna, mun einungis gera
illt verra.
Eftir að hafa lýst mati sínu á
stöðunni og ekki skafið af segir
Kissinger: Ríkisstjórn Banda-
ríkjanna hefur skilað traustu
verki með því að forða yfirvof-
andi stórtjóni. En úrslitum mun
ráða hvort henni tekst að hemja
útbreiðslu faraldursins og
hægja svo á honum að þar með
muni Bandaríkjamenn sann-
færast um getu sína til að hafa
stjórn á eigin málum.
Í framhaldinu tekur hann til
við að fjalla um þætti fræða sem
hann er kunnastur fyrir, bæði
sem fræðimaður og þátttakandi
í stjórn lands síns. Þeim hug-
myndum verða ekki gerð skil
hér þótt fróðlegar séu. Hugleið-
ingu hins reynda skörungs lýk-
ur svo: „Við hurfum úr orrust-
unni við Bulge inn í heim
vaxandi velsældar og mann-
legrar reisnar. Nú eru alda-
hvörf. Nú standa leiðtogar
frammi fyrir því sögulega verk-
efni að ná valdi á og stjórna
uppnámsástandi og byggja
samtímis upp fyrir framtíðina.
Mistakist það gæti heimurinn
farið í bál og brand.“
Hvort sem horft er
til drottningar Breta
eða Kissingers fróða
sést að þau nálgast
mál jafnan úr
óvæntri átt}
Afbragð sem
aldnir mæla
Þ
að á eiginlega að vera óþarfi að
nefna það af því að það á auðvitað
að vera sjálfsagt mál að enginn
þurfi að hafa áhyggjur af því að
hafa ekki fæði, klæði eða hvað þá
húsnæði.
En því miður, þannig er það ekki. Við eigum
að stefna að því og sjá til þess að allir njóti
þeirra sjálfsögðu mannréttinda, að eiga fyrir
mat alla daga, klæði fyrir allar árstíðir og
mannsæmandi húsnæði sem er á viðráðanlegu
verði.
Allir hafa fengið leiðréttingu á kjörum
vegna bankahrunsins nema þeir sem eru á líf-
eyrislaunum, öryrkjar og eldri borgarar. Nei,
eina sem þeir hafa fengið frá ríkistjórn eftir
ríkisstjórn eru smánarhækkanir á lífeyrinn og
einnig skerðingar og keðjuverkandi skerð-
ingar á honum.
Ef við setjum þetta í eitthvert samhengi þá eru skerð-
ingar í dag um 60 milljarðar hjá eldri borgurum og ör-
yrkjum. Þarna erum við að tala um fimm milljarða á mán-
uði.
Ef við gerum ekkert strax þá á róðurinn eftir að þyngj-
ast verulega hjá þeim sem verst hafa það, vegna þess að
það er hópurinn sem á ekki fyrir mat, lyfjum eða öðrum
nauðsynjum í lok hvers mánaðar.
Nú eru að koma mánaðamót og þá kemur inn sama
upphæð og vanalega hjá þessum hópi sem er svo lág að
hún er langt undir fátæktarmörkum, þ.e. sárafátækt. Það
segir okkur hversu óskiljanlegt það er að við
skulum aldrei hafa fundið út hversu há í krón-
um talið lífsnauðsynleg framfærsla þarf að
vera.
Það var gert að vísu fyrir nokkrum árum en
henni var stungið undir stól. Síðan hefur verið
miðað við einhverja furðulega og undarlega
lága upphæð sem ég hef oft spurt mig hvernig
í ósköpunum var fundin út og hver gerði það,
en ég hef auðvitað ekki fengið nein svör við
því.
Sem er kannski ekkert undarlegt vegna
þess að ef rétt væri gefið, og við þurfum ekki
annað en að fara aftur til þess þegar stað-
greiðsla skatta var tekin upp og endurreikna
bætur almannatrygginga frá þeim tíma til
dagsins í dag, þá værum við ekki að tala um að
einhver væri með 200.000 krónur á mánuði.
Nei, það væri komið í um 350.000 krónur á
mánuði og það skatta- og skerðingarlaust. Þeir verst
settu þurfa á þeirri upphæð að halda og það strax í dag.
Flokkur fólksins berst fyrir því að enginn þurfi að lifa
við fátækt, en nú ætlar ríkisstjórnin að greiða öryrkjum
skatta- og skerðingarlaust 20.000 króna eingreiðslu 1.
júní og ekkert fyrir eldri borgara.
Hvað eigum við þingmenn og ráðherrar að fá í hækkun
launa á mánuði og það afturvirkt til 1. janúar? Í því sam-
hengi: þetta er þeirra réttlæti. gudmundurk@althingi.is
Guðmundur
Ingi
Kristinsson
Pistill
Þetta er þeirra réttlæti
Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
um átta prósent til viðbótar. Því
megi ætla að skráð atvinnuleysi gæti
farið upp í 16% í yfirstandandi mán-
uði. Spurður um fjölda einstaklinga
á bak við þessar tölur segir Karl að
gera megi ráð fyrir að nálægt 35
þúsund manns fái greiddar atvinnu-
leysisbætur fyrir marsmánuð og að í
aprílmánuði fjölgi þeim í samtals um
50 þúsund manns sem fái greiddar
ýmist almennar bætur eða hluta-
bætur.
