Morgunblaðið - 09.04.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
VINNINGASKRÁ
166 10526 19468 28414 39185 50209 59856 71218
623 10749 19945 28476 39569 50285 59867 71814
651 11227 20008 28630 39591 50338 61015 72061
1084 11231 20112 28694 40049 50545 61149 72563
1744 11273 20351 28973 40096 51018 61330 72667
2183 11289 20526 29133 40232 51471 61362 72698
2369 11720 20967 29378 40634 51883 61450 73489
2633 11797 21303 30110 40649 52787 61837 73700
2685 11957 21543 30161 41942 52860 61853 74031
2773 12803 21605 30477 42613 53019 61929 74473
2950 12867 21782 30534 43005 53296 62412 74829
3080 13306 21839 30834 43023 53894 62537 75692
3103 13432 21968 31422 43294 54412 62767 75851
3205 13878 22308 31460 43506 54744 62992 75991
3249 14206 22610 31487 43805 54944 63096 76059
3722 14806 22640 32272 43980 55374 63713 76061
3750 14997 22894 32309 44022 55820 64437 76333
3864 15214 22934 32474 44076 55845 65194 76388
4437 15295 23129 32920 44296 55901 65517 76477
4852 15349 23360 33446 44709 56210 65788 77083
5460 15351 23514 34880 44714 56249 66274 77399
5506 15487 23569 34982 45017 56733 66374 77648
5949 15816 23610 35078 45382 56835 66529 77970
6295 16327 23639 35097 45507 56930 66585 78434
6562 16518 24171 35533 45529 57001 67288 78613
6611 16551 24376 35720 45833 57058 67469 78814
7355 17991 24517 36269 46047 57183 68250 78865
7421 18190 24543 36534 46728 57466 68328 79433
7588 18285 24796 36559 47074 57683 68414 79516
7625 18298 25156 36629 47710 57933 68880 79765
8000 18301 25219 36812 47728 58373 68927 79883
8762 19012 25907 37213 47840 58453 69055
9009 19144 26263 37486 47887 58884 69130
9104 19234 27148 37783 48917 58983 70024
9962 19284 27434 37905 49104 59553 70075
9967 19375 27833 37912 49998 59652 70079
10394 19459 27973 38891 50138 59729 70387
76 13220 30958 42856 51434 58848 63575 72382
1025 13557 31424 42998 51622 59191 63919 74364
3746 13591 32040 43334 51740 59348 64070 74748
4666 14014 32665 43868 53392 60324 64347 74839
5051 15824 32724 44564 54222 61151 64485 76506
5455 16358 34782 44997 54244 61258 65579 78304
6994 17544 36852 45331 55234 61418 66990 79221
7005 19340 36987 46210 56264 61752 68134 79313
9113 21180 38203 47997 56361 62174 68508 79728
9437 24667 40121 48336 56432 62319 68802
11390 27788 41326 48821 56723 62544 70648
11927 29096 41345 49101 57726 62618 70720
12354 30023 42272 49983 57956 62880 71540
Næstu útdrættir fara fram 16., 24. & 30. apríl 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
3109 30649 31595 32134 76302
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1485 18002 33265 38181 54112 59549
5864 28501 33554 38758 55544 67427
6223 29462 37293 45255 57189 72059
8719 32182 37413 53394 57418 72157
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 3 8 2 7
49. útdráttur 8. apríl 2020
Matur
Í
júlí 2019 tóku gildi breyt-
ingar á lögum nr. 32/1997
um frið vegna helgihalds
er varðar helgidagafrið.
Þessar breytingar voru
lagðar fyrir Kirkjuþing til um-
sagnar og féllst Kirkjuþing á að
helgidagafriður yrði afnuminn úr
lögum. Nú á tímum heimsfarald-
urs þar sem fólk er lokað inni í
sóttkví og sumstaðar í heiminum
þar sem útgöngubanni hefur ver-
ið beitt hefur friður færst yfir
götur borga og bæja. Á þessum
tíma hefur meng-
unarstig hríðfallið
og náttúran tekið
vaxtarkipp, eins og
sjá má á síkjum
Feneyja, en ef það
skyldi hafa farið
fram hjá ein-
hverjum þá urðu
síkin tær og líf
mátti sjá þar sem
ekkert virtist áður.
