Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
Einhvern tíma viðraði ég hug-
mynd sem gæti verið ástæða til
að dusta rykið af núna þegar allt
er farið úr skorðum vegna kór-
ónuveirunnar.
Keppnistímabilið í fótbolt-
anum verður seinna á ferðinni en
áður á komandi sumri og við vit-
um enn ekkert um hvenær það
getur hafist.
Vanalega hefst það með
fyrstu umferðum í bikarkeppni
KSÍ og fyrstu umferðina í karla-
flokki átti einmitt að leika núna
um páskana.
Nú er lag að færa bikarkeppn-
ina til, létta á fyrirsjáanlegu
leikjaálagi keppnistímabilsins
2020 og taka um leið upp fyr-
irkomulag sem frændur vorir
Svíar hafa haft á sinni bikar-
keppni í nokkur ár.
Hefjum hana ekki fyrr en
síðsumars eða undir haustið og
ljúkum sextán liða úrslitum í
október. Þarna á ég við bikar-
keppni meistaraflokka karla og
kvenna.
Síðan yrðu átta liða úrslit
leikin í apríl 2021, undanúrslitin
snemma í maí og úrslitaleikirnir í
lok maímánuðar.
Þetta myndi engu breyta
varðandi Evrópusæti því bikar-
keppnin 2020 veitir hvort eð er
keppnisrétt í undankeppni Evr-
ópudeildar UEFA í karlaflokki fyr-
ir sumarið 2021, hvort sem úrslit
ráðast að hausti eða vori.
Og svo mætti þetta fyr-
irkomulag vera til frambúðar.
Bikarúrslitaleikir í lok maí myndu
án efa lífga mjög upp á fyrri
hluta íslenska keppnistímabils-
ins, í stað þess að leika þá síð-
sumars þegar margt stuðnings-
fólk er enn fjarverandi vegna
sumarfría.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
NOREGUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Ég held að lífið hérna sé svipað
og hjá flestum öðrum um þessar
mundir. Varðandi fótboltann þá
megum við æfa fimm saman í einu.
Þá eru gjarnan fimm leikmenn á
einum vallarhelmingi og fimm á
öðrum. Þjálfararnir standa fyrir
utan völlinn. Tveggja metra reglan
er svo í gildi og menn reyna að
halda sér í formi á einhvern hátt,“
sagði Matthías Vilhjálmsson,
knattspyrnumaður hjá Vålerenga í
Noregi, þegar Morgunblaðið tók
hann tali.
„Reglurnar varðandi fótboltann
hafa tekið nokkrum breytingum. Í
byrjun mars máttu liðin æfa en það
fór minnkandi þegar farið var að
loka skólum og leikskólum. Á tíma-
bili voru skipulagðar æfingar alveg
bannaðar. Eins og stendur er alla
vega þessi fimm manna regla í
gangi en henni fylgja ýmis skilyrði.
Búningsklefar eru ekki notaðir, við
megum ekki skalla boltann né taka
hann upp með höndunum út af
smithættu.“
Frekari bið eftir leikjum?
Norska deildin ætti að vera ný-
hafin. Norðmenn settu á nýja dag-
setningu og átti þá deildin að hefj-
ast 23. maí. Samkvæmt umfjöllun í
norskum blöðum gæti verið að
Norðmenn bíði fram í júní með að
hefja tímabilið í efstu deild.
„Já, deildin átti að byrja síðustu
helgi. Var fyrstu umferðinni síðan
frestað til 23. og 24. maí. Nú þegar
þú ert að hringja er ég nýbúinn að
sjá frétt þar sem talið er að heil-
brigðisyfirvöld leggi til að byrja
ekki fyrr en 15. júní. Þetta er hins
vegar ekki staðfest,“ benti Matt-
hías á og þegar hann fær loksins
að keppa á ný verður gamla góða
leikgleðin væntanlega við völd.
„Já, heldur betur. Maður verður
í raun bara ánægður þegar maður
þarf að vakna snemma og gera hitt
og þetta á ný. Hversdagslegu hlut-
ina kann maður betur að meta
núna.“
Félögin gætu lent í basli
Fyrir sum félög í Noregi er fjár-
hagsstaðan afar erfið eins og víða
annars staðar en Matthías er einn
af ellefu Íslendingum sem nú eru á
mála hjá liðum í norsku úrvals-
deildinni.
