Morgunblaðið - 09.04.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Barnabókahöfundurinn Snæbjörn
Arngrímsson, sem er margreyndur
bókaútefandi hér á landi og í Dan-
mörku, þar sem hann er búsettur,
bendir lesendum á vænlega afþrey-
ingu á undarlegum tímum:
„Þegar menningardeild Morgun-
blaðsins hafði samband og bað mig
að mæla með ein-
hverju góðu og
huggandi menn-
ingarefni á
krepputímum sat
ég fyrir tilviljun í
járnbrautarlest á
leið frá Kaup-
mannahöfn og
fylgdist með ung-
um föður lesa
sögu um Einar
Áskel fyrir lítinn
son sinn. Báðir virtust þeir jafn hug-
fangnir af sögunni um Einar Áskel
og baráttu hans við slaufurnar.
Sjálfur sogaðist ég inn í sögulestur
hins unga föður og ferðin meðfram
strandlengju Norður-Sjálands leið
furðu hratt. Ég hugsaði með mér
hvað bækurnar um Einar Áskel
væru góð leið til að skemmta, róa og
gleðja lítil börn.
Ég get ekki nógsamlega mælt
með bókunum um Einar Áskel, en
lestur þeirra er oft fyrsta skref til að
búa til lestrarhesta framtíðarinnar.
Ef foreldri vill gera barni sínu gott í
sóttkvínni er tímanum sannarlega
vel varið við lestur á Einar Áskeli.
Ef foreldrar hafa hins vegar ekki
tíma til að lesa sjálf fyrir eldri börn
sín er til frábær lestur Jóhanns Sig-
urðarsonar á öllum Harry
Potter-bókunum á Story-
tel. Upplestur þessara
sjö bóka tekur senni-
lega 140 klukku-
stundir og þegar
þeim lestri er lokið
ætti baráttunni við
vírusinn að vera lokið
og öll börn geta þá farið
út í fótbolta eða elting-
arleik.
Sjálfur hef ég ver-
ið að hlusta á plötu
Damon Albarn,
Everyday’s Robots
sem ég er nýbúinn
að uppgötva. Platan
var valin hljómplata
áratugarins í einu af
dönsku blöðunum og það
er ekki erfitt að skilja, því
Damon Albarn er sérlega
góður lagahöfundur og sem-
ur bæði grípandi og flottar
melódíur. Platan kom mér
þægilega á óvart og ég held
að flestir geti haft gaman af
þessari fínu plötu í bæði með
vinnunni á heimakontórnum og und-
ir eldamennskunni.
Fyrir fótbolta-
áhugamenn sem
fá ekki sinn
skammt af
fótbolta um
þessar mund-
ir eru frábærir
heimildar-
þættir á Netflix
sem heita
Sunderland till I
die I & II og
fjalla þeir um
fótboltalið
verkamanna-
bæjarins Sun-
derland á
Englandi og
baráttu þess við
að komast aftur upp í
efstu deild. Bæj-
arbúar og stuðnings-
menn félagsins lifa og
deyja fyrir félagið og
er árangur liðsins eilíf
vonbrigði sem bætist
ofan í eymdina sem
fylgir vaxandi atvinnu-
leysi og fólksflótta frá Sunderland.
Þetta eru stórfínir þættir fyrir alla
áhugamenn um fótbolta.
Og að lokum tvær bækur. Ég sá
að Hnífur Jo Nesbø er kominn á
ókeypis hljóðbók hjá Forlaginu. Jo
Nesbø er einn albesti glæpasagna-
höfundur sem ég hef lesið og hljóð-
bók í göngutúrnum með sögu eftir
Jo Nesbø er stórgóð skemmtun.
Hin bókin sem er góð á náttborðið
er bók sem sennilega hefur farið
framhjá mörgum en hún kom þó út
fyrir jól á Íslandi og heitir Menntuð
og er eftir Tara Westover. Þetta er
ævisaga ungrar konu sem elst upp
hjá strangtrúaðri mormónafjöl-
skyldu í Bandaríkjunum og er hreint
frábær.“
Mælt með í samkomubanni
Einar, Potter, Albarn,
Sunderland og Nesbø
Snæbjörn
Arngrímsson
Damon Albarn
Einar
Áskell
Jo Nesbö
Ævintýri Hljóðbókaútgáfur af Harry Potter á íslensku stytta stundir. Hér
má sjá stillu úr einni kvikmyndanna um galdrastrákinn og vini hans.