Stór hluti umsókna að undanförnu
kemur frá launþegum sem starfað
hafa í ferðaþjónustunni og í greinum
sem tengjast henni auk verslunar-
starfsemi og segir Karl að ætla megi
að hlutfall þeirra sé um það bil 42%
allra sem bæst hafa á skrána að und-
anförnu. Mun færri koma úr frum-
framleiðslugreinum og byggingar-
iðnaði. Dreifing umsækjenda eftir
þjóðerni er nokkurn veginn í sam-
ræmi við skiptingu þeirra á vinnu-
markaði. Útlendingar hafa verið um
það bil 20% af vinnuafli á vinnu-
markaðinum en þeir eru nálægt 24%
þeirra sem skráðir eru án atvinnu
hjá Vinnumálastofnun. Karlar eru
heldur fleiri án atvinnu en konur
skv. atvinnuleysisskrám en veruleg-
ur munur er á aldurshópunum. Að
sögn Karls er ungt fólk áberandi
margt meðal umsækjenda um al-
mennar atvinnuleysisbætur að und-
anförnu og ef litið er á nýskráningar
um hlutastarfabætur í mars má sjá
að um 33% umsækjenda eru 30 ára
eða yngri. Ungt fólk hefur verið
áberandi í þjónustustörfum og verð-
ur illa fyrir barðinu þegar fyrirtæki
draga saman seglin þar sem það hef-
ur áunnið sér minni starfsreynslu á
vinnumarkaði og minnst réttindi.
Atvinnuleysið upp í 16%
þegar líður á aprílmánuð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smáralind Tómlegt er víða um að litast í kórónuveirufaraldrinum. Ungt
fólk í verslun og þjónustu er áberandi meðal umsækjenda um hlutabætur.
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Gífurleg fjölgun hefur orðiðá atvinnuleysisskrá hjáVinnumálastofnun(VMST) á seinustu vikum,
sem að stórum hluta er til komin
vegna umsókna um atvinnuleysis-
bætur samhliða skertu starfshlut-
falli. Fjölgun einstaklinga sem misst
hafa vinnuna að fullu og sótt um al-
mennar atvinnuleysisbætur er þó
einnig mikil eftir að áföllin riðu yfir
með faraldri kórónuveirunnar. Eru
núna um 16 þúsund manns á al-
mennu atvinnuleysisskránni og hef-
ur þessum atvinnuleitendum fjölgað
um sex þúsund frá því í lok febr-
úarmánaðar.
Að sögn Ögðu Ingvarsdóttur, sér-
fræðings á upplýsingatækni- og
rannsóknarsviði Vinnumálastofn-
unar, hefur hægt verulega á inn-
komnum umsóknum um bætur á síð-
ustu dögum samanborið við
umsóknaflóðið í síðari hluta mars.
Síðdegis síðastliðinn þriðjudag
höfðu borist um 31 þúsund umsóknir
um atvinnuleysisbætur samhliða
minnkuðu starfshlutfalli hjá VMST.
„Eins og staðan er eru komnir tæp-
lega 50 þúsund einstaklingar á skrá
hjá okkur, þá bæði um minnkað
starfshlutfall og svo almennar um-
sóknir,“ segir Agða.
Gríðarlegt álag er á starfsfólki
VMST en þar hafa nú verið teknar
saman upplýsingar um skráningar
atvinnuleysis í marsmánuði. Að sögn
Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá
VMST, er ástandið nokkurn veginn í
takt við það sem búist var við og að
atvinnuleysi hafi að öllum líkindum
verið á bilinu 8,5-9% yfir allan mán-
uðinn þegar taldir eru með þeir
launþegar sem sóttu um hlutabætur
vegna minnkaðs starfshlutfalls, en
opnað var fyrir umsóknir um þau
réttindi 23. mars.
Sérfræðingar VMST gera núna
ráð fyrir að atvinnuleysið fari upp í
15 til 16% þegar líður á aprílmánuð.
Skráð atvinnuleysi á almennu at-
vinnuleysisskránni var 5,7% í mars
og er áætlað að fjöldi þeirra sem
skráðu sig í skert starfshlutfall nemi
um þremur prósentum til viðbótar.
Síðan er að sögn Karls gert ráð fyrir
að almenna atvinnuleysið fari upp í
7,5% í apríl og þá komi umsóknirnar
um hlutabætur fram af fullum þunga
og hækki atvinnuleysisprósentuna
Flóðbylgja umsókna um atvinnu-
leysisbætur að undanförnu
minnir um margt á ástandið eft-
ir hrunið fyrir rúmum áratug en
staðan núna er eðlisólík því sem
þá var.
Karl Sigurðsson segir að á
þeim tíma hafi fyrirtæki að lang-
mestu leyti gripið til almennra
uppsagna en þeir sem skráðir
voru með skert starfshlutfall
fóru aðeins yfir tvö þúsund.
„Menn vonast til að þetta sé
tiltölulega skammvinnt ástand
og fyrirtækin komist í gegnum
þetta án þess að segja starfs-
fólki endanlega upp störfum
þótt það sé líka töluvert um al-
mennar uppsagnir um þessar
mundir,“ segir hann.
„Þessar aðgerðir miða að því
að halda fyrirtækjum á lífi og að
þau komist í gegnum þessar
þrengingar og geti í framhaldinu
tekið upp fyrri starfsemi. Í
hruninu var þetta mun alvar-
legra til lengri tíma litið nema
þetta fari allt á versta veg núna
og við réttum ekki úr kútnum
fyrr en eftir eitt eða tvö ár. Þá
værum við að horfa upp á ugg-
vænlega þróun en ég held að
menn sjái það ekki fyrir sér sem
betur fer.“
Í gegnum
þrengingar
ÓLÍKT HRUNINU