Það er eins og nátt-
úran fái nú örlítið
andrými fyrir end-
urnýjun og sjálfs-
heilun.
Nú er sá tími
kirkjuárs sem kall-
aður er langafasta.
Fastan hefst á ösku-
degi og nær hún til
páska og er tími iðr-
unar, íhugunar og
andlegrar ræktunar.
Því til áhersluauka
er litur þess tíma-
bils fjólublár en
hann táknar iðrun
og dapurleika. Tilviljun eða ekki
þá greindist fyrsta smitið á Ís-
landi tveimur dögum eftir ösku-
dag og talið hefur verið að veiran
nái hámarki á páskum. Þessi tími
kirkjuársins þykir mér vera mjög
táknrænn fyrir ástandið í heim-
inum. Það hefur sannarlega ein-
kennst af dapurleika. Frá skír-
dagskvöldi og fram á páska-
dagsmorgun þjáðist Kristur, dó á
krossinum og lá svo dauður í
gröfinni í þrjá daga. En við meg-
um ekki gleyma því sem fylgdi á
eftir þjáningunni og dauðanum. Á
páskadagsmorgun reis hann upp
frá dauðum. Ljós upprisunnar
getum við strax séð í endurnýjun
náttúru jarðar og ég er sann-
færður um að við
munum sjá frekari
merki upprisunnar í
framhaldinu. Með
þessu er ég ekki að
gera lítið úr þeirri
þjáningu sem heims-
byggðin og einstak-
lingar eru að ganga í
gegnum, sú þjáning
er raunveruleg og
hana verður að ann-
ast.
Þetta eru erfiðir
tímar þar sem við
þurfum ekki bara að
huga að líkamlegri
velferð okkar heldur
einnig andlegri vel-
ferð. Kvíði, ótti,
streita og áhyggjur í
lífi fólks eru nægi-
lega miklar án CO-
VID-19, en það er
dagljóst að vírusinn
ýti enn frekar undir
þessa neikvæðu þætti
andlegrar heilsu. Því
er mikilvægara en
nokkru sinni fyrr að stunda and-
lega rækt.
Þá komum við aftur að helgi-
dögunum, við erum að tala um
daga eins og sunnudaga, föstu-
daginn langa og stórhátíðir kirkj-
unnar sem eiga að fara í það að
sinna andlegri rækt. Eins og
þetta blasir við þá virðist helgi-
dagafriðurinn eiga sér mun djúp-
stæðari rætur heldur en að láta
fólk setja í aðgerðar- og eirðar-
leysi. Hugmyndin er að nýta tím-
ann til persónulegrar andlegrar
ræktar en gæti jafnvel verið mun
djúpstæðari og teygt sig út fyrir
manneskjuna sjálfa. Í myndmáli
sköpunarsögunar hvíldist Guð á
sjöunda degi, náttúran sem hafði
þarna verið að fæðast og sam-
félagið sem þarna hafði myndast
fékk einnig hvíld. Náttúra og
samfélag þarf einnig hvíld frá
manneskjunni eins og mann-
eskjan þarf hvíld frá vinnu.
Ef allir þessir helgidagar væru
nú eins kyrrlátir og götur borga
og bæja eru í ástandinu, væri
hægt að nýta tímann til andlegrar
rækta. Verslanir og fyrirtæki lok-
uð og fáir á ferli, einn dagur í
viku yrði tekinn frá, óháð trúar-
brögðum, til þess að leggja allt
niður nema algjöra grunnþjón-
ustu eins og Jesús gaf fordæmi
um í Lúkasi 14.1-6. Hægt væri að
rækta andann með því að leggja
bílnum og fara út að ganga,
stunda bænir og/eða íhugun, jafn-
vel sækja guðsþjónustur ef það
hentaði fólki. Hægt væri að nýta
tímann til heilbrigðrar tengsla-
myndunar innan fjölskyldunnar
en það getur verið mjög mikilvæg
forvörn fyrir börn að eiga upp-
byggjandi stundir og samskipti
með foreldrum sínum án þess að
vera á þeytingi úti um allan bæ.