„Það er voðalega misjafnt hvern-
ig liðin í efstu deildinni eru að tak-
ast á við stöðuna. Þegar ástandið
vegna veirunnar fór versnandi
hættu styrktaraðilar að styðja við
félögin og þau misstu af alls kyns
tekjum. Mörg lið hafa sagt leik-
mönnum upp tímabundið en ekki
öll. Staðan er ótrúlega erfið fyrir
mörg félög og leikmenn sem missa
tekjur. Það er auðvitað mismun-
andi hvernig það hefur áhrif á fólk.
Einnig er umræða um hversu mik-
ið félögin eiga rétt á að láta leik-
menn æfa í hverri viku þegar
starfshlutfallið er misjafnt. Ef
þetta ástand varir lengi eru líkur á
því að mörg félög lendi í bölvuðu
veseni.“
Burtséð frá veirunni og ástand-
inu sem henni fylgir kann Matthías
ágætlega við sig hjá Vålerenga, en
þangað kom hann í janúar í fyrra
frá stórliðinu Rosenborg.
Æfði eins og brjálæðingur
„Núna finnst mér eins og það
séu fimm ár síðan ég kom hingað.
Fjölskyldan flutti til mín um sum-
arið og okkur líður vel hérna í
Ósló. Fyrri hluti tímabilsins var
góður fyrir liðið og mér gekk einn-
ig vel. Um sumarið misstum við
leikmenn og seinni hlutinn var
dapur af okkar hálfu. Maður var
því með hugann við það í vetur að
koma sterkur til baka á þessu
tímabili og ég æfði eins og brjál-
æðingur. Mér gekk vel í æfinga-
leikjunum og er heill heilsu. En
svo kemur þessi staða upp og það
er erfiðara að segja núna hvernig
liðið mun standa sig,“ sagði Matt-
hías, en þjálfaraskipti hafa orðið
hjá liðinu. Fráfarandi þjálfari,
Ronny Deila, tók við New York
City FC, liðinu sem Guðmundur
Þórarinsson samdi við í vetur.
Með samning út 2021
Matthías gekk í raðir Start árið
2012 og hefur verið í liðlega átta ár
í Noregi. Er fjölskyldan orðin svo-
lítið norsk eftir þessa dvöl?
„Eitthvað smá en hugurinn er
alltaf heima annað slagið. Sonur
minn verður 12 ára í sumar og
dóttirin varð 6 ára um daginn. Það
er spurning hversu lengi maður á
eftir að haldast í Noregi. Ég ætla
ekki að fela það að ég er aðeins
farinn að hugsa heim. Ég er hins
vegar með samning við Vålerenga
út 2021. Eftir það kemur alveg til
greina hjá okkur að flytja heim,“
sagði Matthías enn fremur.
Fimm æfa saman í einu
með ýmsum skilyrðum
Matthías lagði hart að sér í vetur Hugurinn leitar heim í ríkari mæli
Ljósmynd/Vålerenga
Ósló Matthías Vilhjálmsson á æfingu með Vålerenga við eðlileg skilyrði.
Ítalinn Donato Sabia, sem komst í
úrslit í 800 metra hlaupi á tvennum
Ólympíuleikum í röð, er látinn af
völdum kórónuveirunnar, 56 ára að
aldri. Sabia lést á sjúkrahúsi í Pot-
enza á Suður-Ítalíu. Ólympíunefnd
Ítalíu skýrði frá láti hans og sagði
hann fyrsta íþróttamanninn sem
komist hefði í úrslit á ÓL sem and-
aðist af völdum farsóttarinnar.
Sabia varð fimmti í 800 metra
hlaupi á ÓL í Los Angeles árið 1984
og sjöundi í Seúl fjórum árum síðar.
Hann varð Evrópumeistari innan-
húss í greininni árið 1984.
Afreksmaður
lést á Ítalíu
Reuters
Evrópumeistari Donato Sabia sigr-
aði á EM innanhúss árið 1984.
Ljóst er að sumarið 2022 verður
einstakt hvað stórmót í frjáls-
íþróttum varðar eftir frestun Ól-
ympíuleikanna í Tókýó. HM utan-
húss mun nú fara fram í Oregon
dagana 15.-24. júlí og aðeins 18
dögum síðar hefst Evrópumeist-
aramótið en það verður haldið í
München dagana 11. til 21. ágúst. Á
milli munu Samveldisleikarnir fara
fram í Birmingham á Englandi,
dagana 27. júlí til 7. ágúst, og þar
eru frjálsíþróttir stór liður á dag-
skránni, en 70 þjóðir taka þátt í
þeim leikum.