Hver er ég og hver ert þú,hver er sökudólgurinnog hver er brotaþolinneru spurningar sem
vakna við lestur sálfræðitryllisins
Þú eftir Caroline Kepnes, þó að ekki
fari á milli mála hver sé djöfullinn í
mannsmynd.
Sagan er óvenjuleg að mörgu
leyti. Helstu persónur eru hver ann-
arri ruglaðri, hver á sinn hátt, og
Caroline Kepnes
tengir þær saman
og aftengir á
skemmtilegan
hátt, ef þannig
má komast að
orði, með stöð-
ugum samlík-
ingum við per-
sónur í öðrum
ritverkum og
myndböndum.
Hætt er við að lesandinn ruglist á
öllum beinu og óbeinu tilvitnunum
og svo langt gengur höfundur í
þessu efni að ein persónan spyr hver
sé Lena Dunning þegar umræðan
snýst um fatastíl Lenu Dunham!
Joe Goldberg, bóksali í New York,
segir söguna og leiðir lesandann eft-
ir sínu höfði. Þegar háskólaneminn
Guievere Beck, sem á sér þann
draum að verða rithöfundur, kemur í
bókabúðina kolfellur hann fyrir
henni og í hönd fer tími, þar sem
hann beitir öllum brögðum, sem til
eru í bókinni, til þess að ná henni á
sitt band, að komast yfir hana.
Sveitastúlkan Beck vill ekki sýnast
auðveld bráð og þegar leikurinn
stendur sem hæst er ekki auðvelt að
sjá hver er kötturinn og hver músin.
Sagan er um ungt fólk, sem nýtur
lífsins, ýmist saman eða í sundur,
eins og gengur. Kynlíf og draumar
um það eru ofarlega í huga nokk-
urra, sumir lifa í vellystingum og
aðrir rétt draga fram lífið í stórborg-
inni, sem stendur ekki undir þeirri
fullyrðingu að New York sé borgin
sem aldrei sefur. Helstu persónur
eiga sér leyndar þrár og eru ekki all-
ar þar sem þær eru séðar. Caroline
Kepnes spilar á þessar mörgu hliðar
eins og Víkingur Heiðar á píanóið og
ekki þarf að spyrja að útkomunni.
Frásögnin er vægast sagt
óhugnanleg og lesendur geta ekki
annað en efast um samfélagsmiðla
eftir að hafa fylgst með því við
lesturinn hvað auðvelt er að skyggn-
ast inn í líf annarra án þeirra vit-
undar á þessum miðlum. Sjónvarps-
áttaröð byggð á bókinni á Netflix
ýtir enn frekar undir það.
Kepnes „Frásögnin er vægast sagt
óhugnanleg,“ skrifar rýnir.
Leikur kattarins að
músinni eða öfugt
Spennusaga
Þú bbbbn
Eftir Caroline Kepnes.
Þórdís Bachmann þýddi. Ugla 2019.
Kilja. 428 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Bókin Tengdadóttirin eftir Guð-
rúnu frá Lundi, sem kom fyrst út
1952-1954 í þremur bindum og átti
miklum vinsældum að fagna, hefur
verið endurútgefin af Forlaginu og
út er komin fyrsta bindið, Á kross-
götum. Í bókinni segir af ástum og
örlögum jafnt sem daglegu lífi til
sveita í byrjun 20. aldar, að því er
fram kemur í tilkynningu. „Þorgeir
Þorgeirsson, ungur sjómaður að
sunnan, ræður sig sem vinnumann
á prestssetur í blómlegri norð-
lenskri sveit. Hann hrífst af falleg-
ustu vinnukonunni á bænum en hik-
ar við að bindast henni af því að
hann hræðist líf í fátækt. Á heim-
leið um haustið leysir hann af slas-
aðan vinnumann
á stórbýlinu
Hraunhömrum.
Bóndinn þar á
tvær dætur og sú
eldri, Ástríður,
er harðákveðin í
að sleppa Þor-
geiri ekki aftur
suður. Þótt Ást-
ríður sé röggsöm
og forkur til vinnu er hún ekki
heillandi kona – en auður föður
hennar freistar,“ segir um efni
bókarinnar og að Guðrún hafi haft
einstakt lag á að gæða persónur
sínar lífi svo lesandinn hverfi um
hundrað ár aftur í tímann.
Tengdadóttirin endurútgefin
Guðrún frá Lundi