Ég held að dýpri skilningur á
helgidagafriðnum og ástundun
þess að taka stund til hliðar og
hafa hana einstaka gæti haft víð-
tækari áhrif og að fleiri myndu
hafa hag af því heldur en við ger-
um okkur grein fyrir. Náttúran
fengi einn og einn dag til and-
rýmis, við fengjum andlega upp-
örvun í algjörum friði frá ys og
þys hversdagsins og fjölskyldur
myndu styrkja tengsl.
Ég held að við séum að stíga
inn í nýja tíma með nýtt gildis-
mat, hvað er mikilvægt fyrir þig
og mig, hvað er mikilvægt fyrir
náungann, hvað er mikilvægt fyr-
ir náttúruna og sköpunarverkið
sem heild? Gildin verða frekar
andleg heldur en veraldleg þegar
fram líða stundir og við munum
átta okkur á að hamingjan hefur
aldrei verið talin og mun aldrei
verða talin í veraldlegum gæðum
en þannig er það ekki heldur með
guðsríki. Með réttu sjónarhorni
er hægt að sjá að allir hlutir
verða og eru nýir og betri.
Kirkjan til fólksins
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heydalakirkja
„… og ég mun veita yður hvíld“
Hugvekja
Dagur Fannar
Magnússon
Höfundur er prestur í
Heydölum.
dagur.f.magnusson@gmail.com
Dagur Fannar
Magnússon
Hvíld er mikil-
væg fyrir fólk,
samfélag og nátt-
úru. Hvað getum
við lært á þess-
um fordæma-
lausu tímum
um hvíld?
Hrafnista hefur í
forvarnarskyni gert
sérstaka deild tilbúna
komi til þess að kór-
ónusmit komi upp með-
al íbúa hjá Hrafnistu.
Deildin er staðsett hjá
Hrafnistu við Sléttu-
veg í Reykjavík og er
ætluð íbúum á öllum
Hrafnistuheimilunum
sex á höfuðborgar-
svæðinu, Reykjavík, Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði. Hrafnista í
Reykjanesbæ er langt komin með að
undirbúa sambærilega aðstöðu fyrir
Nesvelli og Hlévang. Á heimilunum
átta eru samtals um 800 íbúar í um
fjórðungi hjúkrunarrýma á landinu
og eru starfsmenn Hrafnistu alls
fimmtán hundruð.
Enn hefur enginn íbúi smitast
Í hópi starfsliðs Hrafnistu hafa 92
einstaklingar farið í sóttkví frá upp-
hafi faraldursins og
tveir reynst smitaðir
þegar þetta er skrifað.
Enginn íbúi hefur enn
reynst smitaður og
vonandi kemur ekki til
þess að nýta þurfi
deildina með þessum
hætti. Á heimilunum er
fylgt skýrum verkferl-
um og viðbrögðum með
tilliti til veirunnar enda
eru nær allir íbúar í
áhættuhópi. Neyðar-
stjórn Hrafnistu fund-
ar daglega á fjarfundi um stöðu
mála.
Bakvarðasveitin einnig efld
Komi til þess að íbúi á einhverju
Hrafnistuheimilanna á höfuðborgar-
svæðinu greinist smitaður af CO-
VID-19 verður viðkomandi fluttur á
deildina við Sléttuveg þar sem hann
mun fá viðeigandi þjónustu meðan á
veikindum stendur. Ráðstöfunin hef-
ur verið kynnt fyrir íbúum og að-
standendum auk þess sem verið er
að efla bakvarðarsveit heimilanna í
forvarnarskyni komi til þess að fleiri
í hópi starfsmanna þurfi að sæta
sóttkví. Með það að leiðarljósi hefur
aðstandendum m.a. verið boðið að
skrá sig í bakvarðarsveitina og hafa
viðbrögð í þeim hópi farið fram úr
björtustu vonum. Sem stendur er þó
ekki gert ráð fyrir að kalla þurfi til
aðstandendur, en komi til þess munu
viðkomandi starfa á öðrum heimilum
en þeim sem nánustu skyldmenni
búa.
Sérstök deild tilbúin komi upp
smit meðal íbúa Hrafnistu
Eftir Maríu Fjólu
Harðardóttur » Á heimilunum búa
um 800 manns í um
25% hjúkrunarrýma á
landinu. Enginn hefur
enn smitast. Starfs-
menn Hrafnistu eru
alls um 1.500.
María Fjóla Harðardóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri heil-
brigðissviðs Hrafnistuheimilanna.