Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 13
AFP Til starfa Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sneri aftur til starfa í gærmorgun og ávarpaði þá fulltrúa fjölmiðla við Downingstræti 10. Boris Johnsen sneri aftur til starfa sem forsætisráðherra Bretlands í gærmorgun. Honum var ekið í ómerktum bíl að bústað sínum við Downingstræti og fór inn um bak- dyrnar. Nokkru seinna kom hann út um aðalinnganginn og ávarpaði full- trúa fjölmiðla stuttlega. Hann var lítillátur í tali og baðst afsökunar á því að hafa þurft að vera fjarverandi að undanförnu, en hann smitaðist sem kunnugt er af kórónuveirunni og var mjög alvarlega veikur á gjör- gæslu um tíma. Sumir fjölmiðlar höfðu gefið því undir fótinn að hann myndi í fyrstu yfirlýsingu sinni rýmka eitthvað þær takmarkanir sem breskt þjóðlíf býr nú við en sú varð ekki raunin. Forsætisráð- herrann sagði að þjóðin stæði frammi fyrir stærsta verkefni sínu síðan í heimsstyrjöldinni. Bretar væru að ná árangri og það væri ósk sín að efnahagur landsins gæti rétt við hið fyrsta. Hann ætlaði hins veg- ar ekki að fórna lífi og heilsu fólks með því að slaka á útgöngubanninu og öðrum takmörkunum of snemma. Boris Johnson á ný við stjórnvölinn  Engin stefnubreyting við komu hans FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Spurningar hafa vaknað um það hvað búi að baki aðstoð sem Rússar hafa veitt Ítölum í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Því hefur verið haldið fram að um sé að ræða áróðursbragð og tilraun til þess að hafa áhrif á afstöðu ítalskra stjórn- valda í utanríkismálum. Er við- skiptabann Evrópusambandsins (ESB) á Rússland sérstaklega nefnt í því sambandi. Í lok mars, þegar samstarfsríki Ítala í ESB treystu sér ekki til að rétta þeim hjálparhönd þegar þeir báðu um lækningatæki og hlífðar- búnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk sitt vegna faraldursins, sendu Rússar þeim talsvert af slíkum búnaði flug- leiðis, þar á meðal öndunarvélar, og sóttvarnarefni ásamt 122 heilbrigð- isstarfsmönnum úr hernum. Rússar hafa á undanförnum árum ræktað náið tengsl við Ítalíu og látið sér vel lynda stjórnmálalaupplausnina í landinu, þar sem lýðflokkar og vald- boðssinnar lengst til hægri og vinstri hafa sótt í sig veðrið á kostnað hefð- bundinna stjórnmálaafla. AFP-fréttastofan hafði eftir Tod Wolters, hershöfðingja hjá NATO, að honum litist ekki á viðveru manna úr rússneska hernum á Ítalíu. Ástæða væri til að fylgjast náið með framgöngu Rússa. Mikill auglýsingabragur Athygli hefur vakið að rússnesk stjórnvöld hafa sett mikinn auglýs- ingabrag á aðstoð sína með því að gera mikið úr henni í rússneskum fjölmiðlum og gefa henni heitið „Með ástarkveðju frá Rússlandi“. Hafa þeir látið draga rússneska fánann að hún við sjúkrahús í Bergamo-héraði þar sem rússneska heilbrigðisstarfs- fólkið er. Í Bergamo hefur kórónu- veiran verið skæðust á Ítalíu. Í lok mars greindi ítalska dagblað- ið La Stampa frá því að það hefði heimildir fyrir því innan úr kerfinu að 80% af hlífðarbúnaðinum sem Rússar sendu væru ónothæf. Rússar brugðust ókvæða við en ítölsk stjórnvöld hafa ekki borið fréttina til baka. Vissi að hermenn fylgdu Segei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur fullyrt að beiðni um alhliða aðstoð frá Rússlandi, sem m.a. felur í sér þátttöku fólks í hern- um, hafi komið frá Guiseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, eftir að stjórninni var neitað um hjálpartæki frá Evrópusambandinu. Conte hefur engu svarað um þetta atriði. Ljóst er að ráðamenn ESB eru lítt kátir yfir þessum þætti rússnesku aðstoðar- innar og gæti það haft á fjárhagslega aðstoð sambandsins við Ítalíu. Innan NATO telja menn ekki ólíklegt að í rússnesku hjálparsveitinni séu m.a. leyniþjónustumenn sem afla eiga viðkvæmra upplýsinga. Fyrst og fremst er þó talið um sé að ræða áróðursbrellu sem styrkja eigi stöðu Rússlands og Pútíns í almennings- álitinu á Ítalíu og Vesturlöndum sem og heima fyrir. Að auki gæti aðstoðin gagnast við að skapa þrýsting á stefnubreytingu Ítala í utanríkis- og öryggismálum. „Með ástarkveðju frá Rússlandi“  Mikill áróðursbragur þykir á aðstoð Rússa við Ítali vegna veirufaraldursins  Hagnýta sér upplausn í ítölskum stjórnmálum og vandræðagang ESB  Hlífðarbúnaður Rússa talinn að mestu ónothæfur Það var líf og fjör við Vikåsen-grunnskólann í Þrándheimi í Noregi í gærmorgun þegar nem- endur á aldrinum 6 til 10 ára fengu loks að mæta aftur eftir sex vikna veirufrí. Þess er þó gætt að þeir virði tveggja metra fjarlægð sín á milli og gleymi ekki handþvotti. Í næstu lotu fá eldri nem- endur að snúa aftur. Norðmönnum hefur orðið vel ágengt í að ná tökum á kórónuveirufaraldrinum en ætla sér að fara að öllu með gát á næstunni. AFP Vor í lofti þegar norsk börn sneru aftur í skóla Í dymbilvikunni var hllutfall látinna í Svíþjóð hærra en nokkru sinni áður á öldinni. Þetta sýna bráðabirgðatöl- ur frá hagstofu landsins sem sænska ríkisútvarpið birti í gær Alls létust 2.550 manns í þeirri viku. Það eru nær 150 fleiri dauðsföll en næstmest mælda dánartíðni á einni viku, sem var 2.364 dauðsföll í fyrstu viku árs- ins 2000. Dauðsföll voru líka óvenjumörg í 14. og 16. viku þessa árs, í fyrri vik- unni létust 2.354 og í hinni síðar 2.310. Hagstofan vinnur að því að kanna og birta upplýsingar um dán- artölur til að stjórnvöld, sem nú glíma við hina skæðu kórónuveiru, geti betur áttað sig á þróuninni. Stefna Svía hefur þótt skera sig nokkuð frá stefnu nágrannaland- anna hvað varðar samkomutak- markanir og hefur það orðið tilefni harðra deilna innanlands. Aldrei fleiri látist í Svíþjóð  Sögulegt hámark í dymbilvikunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.