Sumarið 2022
verður einstakt
AFP
Sprettharður Noah Lyles er einn
besti spretthlaupari Bandaríkjanna.
Handknattleiks-
deild HK til-
kynnti í gær-
kvöld að
leikmenn og
þjálfarar meist-
araflokka félags-
ins myndu ekki
þiggja laun það
sem eftir lifir
tímabilsins
vegna áhrifa
kórónuveirunnar á fjárhag félags-
ins. HK var með lið í efstu deildum
karla og kvenna í vetur, en karla-
liðið féll úr Olísdeildinni á meðan
kvennaliðið var í baráttu um sæti í
úrslitakeppninni. Ekki tókst að
klára keppni í deildunum vegna
veirunnar. „Á þessum erfiðu tímum
er nauðsynlegt að vinna vel saman
við að finna lausnir á þeim vanda-
málum sem koma upp í okkar
starfi. Nú stöndum við frammi fyrir
heimsfaraldri sem hefur áhrif á alla
heimsbyggðina og því ekkert sem
við getum annað en tæklað þetta
vandamál með jákvæðni og von um
betri tíma að leiðarljósi.
Í þessum erfiðu aðstæðum hafa
leikmenn og þjálfarar í meistara-
flokki HK ákveðið að þiggja ekki
sín laun það sem eftir lifir þessa
keppnistímabils,“ segir í yfirlýs-
ingu Brynjars F. Valsteinssonar,
formanns handknattleiksdeildar
HK.
Leikmenn og
þjálfarar HK
afþakka laun
Valgerður Ýr
Þorsteinsdóttir
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester Unit-
ed, segir að félag sitt verði í góðri stöðu til að styrkja sig á
leikmannamarkaðnum þegar félagaskiptaglugginn verð-
ur opnaður í sumar. Fjárhagsstaðan er góð þrátt fyrir
hremmingar kórónuveirunnar og félagið varð það fyrsta
á Englandi til að þess að hafna þeim möguleika að fá rík-
isaðstoð til að greiða starfsfólki sínu laun.
„Fótboltinn kemst aftur á eðlilega braut á einhverjum
tímapunkti og það er mjög mikilvægt að þá verðum við
klárir í slaginn. Við viljum alltaf vera bestir og nú gefst
auðvitað tækifæri til að verja meiri tíma til að ræða um
leikmenn, gera áætlanir og meta hvað við höfum þörf fyr-
ir. Hver veit hvernig markaðurinn kann að breytast og bregðast við eftir
þetta? Hver veit hvaða félög þurfa að selja leikmenn? Það getur komið upp
staða sem hægt er að nýta sér og ég veit að við hjá Manchester United erum í
einna bestu fjárhagsstöðunni,“ sagði Norðmaðurinn við Sky Sports.
Bjartsýnn fyrir sumarið
Ole Gunnar
Solskjær
Enn einn ungi leikmaðurinn er á leið til Víkings í Reykja-
vík frá erlendu félagi, en samkvæmt fotbolti.net kemur
Kristall Máni Ingason til Fossvogsliðsins í láni frá FC
Köbenhavn í Danmörku.
Kristall Máni er 18 ára gamall sóknarmaður sem lék
með Fjölni í yngri flokkunum og var kominn fimmtán ára
inn í hóp meistaraflokks félagsins. Hann hefur verið í röð-
um danska félagsins í hálft annað ár og hefur spilað 30
leiki með yngri landsliðum Íslands. Kristall er fæddur ár-
ið 2002, en hann lék ekki með meistaraflokki Fjölnis áður
en hann hélt til Danmerkur.
Víkingar fengu Atla Barkarson frá Fredrikstad í Nor-
egi í vetur og síðustu misserin hafa Ágúst Eðvald Hlynsson, Júlíus Magnús-
son, Atli Hrafn Andrason og Óttar Magnús Karlsson komið til félagsins frá
erlendum félagsliðum, sem og Guðmundur Andri Tryggvason sem var í láni
frá Start á síðasta tímabili en er farinn aftur til Noregs.
Kristall Máni á leið í Víkina
Kristall Máni
Ingason