Morgunblaðið - 28.04.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Your Shoes
11.995
Stærðir 36-42
Netverslun
www.skornir.is
Mjúkir sandalar úr leðri • Vídd stillanleg með riflásum
Logi Einarsson, formaður Sam-fylkingarinnar, var gestur
Víglínunnar á sunnudag og er
óhætt að segja að hann hafi með
málflutningi sínum fært víglínuna
vel til vinstri. Logi
lét þess getið í
þættinum að í
augnablikinu væri
„ríkið langlang-
langstærsti atvinnu-
rekandi landsins,“
en hann dró ekki þá
ályktun af þessum
miklu umsvifum að fara bæri var-
lega í frekari útþenslu ríkisins.
Þvert á móti sá hann mikil „tæki-
færi“ í því að fjölga starfsmönnum
þess enn frekar.
Formaður Samfylkingarinnartelur að „við getum notað
þetta tækifæri“, sem kórónuveiru-
faraldurinn gefur, til að „vinda of-
an af veikleikum í grunnþjónustu
okkar“.
Þessir veikleikar koma að matiLoga fram í allt of fáum ríkis-
starfsmönnum og þess vegna talaði
hann ítrekað um það í þættinum að
það ætti að „nýta tækifærið“ núna
til þess að fjölga opinberum störf-
um og nefndi sérstaklega saksókn-
araembætti og eftirlitsstofnanir
sem dæmi um ríkisstofnanir þar
sem fjölga þyrfti starfsfólki!
Þá blés formaður Samfylking-arinnar á það sjónarmið að
„það væri einkareksturinn sem
stæði undir verðmætasköpun“.
„Þetta er auðvitað svo mikil fá-
sinna,“ sagði hann.
Ekki er vitað hvort Logi áttieftir þáttinn fund um samein-
ingu með formanni Sósíalista-
flokksins, en eftir þáttinn liggur þó
fyrir að málefnaágreiningur stend-
ur ekki í vegi fyrir slíkum við-
ræðum.
Logi Einarsson
Samfylkingar-
flokkur alþýðu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Afbókunum skemmtiferðaskipa til landsins fjölg-
ar hægt og bítandi enda ríkir mikil óvissa um það
hvenær skipin hefja siglingar á nýjan leik.
Þær upplýsingar fengust hjá Faxaflóahöfnum í
gær að búið væri að afbóka 48 skipakomur til
Reykjavíkur í sumar. Eftir stendur 141 bókun en
a.m.k. einhverjar þeirra munu falla út ef að líkum
lætur. Allar skipakomur í apríl og maí falla niður.
Fyrsta bókunin sem enn stendur er skipið
AIDAaluna, sem skráð er í Sundahöfn 6. júní.
Stórar útgerðir skemmtiferðaskipa hafa verið
að birta tilkynningar um að þau hafi seinkað
áformum um að hefja áætlunarsiglingar að nýju.
Þessar siglingar lögðust alveg af eftir að covid-19
fór að berast um heimsbyggðina. „Ég reikna ekki
með að neinar ábyrgar áætlanir skili sér fyrr en
lönd fara að opna landamæri og þegar sóttvarna-
reglur á hverjum stað fara að birtast,“ segir Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir ferða-
þjónustufyrirtæki og hafnir landsins. Könnun sem
gerð var 2018 leiddi í ljós að tekjur af skemmti-
ferðaskipum voru 16,4 milljarðar. sisi@mbl.is
Afbókunum skipa fer fjölgandi
Alger óvissa um sigl-
ingar skemmtiferðaskipa
Morgunblaðið/sisi
Sundahöfn Óvissa er um hvenær skip koma á ný.
„Við viljum opna sem fyrst enda er
hægt og bítandi að færast aftur líf í
miðbæinn. Við bíðum bara eftir því
að fá leyfi til að opna á ný,“ segir
Gunnar Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Kolaportsins.
Lokað hefur verið í Kolaportinu
frá því um miðjan mars. Nú þegar
samkomubanni verður aflétt í næstu
viku sjá Gunnar og hans fólk fram á
að breyting geti orðið þar á.
„Við þurfum að ráðfæra okkur
við Almannavarnir um hvort við
getum opnað strax eftir fjórða maí
eða hvort við þurfum að bíða leng-
ur. Við hljótum í það minnsta að
geta opnað 1. júní þegar slakað
verður á reglum um fjölda fólks sem
má koma saman,“ segir Gunnar.
Hann kveðst aðspurður ekki bú-
ast við því að fækka þurfi básum í
Kolaportinu. „Ætli við reynum ekki
að hafa einhverja aðgangsstýringu.
Við erum með fjóra innganga svo
það ætti að vera hægt að skipta hús-
næðinu upp. Fólk er orðið mjög
meðvitað um tveggja metra regluna
og ef það verða merkingar á gólfum
ætti það ekki að verða vandamál.
En þetta verða sérfræðingar í al-
mannavörnum að meta.“
hdm@mbl.is
Búast má við að skipta
þurfi Kolaportinu upp
Morgunblaðið/Eggert
Kolaportið Vonast er til að opna megi aftur bráðlega með aðgangsstýringu.