Morgunblaðið - 28.04.2020, Blaðsíða 11
11KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
GRAFÍSK HÖNNUN
Lógó
bréfsefni
bæklingar
myndskreytingar
merkingar ofl.
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Í sumarbyrjun ár hvert er eim-
reiðin Minør tekin úr geymslu og
hún sett upp á miðbakkanum við
gömlu höfnina í Reykjavík. Þessi
gamla eimreið hefur ætíð vakið
mikla athygli, bæði Íslendinga og
erlendra ferðamanna. Ekki síst
hefur hún vakið gleði hjá börn-
unum.
Að þessu sinni var Minør ekki
sett upp á sumardaginn fyrsta
eins og vanalega. Nú standa yfir
miklar framkvæmdir á hafnar-
svæðinu og verður eimreiðin sett
upp eins fljótt og mögulegt verður.
Í ár eru 103 ár liðin síðan eim-
reiðarnar Minør og Pioner luku
verki sínu við gerð gömlu hafnar-
innar í Reykjavík. Eimreiðin Min-
ør hefur ávallt verið í vörslu Faxa-
flóahafna yfir vetrartímann en
Pioner hefur verið varðveitt allt
árið á Árbæjarsafni. Eimreiðarnar
voru keyptar hingað til lands
vegna hafnargerðar, sem hófst á
fyrri hluta síðustu aldar. Þær
fluttu grjót, aðallega úr Öskjuhlíð.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Miðbakki Það vekur ætíð gleði þegar Minør kemur á sinn stað við höfnina.
Gömlu eimreiðinni
við höfnina seinkar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í sparnaðarskyni hefur verið gripið
til þess ráðs hjá stóru rútufyrir-
tækjunum að taka bíla af skrá, enda
engir ferðamenn
á landinu og
verkefnin engin.
Hjá Kynnisferð-
um hafa alls 85 af
90 bílum sem
notaðir eru
vegna ferðaþjón-
ustunnar verið
teknir af númer-
um og standa
margir þeirra við
höfuðstöðvar
fyrirtækisins við Klettagarða í
Reykjavík. Með þessu geta fyrir-
tæki sparað sér bifreiðagjöld og ið-
gjöld trygginga sem eru talsverðar
upphæðir.
Tekið vel í bremsurnar
„Við ætlum að komast í gegnum
þessar þrengingar enda höfum við
tekið vel í bremsurnar og dregið úr
kostnaði,“ segir Björn Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Kynnisferða.
„Í núverandi stöðu hjálpar okkur
að vera með samning við Strætó
bs.; við erum með 50 strætisvagna í
útgerð og þó svo dregið hafi verið
úr þeim akstri fáum við þó tekjur.
Fyrirtækið er ekki alveg súrefnis-
laust, þótt staðan sé þröng.“
Hjá Gray Line, sem á 56 bíla, er
aðeins einn á númerum, lítil átta
manna rúta. „Starfsemin fór öll í
frost um miðjan mars og tekjufallið
í starfsemi okkar er 100%. Staðan
er mjög þröng. Flestir okkar starfs-
menn, sem eru um 120 talsins, eru
komnir í hlutastarf,“ segir Þórir
Garðarsson stjórnarformaður.
„Ákjósanlegast væri auðvitað að
geta losað um ráðningarsamband
við starfsmenn. Margir hafa hins
vegar langan uppsagnarfrest og að
borga alla starfsmenn út myndi
kosta okkur um 400 milljónir króna.
Slíkt er okkur ógerlegt rétt eins og
að hafa fólk í 25% starfshlutfalli
þegar tekjurnar eru engar. Ríkið
þarf því að koma til móts við okkur
þarna með einhverju móti.“
Í flota Sérleyfisbíla Akureyrar
eru alls 80 bílar og 67 af þeim hafa
verið teknir af skrá. Fyrirtækið er
með starfsemi bæði nyrðra og fyrir
sunnan, en stór flotastöð er í Hafn-
arfirði. Þar á planinu standa nú um
30 rútur sem allar hafa verið teknar
úr umferð. „Við gripum til þessa
ráðs strax um miðjan mars þegar
reglur um samkomubann voru sett-
ar og lokað fyrir flug til og frá land-
inu. Reksturinn hjá okkur er stopp,
nema minniháttar verkefni við
skólaakstur hér á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Þetta er hrikaleg staða og
ferðaþjónustan kemst að mínu mati
ekki í gang aftur fyrr en að ári,“
segir Gunnar M. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri SBA. Um 40
fastir starfsmenn eru hjá fyrir-
tækinu og er þorri þeirra kominn í
skert starfshlutfall.
Væntum þess besta
Aðeins fjórir bílar af 32 hjá Snæ-
land Grímsson ehf. eru á númerum
þessa dagana. „Við sáum ekki vit í
örðu en taka bílana af skrá meðan
þetta gengur yfir,“ segir Hallgrím-
ur Lárusson framkvæmdastjóri.
„Sem sakir standa erum við í al-
gjörri óvissu. Búum okkur undir
það versta og vonum það besta.
Þetta eru mjög óvenjulegar að-
stæður.“
Hundruð rútubíla tekin af skrá
Rútuflotinn er númerslaus Fyrirtækin losa sig við bifreiðaskatta og tryggingaiðgjöld Starfsemin
í frosti Við ætlum að komast í gegnum þessar þrengingar, segir framkvæmdastjóri Kynnisferða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kynnisferðir Fyrirtækið á og rekur alls 90 rútur og 85 af þeim hafa verið teknar úr notkun og númeraplötum skilað. Flotinn er í geymslu við höfuðstöðvar fyrirtækisins í Sundahöfn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
SBA Við flotastöðina í Hafnarfirði eru tugir bíla á biðstæðum og framhaldið í starfseminni mjög óljóst.
Björn
Ragnarsson